17
Fréttir
Árbæjarblaðið
Sigurjón þekkir Árbæinn betur en flestir aðrir
Sigurjón Þegar gluggað er í sögu Árbæjarhverfisins á sjöunda áratug síðustu aldar og fyrr vekur athygli eitt merkilegt framtak. Snemma bundust íbúarnir samtökum og stofnuðu með sér félag sem hét Framfarafélag Seláss- og Árbæjarhverfis, skammstafað FSÁ. Þetta félag mun hafa verið stofnað 1954 og er ef til vill enn til. Undir lok sjöunda áratugarins var Sigurjón Ari Sigurjónsson formaður í FSÁ. Árbæjarblaðið hafði samband við Sigujón og hann hitti okkur til að ræða málin og rifja upp gamla tíma. Sigurjón flutti í Árbæjarhverfið 1966. Þá stóðu yfir miklar byggingaframkvæmdir
hér og íbúum fjölgaði hratt. Margt var ógert og margt mátti betur fara. Sigurjón var og er þannig stemmdur að hann telur samtakamátt vænlegri til árangurs en að menn séu að brölta hver í sínu horni. Hann fór því fljótlega í það að stofna félag til að vinna í málefnum hverfisins. Þegar hann svo fréttir af Framfara-félaginu lét hann félag sitt sameinasta því og síðan æxlast málin þannig að hann verður formaður í FSÁ. Þegar svo var komið segist Sigurjón hafa einsett sér að gæta þess að félagið yrði ekki pólitískt félag að því hafi stefnan ætíð verið sú að í stjórn félagsins væru fulltrúar allra stjórnmálahreyfinga.
Sigurjón við tréskurð.
- &
1+!
' +,
Í stjórnartíð Sigurjón var FSÁ mjög virkt og beitti sér í mörgum málum. Á þessum tíma var Geir Hallgrímsson borgarstjóri og ber Sigurjón honum vel söguna. Hann segir að Geir hafi haft mikinn áhuga á að hafa sem mest samband við borgarbúa og ekki síst íbúa nýju hverfanna. Hann hafi einhverju sinni misst það út úr sér að Sigurjón mætti hringi í sig heima ef mikið lægi við. Svo fór að Sigurjón nýtti sér þetta þegar mikið flóð kom í Elliðárnar og stóð um tíma tæpt með brýrnar. Komið var fram á kvöld þegar Sigurjóni fannst stefna í óefni og hringdi í Geir. Þegar Geir heyrði hvað um var að vera spurði hann hvað hann gæti gert. Bað Sigurjón þá um að sendir væru, meðam fært væri, tveir lögreglubílar, tveir sjúkrabílar og slökkvuliði yrði gert viðvart. Þetta gekk eftir og telur Sigurjón að þetta hafi verið undanfari þess að um tíma var bæði lögreglustöð og slökkvistöð hér í hverfinu. FSÁ vann í því að hér yrði sérstök kirkjusókn. Félagið beitti sér fyrir því að stofnað var skátafélag og kvenfélag, komið var á fót lúðrasveit barna og stofnað íþróttafélag. Sigurjón sagðist hafa heyrt það að sumir teldu hann stefna að formennsku í öllum þessum félögum, jafnvel kvenfélaginu og þótti honum þá nokkuð djúpt í árinni tekið. Eins og oftast er í nýjum hverfum þar sam mikið er um blokkir fór svo hér að mikið var af börnum og unglingum. Við Rofabæinn var opið svæði sem varð leikvangur barnanna. Þetta var malarvöllur og kallaður sparkvöllur enda fótbolti vinsæll og sú íþrótt sem hvað minnstar kröfur gerði um aðbúnað. Ýmsar hugmyndir voru uppi um nýtingu svæðisins. Talað var um að bæta við röð af blokkum meðfram Rofabænum. Hugmynd um skrúðgarð var líka í umræðunni en íbúarnir vildu halda í sparkvöllinn. Það beindi augum að þörfum barna og unglinga. Hjá FSÁ var Theódór Óskarsson í forsvari fyrir þann málaflokk sem brátt varð svo stór að ekki var talið annað hægt en að stofna um hann sérstakt félag. 1967 var svo Knattspyrnufélag Seláss- og Árbæjarhverfis, KSÁ, stofnað. Þetta félag varð svo Íþróttafélagið Fylkir en nafnbreytingin átti sér stað kringum áramótin 1969 og 1970 . Framfarafélagið beitti sér líka fyrir ýmsum uppákomum og viðburðum. Það kom því á
+2--
Sigurjón Ari Sigurjónsson. Fáir þekkja Árbæjarhverfið betur en hann. ÁB-myndir EÁ að sumardagurinn fyrsti var hátíðisdagur í stóð Sigurjón fyrir kvikmyndasýningum á hverfinu með skrúðgöngu og dagskrá á sunnudögum. Og í þessu litla húsi voru túninu við Árbæ. Var gengið fylktu liði haldin böll fyrir unglingana. niður Rofabæinn með lúðrasveitina í Lengi vel var það svo að unglingarnir í broddi fylkingar og svo skemmti fólk sér á Árbæ sóttu lítið út fyrir hverfið eftir afþreyÁrbæjartúninu. Þá stóð FSÁ fyrir árlegri ingu. Það má leiða líkum að því að hversu fegrunarviku í hverfinu og var það mjög vel tókst til með uppbygging hverfisins sé þarft framtak meðan framkvæmdir voru að hluta til vegna tilvistar Framfara-félagshvað mestar og drasl sem því fylgir út um ins. Þá er ekki eingöngu átt við húsbyggvíðan völl. Ef til vill má rekja það til þessa ingar heldur einnig uppbyggingu mannlífsframtaks hvað hverfið er og hefur alltaf ins. Hér var fljótleg komið öflugt, heilbrigt verið snyrtilegt og umgengni almennt góð. og skemmtilegt mannlíf sem gerði hverfið Ekki má gleyma kvikmyndasýningunum. að mestu leyti sjálfbært. FSÁ kom sér upp húsi sem stóð við Álíka félög voru víðar en ekkert þeirra Hlaðbæ. Þar var aðstaða til fundarhalda og eins langlíft og FSÁ. Flest urðu pólitíkinni skemmtana. Þar fékk dansskóli inni og þar að bráð.
& ; 3 6 3 9+ 7 )!
+
+")&-#
Árbæjarblaðið er lesið á hverju heimili Mest lesni fjölmiðillinn í Árbæ og Grafarholti? Auglýsingarnar skila árangri í Árbæjarblaðinu
587-9500 9
'0( #+
#( + 9,! #+,,)(
S