16
Fréttir
Árbæjarblaðið
Þorsteinn Lárusson fremst á myndinni ásamt sínum mönnum á Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs.
ÁB-mynd PS
Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs 15 ára:
15% afsláttur til 15. nóvember
Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs var opnað þann 1. nóvember 2997. 15 ára afmæli er því innan seilingar eftir nokkra daga og viðskiptavinir fyrirtækisins eiga eftir að verða varir við það. Í tilefni af afmælinu býður Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs viðskiptavinum sínum 15% afslátt frá 15. október til 15. nóvember. ,,Það munur mjög mikið um þennan afslátt og við vitum að þetta á eftir að koma sér vel fyrir okkar viðskiptavini,” segir Þorsteinn Lárusson, eigandi Hjólbarðverkstæðis Grafarvogs í samtali við Árbæjarblaðið. ,,Þegar við opnuðum hjólbarðaverkstæðið 1997 var ekki margt
um manninn hér í Gylfaflötinni. Húsið okkar var þriðja húsið sem tekið var í notkun á þessu athafnasvæði. Það var vissulega ekki mikið að gera til að byrja með en það hefur heldur betur breyst með árunum,” segir Þorsteinn þegar hann rifjar upp fyrstu árin í Gylfaflötinni. ,,Hér fjölgaði fólki og fyrirtækjum mjög ört og við höfum fundið vel fyrir því að þeir sem búa í úthverfunum vilja helst versla sem næst sinni heimabyggð og eiga samskipti við þau fyrirtæki sem eru í hverfinu eða sem næst sínu hverfi,” segir Þorsteinn.
Smurstöð eftir sex ár
,,Árið 2003, sex árum eftir að við opnuðum hjólbarðaverkstæðið, bættum við við okkur smurstöð og fljótlega í framhaldi af því einnig bremsu- dempara- og gormaskiptum. Við erum með mjög gott úrval á lager af olíu- og loftsíum og þannig tilbúnir að þjóna okkar viðskiptavinum,” segir Þorsteinn. - Nú er haustvertíðin framundan í dekkjaskiptunum. Eru þú og þínir menn ekki tilbúnir í slaginn? ,,Jú, við erum algjörlega tilbúnir. Við erum með góðan lager af dekkjum undir fólksbíla og GENERAL TIRE jeppadekkjum sem ég flyt inn sjálfur. Við tök-
um vel á móti öllum okkar viðskiptavinum og svo munar auðvitað mikið um 15% afmælisafsláttinn. Íbúar í Árbæ og Grafarholti vita að hverju þeir ganga hjá okkur og við erum komnir með mjög stóran hóp viðskiptavina sem vill ekki fara neitt annað en til okkar. Við erum mjög ánægð með að geta boðið Árbæingum og íbúum í Norðlingaholti og Grafarholti þennan góða afslátt,” sagði Þorsteinn.
Ekki bara Hjólbarðaverkstæði Þorsteinn Lárusson rekur ekki einungis Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs við Gylfaflöt.
Húsnæði fyrirtækisins er 800 fermetrar og þar er einnig Gúmmísteypa Þ. Lárusson til húsa en starfsemi þess hluta fyrirtækisins er mjög öflug. Gúmmísteypan þjónustar öll álver landsins og verktaka sem eru í malarvinnslu með færibönd. ,,Það er því ljóst að ég og starfsmenn mínir ferðumst vítt og breytt um landið til að sinna þessari þjónustu. Einnig erum við að þjónusta loðnu-, síldar- og netabáta með gúmmívörur. Það halda margir að við séum bara hjólbarðaverkstæði en það er öðru nær,” segir Þorsteinn Lárusson. Við óskum honum til hamingju með afmælið.
Loftmynd af Árbæjarhverfi - líklega tekin fyrir 25 árum síðan Þessi mynd er tekinn snemma vors líklega árið 1987. Takið eftir hlíðinni sunnan við Árbæjarstífluna sem er að mestu gróðurlaus. Fremst á myndinni sést greinilega að sáralítill gróður er kominn í garða. Þarna sést einnig að Ragnheiður Bótólfsdóttir situr enn á óðali sínu. Seinna um sumarið kveikti svo Teddi Óskars í húsinu og var þá hægt að hefjast handa um að klára vellina.