Heilsublað Nettó - September 2020

Page 42

hollusta

Kollagen súkkulaði– búðingur að hætti Ásdísar Grasa Það jafnast ekkert á við skál af kremkenndum og mjúkum súkkulaði– búðingi! Þessi ljúffenga uppskrift inniheldur uppbyggjandi kollagen, góða fitu og næringu. Það er mjög auðvelt og snjallt að bæta kollagendufti út í drykki, grauta, bakstur og eftirrétti enda er það bragð- og lyktarlaust og blandast vel. Það er vel hægt að nota sykurlaust síróp frá Good Good fyrir þá sem vilja.

42

Súkkulaðibúðingur 2 stk avókadó 1/3 bolli kakóduft frá Himneskri Hollustu ½ bolli lífrænt hlynsíróp frá Naturata 1/3 bolli lífræn kókósmjólk úr dós 2-5 dropar French vanilla stevia frá NOW 1 skeið kollagen duft frá Vital Proteins Setjið avókadó, kakóduft, hlynsíróp, kókósmjólk, vanilludropa og kollagenduft í matvinnsluvél og blandið þar til silkimjúkt. Gott að setja í kæli í smá tíma og leyfa aðeins að stífna. Uppskriftin dugar fyrir tvo. Setjið í skál og toppið með ferskum jarðarberjum, smá slettu af kókósmjólk og dökku súkkulaði ef vill. Njótið!


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Heilsublað Nettó - September 2020 by Nettó - Issuu