4 minute read

TÍGULL

DREIFING: hafi það jafnvel verið erfitt fyrir þá þjálfarana að velja hóp og gefa mönnum þær mínútur í leik til að halda áfram að þróast sem leikmenn. Hann segir einnig að það hafi verið ótrúlega gaman að sjá unga leikmenn fá mikilvæg hlutverk í liðinu og þroskast sem stórkostlegir keppnismenn.

Ótrúlegur stuðningur

Advertisement

Eyjamenn eru þekktir fyrir að fara alla leið þegar kemur að því að styðja sitt lið og hefur þessi stuðningur verið mjög áberandi í fjölmiðlum landsins. Erlingur sagði að stuðningurinn sem íþróttin hafi fengið í vetur sé einstakur og þessi góða mæting hafi gert það að verkum að ósjaldan gat ÍBV breytt útileik í heimaleik þar sem Eyjamenn voru í miklum meirihluta í stúkunni. ,,Það er ósjaldan sem leikmenn hafa farið í leiki sem fulltrúar Vestmanneyinga og þurfi að gefa til baka með þeim hætti að leggja sig 100% fram“. Hann nefnir í því samhengi að það sé því mikilvægt að fólk mæti vel á leiki svo leikmenn upplifi sig sem fulltrúi þeirra.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn/ Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd/Tígull. Blaðamaður/ Kristjana Ingibergsdóttir

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Að loknu tímabili er gott að líta um öxl og fara yfir veturinn, skoða hvort eitthvað hefði mátt gera öðruvísi. Erlingur sagði að það sé ekkert sem hann geti bent á þannig séð sem hann hefði viljað gera öðruvísi. Leikmenn liðsins hafi unnið vel í vetur í að bæta sig sem leikmenn og með því eflt og bætt liðið. Hann sé því mjög sáttur. Það sé margt í huga hans þegar kemur að liðinu en nefnir samkenndina sem einkennir hópinn. Hvernig eldri leikmenn hafi dregið vagninn, axlað mikla ábyrgð og hvatt þá yngri endalaust til dáða og líka kennt þeim ungu að axsla ábyrgð strax.

Virkilega góð tilfinning að sjá bikarinn fara á loft á heimavelli

Karlalið ÍBV hefur þrisvar sinnum orðið Íslandsmeistari í handbolta en aldrei á heimavelli. Nýjustu tölur sýndu að áhorfendamet hafi einnig fallið, eða um 1800 miðar hafi verið seldir. Erlingur sagði að tilfinningin að lyfta bikarnum fyrir framan allt fólkið þeirra á heimavelli hafi verið virkilega góð og sérstaklega hafi verið gaman að sjá leikmenn uppskera og fagna eftir alla þá vinnu sem þeir hafa lagt á sig. Það hafi verið frábært að geta sýnt sínu fólki að leikmenn ÍBV geri allt til að borga til baka fyrir ódrepandi stuðning.

Mikil íþróttafjölskylda

Það er óhætt að segja að fjölskylda Erlings hafi sterka tengingu við handboltann og greinilegt að handboltinn er í genunum. Þau hjónin Erlingur og Vigdís eiga bæði langan og flottan feril að baki í

Þýskalandi, Elmar með U-liði ÍBV og meistaraflokki og Andri er í fjórða flokki. Ásamt þeim sagði Erlingur að ansi mörg frændsystkinin væru í ÍBV eða hafa leikið með ÍBV í gegnum tíðina.

Mikilvægt að halda í alla þessa framúrskarandi yngri flokka þjálfara hjá félaginu

En hvað ætli það sé sem er svona sérstakt við handboltaumhverfið í Vestmannaeyjum. Hingað hafa komið fjölmargir leikmenn bæði í karla og kvennaliðið og virðist sem allir leggi mikið ástfóstur á Eyjuna og fólkið sem hér býr. Erlingur sagði að samkenndin og stuðningurinn í samfélaginu er það sem drífur leikmenn áfram til að standa sig. Það samspil verðum að reyna að viðhalda. ,,Einnig vil ég taka það fram að við höfum verið með framúrskarandi yngri flokka þjálfara hjá félaginu sem eru alltaf að skila frá sér góðum íþróttamönnum. Það er tekið eftir því hversu gott og markvisst starf er unnið hér, þessari þekkingu þurfum við að halda í“. Erlingur leggur mikla áherslu á að svona frábær árangur sem liðin okkar hafa sýnt í gegnum tíðina, karla og kvenna, er ekki sjálfgefinn. Við þurfum á öllu okkar fagfólki að halda og félagið þarf að gera allt til að búa til þannig umhverfi að hér starfa aðeins frammúrskarandi þjálfarar með metnað fyrir því að skila af sér góðu íþróttafólki.

Eins og fyrr segir var þetta síðasta tímabilið hjá Erlingi og stefnir hann á að taka sér smá frí eftir veturinn og fara síðan að kenna næsta haust. Við óskum honum innilega til hamingju með frábæran árangur, þökkum honum kærlega fyrir spjallið og óskum honum góðs

Til Hamingju

Til Hamingju

MEÐ FRÁBÆRAN ÁRANGUR ÍBV!

MEÐ FRÁBÆRAN ÁRANGUR ÍBV!

HARPA VALEY GYLFADÓTTIR:

Love You Bv

Eftir frábæran árangur á tímabilinu, hvað er það sem þér þótti eftirminnilegast innan vallar?

,,Það sem að mér fannst eftirminnilegast við þetta tímabilið var að vinna deildar- og bikarmeistaratitilinn“.

Hvort var erfiðara að sækja Bikareða deildarmeistaratitilinn?

Og hvor titillinn var sætari?

,,Báðir titlarnir voru mjög krefjandi, en ég myndi segja að bikarmeistaratitilinn hafi verið aðeins sætari, samt sem áður var leikurinn sem við unnum með flautu marki hérna heima á móti Val mjög sætur, sem kom okkur góða leið í að vinna deildarmeistaratitilinn. En bikarmeistaratitilinn var eitthvað annað, þetta er leikur sem okkur var búið að dreyma um að spila og hvað þá vinna, fæ gæsahúð að hugsa um hann það var svo geggjað að spila þennan leik og með þennan stuðning sem við fengum, þetta var einn skemmtilegasti leikur sem ég hef spilað“.

Hvernig var upplifunin að sigla heim með bikarinn?

,,Upplifunin að sigla heim með bikarinn var ólýsanleg, það var svo geggjað, að vera með fólkinu okkar að fagna og að sjá alla á bryggjunni taka á móti okkur, þetta er móment sem maður mun aldrei gleyma“.

Settir þú þér einhver persónuleg markmið fyrir á nýafstöðnu tímabili?

,,Markmiðin mín voru bara að gera mitt besta innan sem utan vallar, hafa gaman, njóta og vera jákvæð“.

Er stemmingin í liðinu betri á þessu tímabili heldur en á undanförnum tímabilum?

,,Já mér finnst stemmingin í hópnum rosalega góð á þessu tímabili, erum mjög þéttur og náin hópur. Hópurinn hefur samt verið góður og mikil stemming undanfarin tímabil en ég myndi segja að við værum extra góðar vinkonur núna, enda búnar að eyða miklum tíma saman“. Nú skrifaðir þú undir samning við Selfoss á dögunum, til hamingju með það.

Hvað varð til þess að þú valdir að breyta til og flytja frá Eyjum?

,,Já takk kærlega fyrir, en ég var að íhuga það að fara í háskóla en annars líka bara að prufa eitthvað nýtt og fá smá tilbreytingu (einnig hef ég tengingu á Selfoss núna)“.

Hver er þín helsta fyrirmynd í handboltanum og af hverju?

,,Ég er eiginlega ekki með einhverja eina eða sérstaka fyrirmynd í handboltanum, kannski bara “gömlurnar” í liðinu mínu, lít upp til þeirra finnst þær geggjaðar og frábærar fyrirmyndir“.

Eitthvað að lokum? ,,Takk kærlega fyrir mig ÍBV og allan stuðninginn sem við fengum, þetta var geggjað tímabil með besta fólkinu. Love you ÍBV“.

This article is from: