3 minute read

Ásdís grasalæknir

Ásdís Ragna Einarsdóttir útskrifaðist með BSc í grasalækningum frá University of East London árið 2005 og hefur rekið eigin viðtalsstofu um árabil þangað sem fjöldi einstaklinga hefur leitað til hennar í ráðgjöf í gegnum árin. Ásdís hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða um land allt, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki, m.a. um áhrif og notkun lækningajurta, heilsusamlegt mataræði og fleiri heilsutengd málefni. Ásdís er meðlimur í bresku fagfélagi grasalækna, The National Institute of Medical Herbalists, en starf grasalæknis felst í því að meðhöndla einkenni og kvilla á heildrænan og náttúrulegan hátt. Markmið Ásdísar er að hvetja skjólstæðinga sína til þess að efla heilsu sína og leiðbeina þeim um heilsusamlegt mataræði, heilbrigðar lífsvenjur og notkun lækningajurta og vinna markvisst að bættri heilsu, jafnvægi og vellíðan.

Góðar heilsuvenjur eru lykillinn að heilbrigðu lífi

Flest vitum við nokkurn veginn hvað við eigum að gera til þess að vera heilbrigð og hraust en það getur verið áskorun að tileinka okkur góðar heilsuvenjur og viðhalda þeim svo við náum þeim árangri og jafnvægi sem við viljum öðlast. Sjálf hef ég reynt að tileinka mér nokkrar einfaldar venjur sem ég get haldið mig við, eins og að passa upp á svefninn, velja lífræna og heilsusamlega fæðu, fasta reglulega og hreyfa mig. Daglega rútínan mín er yfirleitt þannig að ég fasta í a.m.k. 12-14 klst. og byrja svo daginn á nærandi morgunmat sem er oftast grænn þeytingur eða chiagrautur. Svo tekur vinnan við fram að hádegi og þá tek ég góðan göngutúr með hundinn. Hádegismaturinn er svo eitthvað af eftirfarandi: Grænt salat með avókadó og kjúklingi, lax og grænmeti eða súrdeigsbrauð með eggi, geitaosti eða hummus. Ef ég hef þörf fyrir millimál þá fæ ég mér hnetur og dökkt 85% súkkulaði eða epli með möndlusmjöri. Stundum útbý ég latte með kakói, kollageni og möndlumjólk í millimál. Eftir vinnudaginn reyni ég koma inn æfingu, annarri hreyfingu eða útivist. Kvöldmaturinn er ýmist fiskur, lambakjöt, kjúklingur eða baunir með fjölbreyttu grænmeti og góðri ólífuolíu.

Gæðaprófanir eru gerðar á öllum NOW vörum hjá óháðri rannsóknarstofu.

þegar kemur að framleiðslu bætiefna. NOW er fjölskyldufyrirtæki með yfir 50 ára reynslu og þekkingu á framleiðslu á yfir 1400 tegundum af bætiefnum og heilsuvörum og leggur mikla áherslu á vörur úr hreinum og náttúrulegum innihaldsefnum í hæsta gæðaflokki. Gæðaprófanir eru gerðar á öllum NOW vörum hjá óháðri rannsóknarstofu og allar vörur frá NOW eru með GMP-vottun sem þýðir að allt framleiðsluferlið er undir ströngu ytra og innra gæðaeftirliti. NOW er einnig með USDA Organic, Certified Vegan og Non-GMO Project Verified merkingar á sínum vörum sem tryggja hreinleika og öryggi og að vörurnar séu framleiddar án aukaefna, erfðabreyttra efna og mengunarefna. NOW leitast við að nota lífrænt hráefni og gerir miklar kröfur um að hráefnin séu eins náttúruleg og hægt er. NOW býður upp á fjölbreytt úrval af vörum með lífrænu innihaldi. NOW er einn þekktasti og virtasti framleiðandi bætiefna í heiminum og er einnig þekktur fyrir metnað í rannsóknum á virkni og öryggi bætiefnanna. NOW er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á bætiefnum og stendur fyrir gæði, hreinleika og virkni og er góður valkostur.

Bætiefnin sem ég tek reglulega eru Eve fjölvítamín fyrir konur, Omega-3 fitusýrur, D-vítamín, Women’s Probiotic góðgerlar, Rhodiola, Magnesíum og B12. Ég hef notað NOW bætiefnin í gegnum árin og mælt með þeim við skjólstæðinga mína með góðum árangri. Haustið 2019 heimsótti ég höfuðstöðvar NOW í Chicago í Bandaríkjunum og kynnti mér allt framleiðsluferlið ásamt því að skoða rannsóknarstofurnar þeirra. Þar er allt unnið samkvæmt ströngustu gæðastöðlum

www.grasalaeknir.is www.instagram.com/asdisgrasa www.facebook.com/grasalaeknir.is asdis@grasalaeknir.is