
5 minute read
Barbára Sól: Geggjað að láta drauma sína verða að veruleika
Barbára Sól
Geggjað að láta drauma sína verða að veruleika
Advertisement
Barbára Sól Gísladóttir lék sinn fyrsta A-landsleik í knattspyrnu þann 17. september 2020 þegar Íslendingar tóku á móti Lettum á Laugardalsvellinum í undankeppni Evrópumótsins 2022. Barbára lék allan seinni hálfleikinn og átti frábæra innkomu í sínum fyrsta landsleik, en hún lagði upp tvö mörk í 9-0 sigri Íslands.
Það hefur verið yfirlýst markmið í langan tíma hjá Barbáru að komast í A-landsliðið. Hún lék sína fyrstu unglingalandsleiki árið 2017 og hefur til þessa leikið fjóra leiki fyrir U16, átta leiki fyrir U17 og 22 leiki fyrir U19. Í september kom síðan kallið í A-landsliðið og hún lék tvo leiki á árinu, leikinn gegn Lettum hér heima og svo aftur gegn Ungverjalandi á útivelli í desember, þar sem íslenska liðið tryggði sér farseðilinn á EM.

Heiður að spila fyrir hönd Íslands

„Það hefur verið markmið hjá mér síðan ég var lítil að vera í A-landsliðinu. Það var geggjað að fá kallið inn í A-landsliðið og sjá drauma sína verða að veruleika. Mér gekk vel í fyrsta leiknum og leið mjög vel þegar ég kom inná. Þetta var geggjuð tilfinning, að koma inná í sínum fyrsta A-landsleik í leiknum á móti Lettum. Það er mikill heiður að fá að spila fyrir hönd Íslands og það sem stóð mest upp úr í þessum leik hjá mér persónulega voru þessar tvær stoðsendingar sem ég átti, það var frábær tilfinning að ná að skila þeim,“ segir Barbára.
Í leiknum gegn Ungverjalandi kom Barbára inná seint í leiknum og skilaði sínu hlutverki fullkomlega. Eftir 0-1 sigur á Ungverjum kom þó ekki í ljós fyrr en fjórum klukkutímum síðar að Ísland væri komið á EM, þar sem bíða þurfti eftir hagstæðum úrslitum úr öðrum leikjum kvöldins. „Við vorum ánægðar að vinna leikinn en við hefðum alveg getað unnið hann stærra. En sigur er alltaf sigur og við kláruðum okkar og svo þurftum við bara að bíða eftir að aðrir leikir kláruðust. Það var mikil spenna í þessa fjóra klukkutíma sem við þurftum að bíða en þegar fréttirnar bárust um að við værum búnar að tryggja okkur sæti á EM 2022 var fagnað, vel og lengi. Þessar landsliðsferðir á árinu voru frábærar. Það er náttúrulega geggjað að fá að vera partur af þessu liði og liðsheildin er geggjuð!“
Barbára sækir að marki Vals í leik liðanna í Meistarakeppni KSÍ.

Barbára í fyrsta A-landsleik sínum 17. september 2020 þegar Íslendingar tóku á móti Lettum á Laugardalsvelli í undankeppni EM 2022.
A-landsleikirnir voru ekki einu landsliðsverkefni Barbáru árið 2020 en í byrjun mars voru Barbára og Clara Sigurðardóttir, leikmenn Selfoss, valdar í U19 landsliðið sem fór á æfingamót á La Manga „rétt fyrir Covid-19”. Barbáru gekk vel á mótinu en Ísland vann alla sína leiki, gegn Sviss, Ítalíu og Þýskalandi og Barbára gerði sér lítið fyrir og skoraði í öllum leikjunum. „Kórónuveirufaraldurinn var byrjaður að breiðast út í Evrópu á þessum tíma en mótið var samt bara frekar venjulegt og við fundum ekkert fyrir því að Covid væri í gangi. Leikirnir á mótinu voru hins vegar mjög skemmtilegir og eftirminnilegir. Við spiluðum nýtt leikkerfi sem fólst í því að hápressa allan leikinn. Við vorum með mjög sterkt lið og vorum allar í geggjuðu formi til þess að pressa allan tímann. Þannig að við unnum alla þrjá leikina á þessu móti frekar sannfærandi og ég var mjög ákveðin í að ætla mér að skora í öllum leikjunum. Og þá lá boltinn bara inni. Milliriðlar U19 í undankeppni EM voru síðan felldir niður vegna Covid og það voru mikil vonbrigði. Við vorum með eitt af bestu U19 liðum sem Ísland hefur átt og áttum mikla möguleika á að komast upp úr riðlinum.“
Ömurlegt að fá ekki að klára mótið
Keppni í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu gekk brösótt á árinu vegna farsóttarinnar. Mótið byrjaði seinna en venjulega, gert var hlé á miðju sumri og svo var mótið flautað af áður en keppni var lokið, allt útaf Covid. Barbára segir að sumarið hafi reynt mikið á hausinn á leikmönnum. „Við byrjuðum sumarið auðvitað á því að verða meistarar meistaranna í 1-2 sigri gegn Val. Þetta var hörkuleikur og það var spenna í honum allan tímann. Markmiðið okkar var að taka þennan bikar og við stóðum það. Það var mjög góð tilfinning að spila þennan leik og sérstaklega að vinna hann eftir að hafa verið í stanslausum heimaæfingum í langan tíma um
Barbára Sól Gísladóttir
Meistaraflokkur: Mót Leikir Mörk
A-deild 50 6 B-deild 17 4 Bikar 10 5 Meistarar meistaranna 1 0
Samtals 78 15
Landsleikir: Mót Leikir Mörk
A-Landsleikir 2 0 U-19 22 3 U-17 8 1 U-16 4 1
Samtals 36 5
Byrjunarlið Íslands U19 fyrir leik gegn Sviss á æfingamóti á La Manga á Spáni. Barbára er önnur frá vinstri í efri röð (nr.7).


Barbára, Jóhann Ólafur Sigurðsson fjölmiðlafulltrúi KSÍ og Hjalti Rúnar Oddsson styrktarþjálfari kvennalandsliðsins eftir sigur Íslands á Ungverjalandi í undankeppni EM. vorið. Þegar Íslandsmótið byrjaði gekk okkur ekki alveg eins vel og við vildum. Eftir að hafa lent í 3. sæti 2019 settum við markmiðið ofar en það gekk ekki upp. Tímabilið var samt alls ekki slæmt í heild sinni, þetta bara féll ekki alveg með okkur. Við vorum með mjög sterkt og gott lið og hefðum getað unnið hvaða lið sem er. Við vorum svolítið lengi að púsla liðinu saman, sem var svolítið að angra okkur á tímabilinu. Það voru leikmenn sem komu inn svolítið seint og við vorum lengi að venjast því að spila saman. Ég held að það hafi verið ein af ástæðunum af hverju við vorum ekki að vinna alla okkar leiki. Covid hafði minni áhrif og það voru lið sem fóru verr út úr sumrinu en við. Það var ömurlegt að fá ekki að klára mótið og ná ekki að spila alla leikina en ég held að faraldurinn hafi ekki haft nein gríðarleg áhrif á liðið endilega. Það reyndi mikið á hausinn að mega ekki æfa og spila en held að við höfum allar bara tæklað það ágætlega,“ segir Barbára Sól.

Atvinnumennskan á næsta leiti
Barbára var valin leikmaður ársins hjá kvennaliði Selfoss sumarið 2020 og um áramótin 2020/2021 spurðist það út að hún væri að fara á láni til Celtic í Skotlandi. Ekkert varð þó af því þar sem hlé var gert á mótinu í Skotlandi vegna Covid. Barbára segir þó að markmiðið sé að fara erlendis á næstunni. „Ég stefni á að eiga gott tímabil hér á Selfossi sumarið 2021 og fara svo út í atvinnumennsku eftir það. Ég stefni klárlega á að halda sæti mínu í landsliðinu og vera hluti af hópnum sem verður valinn til þess að fara á Evrópumeistaramótið 2022,“ segir Barbára að lokum. Viðtal: gks.
