
3 minute read
ELSKA ÞESSA PEYJA
Eftir frábæran árangur á tímabilinu, hvað er það sem þér þótti eftirminnilegast innan vallar?
Það er að sjálfsögðu Íslandsmeistaratitillinn sem við unnum nú á dögunum. Þetta er búið að vera ótrúlega mikið ferðalag þetta tímabil. Og hefur verið vægast sagt kaflaskipt. Það hefur gengið á ýmsu og á tímabili var eins og maður væri að missa trúnna. En þessi hópur er einstakur og hann þéttist og þéttist eftir því sem leið á tímabilið, samheldnin varð engu lík og ég held að allir hafi séð það að þarna var ekki bara besta lið landsins að spila heldur besta liðsheild landsins.
Advertisement
Settir þú þér einhver persónuleg markmið fyrir þetta tímabil?
Já mig langaði að vinna mestu framfarir á lokahófinu en það gekk því miður ekki eftir, en það er alltaf næsta ár. En að öllu gamni slepptu þá er maður kominn á þann stað á ferlinum að maður vill deila ábyrgðinni og gefa af sér á þann hátt að láta hjálpa liðsfélögum sínum til þess að ná markmiðum sínum og liðsins. Mitt markmið var því að vera betri í því að hjálpa og leiðbeina og vonandi mun tíminn leiða það í ljós að það hafi borið sýnilegan ávöxt.
Nú ert þú búinn að vera í yfir tuttugu ár í meistaraflokki, hvar setur þú þetta tímabil í goggunarröðinni í eftirminnilegustu tímabilunum þínum?
Það er alltaf erfitt að gera upp á milli enda eru tímabilin orðin æði mörg. Engu að síður er þetta tímabil klárlega eitt það eftirminnilegasta og skemmtilegasta sem ég hef spilað á mínum ferli, ef ekki það besta.
Sem fyrirliði liðsins, eru aðrar skyldur og önnur hlutverk sem þú þarft að uppfylla?
Eins og kemur fram að ofan þá er hlutverk fyrirliða að vera liðsfélögum sínum innan handar, jafnt innan vallar sem utan. Við gætum kannski sagt að maður sé í ákveðnu pabba hlutverki enda gæti ég átt marga þeirra.
Hvernig var tilfinningin að lyfta bikarnum á heimavelli?
Algjörlega ólýsanleg! Eftir svona langan tíma í handboltanum. Í sögulegu samhengi frá því að ég byrjaði í meistaraflokki þegar við gátum nánast ekki neitt í það að lyfta Íslandsmeistaratitlinum á heimavelli þá hefði ég alltaf nennt að æfa í rúm tuttugu ár á hverjum degi bara til þess að upplifa þetta augnablik.
Hver er þín helsta fyrirmynd í handboltanum og af hverju?
Þegar ég var að alast upp þá var Nenad Perunicic og Christian Schwarzer mínar helstu fyrirmyndir enn eins og gefur að skilja eru þeir þúsund ára gamlir í dag og enginn veit hverjir þeir eru. Þeir voru bestu leikmenn í heiminum á sínum tíma og spilaði Schwarzer til að mynda tuttugu tímabil í efstu bundisligu í Þýskalandi.
Hvernig var fyrir þig sem leikmann að spila stærsta handboltaleik sem leikinn hefur verið í Vestmannaeyjum? Fannstu fyrir mikilli pressu? Það voru náttúrulega algjör forréttindi að fá að deila þessu augnabliki með bæjarbúum. Ég fann fyrir því að allt samfélagið var að leggjast á eitt. Alveg sama við hvern maður talaði þá voru allir með sama markmið og það var að vinna þennan leik. Að því sögðu fann ég fyrir stressi í aðdraganda leiksins því ég gat ekki hugsað mér að bregðast öllu fólkinu.
Var þetta síðasta tímabilið þitt fyrir ÍBV? Eru skórnir komnir á hilluna?
Það hefði kannski verið skynsamlegast að leggja skóna á hilluna eftir svona stórkostlegan endi en þar sem ég er nýbúinn að fá nýja handboltaskó þá tími ég ekki að hafa þá á hillunni og ætla ég að nota þá a.m.k. eitt ár í viðbót.


Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? Ég vill nota tækifærið og þakka fjölskyldunni minni sem hefur þurft að tipla á tánum í gegnum súrt og sætt á meðan á svona úrslitakeppni stendur yfir, þakka liðinu mínu öllum sem einum, elska þessa peyja. Þakka þjálfurum, liðstjórum, sjúkraþjálfurum og að ógleymdum áhorfendum fyrir algjörlega ógleymanlegt augnablik sem mun varðveitast í minningunni um ókomna tíð í íþróttasögu Vestmannaeyja.
Innilegar hamingjuóskir ÍBV!
Íbúð aldraðra
Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknar íbúð eldri borgara Sólhlíð. Íbúðin er 53,2 fermetrar. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ.
Umsóknarfrestur er til 30. júní nk.
Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23 (gamla Íslandsbanka) og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað. Mikilvægt er að skila inn öllum gögnum sem óskað er eftir eða nýjum gögnum hafi aðstæður breyst.

ARNÓR VIÐARSSON:
Markmi I Er A N
Lengra En Elli I Br Ir
Flötum 29
Tímapantanir í síma: 481-1012
Neyðarsíminn: 844-5012 tannsi@eyjar.is
Eftir frábæran árangur á tímabilinu, hvað er það sem þér þótti eftirminnilegast innan vallar?
,,Það sem stendur upp úr er klárlega leikur 5 á móti Haukum“.
Nú hefur hlutverk þitt alltaf verið að stækka innan liðsins, hvernig hefur þér líkað sú þróun?
,, Mér hefur líkað það mjög vel og þegar maður fær stærra hlutverk verður sjálfstraustið meira“.
Settir þú þér einhver persónuleg markmið fyrir þetta tímabil?
,,Markmiðið mitt er búið að vera að verða Íslandsmeistari síðan 2014 og ég var ekki með neitt öðruvísi markmið fyrir þetta tímabil“.
Hvernig var tilfinningin að lyfta bikarnum á heimavelli? ,,Það var sturlað að gera þetta með öllu fólkinu, það er nánast ólýsanlegt“.
Hvert stefnir þú í handboltanum? Er atvinnumennskan draumur-inn?
,,Já klárlega er markmiðið að fara lengra en Elliði og spila fyrir landsliðið“.
Hver er þín helsta fyrirmynd í handboltanum og af hverju?

,, Það eru þeir Sagosen og Aron Pálma þeir eru báðir frábærir leikmenn sem eru góðir á báðum endum vallarins“.
Hvernig var fyrir þig sem leikmann að spila stærsta handboltaleik sem leikinn hefur verið í Vestmannaeyjum? Fannstu fyrir mikilli pressu? ,,
Það var geggjað og ég reyndi bara að njóta“. Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? ,,Já vill bara þakka Eyjamönnum fyrir frábæran stuðning“.