1 minute read

Selfoss meistari meistaranna 2020

Bikarmeistarar Selfoss og Íslandsmeistarar Vals leiddu saman hesta sína í Meistarakeppni KSÍ í knattspyrnu að Hlíðarenda 6. júní 2020. Selfyssingar báru sigur úr býtum 1:2 og urðu þar með meistarar meistaranna í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Advertisement

Valskonur voru mun sterkari í fyrri hálfleik og komust í 1-0 á 37. mínútu. Valsliðið fékk nokkur góð færi til viðbótar í fyrri hálfleik en Selfyssingar ógnuðu lítið. Staðan var 1-0 í leikhléi. Selfyssingum gekk mun betur að hafa stjórn á boltanum í seinni hálfleik og uppskáru jöfnunarmark strax á 52. mínútu. Tiffany McCarty sneri þá á tvo varnarmenn Vals og lagði boltann glæsilega í netið. Leikurinn róaðist nokkuð eftir þetta en Valur var meira með boltann. Sigurmarkið leit dagsins ljós á 80. mínútu þegar fyrirliðinn Anna María Friðgeirsdóttir lét vaða af 30 metra færi yfir Söndru Sigurðardóttur í marki Vals. Valur fékk færi til að jafna á lokakaflanum en Selfossvörnin hélt og Kaylan Marckese stóð vaktina vel í markinu.

Úr frétt af sunnlenska.is Myndir: Guðmundur Karl

This article is from: