Arbaejarbladid 11.tbl 2010

Page 10

10

Jól

Fréttir

Árbæjarblaðið

í ILVA

DEAR DEER. 8X11 CM. SNAGI POSTULÍN.

© ILVA Ísland 2010

2.995,-

laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 s: 522 4500 www.ILVA.is

Max1 skiptir þig öllu í dag

Glæsileg og nýlega stækkuð leikfangaverslun Barnasmiðjunnar við Gylfaflöt.

ÁB-mynd PS

Barnasmiðjan stækkar leikfangaverslunina

Eitt elsta fyrirtæki Grafarvogs er Barnasmiðjan ehf en fyrirtækið mun fagna 25 ára afmæli sínu á næsta ári. Barnasmiðjan hefur frá upphafi verið leiðandi á íslenskum útileiktækjamarkaði en fyrirtækið framleiðir útileiktæki undir vörumerkinu Krumma, auk þess að bjóða leikföng og kennslugögn til leik- og grunnskóla og frístundaheimila.

Þriðja grunnstoð fyrirtækisins er smásöluverslun með leikföng og leiktæki fyrir heimahús. Það stóð aldrei til að fara út í smásöluverslun en þörfin fyrir þroskandi og vönduð leikföng er greinilega til staðar. Margir af viðskiptavinum Barnasmiðjunnar eru fastakúnnar sem gera miklar kröfur til þess efniviðar sem þeir gefa börnum. Smásalan hefur því aukist jafnt og þétt í

gegnum árin og í ljósi þess var leikfangaverslunin stækkuð í haust. Auk þess að stækka verslunina var sett upp barnahorn þar sem börn geta dundað sér á meðan foreldrarnir skoða. Það verður boðið upp á englaföndur í barnahorninu í desember og öllum börnum sem koma í heimsókn býðst að föndra engil og taka með sér heim til að skreyta heimilið fyrir jólin.

Fiskidagurinn mikli á Reynisholti

Helgi sjómaður fræðir börnin um fiskana.

Á dögunum kom hann Helgi sjómaður með fiska til okkar í Reynisholt á okkar árlega Fiskideginum mikla. Hann fræddi börnin um fiskana,hvar þeir lifa í sjónum, hversu stórir og gamlir þeir geta orðið og jafnvel hvað þeir borða. Hann sýndi þeim m.a. stóran háf, geirhnit, smokkfisk, búra, keilu, kolkrabba, krossfisk, löngu, krabba og að sjálfsögðu ýsu. Börnin fengu svo að koma við og halda á fiskunum og þurftu sumir að taka á honum stóra sínum til að þora. Þá er nú gott að við séum búin að vinna vel að því að vera hugrökk, en dygðin okkar í vetur er einmitt hugrekki. Að sjálfsögðu var svo fiskur í matinn, soðin ýsa með kartöflum og grænmeti. Í kyrrðarstund fór einn hópur í jóga. Þar fóru börnin í sjóferð og ferðuðust um á bátum að veiða fiska og hákarla. (Frétt og mynd af reykjavik.is)

Þar sem úrvalið er Dýralif.is Stórhöfða 15 S: 5677477


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.