3 minute read

Íþróttafólk Umf. Selfoss frá upphafi

Hugi var valinn íþróttamaður Umf. Selfoss fjögur ár í röð

Annar einstaklingurinn sem var valinn íþróttamaður Umf. Selfoss var Hugi S. Harðarson. Hann var fyrst valinn íþróttamaður ársins árið 1977. Þá stóð valið á milli hans, Tryggva Gunnarssonar knattspyrnumanns og Þráins Hafsteinssonar frjálsíþróttamanns. Hugi var síðan valinn næstu þrjú ár á eftir eða 1978, 1979 og 1980. Hann var því fyrstur til að vera valinn fjórum sinnum. Tveir aðrir íþróttamenn hafa afrekað það sama, Tryggvi Helgason sundmaður og Vésteinn Hafsteinsson frjálsíþróttamaður.

Advertisement

Árið 1978 voru í kjöri, auk Huga, Óskar Reykdalsson frjálsíþróttamaður og Sumarliði Guðbjartsson knattspyrnumaður. Árið 1979 voru í kjöri auk Huga þau Ragnheiður Jónsdóttir, frjálsíþróttakona, Hjalti Sigurðsson badmintonmaður, Einar Jónsson og Tryggvi Gunnarsson knattspyrnumenn og Haraldur Sigurmundsson lyftingamaður. Árið 1980 voru í kjöri, auk Huga, Einar Jónsson knattspyrnumaður, Birgitta Guðjóns-

Hugi S. Harðarson með nokkra verðlaunagripi sem hann vann.

dóttir frjálsíþróttakona og Þórarinn Ásgeirsson handknattleiksmaður.

Íþróttafólk Umf. Selfoss

Hugi S. Harðarson, Tryggvi Helgason og Vésteinn Hafsteinsson.

Einar Gunnar Sigurðsson, Sævar Þór Gíslason og Guðmunda Brynja Óladóttir.

Ingólfur Snorrason, Magnús Aron Hallgrímsson, Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir, Örn Davíðsson, Ágústa Tryggvadóttir, Jón Daði Böðvarsson, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Daníel Jens Pétursson, Elvar Örn Jónsson, Perla Ruth Albertsdóttir og Barbára Sól Gísladóttir.

Steinþór Guðjónsson, Birgitta Guðjónsdóttir, Sigurður Valur Sveinsson, Bjarni Skúlason, Sigríður Anna Guðjónsdóttir, Friðfinnur Kristinsson, Jón Guðbrandsson, Jóhann Ólafur Sigurðsson, Ívar Grétarsson, Hjalti Rúnar Oddsson, Linda Ósk Þorvaldsdóttir, Katrín Ösp Jónasdóttir, Ragnar Jóhannsson, Fjóla Signý Hannesdóttir, Egill Blöndal, Ríkarð Atli Oddsson, Margrét Lúðvígsdóttir, Haukur Þrastarson og Dagur Fannar Einarsson.

Hafsteinsbikarinn

Á aðalfundi Umf. Selfoss 1976 gaf Hafsteinn Þorvaldsson, þáverandi formaður UMFÍ, félaginu bikar sem veita skyldi þeirri deild sem ynni besta félagsmálastarfið.

Félagsmálabikarinn, sem oftast var nefndur Hafsteinsbikarinn, var afhentur nítján sinnum eða frá 1976 til 1994. Sunddeildin fékk bikarinn afhentan fyrst deilda á aðalfundi 20. febrúar 1977 fyrir gott félagsmálastarf á árinu 1976.

Á þessu nítján ára tímabili fengu frjálsíþróttadeild og handknattleiksdeild bikarinn fimm sinnum hvor, knattspyrnudeild fjórum sinnum, sunddeild þrisvar, fimleikadeild einu sinni og körfuknattleiksdeild einu sinni.

UMFÍ-bikarinn

UMFÍ-bikarinn tók við af Hafsteinsbikarnum 1995. Bikarinn er afhentur þeirri deild sem sýnt hefur gott starf innan félagsins. Knattspyrnudeildin fékk hann afhentan 1995 fyrst deilda.

Frá 1995 hefur bikarinn verið afhentur 26 sinnum og hefur knattspyrnudeild oftast fengið hann eða níu sinnum. Handknattleiksdeild hefur fengið hann sex sinnum, fimleikadeild fimm sinnum, frjálsíþróttadeild, sunddeild og taekwondodeild tvisvar hver og júdódeild einu sinni.

Íþróttafólk Umf. Selfoss

2020 Dagur Fannar Einarsson Barbára Sól Gísladóttir 2019 Haukur Þrastarson Barbára Sól Gísladóttir 2018 Elvar Örn Jónsson Perla Ruth Albertsdóttir 2017 Elvar Örn Jónsson Perla Ruth Albertsdóttir 2016 Rikharð Atli Oddsson Margrét Lúðvígsdóttir 2015 Daníel Jens Pétursson Hrafnhildur Hanna Þrastard. 2014 Daníel Jens Pétursson Guðmunda Brynja Óladóttir 2013 Egill Blöndal Guðmunda Brynja Óladóttir 2012 Jón Daði Böðvarsson Hrafnhildur Hanna Þrastard. 2011 Jón Daði Böðvarsson Fjóla Signý Hannesdóttir 2010 Ragnar Jóhannsson Guðmunda Brynja Óladóttir 2009 Sævar Þór Gíslason Ágústa Tryggvadóttir 2008 Sævar Þór Gíslason Katrín Ösp Jónasdóttir 2007 Sævar Þór Gíslason Ágústa Tryggvadóttir 2006 Örn Davíðsson Bergþóra Kristín Ingvarsd. 2005 Örn Davíðsson Linda Ósk Þorvaldsdóttir 2004 Hjalti Rúnar Oddsson Bergþóra Kristín Ingvarsd.

2003 Ívar Grétarsson 2002 Jóhann Ólafur Sigurðsson 2001 Jón Guðbrandsson 2000 Magnús Aron Hallgrímsson 1999 Friðfinnur Kristinsson 1998 Magnús Aron Hallgrímsson 1997 Sigríður Anna Guðjónsdóttir 1996 Ingólfur Snorrason 1995 Bjarni Skúlason 1994 Ingólfur Snorrason 1993 Sigurður Valur Sveinsson 1992 Einar Gunnar Sigurðsson 1991 Einar Gunnar Sigurðsson 1990 Einar Gunnar Sigurðsson 1989 Vésteinn Hafsteinsson 1988 Vésteinn Hafsteinsson 1987 Vésteinn Hafsteinsson 1986 Vésteinn Hafsteinsson 1985 Birgitta Guðjónsdóttir 1984 Tryggvi Helgason 1983 Tryggvi Helgason 1982 Tryggvi Helgason 1981 Tryggvi Helgason 1980 Hugi S. Harðarson 1979 Hugi S. Harðarson 1978 Hugi S. Harðarson 1977 Hugi S. Harðarson 1976 Steinþór Guðjónsson