
2 minute read
ALDREI SKILAÐ OF SEINT OG VIL HELST EKKI TAKA UPPÁ ÞVÍ NÚNA
Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum sá fjöldi nýbygginga sem risið hefur í Eyjum á undanförnum misserum. Ein þeirra bygginga sem nú eru í byggingu er fjölbýlishús að Áshamri 79 en það reisa SA smíðar ehf. Eigendur eru feðgarnir Svanur Örn Tómasson húsasmiður og Aron Ingi Svansson og eru þeir feðgar búnir að vinna saman meira og minna frá 2006.
„Svanur er búin að vera í þessum bransa 1990 þegar hann og félagi hans stofnuðu byggingarfélagið Akkorð sf. þar áður var ég búin að vera nemi og unnið nokkur ár sem sjálfstæður smiður,“ sagði Aron Ingi í spjalli við Tígul. Svanur var orðinn ansi fyrirferðarmikill í bransanum fyrir nokkrum árum. Byggði upp leigufélag með íbúðarhúsnæði og var komin með 137 íbúðir í leigu og um 60 íbúðir í byggingu ásamt því að vera með lóð undir 52 íbúða húsnæði sem var búið að teikna íbúðir á árið 2007. Eins og gefur að skilja voru fjögur erfið ár framundan þá vegan bankahrunsins. Svani tókst hinsvegar að halda rekstrinum gangandi allan tímann og seldi Leiguliða ehf árið 2012. „Ég sneri mér að öðru í þrjú ár eða svo, en helti mér síðan aftur í þennan bransa,“ sagði Svanur.
Advertisement
Aldrei skilað of seint Þeir feðgar eru orðnir vel kunnugir staðháttum hér í Eyjum og sér í lagi í Áshamrinum. En SA Smíðar byggðu raðhúsalengjuna við Áshamar 95 til 103 og það sem meira er skiluðu þeim húsum á áætluðum tíma. Þá kom Svanur einnig að byggingu raðhúsalengju við Foldahraun. „Á öllum mínum ferli í þessum bransa hef ég aldrei skilað of seint og vil helst ekki taka uppá því núna. Við leggjum mikið upp úr því að standa við það sem við segjum,“ bætti Svanur við.
„Framundan eru þessar lóðir sem við erum með hér í Eyjum bæði íbúðarhúsnæði ásamt atvinnuhúsnæði á nýja svæðinu upp við flugvöll,“ sögðu þeir feðgar aðspurðir hvað væri framundan.
„Þessi hús sem við erum að byggja hér við Áshamar 79-93 eru uppsteypt fjórbýli og eru allar íbúðir með sér inngang, rafmagn og hita. Húsin verða einangruð og klædd að utan, með timbur/ál gluggum og hurðum, og reynt að hafa allt vandað og vel unnið.“
Aðspurðir út í aðstæður fyrir verktaka á markaðnum í dag sögðu þeir þær vera mjög skrítnar. „Það virðist vera mikil eftirspurn en engin þorir að gera neitt vegna vaxtaóróa. En það þýðir bara að þegar vextir fara lækka aftur þá verður orðin enn meiri eftirspurn og meiri þensla og þar afleiðandi leiðir það bara til enn meiri hækkana.“
Yndislegt að vera hér
Feðgarnir segja það vera talsvert öðruvísi að byggja hér í Eyjum en á fastalandinu. „Hér þarf maður svolítið meira að skipuleggja framkvæmdina varðandi efni þar sem það fæst nú ekki alltaf allt sem manni vantar hér á Eyjunni. Öll aðföng eru líka mikið dýrari og vinnuafl er jafnvel bæði erfitt að fá og virðist vera dýrara en á höfuðborgarsvæðinu. En annars bara frábært að vera hér á þessari yndislegu eyju,“ sögðu þeir feðgar Aron Ingi og Svanur að lokum.