4 minute read

Júdódeild

júdó deild Starfsárið 2020

Nú er árið 2020 liðið með sínum erfiðu þrengslum í samfélaginu. Sumum iðkendum hjá júdódeildinni var greinilega illa við að æfa íþróttina vegna nándar á ákveðnum tímapunktum á árinu. Það er vissulega skiljanlegt í því árferði sem gekk yfir land og þjóð, enda urðum við líka að virða reglur í landinu.

Advertisement

Við horfum til bjartari tíma þar sem bólusetningar eru á næsta leyti og Ísland á góðri leið með að losna við þessa veiru.

Afreksfólk okkar fékk undanþágu ásamt þjálfurum og hefur æft íþróttina í vetur.

Ætlunin var að fara af stað og auglýsa starfið vel á síðasta ári en því miður urðum við að bíða með það í ljósi aðstæðna.

Starfið fór af stað aftur og þjálfarar og þeir sem koma að deildinni stóðu sig með miklum sóma. Við horfum því björtum augum fram á við og stefnum á að deildin rísi vel upp eftir þetta allt saman og verði eftirsótt á komandi ári. Iðkendur okkar hafa staðið sig mjög vel og er tekið vel eftir því á landsvísu hvað deildin er að gera góða hluti.

Að lokum vil ég að þakka öllum sem lögðu sitt af mörkum að láta þetta allt saman ganga upp á þessu erfiðu og skrítnu tímum.

Sveinbjörn Iura og Egill Blöndalá EM 2020 í Prag. Birgir Júlíus Sigursteinsson, formaður júdódeildar

Stjórn júdódeildar kosin á aðalfundi deildarinnar 20. febrúar 2020:

Formaður: Birgir Júlíus Sigursteinsson Gjaldkeri: Margrét Jóhönnudóttir Ritari: Olivera Ilic Meðstjórnandi: Bergur Pálsson Meðstjórnandi: Þórdís Rakel Hansen Varamaður: Arnar Freyr Ólafsson Varamaður: Lóa B. Óskarsdóttir Fulltrúi iðkenda 16–25 ára: Egill Blöndal

Selfyssingarnir á Opna danska mótinu í febrúar f.v.: Egill þjálfari, Hrafn, Böðvar, Breki, Vésteinn og Jakub.

Breki Bernhardsson (hvítur) með Uchimata í æfingabúðum JSÍ á Hellu.

Hrafn Arnarsson úr júdódeild Umf. Selfoss var útnefndur annar af efnilegustu júdókörlum ársins 2020. Sara Nugig Ingólfsdóttir úr júdódeild Umf. Selfoss var útnefnd önnur af efnilegustu júdókonum ársins 2020.

Egill Blöndal í keppni á Heimsmeistaramótinu 2019. Selfyssingar á Opna skoska mótinu í janúar f.v.: Jakub Oskar, Hrafn, Egill og Breki.

Skýrsla yfirþjálfara

Árið 2020 byrjaði mjög vel hjá deildinni. Í janúar fóru keppendur frá Umf. Selfoss til Skotlands og kepptu á Opna skoska meistaramótinu. Þjálfari í ferðinni var Egill Blöndal en hann keppti ekki vegna meiðsla. Keppendur voru Breki Bernhardsson, Hrafn Arnarsson og Jakob Tomczyk. Hrafn hafnaði í 5. sæti í -90 kg U-21 og í opnum flokki hafnaði hann i 7. sæti. Breki keppti -73 kg flokki karla og hafnaði í 9. sæti. Jakob tapaði öllum sínum viðureignum að þessu sinni.

Þann 25. janúar kepptu Úlfur Böðvarsson og Breki Bernhardsson á RIG og unnu til bronsverðlauna. Hrafn og Breki tóku svo þátt í æfingabúðum í Nymburg í Tékkland í mars.

Helgina 8–9. febrúar fór Egill með fimm keppendur til Danmerkur og kepptu þeir á Opna danska í Velje. Keppendurnir voru Vésteinn Bjarnason, Hrafn Arnarsson, Böðvar Arnarsson, Jakob Tomczyk og Breki Bernhardsson. Vésteinn náði lengst af öllum Íslendingunum og var í 2. sæti í -60 kg U15. Aðrir náðu ekki eins langt en unnu ýmist eina eða tvær glímur. Eftir mótið fóru strákarnir í tveggja daga æfingabúðir.

Í mars var komið að þætti Covid-19 sem takmarkaði íþróttastarf mest allt árið.

Þann 4. júní var stúlknamót Íslands haldið í Njarðvík. Margir keppendur tóku þátt og fór Einar Ottó Antonsson með tvo keppendur á mótið. Mia Klith Einarsdóttir keppti í -28 kg og náði bronsi. Amelía Ósk Tryggvadottir vann til gullverðlauna í -24 kg og einnig í silfur í -28 kg flokki.

Egill Blöndal og Einar Ottó Antonsson voru duglegir að setja á heimaæfingar. Æfingar hófust aftur 1. september með hefðbundnu sniði. Þjálfarar voru þeir sömu og á vorönn. Einar Ottó var með yngstu iðkendurna og þeir Egill Blöndal, Bergur Pálsson og Garðar Skaptason með 11 ára og eldri.

JSÍ hélt æfingabúðir á Hellu dagana 25.–27. september og fóru 6 iðkendur frá júdódeildinni þangað. Aftur lokaðist fyrir æfingar og keppni í október en JSÍ fékk undanþágu fyrir nokkra afreksjúdómenn og voru sex þar á meðal frá Selfoss.

Egill Blöndal var valinn til að keppa fyrir Íslands hönd á EM í Prag 16. nóvember. Þar fékk hann mjög sterkan keppanda frá Georgíu, Boka Gvinasihili, sem var í 10. sæti heimslistans en Egill er í 123. sæti. Egill stóð sig vel gegn sínum mótherja en varð að lokum að játa sig sigraðan. Boka var svo í þriðja sæti á mótinu.

Á lokahófi JSÍ sem haldið var í desember voru Hrafn Arnarsson og Sara Nugig Ingólfsdóttir kosin efnilegasta júdófólk ársins sem er góð viðurkenning fyrir starf júdódeildarinnar.

Aðalstyrktaraðilar júdódeildar Umf. Selfoss: JÚDÓ

Egill Blöndal (hvítur) í æfingabúðum JSÍ á Hellu.

Úlfur Þór Böðvarsson (t.v.) og Breki Bernhardsson unnu til verðlauna á RIG í janúar. Mía Einarsdóttir Klith (t.v.) og Amelía Ósk Tryggvadóttir að loknu stúlknamóti Íslands í Njarðvík.

Bergur Pálsson, yfirþjálfari júdódeildar

This article is from: