4 minute read

Dregur úr hömlum á CBD-vörum

Íslenskt hampte fæst nú í matvöruverslunum

Þann 19. nóvember 2020 úrskurðaði Evrópudómstóllinn í Lúxemborg að ríkjum Evrópusambandsins væri óheimilt að hindra viðskipti með CBD (cannabidiol) þar sem það flokkaðist sem matvæli. Þar sem Ísland hefur innleitt matvælalöggjöf ESB í gegnum EES-samninginn, á þessi úrskurður einnig við hér á landi.

Íkjölfarið hefur opinber sala á CBD-húðolíum sem eru hæfar til inntöku aukist mjög hér á landi og ýmsir hafið tilraunaframleiðslu á fæðubótarefnum og matvörum með CBD. Fram að því var sala á CBD-olíum öll á „gráa markaðinum“ en talið er að þúsundir Íslendinga taki þær inn sér til heilsubótar, ekki síst eldra fólk.

CBD-olía

CBD-olía er búin til með því að væta þurrkuð blóm og lauf iðnaðarhampsins (cannabis sativa) í etanóli eða öðru leysiefni, en þau innihalda yfir 130 kannabínóða, þar með talið CBD.

Etanólið - sem kannabínóðarnir eru búnir að leysast upp í - er svo síað frá og eimað og eftir stendur þá kannabínóðaþykkni/extrakt. Þar sem það hentar ekki til inntöku er það sett út í svokallaða burðarolíu, t.d. ólífuolíu, MCT/kókosolíu eða hampfræolíu og miðað við ákveðið magn CBD í einum dropa.

CBD-olía gengur undir því nafni þó hinir kannabínóðarnir fylgi því CBD-kannabínóðinn er þeirra þekktastur og mest rannsakaður. Ef allir kannabínóðarnir fylgja með í vinnsluferlinu kallast olían „full-spectrum CBD-olía“. Ef sérstaklega er búið að fjarlægja THC úr olíunni (sem finnst aðeins í snefilmagni (<0,2%) í iðnaðarhampinum) svo hún innihaldi 0,0% þá kallast hún „broad spectrum“. Ef búið er að einangra einn kannabínóða eins og CBD, þá kallast hún „isolated“.

Hingað til hafa verið hindranir á sölu á matvörum - þar með talið fæðubótarefnum - sem kannabínóðum hefur verið bætt út í. Fyrst vegna þess að Lyfjastofnun flokkaði CBD sem lyfjaefni, en nú vegna þess að kannabínóðaþykknið (e. cannabinoid extract) er skilgreint sem nýfæði og þarf þess vegna að fá leyfi frá Matvælastofnun fyrir því þykkni sem ætlunin er að nota og hvernig eigi að nota það.

Hampfræolía

CBD-olíu er oft ruglað saman við hampfræolíu (e. hemp seed oil) sem er olían úr fræjum hampsins en þau innihalda aðeins snefilmagn af kannabínóðum. Hún er einfaldlega einstaklega holl og góð olía sem gott er að taka inn sér til heilsubótar, til dæmis eina matskeið á dag. Greinarhöfundur fjallaði um fræ hampsins í Heilsublaði Nettó sem kom út haustið 2020 og má finna á netinu.

CBD-húðvörur

CBD-húðvörur hafa notið vaxandi vinsælda hér á landi. Þær eru notaðar við alls konar húðvandamálum

eins og exemi, psóríasis og unglingabólum, en einnig til að meðhöndla bólgur og verki. Ástæðan fyrir því að engar hindranir eru á sölu húðvaranna er að við megum taka CBD og aðra kannabínóða - sem hefur verið bætt í húðvörur - inn í gegnum húðina, en ekki meltingarveginn; eins furðulegt og það kann að hljóma.

Hampte

Hampblóm og -blöð má borða fersk og djúsa, en þau má einnig þurrka og nýta sem te- og kryddjurtir eins og aðrar jurtir sem eru ræktaðar eða vaxa villtar hér á landi og hafa verið nýttar í lækningaskyni í þúsundir ára eins og hampurinn. Í þeim er ekkert „extrakt“ heldur eru kannabínóðarnir náttúrulega á þeim og ekkert verið átt við þau. Kannabínóðarnir virkjast ekki fyrr en þeir eru hitaðir ásamt olíu.

Greinarhöfundur og maður hennar hófu ræktun á hampi sumarið 2019 og sölu á hamptei haustið 2020, þá eingöngu beint frá býli. Í haust er teinu einnig dreift í verslanir og fást 20 g (30 tsk.) og 40 g (60 tsk.) pokar í stærri verslunum Nettó um land allt. Búast má við að fleiri ræktendur fari að markaðssetja matvæli og aðrar vörur úr sinni ræktun þar sem hamprækt fer hratt vaxandi hér á landi.

Enginn tækjabúnaður er til hér á landi enn sem komið er til að uppskera hamp og því eru blómin og laufin næst þeim handtínd. Þau eru svo þurrkuð í sérstökum þurrkgrindum við ákveðið hita- og rakastig þar sem þeim er handsnúið nokkrum sinnum og svo færð yfir í netapoka til að tryggja að enginn raki sé í teinu þegar því er pakkað. Að lokum er það handmalað og því handpakkað í vandaða „ziplock“ poka.

Með því að hella soðnu vatni yfir telaufin og hræra út í vatnið ½-1 tsk. af olíu og drekka þegar jurtirnar hafa legið í vatninu í 5-15 mínútur og verið síaðar frá, má njóta heilsufarslegs ávinnings CBD og annarra kannabínóða á einfaldan og náttúrulegan hátt, því olíublandaða heita vatnið losar kannabínóðana af telaufunum og virkjar þá.

Nota má hvaða fitu/olíu sem er, en bragðlaus kókosolía og avókadóolía henta sérlega vel því þær hafa lágmarks áhrif á bragðið. Teið má svo bragðbæta með hverju sem er, til dæmis hunangi.

Ástæður eftirspurnarinnar

Ástæður mikillar sóknar í matvæli og fæðubótarefni með CBD og öðrum kannabínóðum eru margvíslegar. Fólk notar þau meðal annars sem einfalda og náttúrulega lausn til að draga úr kvíða, streitu, þunglyndi og svefnvandamálum. Eins til að lina alls konar verki, til dæmis mígreni/höfuðverk og verki í stoðkerfinu, meðal annars vegna gigtarsjúkdóma og annarra bólguvandamála. Að auki hafa þau gagnast við meðhöndlun taugasjúkdóma, flogaveiki og til að draga úr vanlíðan í krabbameinsmeðferðum.

Hampblóm og blöð má borða fersk og djúsa, en þau má einnig þurrka og nýta sem te og kryddjurtir.

Oddný Anna Björnsdóttir er ráðgjafi, hampræktandi á opna býlinu Geislar Gautavík, framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla og stjórnarmaður í Hampfélaginu.