Grafarvogsbladid 5.tbl 2008

Page 14

14

GV

Fréttir

Glæsiíbúð við Ljósavík - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs í Spönginni

Fasteignamiðstöð Grafarvogs í Spönginni er með í sölu glæsilega 97,9 m², 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi í litlu fjölbýli, innarlega í lokaðri götu. Íbúðinni fylgir sér lóð þar sem búið er að útbúa afgirtan sólpall. Einnig er stór sameiginlegur og afgirtur garður.

og skiptist í setu- og borðstofu. Parket á gólfum. Úr stofunni er gengið út á skjólgóðan sólpall. Eldhúsið er afar glæsilegt og með borðkrók. Gólf er flísalagt og einnig er flísalagt á milli skápa. Falleg mahogny innrétting er í eldhúsinu og ná skápar upp í loft. Vönduð tæki frá SMEG.

Komið er inn í flísalagða forstofu með innbyggðum fataskáp. Tvö rúmgóð, parketlögð svefnherbergi eru í íbúðinni og eru bæði með skápum. Baðherbergið er glæsilegt og er það flísalagt í hólf og gólf og með innréttingu, hornbaðkari með nuddi og sturtuaðstöðu, handklæðaofn og hita í gólfi. Þvottaherbergi er innan íbúðar og er gólf flísalagt. Stofan er rúmgóð og björt

Í íbúðinni er öryggiskerfi frá Öryggismiðstöðinni. Nýlegar viðar rimlagardínur eru í flestum gluggum og fylgja þær eigninni. Sér geymsla í sameign. Íbúðin er staðsett í einu af vinsælustu hverfum Grafarvogs þar sem stutt er í Víkurskóla, leikskóla, göngustíga, út á golfvöll og í þjónustukjarnann í Spönginni.

Baðherbergið er glæsilegt og er það flísalagt í hólf og gólf.

Íbúðinni fylgir sér lóð þar sem búið er að útbúa afgirtan sólpall.

Eldhúsið er afar glæsilegt og með borðkrók.

Kæru viðskiptavinir! Sumartilboð á vörum sem leiða okkur inn í sumarið! Sjón er sögu ríkari

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00

Pöntunarsími: 567-6330


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Grafarvogsbladid 5.tbl 2008 by Skrautás Ehf. - Issuu