1 minute read

ALÞJÓÐLEGRI DUOLINGO KEPPNI

FRÉTTAHORN FÍV

Í síðustu viku var verðlauna afhending í FÍV, en nemendur í dönsku á 1. þrepi tóku þátt í alþjóðlegri keppni í Duolingo og unnu til verðlauna.

Advertisement

Duolingo er farsímaforrit sem býður upp á nám í tungumálum. Með Duolingo geta notendur þjálfað sig í að tala, hlusta, lesa og skrifa á mörgum mismunandi tungumálum, meðal annars dönsku.

Tungumálanámið er skipulagt sem leikur, þar sem notendur þurfa að klára ákveðna þætti og fá stig fyrir að svara spurningum og leysa verkefni. Duolingo notar líka svokallaðar „gamification“ aðferðir til að auka áhuga notenda og búa til samkeppni í náminu.

Þetta forrit er aðgengilegt á netinu og er hægt að nálgast það á flestum snjallsímum og öðrum tæki sem eru tengd internetinu.

Þetta hefur gert námið aðgengilegra fyrir notendur út um allan heim og hefur gert það mögulegt að læra tungumál á einfaldan og skemmtilegan hátt.

Margrét Rut Rafnsdóttir, kennari í dönsku, skráði nemendahópinn í keppnina án þess að vita nákvæmlega út á hvað keppnin gekk, annað enn að hópurinn var að vinna að verkefninu sem heild. Dönskuhópurinn fór í keppni innanhúss við nemendur í spænsku og keppnisskapið hjá sumum kom í ljós. Nemendur og kennari fylgdust með súlunni sem sýndi fjölda sameiginlegra stiga hópsins.

Eftir fjórar vikur barst kennara póstur um að hópurinn hafði unnið sér inn gjafapakka og beðið var um heimilisfang. Miklar pælingar fóru af stað hvað varðar innihald pakkans og hann var lengi á leiðinni en pakkinn mætti í skólann í síðustu viku. Það var skemmtileg stund og í verðlaun var meðal annars tattú, límmiðar, blýantar, armbönd og nælur, allt merkt Duolingo.

Það er alltaf gaman að taka þátt í svona verkefnum sem ná út fyrir veggi skólans og hvað þá þegar unnið er til verðlauna.

This article is from: