15
GV
Fréttir
Rimaskóli vann æsispennandi grunnskólahlaup Á Grafarvogsdaginn 2. júní, í glampandi sól og hita, var Grafravogshlaupið á milli allra grunnskólanna í Grafarvogi þreytt á grasflötum Gufunesbæjar. Þetta var í 8. sinn sem keppt er í þessu skemmtilega hlaupi og að þessu sinni var spennan mögnuð allan tímann á milli spretthörðustu sveitanna. Lengi vel voru það Hamraskóli og Vættaskóli sem leiddu hlaupið en í lokin voru það nemendur Rimaskóla, sigurvegarar hlaupsins frá upphafi, sem gáfu allt í og sigruðu örugglega. Fjölmargir áhorfendur skemmtu sér vel og hvöttu sína skóla af dugnaði. Það eru nemendur 1. 7. bekkjar sem mynda hlaupalið frá hverjum skóla, ein stúlka og einn drengur úr hverjum árgangi. Grafarvogshlaupið var hluti af dagskrá glæsilegrar hverfishátíðar í blíðviðrinu 2. júní. Rimaskólakrakkarnir undir stjórn Eyrúnar Ragnarsdóttur íþróttakennara hafa alltaf hlaupið til sigurs og í hvert sinn undir hennar stjórn. Nemendur Hamraskóla undir stjórn Erlu Gunnarsdóttur náðu öðru sæti í keppninni. Nemendur og aðstandendur Rimaskóla fögnuðu vel og lengi glæsilegri frammistöðu krakkanna en mikil hlaupahefð
Hjálmur skiptir höfuðmáli
Undir lok maímánaðar s.l. heimsóttu Kiwanismenn úr Höfða, Grafarvogi alla skólana í Grafarvogi og færðu öllum börnum í 1. bekk grunnskálanna reiðhjólahjálm að gjöf, en Kiwansikl. Höfði hefur s.l. 12 ár fært börnum á fyrrgreindum aldri í Grafarvogi, hjálma að gjöf. Síðustu 9 árin hefur Kiwanishreyfingin í samstarfi við Eimskipafélagið unnið saman að þessu góða verkefni á landsvísu en 1. bekkur í ár er um 4300 börn á landinu , en í heild munu um 35 þúsund börn fengið reiðhjólahjálma í gegnum þetta samstarfsverkefni þessara aðila. Verkefnið er unnið í þeim tilgangi að stuðla að auknu öryggi yngsta hjólreiðafólksins sem mörg hver eru að stíga sín fyrstu spor í umferðinni þessa dagana. Kiwanismenn fóru vel yfir öll öryggisatriði og stillingu og meðferð reiðhjólahjálmanna og hvöttu börnin til þess að fá foreldra sína til þess að aðstoða þau við að stilla hjálminn vel á höfuðið, þannig að þeir gerðu það gagn sem þeim er ætlað. Kiwanisklúbburinn Höfði, sem var stofnaður 1990 , en Kiwanishreyfingin er hópur fólks, sem hefur áhuga á að taka þátt i að bæta samfélagið og láta gott af sér leiða. Kiwanismenn í Höfða hafa unnið að mörgum öðrum verkefnum í þágu barna og ungmenna í gegnum árin m.a. Sérnámsbraut Borgarholtsskóla, Gylfaflöt dagþjónusta og Stuðlar svo eitthvað sé nefnt auk sértækra verkefna Kiwaniskl. Höfði
er meðal nemenda skólans. Degi áður, á Vorhátíð skólans, var Rimaskólahlaupið háð með þátttöku meirihluta nemenda á barnaskólastígi. Skólinn varðveitir áfram glæsilegan bikar keppninnar sem Barnasmiðjan gaf í upphafi árið 2005.
Sigurvegarar Grafarvogshalupsins 2012, boðhlaupssveit Rimaskóla ásamt Eyrúnu Ragnarsdóttur íþróttakennara og Helga Árnasyni skólastjóra.
Eirborgir Öryggisíbúðir við Fróðengi 1-11 í Grafaarvogi Notaleg þjónusta í hlýlegu og glæsilegu umhverfi
g legar íbúðir af ýmsum stærðum, í nálægð við Spöngina. Fallegir garðar og góð bílastæði. ileg þjónustumiðstöð með tengigangi við öryggisíbúðir Eirar verður tekin í notkun fyrri hluta ársins 2014. ggisvöktun allan sólarhringinn, tengd hjúkrunarvakt Eirar. alur og fjölþætt félagsstarf. Sjúkraþj j raþ álfun og dagdeild í nýrri þjónustumiðstöð. Í anddyr ddy i Eirar hjúkrunarheimilis eru teikningar af væntanlegri þjónustumiðstöð við Eirborgir
Búseturéttur að hluta og/eða leiga.
Aðstoðað err við val á hagstæðum búseturéttar± og/eða leiguk kjöru jö jörum. Ásta Jónsdóttir og Jóhann Þór Sigurbergsson Þegar við keyptum íbúð í Eirborgum leituðum við efftir öryggi og tryggri þjónuustu. Við teljum öryggisíbúðir eins og reknar eru af Eir vera bestu lausnina í búsetum málum eldri borgara. Þeir sem þurrfa á slíku úrrræði að halda ættu ekki draga of lengi að ffllytja í svona íbúðir. Okkk kar reynsla af þjónuustu og starfsemi Eirborga er mj mjög góð. Allt starfsfólk Eirborga fær ágætiseinkunn. Helga Mattína Einarsdóttir og Ólafur Guðnason Þegar við keyptum íbúð í Eirborgum sóttumst við efftir öryggi. Við vorum búin að fá vitneskju um þjónustuna sem yrði í boði. Reynsla okkkkar er mjög góð og heffur staðist væntingar. Starfsfólkið er frábært og leysir úr öllum vanda strax.
Sýning á íbúðum alla virka daga Vinsamlega pantið tíma í síma 522 5700 Eir hjúkrunarheimili sk krrifst@eir.is Ánægðir krakkar með hjálma.