
6 minute read
STARFSMAÐUR Á LEIKJANÁMSKEIÐ
Vestmannaeyjabær óskar eftir að ráða starfsmann á leikjanámskeið.
Sumarfjör Vestmannaeyjabæjar er leikjanámskeið fyrir börn í 1.-4. bekk.
Advertisement
Í starfinu er lögð rík áhersla á gleði, skemmtun, samveru, leiki og hreyfingu.
Nánari upplýsingar á vef Vestmannaeyjabæjar
TAKK FYRIR MIG ÖLL SEM EITT, ÉG ELSKA YKKUR!
Nú á dögunum hætti Vilmar Þór Bjarnason sem framkvæmdarstjóri handknattleiksdeildar ÍBV. Vilmar þekkja flestir ef ekki allir Eyjamenn sem fylgjast með íþróttum enda hefur hann verið mjög virkur í kringum allt starf deildarinnar, bæði sem kynnir á leikjum, verið í handknattleiksráði og nú eins og fyrr segir fráfarandi framkvæmdarstjóri deildarinnar.
Vilmar Þór er einstaklega góður drengur með góða nærveru og mikill happafengur fyrir ÍBV að hafa slíkan einstakling í sínu horni. Þrátt fyrir að eflaust allir og hann sjálfur líti á sig sem Eyjamann þá er hann fæddur og uppalinn í Reykjavík en flytur til Vestmannaeyja haustið 2015, en það sama ár giftist hann Þóru Sif sinni í Eyjum. Vilmar og eiginkona hans Þóra Sif Kristinsdóttir eiga tvö börn sem heita Theresa Lilja (12 ára) og Óliver Atlas (10 ára). Einnig eru þau með dásamlegan 6 ára dreng í skammtímafóstri. Fjölskyldan hafði hugsað það í einhvern tíma að flytja til Eyja þar sem Þóra Sif er fædd og uppalin og Vilmar sagði að eftir að hafa kynnst samfélaginu í Eyjum á þeim 6 árum sem þau hjónin hefðu verið saman hefði hann verið alveg heillaður og sagði að í raun og veru hafi hann dregið hana aftur heim. Hvorugt þeirra sér eftir því í dag.
Upphafið af starfinu hjá bandalaginu
Aðspurður að því hvernig það hafi komið til að hann hafi farið að vinna fyrir bandalagið sagði Vilmar að það hafi byrjað með því að hann var beðinn um að leysa Gauja Sidda af sem kynnir á handboltaleikjum meistaraflokkanna, af og til. Gaui var búinn að sinna því starfi lengi og varð frelsinu feginn. Það var síðan um vorið 2016 að Arnar Pétursson, þáverandi þjálfari karlaliðsins spurði hann hvort hann vildi ekki koma með í starfið á fullu og úr varð að Vilmar tók sæti í handknattleiksráði haustið sama ár. Þar sat hann fram á sumarið 2019 þegar hann var síðan ráðinn sem framkvæmdarstjóri handknattleiksdeildarinnar. ,, Á þessum tíma hafði hinn dásamlegi vinur minn Viktor Hólm Jónmundsson verið í starfinu, hann hafði verið í 50% stöðu. Hann hafði ákveðið að hætta og spurði mig hvort ég vildi ekki skoða að taka við. Á þessum tíma var starfinu breytt og fleiri verkefni færð á framkvæmdastjóra og því breytt í 100% starf. Ég var ekki lengi að hugsa mig um og sló til. Það að fá boð um að starfa fyrir félag eins og ÍBV og að vinna fulla vinnu við sitt helsta áhugamál eru forréttindi og eitthvað sem ég mæli með!“.

Alltaf elskað íþróttir
Vilmar segist alltaf hafa verið mikill íþróttaáhugamaður, allt frá blautu barnsbeini. Handbolti hefur alltaf átt sérstakan sess hjá honum , en hann hefur mikinn áhuga á öllu sem heita íþróttir. Hann hafi farið snemma í að sinna sínu uppeldisfélagi og var duglegur að dæma og hjálpa til við hin ýmsu verkefni. Móðir hans hafi verið í unglingaráði hjá ÍR síðan hann man eftir sér og þannig hafi hann lært og séð hvað sjálfboðaliðar/félagsmenn skipta miklu máli fyrir íþróttafélög. Hann segist líka styðja börnin sín mikið í þeirri íþrótt sem þau stundi og reyni að sýna þeim með góðu fordæmi og leggja inn mikilvægi þess að vera góðir félagsmenn. Vilmar æfði sjálfur handbolta þegar hann var yngri, en spilaði einnig fótbolta og um stund badminton en segir að boltaíþróttirnar hafi höfðað best til hans. ,,Ég bjó í nokkrum hverfum á grunnskólaárunum og æfði því hjá nokkrum félögum. Ég hóf ferilinn hjá Fram í fótbolta 5 ára gamall. Þegar sameinað félag Ármann/ Þróttur (hið stórmerka félag) tók aftur upp handbolta þegar ég var um 9-10 ára hóf ég að æfa handbolta en færði mig svo í Fram fljótlega í handboltanum. Ég flutti svo í Breiðholtið og æfði báðar íþróttir með ÍR frá 13-14 ára aldri og þar til ég hætti eftir 2./3.flokk“. Þrátt fyrir að hafa spilað boltaíþróttir í öll þessi ár sagði Vilmar að hann hafi hins vegar ekki verið talinn líklegur til afreka á vellinum, en segir í gríni, en samt ekki gríni að hans styrkleiki liggi frekar í því að hann hafi verið sterkur í klefanum, hvetjandi og góður leiðtogi og liðsmaður.

Eyjar er ,,mitt heima“
Eins og fyrr segir heillaðist Vilmar fljótt af Eyjum og segir því að ekki hafi komið sér margt á óvart þegar hann flutti hingað, heldur hafi hann frekar fengið grun sinn staðfestan, sem var að samfélagið í Eyjum er væri frábært. Þegar þau hjónin kynntust aðeins 19 ára gömul árið 2009 byrjuðu þau að búa í Vestmannaeyjum og sagði Vilmar að hann ætti mjög margar skemmtilegar minningar frá því sumri. Hann sagði að strax hafi hann fundið að hér byggi skemmtilegt og gott fólk, mikill samhugur og honum hafi verið mætt með mikilli vinsemd strax frá upphafi. ,,Það mætti kannski segja að það komi mér mest á óvart að ég hafi ekki fæðst hérna, því mér líður þannig að þetta sé minn staður í heiminum, mitt heima!“.
Blendnar tilfinningar að hætta
Vilmar lætur nú af störfum sem framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar eftir fjögur ár og sagði Vilmar að það væri óhætt að segja að væru mjög blendnar tilfinningar að hugsa til þess að vera hættur. Í starfinu hafi hann myndað mjög náin og góð tengsl við stórkostlegan hóp af fólki og sagði að þetta sé allt fólk sem hann muni eiga sem vini fyrir lífstíð. Þetta starf sé hins vegar ekki hin hefðbundna 8-16 vinna, heldur er oft á tíðum mikið jask og mjög mikil vinna. Þrátt fyrir allt áreitið sem fylgir starfinu sagði Vilmar að þetta væri allt þess virði og gæfi svo mikið til baka. ,,þegar maður sér liðin sín uppskera vel eftir mikla vinnu og erfiði. Það er hreinlega eins og í einhverri lygasögu að félagið sé handhafi 3 af 6 titlum sem eru í boði í íslenskum handbolta, það eru hrein forréttindi að fá að taka á svona ævintýri! Stelpurnar mínar bikar- og deildarmeistarar og peyjarnir mínir Íslandsmeistarar!“ sagði Vilmar stoltur. Vilmar sagði að þrátt fyrir krefjandi og skemmtilega vinnu hafi hann fundið það í byrjun vors að það væri kominn tími fyrir hann til að stíga til hliðar. Ástæðuna segir hann ekki vera vegna þess að honum hafi ekki líkað vinnan eða verið orðinn leiður á henni, frekar að þetta væri farið að taka meiri toll en áður. ,,Ég vildi hætta núna, áður en ég t.d. brenn út eða „crash-a“. Ég vildi geta gengið beinn í baki og stoltur frá borði, og það er óhætt að segja að ég geri það í dag. Það að sjá karlaliðið verða Íslandsmeistari, í oddaleik á heimavelli, á mínum síðasta formlega degi í starfi er handrit sem ég held að enginn hefði getað skrifað“. Hann segist hins vegar alls ekki vera farinn frá ÍBV heldur hlakki hann til að vera aftur sjálfboðaliði, kynnir og dyggur stuðningsmaður.
Einstaklega vel giftur
Það er ekki hægt að segja annað en að öll fjölskyldan gefi bandalaginu 100% og hefur það verið aðdáunarvert að fylgjast með þeim hjónum Vilmari og Þóru Sif leggja allt sitt í að aðstoða við allt sem tengist ÍBV. Vilmar segir að þetta sé fjölskyldu-áhugamál. Þóra Sif er í stjórn handknattleiksdeildarinnar af fullum krafti. Börnin þeirra taka virkan þátt í þessu öllu og þau hafi öll jafn gaman af þessu. Hann segir að þetta sé svo gefandi og skemmtilegt umhverfi og frábært fyrir börn að alast upp í og bara fyrir alla að vaxa og stækka sem einstaklingar. Hann leggur mikla áherslu á að til þess að geta unnið í svona starfi eins og hann hafi gert undanfarin ár er nauðsynlegt að vera vel giftur eins og hann er svo sannarlega. Hann segir ,,Þóra Sif, konan mín, á svo ótrúlega stóran þátt í því sem ég hef afrekað og komið í verk í mínu starfi hjá ÍBV. Hún hefur alltaf staðið eins og klettur við bakið á mér, sýndi því alltaf skilning þegar ég þurfti að vinna fram eftir, símtöl á matmálstímum, og nánast hvaða dag ársins sem var. Hún hefur gripið mig þegar ég er við það að fara yfir um, þegar álagið er sem mest, en jafnframt alltaf hvatt mig áfram og sinnt börnum og búi eins og herforingi á þessum sömu umræddu álagstímum. Við erum búin að vera í þessu saman og það er svo einstaklega dýrmætt!“.
Næstu skref

Vilmar hefur verið ráðinn til starfa sem sölufulltrúi á viðskiptasviði Arion banka og byrjaði hjá þeim núna á mánudaginn. Hann segist koma til með að vinna starfið frá Vestmannaeyjum enda myndi það aldrei koma til greina að fjölskyldan myndi yfirgefa Eyjuna okkar fögru og ÍBV.



Takk fyrir mig
Að lokum segir Vilmar ,Ég vil koma á framfæri þökkum til alls míns fólks hjá ÍBV, fyrir traustið, trúna og frábæran tíma saman. Leikmenn, þjálfarar, starfsfólk, stjórnarfólk, sjálfboðaliðar og stuðningsmenn sem allt eru ótrúlega mikilvægir hlekkir í starfi handknattleiksdeildar ÍBV. Sömuleiðis vil ég ítreka hversu mikilvæg konan mín og börnin hafa verið á þessum tíma, án þeirra aðkomu og skilnings hefði þetta aldrei verið hægt. Takk fyrir mig öll sem eitt, ég elska ykkur! „.
Við þökkum Eyjapeyjanum Vilmari kærlega fyrir skemmtilegt spjall og óskum honum góðs gengis í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. Held að það sé líka óhætt að segja að fyrir hönd okkar Eyjamanna segjum við ,,Takk Vilmar fyrr allt og við elskum þig líka“.
Starfsmannafélag

Vestmannaeyjabæjar












