5 minute read

LEIKFÉLAG VESTMANNAEYJA SETUR UPP

Rocky Horror Leikstj Rn

Rna Gr Tars J Hannssonar

Advertisement

Leikfélag Vestmannaeyja stendur í ströngu þessa dagana við æfingar á næsta verki, Rocky Horror. Leikstjóri verksins er Árni Grétar Jóhannsson. Hann lauk B.A. gráðu í leikstjórn frá Rose Bruford College of Theatre and Performance í London árið 2010. Síðan þá hefur hann komið víða við og leikstýrt fjölda leiksýninga. Þar á meðal hér í Eyjum. Þrisvar áður hefur Leikfélag Vestmanneyja notið leikstjórn Árna. Það í verkunum, Benedikt Búálfur 2016, Klaufar og Kóngsdætur 2017 og Blúndur og blásýra árið 2019 sem er einmitt síðasta verkið sem hann leikstýrði. Tígull heyrði aðeins í kappanum og forvitnaðist um hann og hvað á daga hans hefur drifið síðan þá. „Ég er fæddur og uppalinn á Selfossi en á þó ættir að rekja til Vestmannaeyja. Bjó um tíma í London meðan ég menntaði mig. Bý núna í miðborg Reykjavíkur með manninum mínum, Leifi Erni og hundinum okkar Magnúsi Dreka,“ sagði Árni sem hefur ýmislegt bardúsars frá síðasta leikverki „Ég hef verið að reka skemmtistað, gifta fólk, leiðsegja ferðamönnum, bara allskonar skemmtilegt.“

Vísindaskáldskapssöngleikur með brjálæðislega skemmtilegri tónlist

Eins og fyrr segir æfir Leikfélagið nú Rocky Horror sem er þrælskemmtilegur Vísindaskáldskapssöngleikur með brjálæðislega skemmtilegri tónlist og karakterum sem eru stærri en lífið sjálft. Við fylgjumst með hinu fullkomna bandaríska pari sem villist af leið og endar í kastala geimverunnar Frank N Furter þar sem þau lenda heldur betur í ævintýrum, verða vitni að kraftaverkum og kynnast nýjum hliðum á sjálfum sér með óvæntum endi.

Aðspurður segir Árni æfingar ganga mjög vel. „Æfingarnar hafa gengið stórkostlega enda metnaðurinn í leikhópnum mikill, hljómsveitin þrusu þétt og söng- ur og dansar í öruggum höndum hjá Jórunni og Ernu,“ sagði Árni og bætti við. „Leikfélag Vestmannaeyja er ofsalega heppið með aðstöðu og aðbúnað. Kvika er einstakt hús og metnaður félagsins í gegnum árin við að safna sér fyrir og koma sér upp góðum tækjabúnaði gerir það að verkum að það er hægt að láta allskonar drauma rætast á sviðinu.“

Rocky Horror verður frumsýnt á Skírdag, fimmtudaginn 6. apríl og verður svo sýnt áfram nokkrar helgar þar á eftir. „Eyjafólk verður því að hafa hraðar hendur við að nálgast miða þegar opnað verður fyrir sölu,“ sagði Árni Grétar Jóhannsson,leikstjóri að lokum, fullur tilhlökkunnar.

Sumarafleysingar Eldh S Hsu Vestmannaeyjum

Helstu verkefni og ábyrgð

Spennandi starf í eldhúsi HSU í Vestmannaeyjum. Eldhúsið matreiðir mat fyrir sjúklinga, íbúa hjúkrunardeildar auk þess að sjá um mötuneyti starfsmanna.

Um er að ræða vaktavinnu. Vinnutími er frá kl. 07:00-15:00 og aðra hverja helgi.

Hæfniskröfur

• 18 ára aldurstakmark

• Góð hæfni í mannlegum samskiptum

• Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.

Starfshlutfall er 70-90%

Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023

Nánari upplýsingar veitir Bjarni Sigurðsson - bjarni.sigurdsson@hsu.is - 4322500 verður haldinn miðvikudaginn 15. mars 2023 kl. 19:30.

DAGSKRÁ FUNDARINS: - Venjuleg aðalfundarstörf- Önnur mál- Kaffi -

Hlökkum til að sjá sem flestar & nýjar konur velkomnar.

A Sem Er Fr Tt Getur Veri Heilmikils Vir I

Á tímum óðaverðbólgu eru tónleikar munaður sem kannski ekki allir geta leyft sér um hverja helgi. Síðustu tvær helgar hefur það þó ekki þurft að trufla nokkurn. Því síðustu tvo laugardaga hafa verið í boði tónleikar gestum að kostnaðarlausu.

Þýsk-íslenskur Jazz í Eldheimum Það voru hinir hálfíslensku jazzistar Lars Duppler, á píanó og Stefán Karl Schmid, sem lék á Saxófón og klarínett, sem riðu á vaðið laugardaginn 25. mars. Þeir félagarar eiga það sameiginlegt að eiga íslenskar mæður. Þeir eru margverðlaunaðir og eftirsóttir í þýsku jazzsenunni og buðu upp á dagskrá þar sem þeir sóttu innblástur í sínar íslenskar rætur. Á tónleikunum spiluðu þeir lög af hljómplötu sinni Hringferð sem, ásamt lögum eftir þá félaga, inniheldur túlkun þeirra á nokkrum ramm íslenskum lögum eins og Númarímum, Heyr himna smiður og Sveitin milli sanda. Stórkostleg upplifun sem mikið fleiri misstu af en fengu að njóta.

Lúðrasveita samkurl í Kviku Síðastliðinn laugardag öttu saman hestum sínum tvær lúðrasveitir í Kviku og buðu Eyjamönnum að njóta. Þar voru á ferðinni Lúðrasveit Vestmannaeyja ásamt Lúðrasveit Reykjavíkur. Sveitirnar buðu uppá afbragðs skemmtun með fjölbreyttu lagaval samansettu af íslenskum dægurlögum. Þar mátti heyra lög eins og Garún, syrpu af lögum með Grýlunum og fleiri gömul og góð. Það var líka skemmtilegt þegar Jarl Sigurgeirsson stjórnandi Lúðrasveitar Vestmannaeyja kynnti eina Eyjalag kvöldsins, lagið Color Decay með Júníusi Meyvant. Það má nefninlega alveg spyrja sig, hvenær verður lag Eyjalag?

Frábært framtak, takk fyrir mig.

PIZZUTILBOÐ

12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 4.590 kr. ]

16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 6.290 kr. ]

9” PIZZA með 3 áleggjum [ 2.290 kr. ]

12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 4.090 kr. ]

12” PIZZA með 3 áleggjum [ 2.790 kr. ]

16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.790 kr. ]

16” PIZZA með 3 áleggjum [ 3.390 kr. ]

TVENNUTILBOÐ

Tvær 16” pizzur + stórar brauðstangir [ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ]

OPIÐ Mán-fim 17-21 og lau 12-22 Sun 12-21

Fr B Rar Vi T Kur Vi Einu Flottasta

HLAUPI LANDSINS, THE PUFFIN RUN

Ekkert lát virðist á vinsældum

The Puffin Run. Þrátt fyrir að hafa fjölgað þátttakendum úr þúsund í tólfhundruð er orðið uppselt í hlaupið og komast færri að en vilja. Það er kannski engin furða enda hlaupahringurinn einstakur og náttúrufegurðin ólýsanleg allt hlaupið. Af 1200 ætla sér 1000 manns að hlaup heilan hring sem telur alls 20 km.

Tígull heyrði í Kötu Laufey sem er ein af skipuleggjendum hlaupsins. „Við erum rosalega þakklát öllum sem koma ár eftir ár og hlaupa með okkur. Þetta er eitt stórt partý, allir brosa allan hringinn og koma svífandi á bleiku skýi í mark. Þetta er klárlega skemmtilegasta verkefni ársins, Við hlökkum mikið til að taka á móti hlaupurnum í ár,“ sagði Kata sem vildi nota tækifærið og minna hlaupara af fastalandinu á að bóka sér far með Herjólfi sem fyrst. „Það borgar sig ekkert að draga það ef þú vilt vera viss um að komast þegar þér hentar.,“ sagði Kata.

The Puffin Run fer fram laugardaginn 6. maí næstkomandi. Eins og fyrr segir er von á 1200 hlaupurum til Eyja og ljóst að þörf er á mikið af starfsfólki til þess að hlaupið og skipulagið í kringum það gangi sem best fyrir sig. „Já, þetta gengi aldrei upp ef ekki væri fyrir þá fjölmörgu sjálboðaliða sem koma að þessu. Þar er alltaf pláss fyrir fleiri og um að gera að hafa samband ef þú vilt leggja okkur lið,“ sagði Kata að lokum. Þess má líka geta að allir sem koma að hlaupinu gera það í sjálfboðavinnu og er rétt að hrósa þeim og þakka fyrir framtakið. The Puffin Run er enn einn árlegi viðburðurinn í Eyjum sem dafnar og stækkar og fyrirtæki og þjónustuaðilar í Eyjum njóta góðs af.

Opnunartímar:

Mánudagur - lokað

Þriðjudagur - 13.00 til 17.30

Miðvikudagur - 13.00 til 17.30

Fimmtudagur - 13.00 til 17.30

Föstudagur - 13.00 til 17.30

Laugardagur - 12.00 til 15.00

Sunnudagur - lokað

Fermingarmyndir

Hægt er að kaupa miða og velja sæti á www.eyjabio.is

FÖSTUDAGUR 10. MARS

KL. 20.00

LAUGARDAGUR 11. MARS

KL. 15.00

SUNNUDAGUR 12. MARS

KL. 15.00

KL. 20.00

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi,

ÓLI ÁGÚST ÓLAFSSON FOLDAHRAUN 41, VESTMANNAEYJUM ÁÐUR VATNSKOTI ÞYKKVABÆ

Verður jarðsunginn frá Hábæjarkirkju Þykkvabæ föstudaginn 17. mars kl. 14:00.

Sigurveig Andersen

Rósa Emilía Óladóttir

Ólafur Bjarni Ólason

Sigrún Óladóttir

Jóhannes Ólason

Gunnar Ársælsson

Eydís Ásgeirsdóttir

Árni Þorbergsson

Þórdís María Viðarsdóttir stjúpbörn, barnabörn og barnabarnabörn

Viltu minnast

látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Verð: 12.400 kr.

Kæru ættingjar og vinir! Þökkum þá samúð og hlýju sem þið sýnduð okkur við fráfall og útför okkar elskulega föður, tengdaföður, afa og langafa

INGÓLFS ÞÓRARINSSONAR FJÓLUGÖTU 4, VESTMANNAEYJUM

Sérstakar þakkir færum við Hjalta lækni, starfsfólki HSU Vestmannaeyjum, séra Viðari Stefánssyni og öðru starfsfólki Landakirkju.

Megi minningin um góðan mann lifa.

Sigurjón Ingi Ingólfsson

Þórarinn Ingólfsson

Gunnar Örn Ingólfsson

Sigurrós Sverrisdóttir

Anna Guðmundsdóttir

Helga Barðadóttir barnabörn og langafabörn.

Prentum sálmaskrár

Við tökum að okkur að setja upp og prenta sálmaskrár.

Hægt er kíkja við hjá okkur á Vestmannabraut 38 og sjá sýnishorn af því sem við erum með í boði.

Hægt er að hafa samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.

This article is from: