Stefna Samfylkingarinnar 2014

Page 1

Betri Mosfellsbær Kosningaáherslur Samfylkingarinnar 2014

Betri Mosfellsbær Sterkari skólar

Stefnuskrá

Húsnæði fyrir alla

Gjaldfrjáls heimaþjónusta


Betri Mosfellsbær Kæri Mosfellingur Samfylkingin er stjórnmálaflokkur sem aðhyllist markmið og leiðir jafnaðarstefnunnar. Stefna flokksins og störf byggjast á frelsi og lýðræði, kvenfrelsi, jafnrétti og samábyrgð. Við viljum samfélag sem geri sérhverjum einstaklingi kleift að njóta fjölbreyttra tækifæra og að læra um leið að veita öðrum slíkt hið sama. Við viljum samfélag sem nýtir tækifærin með hagsmuni kynslóða framtíðarinnar í huga. Samfylkingin í Mosfellsbæ byggir allt sitt starf og áherslur í málefnum Mosfellsbæjar á grunngildum jafnaðarstefnunnar. Við leggjum áherslu á ábyrgan rekstur og gegnsæi í stjórnsýslu. Við hlúum að innviðum samfélagsins, skóla- og tómstundastarfi þar sem börnin eru í fyrsta sæti og félagslegri samhjálp á grunni virðingar og mannréttinda. Við viljum lýðræðislegt samráð, mannvænt skipulag fyrir fólk og fyrirtæki og virðingu fyrir umhverfinu. Þannig verður til Betri Mosfellsbær.

Frambjóðendur Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ


Fjölskyldu- og skólamál

Allt skólastarf skal miðast við þarfir nemenda og vera einstaklingsmiðað. Þannig fá hæfileikar að blómstra og þroskast. Námsframboð og skipulag þarf að vera sveigjanlegt og hlúa þarf að samstarfi á milli skóla og skólastiga. Styðja þarf við símenntun og nýsköpun í skólastarfi. Vinna þarf stefnumótun til framtíðar um uppbyggingu skólamannvirkja í nánu samstarfi við skólasamfélagið. Sú stefnumótun verði stöðugt til skoðunar í takti við breytingar í bæjarfélaginu og þannig unnið gegn því að bæjarfélagið lendi í ógöngum í framtíðinni vegna skorts á skólahúsnæði.

Samfylkingin í Mosfellsbæ vill Byggja skóla miðsvæðis Að bygging skólahúsnæðis miðsvæðis í bænum verði skoðuð af fullri alvöru og í nánu samráði við skólasamfélagið sem fyrsta skref til varanlegrar lausnar á húsnæðisvanda skólanna.

Leikskólarými fyrir ungbarnafjölskyldur Gera markvissa áætlun til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og þar til börn komast inn í leikskóla. Við viljum leggja áherslu á fjölbreytta valkosti og bjóða upp á leikskólarými fyrir ungbarnafjölskyldur.

Lækka gjaldskrá leikskóla Koma til móts við barnafjölskyldur og lækka gjaldskrá leikskóla til samræmis við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.

Þéttara stuðningsnet Efla stoðkerfi skólanna með markvissri námsráðgjöf, námsaðstoð og úrræðum við hæfi. Það þarf að gerast í góðri samvinnu við börnin sjálf, fjölskyldur þeirra, kennara og aðra fagaðila.

Meiri hafragraut, nammi, namm Góð næring er undirstaða góðs árangurs og viljum við að grunnskólanemendur fái hafragraut að morgni án endurgjalds.


Húsnæðis- og velferðarmál Markmiðin eru mannréttindi og jöfn tækifæri fyrir alla. Við viljum að fólk geti búið sér gott heimili í Mosfellsbæ sem hentar þörfum þess, óháð fjölskyldustærð og efnahag. Við viljum meiri fjölbreytni í búsetukostum með því að auka framboð leigu- og búseturéttarhúsnæðis í bænum og þannig stuðla að lækkun leiguverðs. Velferðarþjónustan á að mæta ólíkum þörfum einstaklinga og henni á að vera þannig háttað að hún vinni gegn ójöfnuði. Mikilvægt er að Mosfellsbær setji sér heildstæða fjölskyldustefnu með aðkomu bæjarbúa. Við viljum að Mosfellsbær sé samfélag fyrir allar fjölskyldur, ævina alla.

Samfylkingin í Mosfellsbæ vill

Byggja upp almennan leigumarkað sem valkost fyrir alla Gera leigumarkað að raunhæfum valkosti fyrir alla. Stuðla að uppbyggingu leigu- og búseturéttarhúsnæðis, hvort sem er í eigu húsnæðissamvinnufélaga, félagasamtaka og/eða einkaaðila. Þannig viljum við anna mikilli umframeftirspurn og lækka leiguverð. Mikilvægt er að byggja upp litlar og meðalstórar íbúðir fyrir ungt fólk, einstaklinga, fjölskyldufólk og 50 ára og eldri.

Lækka fasteignagjöld hjá tekjulágum eldri borgurum Að þeir eldri borgarar sem minnst hafa á milli handanna njóti aukins afsláttar á fasteignagjöldum. Það gerum við með því að hækka tekjutengingarþröskuld fasteignagjalda.

Gjaldfrjálsa félagslega heimaþjónustu Tryggja stuðning svo þeir sem á þjónustunni þurfa að halda geti búið heima hjá sér eins lengi og kostur er. Þjónustan verði bætt og þróuð í samráði við þá sem nýta sér þjónustuna sem og starfsfólk.

Félagslegt húsnæði á almennum leigumarkaði Að stuðningur vegna húsnæðiskostnaðar verði bundinn persónulegum aðstæðum íbúa en ekki tengdur ákveðnum íbúðum, enda stuðlar það að félagslegum fjölbreytileika í hverfum bæjarins. Við viljum endurskoða reglur um sérstakar húsaleigubætur til að þeir sem þurfa á félagslegum úrræðum að halda geti leigt á almennum leigumarkaði.

Bæta þjónustu við fólk með fötlun Koma til móts við fólk með fötlun í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og hugmyndafræðina um sjálfstætt líf. Vinna áfram að þróun og innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar í samstarfi við þá sem nýta þjónustuna.


Atvinnu- og þróunarmál Öflugt atvinnulíf er ein af grunnstoðum velferðar í samfélaginu. Því er nauðsynlegt að stuðla að uppbyggingu atvinnulífs í bænum, fjölbreyttum atvinnutækifærum og eflingu verslunar og þjónustu. Þetta verður að gera með skýrum áherslum hvað varðar starfsemi og umhverfismál. Við viljum leggja áherslu á þróun og nýsköpun í sátt við íbúa og umhverfi, efla menningartengda ferðamennsku og styrkja ímynd bæjarins sem heilsueflandi samfélags. Við viljum að hjá bænum starfi menningar-, markaðs- og ferðamálafulltrúi til að markaðssetja ferðaþjónustu á svæðinu í samstarfi við ferðaþjónustuaðila í bænum.

Samfylkingin í Mosfellsbæ vill Fjölga störfum í Mosfellsbæ Atvinnuuppbyggingu í miðbæinn. Fjölga húsnæði fyrir verslun og þjónustu með nýju miðbæjarskipulagi fyrir Mosfellsbæ. Við viljum laða að fyrirtæki með framboði á lóðum fyrir atvinnurekstur á samkeppnishæfu verði og fasteignagjöldum.

Nýsköpunarsjóð fyrir fyrirtæki Efla stuðning við ný fyrirtæki sem vilja hefja starfsemi í bænum. Stuðningur fæst ekki ef um samkeppni er að ræða við annan rekstur sem fyrir er. Þetta eykur fjölbreytni í atvinnuuppbyggingu í Mosfellsbæ.

Bændamarkað í miðbæinn Markaðstorg fyrir framleiðendur í sveitarfélaginu og nágrannasveitum. Bæjaryfirvöld finni hentuga aðstöðu í samráði við hagsmunaaðila.

Fleiri ævintýri í Mosfellsbæ Fylgja eftir hugmyndasamkeppni um Ævintýragarð í Ullarnesbrekku, m.a. með uppbyggingu garðsins, fleiri leiktækjum fyrir börn og unglinga og með því að gera svæðið grænna og vistlegra til útiveru. Mikilvægt er að huga að tengingunni við Álafosskvos , Varmá og Hlégarð og mynda samfellu þar á milli.

Heilsueflandi samfélag Áframhaldandi stuðning við verkefnið Heilsueflandi samfélag í góðri samvinnu við ábyrgðaraðila verkefnisins og þær stofnanir bæjarins sem að því koma.


Menningarmál

Mosfellsbær er menningarbær. Til að styrkja umgjörð menningarlífs í bænum þarf menningin að eignast heimili. Þannig eflist listalíf í bænum. Við viljum horfa á Álafosskvos, Varmársvæðið, Ullarnesbrekku og Hlégarð sem eina heild sem þjónar íbúum sem miðpunktur menningar og útivistar. Bæjarhátíðin Í túninu heima setur skemmtilegan brag á bæjarlífið. Við viljum auka veg hennar og draga fram sérstöðu og sögu bæjarins í dagskrá hátíðarinnar. Við viljum að hjá bænum starfi menningar-, markaðs- og ferðamálafulltrúi til að sinna menningarmálum og samstarfi við menningar- og listalíf í Mosfellsbæ.

Samfylkingin í Mosfellsbæ vill Menningarhús Að Hlégarður verði menningarhús bæjarins þar sem gróskumikil menningarstarfsemi blómstri. Þar verði einnig upplýsingamiðstöð ferðamanna. Haldin verði hugmyndasamkeppni um nýtingu á húsinu.

Enn skemmtilegri bæjarhátíð Að bæjarhátíðin okkar Í túninu heima verði enn skemmtilegri og fjölbreyttari. Við viljum tengja dagskrá hennar enn frekar við sögu Mosfellsbæjar og Halldórs Laxness og auka samvinnu við fyrirtæki og félagasamtök í bænum.

Framtíðarhúsnæði fyrir Listaskólann Finna Listaskólanum framtíðarhúsnæði svo skólinn megi vaxa og dafna og svara sívaxandi eftirspurn.

Efla menningartengda ferðaþjónustu Efla starfsemi í menningartengdri ferðaþjónustu með áherslu á sögu bæjarfélagsins og Halldór Laxness.

Styðja við sjálfsprottna menningarviðburði Hvetja einstaklinga og frjáls félagasamtök í grasrót menningarlífsins til dáða með öflugum stuðningi.


Umhverfis- og skipulagsmál Umhverfið sem við búum í ræður miklu um daglega líðan okkar og alla lífshætti. Því skiptir máli hvernig við skipuleggjum bæinn okkar. Við viljum að Mosfellsbær verði fallegur, lágreistur og skjólsæll bær með fjölbreyttri byggð og útivistarsvæðum. Við viljum styrkja ímynd bæjarins sem útivistarbæjar, sveitar í borg með góðu skólastarfi, fjölbreyttri þjónustu og atvinnustarfsemi og möguleikum til íþrótta og frístunda. Götur, torg og græn svæði eiga að vera falleg, mannvæn og skjólsæl umgjörð daglegs lífs í Mosfellsbæ. Við viljum vistvæna samgöngustefnu, þ.e. öflugt stígakerfi og bætta þjónustu strætisvagna innanbæjar. Huga þarf sérstaklega að vatnsvernd og mengunarmálum í bænum okkar. Við viljum að Leiruvogur verði friðlýstur.

Samfylkingin í Mosfellsbæ vill Innanbæjarstrætó Strætó sem þjónustar öll hverfi, gengur á milli skóla og íþróttamannvirkja og dregur úr skutli foreldra. Skilvirkur hverfavagn sem tengist leiðakerfi Strætó og verði raunhæfur valkostur til að komast í vinnuna eða á milli bæjarhluta.

Bæta aðstöðu til útivistar Að bæjarland Mosfellsbæjar verði eftirsóttasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, með fyrirmyndaraðgengi og aðstöðu á útivistarsvæðum og heildstæðu göngu-, reið- og hjólreiðastígakerfi. Bæta þarf göngu- og hjólreiðastíga í eldri hlutum bæjarins.

Líflega og fjölbreytta miðbæjarstemningu Halda hugmyndasamkeppni um nýtt miðbæjarskipulag með fjölbreytni, fegurð og mannvænt umhverfi að leiðarljósi. Miðbær Mosfellsbæjar þarf að þróast á þann hátt að þar dafni fjölbreytt þjónusta og atvinnustarfsemi. Það getur einungis gerst með því að þétta byggð með nægilegum íbúafjölda til að styðja við miðbæjarstarfsemi.

Grænan Mosfellsbæ Gera metnaðarfulla áætlun um heildarskipulag grænna svæða. Með heildstæðu skipulagi grænna svæða getum við staðið vörð um náttúru bæjarins, sem okkur ber skylda til að varðveita fyrir ókomnar kynslóðir.

Meira skjól og minni vind Auka, með markvissri stefnu, trjá- og skógrækt til skjólmyndunar fyrir byggðina. Sérstaklega verði unnið að ræktun til skjólmyndunar í nýjum hverfum.


Íþrótta- og tómstundastarf

Þróttmikið íþrótta- og tómstundastarf fyrir börn og unglinga óháð efnahag fjölskyldna leggur grunn að heilbrigðu lífi og er mikilvæg forvörn. Starfið byggir á góðri aðstöðu, fjölbreyttu framboði og öflugu foreldrasamstarfi. Bæjaryfirvöld þurfa að sjá til þess að sú umgjörð sem til þarf sé fjölbreytt og góð. Við viljum hækka frístundaávísunina strax en einnig skoða möguleikann á því að auka framlag bæjarfélagsins til íþróttafélaganna þannig að iðkendagjöld lækki. Uppbygging íþróttaaðstöðu þarf að haldast í hendur við fjölgun íbúa og taka tillit til þarfa allra aldurshópa. Við viljum að aðstaða skátanna í bænum verði bætt. Aðstaðan hefur lengi verið óviðunandi og við viljum að skátarnir fái sæmandi aðstöðu til að sinna sínu fjölbreytta starfi með börnum og unglingum.

Samfylkingin í Mosfellsbæ vill Hækka frístundaávísun í 30 þúsund krónur Lækka kostnað heimilanna vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna og unglinga. Í framhaldinu viljum við tryggja að upphæð ávísunarinnar sé í samræmi við nágrannasveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.

Fjölnota íþróttahús Að byggt verði sem fyrst fjölnota íþróttahús sem nýtist fjölbreyttri íþróttaiðkun og öllum aldursflokkum.

Minnka skutlið Innanbæjarstrætó sem þjónar jafnt ungum sem öldnum og tengir helstu staði þar sem íþrótta- og tómstundastarf fer fram.

Ungmennahús Að Brúarland, eða annað hentugt húsnæði, verði nýtt sem ungmennahús. Þar verði útbúið, í samvinnu við ungmennin, spennandi og líflegt umhverfi með fjölbreyttri starfsemi.

Öflugt forvarnastarf Að hjá bænum starfi æskulýðs- og forvarnafulltrúi og með honum forvarnahópur sem skipaður verði fulltrúum þeirra félagasamtaka og stofnana sem koma að velferð og tómstundum barna og ungmenna í bænum.


Lýðræði og stjórnsýsla Efla þarf raunverulegt þátttökulýðræði, samráð bæjaryfirvalda við bæjarbúa og auka gagnsæi í allri ákvarðanatöku sem snertir almannahagsmuni. Fjármunir bæjarins eru fjármunir íbúanna og því þarf að gæta ábyrgðar og skynsemi í meðferð þeirra. Mikilvægt er að gera raunhæfar framkvæmdaáætlanir með mælanlegum markmiðum fyrir alla stefnumörkun á vegum bæjarfélagsins og að birta þær niðurstöður á vef bæjarins svo bæjarbúar geti fylgst með framvindu mála. Ráðgefandi hlutverk nefnda bæjarins verði virkara. Þegar íbúar eru kallaðir til samráðs við bæjaryfirvöld þurfa rammarnir utan um samráðið að vera skýrir, svo íbúar viti hvað í því felst, hvernig það verður framkvæmt og hvernig því lýkur.

Samfylkingin í Mosfellsbæ vill Meira samráð við íbúa Koma á samráðsvettvangi á netinu, Betri Mosfellsbær, þar sem íbúar geta sett fram hugmyndir um málefni er varða þjónustu og rekstur Mosfellsbæjar. Vefurinn verði vettvangur rafrænna kannana, kosninga og samráðs af ýmsu tagi.

Hverfaráð Auka möguleika bæjarbúa á að hafa áhrif á sitt nærumhverfi með því að bærinn aðstoði íbúa við stofnun hverfaráða. Haldnir verði reglulegir samráðsfundir bæjaryfirvalda og hverfaráðanna þar sem sérstakir hagsmunir einstakra hverfa verði ræddir og hugmyndum komið í farveg.

Opna stjórnsýslu Auka upplýsingastreymi og aðhald bæjarbúa að kjörnum fulltrúum og því viljum við að bæjarstjórnarfundir verði í beinni útsendingu. Öll gögn sem liggja til grundvallar almennum ákvörðunum sem teknar eru af bæjaryfirvöldum skulu vera aðgengileg á vef bæjarins.

Öldungaráð Að eldri borgarar eigi greiðari aðkomu að stjórnkerfinu með sín hagsmunamál. Því viljum við koma á fót ráðgefandi öldungaráði sem verði formlegur samskiptavettvangur bæjaryfirvalda við eldri borgara í bænum.

Jafnrétti fyrir alla, börn, konur og karla Standa vörð um jafnrétti allra íbúa til þjónustu sveitarfélagsins. Vinnustaðir bæjarins eiga að vera til fyrirmyndar í jafnréttismálum og Samfylkingin vill setja upp metnaðarfulla áætlun um aðgerðir gegn kynbundnum launamun og að henni verði fylgt eftir.


Frambjóðendur Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ

1. Anna Sigríður Guðnadóttir

2. Ólafur Ingi Óskarsson

Aldur: 55 ára Maki: Erna Björg Baldursdóttir, bankastarfsmaður Börn: Baldur Ingi, Vala Ósk, Ólafur Unnar og Óskar Markús. Barnabörnin eru 6 Menntun: Kerfisfræðingur frá HR og diploma í viðskiptafræði frá sama skóla. Starf: Á og rekur eigið tölvukerfisþjónustu fyrirtæki

3. Steinunn Dögg Steinsen

Aldur: 54 ára Maki: Gylfi Dýrmundsson, rannsóknarlögreglumaður Börn: Guðni Kári, Ásdís Birna, Krisrún Halla og Gunnar Logi Menntun: Bókasafns- og upplýsingafræðingur, meistaranemi í opinberri stjórnsýslu Starf: Heilbrigðisvísindabókasafn Landspítala

4. Rafn Hafberg Guðlaugsson

5. Samson Bjarnar Harðarson

Aldur: 49 ára Maki: Nína Rós Ísberg mannfræðingur og menntaskólakennari. Börn: Þórdís Lilja 17 ára og Sölvi Þór 7 mánaða. Menntun: Garðyrkjufræðingur og landslagsarkitekt. Starf: Lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands.

6. Gerður Pálsdóttir

Aldur : 45 ára Maki : Lísa Sigríður Greipsson Börn: Greipur og Ingibjörg Menntun: Húsasmiður Starf: Sölumaður hjá JS Gunnarsson

7. Kjartan Due Nielsen

8. Branddís Ásrún Eggertsdóttir

9. Andrés Bjarni Sigurvinsson

Aldur: 38 ára Maki: Aðalheiður Eggertsdóttir lyfjafræðingur Börn: Dagmar, Þórdís, Guðrún og Sóley Menntun: Lífefnafræði og verkefnisstjórnun. Starf: Verkefnastjóri við Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Aldur: 18 ára Maki: Þorsteinn Þór Jóhannesson Menntun: Stundar nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð Starf: Stuðningsfulltrúi hjá Skálatúni

Aldur : 35 ára Maki : Kristbjörn Helgi Björnsson Börn: Iðunn Vala og Steinn (ófæddur) Menntun: Efnaverkfræðingur Starf: Sérfræðingur í umhverfismálum hjá Norðuráli, Grundartanga

Aldur : 41 árs Maki : Þórhallur Sölvi Barðason Börn: Bjartur, Freyja og Magni Menntun: Þroskaþjálfi Starf: Sérkennslustjóri á leikskólanum Huldubergi og þroskaþjálfi íbúðakjarna Klapparhlíð 11

Aldur: 64 ára Maki: Fráskilinn Börn: Elín Matthildur. Barnabörn: Lovísa Rut, Andrés Kári og Unnur Elva Kristjánsbörn Menntun: Kennara- og leiklistarmenntun. Hefur starfað við áfengis- og vímuefnaráðgjöf Starf: Kennsla og leikstjórn


10. Arnheiður Bergsteinsdóttir

11. Brynhildur Hallgrímsdóttir

Aldur: 48 ára Maki: Fráskilin Börn: Lilja Hrönn og Bryndís Gunnarsdætur Menntun: Stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Lyfjatæknir. Hefur lokið tveimur árum í félagsráðgjöf Starf: Starfar á Skálatúni

Aldur: 18 ára Menntun: Er að ljúka þriðja ári á málabraut í Menntaskólanum við Hamrahlíð Starf: Sumarstarf á heimili fyrir aldraða

12. Gísli Freyr J. Guðbjörnsson

13. Jón Eiríksson

14. Dóra Hlín Ingólfsdóttir

Aldur : 64 ára Maki : Erlingur Kristjánsson (gamall álfakóngur). Börn: Tvær dætur og fjögur barnabörn Menntun: Lögregluskólinn Starf: Rannsóknarlögreglukona að komast á eftirlaun

15. Finnbogi Rútur Hálfdánarson

Aldur : 59 ára Menntun: Grunnskóli og sjálfmenntun á ýmsum sviðum. Starf: Tæknimaður hjá Tryggingastofnun

16. Kristín Sæunnar Sigurðardóttir

17. Guðný Halldórsdóttir

Aldur: 64 ára Maki: Ólafur Jónsson Börn: Sæunn og Iðunn Ólafsdætur og sex barnabörn. Menntun: BA í stjórnmála- og viðskiptafræði, MSc í viðskiptafræði frá HÍ. Starf: Framkvæmdastjóri líknarfélags, Félags nýrnasjúkra.

Aldur : 60 ára Maki : Halldór Þorgeirsson Börn: Halldór Halldórsson, fullorðinn 2 barna faðir Menntun: Kvikmyndagerð Starf: Kvikmyndagerð

Aldur : 23 ára Menntun: Menntuð húsmóðir að leggja lokahönd á menntaskóla Starf: Spilakennari og sölumaður hjá Spilavinum

Aldur: 60 ára Maki: Guðrún Edda Guðmundsdóttir Börn: Hulda Margrét, Guðrún og Guðmundur Sigurður. Barnabörnin eru orðin sex Menntun: Lyfjafræðingur Starf: Lundbeck á Íslandi

18. Jónas Sigurðsson

Aldur : 65 ára Maki : Guðrún Skúladóttir Börn: Svanfríður Linda, Gunnhildur Björk og Sigurður Þorgeir. Barnabörn 10 og barnabarnabörn 2 Menntun: Húsasmiður Starf: Verkefnastjóri


Samfylkingin í Mosfellsbæ vill

Byggja upp almennan leigumarkað sem valkost fyrir alla

Byggja skóla miðsvæðis

Gera leigumarkað að raunhæfum valkosti

Að bygging skólahúsnæðis miðsvæðis í bænum

með því að stuðla að uppbyggingu leigu-

verði skoðuð af fullri alvöru og í nánu samráði við

og

skólasamfélagið sem fyrsta skref til varanlegrar

búseturéttarhúsnæðis,

með

litlum

og

meðalstórum íbúðum fyrir ungt fólk, einstaklinga,

lausnar á húsnæðisvanda skólanna.

fjölskyldufólk og 50+. Anna umframeftirspurn og lækka leiguverð.

Nýsköpunarsjóð fyrir fyrirtæki

Meira samráð við íbúa

Efla stuðning við ný fyrirtæki sem vilja hefja

Koma á samráðsvettvangi á netinu, Betri

starfsemi í bænum. Stuðningur fæst ekki ef um

Mosfellsbær, þar sem íbúar geta sett fram

samkeppni er að ræða við annan rekstur sem fyrir

hugmyndir um málefni er varða þjónustu og

er. Þetta eykur fjölbreytni í atvinnuuppbyggingu

rekstur Mosfellsbæjar. Vefurinn verði vettvangur

í Mosfellsbæ.

rafrænna kannana, kosninga og samráðs af ýmsu tagi.

Hækka frístundaávísun í 30 þúsund krónur

Leikskólarými fyrir ungbarnafjölskyldur

Lækka kostnað heimilanna vegna íþrótta-

Gera markvissa áætlun til að brúa bilið milli

og

fæðingarorlofs og þar til börn komast inn á

tómstundastarfs

barna

og

unglinga. að

leikskóla. Við viljum leggja áherslu á fjölbreytta

upphæð ávísunarinnar sé í samræmi við

valkosti og bjóða upp á leikskólarými fyrir

nágrannasveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.

ungbarnafjölskyldur.

Í

framhaldinu

viljum

við

tryggja


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.