
5 minute read
Elvar Örn: Ógleymanlegt tímabil á Selfossi
Mynd tekin þegar Íslendingaliðin Skjern og Álaborg áttust við í dönsku deildinni. F.v.: Patrekur Jóhannesson, þáverandi þjálfari Skjern, Elvar Örn Jónsson leikmaður Skjern, Ómar Ingi Magnússon leikmaður Álaborgar, Janus Daði Smárason leikmaður Álaborgar, Björgvin Páll Gústafsson leikmaður Skjern, Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Arnór Atlason aðstoðarþjálfari Álaborgar.
Ógleymanlegt tímabil á Selfossi Elvar Örn
Advertisement
Eftir ógleymanlegt tímabil á Selfossi, sem endaði með Íslandsmeistaratitli vorið 2019, hélt Elvar Örn Jónsson handknattleiksmaður út í atvinnumennskuna til danska liðsins Skjern. Það hafði legið ljóst fyrir frá því í lok árs 2018, en skömmu áður hafði Patrekur Jóhannesson, þáverandi þjálfari Selfoss, samið við danska liðið. Hjá Skjern hitti Elvar Örn einnig fyrir landsliðsmarkvörðinn Björgvin Pál Gústavsson.

Elvar Örn hefur verið afar öflugur fyrir Skjern frá því að hann kom þangað. Hann hefur skorað 92 mörk og átt 39 stoðsendingar það sem af er tímabili, en
Skjern hafnaði í 6. sæti í úrvalsdeildinni í
Danmörku með 29 stig. Nú er hafin úrslitakeppni (í apríl 2021), þar sem leikið er í tveimur riðlum og munu Danmerkurmeistararnir verða krýndir í vor. Elvar Örn kveður
Skjern eftir tímabilið og heldur til þýska liðsins Melsungen, en það varð ljóst nú í mars. Þar hittir hann fyrir landsliðsþjálfara
Íslands, Guðmund Guðmundsson, og landsliðsmanninn Arnar Frey Arnarsson.
Við ræddum við Elvar Örn um lífið í
Skjern, vistaskiptin til Þýskalands og HM í
Egyptalandi, sem fram fór í janúar 2021.
Fyrsta skrefið á atvinnumannaferli
Á sínum tíma taldi Elvar Örn það rétt skref fyrir ferilinn að ganga til liðs við Skjern. Þar fékk hann stórt hlutverk og allt í kringum liðið er eins og best gerist. „Þeir gera allt fyrir mann og manns nánustu. Svo skemmdi það ekki fyrir að Bjöggi hafi verið hér og að Patti myndi byrja að þjálfa liðið.“
Íslandsmeistaratitillinn stendur upp úr
Þegar Elvar Örn er spurður hvað standi helst upp úr á ferlinum hingað til svarar hann: „Á ferlinum stendur Íslandsmeistaratitillinn upp úr og einnig þegar við fórum upp í Olísdeildina. Svo man ég alltaf eftir því þegar við spiluðum við Þýskaland í Köln á mínu fyrsta stórmóti með landsliðinu fyrir framan fulla höll af Þjóðverjum.“ „Seinasta tímabilið mitt með liði Selfoss gat ekki endað betur. Það var alltaf markmiðið að vinna titil með Selfossi. Auðvitað horfi ég til baka á þennan tíma. Þetta var æðislegur tími með frábæru fólki og leikmönnum. Ég er gríðarlega stoltur af því að hafa spilað með Selfossi og tekið þátt í uppbyggingunni, alveg frá því að við vorum í fyrstu deildinni og þangað til við urðum Íslandsmeistarar. Ég er einnig mjög þakklátur fyrir alla þá sjálfboðaliða og styrktaraðila sem voru með okkur þennan tíma og stóðu með okkur í gegnum súrt og sætt.“ segir Elvar Örn.

Boltinn er hraðari í Danmörku
Þegar talið berst að handboltanum í Danmörku segir Elvar Örn að leikurinn sé mun hraðari þar og markvarslan yfirhöfuð mun betri. Einnig er minni munur á lakari liðunum og toppliðunum en hér heima.
Viljum vera í toppbaráttunni
En hvernig skyldi tímabilið hafa gengið hjá Skjern? „Okkur hefur gengið upp og niður. Við byrjuðum tímabilið ekki nógu vel og svo kom smá niðursveifla í nóvem-





Elvar Örn glímir við leikmenn Álaborgar í dönsku deildinni.
ber en annars höfum við verið að spila vel. Við viljum vera að berjast í toppbaráttunni, þannig að eins og er staðan í dag þá er þetta fyrir neðan væntingar en það er nóg eftir af tímabilinu. Svo erum við komnir í „Final 4“ í bikarkeppninni sem við náðum ekki í fyrra.“
Lærði mikið í akademíunni
„Handboltaakademían við FSu hjálpaði mér að vinna með úlnliðinn minn og skottæknina, ásamt finntum. Einnig byrjaði maður að lyfta og læra tæknina í lyftingunum en það er búið að færa það á næsta level í dag. Svo má ekki gleyma að ég er þrefaldur streetball meistari í akademíunni.“ segir Elvar Örn léttur í bragði.
Spenntur fyrir næsta tímabili
Elvar Örn hefur verið í Skjern undanfarin tvö ár en heldur nú til Melsungen í þýsku deildinni, sterkustu deild í heimi. Hvernig leggst það í hann? „Ég tel þetta vera gott tækifæri fyrir mig að spila í bestu deild í heimi og þess vegna valdi ég Melsungen. Þetta lið er með gríðarlega marga góða leikmenn og er ég spenntur fyrir næsta tímabili í Þýskalandi.“ Aðspurður segir hann að það leggist vel í sig að spila fyrir Guðmund Guðmundsson. „Hann veit hvað hann fær og ég veit við hverju ég má búast. Ég þekki vörnina hans og hún hentar mér ágætlega.“ segir Elvar Örn.
Einstakt mót í Egyptalandi
Elvar Örn tók þátt a HM í Egyptalandi með íslenska landsliðinu í janúar í skugga Covid-19. „Þetta var einstakt mót en ég býst ekki við að svona mót muni fara fram aftur með sama hætti. Það var skrítið að spila fyrir framan tómar hallir og þurfa að fara í Covid-próf á hverjum degi. Aðbúnaður var misgóður þarna úti. Hótelið þar sem við gistum fyrst var mjög gott og maður tók ekki eftir hinum liðunum því það var stórt. Aðbúnaður á seinna hótelinu var ekki eins góður. Sóttvarnarmál voru ekki nægilega góð þar. Liðin voru t.d. oft saman í mat.“ Ísland tapaði fyrir Portúgal í fyrsta leik riðilsins, en sigraði næstu tvo sem tryggði sæti í milliriðli. Þar biðu þeirra ærin verkefni, gegn Sviss, Frökkum og Norðmönnum. „Svissleikurinn situr gríðarlega í manni. Við spiluðum geggjaða vörn í þeim leik, en sóknarleikurinn var hræðilegur og varð okkur að falli. Við spilum síðan mjög góða leiki við Frakka og Norðmenn þar sem við vorum inn í leikjunum fram á síðustu mínútu. Ég er gríðarlega ánægður með hversu góða vörn við spiluðum á mótinu heilt yfir, mér fannst hún frábær.“ Að sögn Elvars Arnar er framtíðin björt hjá landsliðinu. Honum líst mjög vel á strákana og hefur virkilega trú á liðinu sem vill alltaf vera að keppa við bestu þjóðir í heimi.


Elvar Örn í landsleik gegn Króötum.
Selfoss til 2019
Skjern 2019–2020
Stefnir á fleiri titla
Elvar Örn stefnir hátt og alltaf á toppinn. „Ég stefni á að spila með bestu liðum í heimi og vinna þá titla sem eru í boði og ná langt með landsliðinu.“