
2 minute read
ÖSKUDAGURINN 2023
Þarð var líf og fjör á Leturstofunni þegar að börnin kíktu í heimsókn á öskudaginn. Teknar voru myndir af öllum þeim sem kíktu á okkur og munum við birta þær allar á vefnum okkar um helgina. www.tigull.is

Advertisement
Sigurj N Orkelsson Sk Kmeistari Vestmannaeyja 2023

Skákþingi Vestmannaeyja 2023 sem greint hefur verið frá í Tígli lauk 23 febrúar sl. Keppendur voru 10 og tefldar 9 umferðir og fór mótið fram í skákheimili TV að Heiðarvegi 9.
Umhugsunartími á skák var 60 mín. á keppanda + 30 sek fyrir hvern leik. Tók hver skák yfirleitt 2-3 klst. Keppendur voru á öllum aldri og 65 ára aldursmunur á þeim yngsta og elsta.
Skákstjóri var Sæmundur Einarsson, en hann býr yfir góðri reynslu og verið skákstjóri á fjölmennum Íslandsmótum skákfélaga.
Sigurjón Þorkelsson varð Skákmeistari Vestmannaeyja 2023 og hlaut 8,5 vinninga úr 9 skákum sem er mjög góður árangur. Í öðru sæti varð Hallgrímur Steinsson með 6,5 vinninga, í 3ja sæti varð Arnar Sigurmundsson með 5,5 vinninga og í 4.-5 sæti með 5 vinninga voru Sæmundur Einarsson og Hrafn Oddsson. Hallgrímur Steinsson var Skákmeistari Vm. 2022.
Sigurjón Þorkelsson hefur unnið Skákþing Vestmannaeyja í alls 16 skipti frá 1986 -2023. Sigurjón er stigahæstur skákmanna í Eyjum og
Hallgrímur Steinsson næst stigahæstur. Sæþór Ingi Sæmundarson 14 ára sem varð í 6-7 sæti ásamt Þórarni Inga Ólafssyni hækkaði mest á stigum á skákþinginu, en hann er mjög vaxandi skákmaður.

Framundan hjá Taflfélaginu er Íslandsmót skákfélaga 2022-2023 síðari hluti sem fram fer í Fjölnishöllinni í Grafarvogi helgina 18. - 19. mars nk. Er þar teflt í úrvalsdeild og 1. - 4. deild.
TV er með þrjár sex manna skáksveitir sem tefla í 1., 3. og 4. deild og keppa 20-25 manns fyrir félagið á seinnihluta mótsins. Íslandsmót skákfélaga er mjög fjölmennt og eru keppendur vel yfir 300 talsins. Eftir fyrrihlutann er sveit TV í 1. deild , í öðru sæti af átta, í 3ju deild í fimmta sæti af átta og í 4. deild í 10. sæti af 16 sveitum. Í fyrrihluta mótsins voru fjórar umferðir og verða þrjár í seinni hluta þess og þar ráðast úrslitin. Félagar í TV eru ýmist búsettir í Eyjum eða uppi á landi og hafa margir þeirra sem þar búa komið áður við sögu í starfsemi félagsins.
Tígull
Sigurjóni til hamingju með
Taflfélagið er með skákkennslu fyrir ungmenni í GRV í skákheimili TV að Heiðarvegi 9.
Skákkennsla er á eftirfarandi tímum: mánudögum kl. 17:30 - 18:30 og fimmtudögum kl. 17:30 - 18:30.
Leiðbeinendur eru Sæmundur Einarsson og Guðgeir Jónsson og þeim til aðstoðar er Sæþór Ingi. Auk þess eru haldin reglulega skákmót fyrir nemendur sem auglýst eru sérstaklega. Vinnslustöðin hefur styrkt skákkennsluna mjög myndarlega. TV er með síðu á Facebook. Skákæfingar ungmenna í Vestmannaeyjum. Grunnskóli Vestmannaeyja er einnig með skákkennslu í nokkrum bekkjardeildum og spilar þetta vel saman.


Prentum sálmaskrár
Við tökum að okkur að setja upp og prenta sálmaskrár.
Hægt er kíkja við hjá okkur á Vestmannabraut 38 og sjá sýnishorn af því sem við erum með í boði.
Hægt er að hafa samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.


Ant man & the wasp

Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, afa og langafa
SIGURÐAR GEORGSSONAR

Skipstjóra
Guðný Fríða Einarsdóttir
Jón Ingi Sigurðsson
Sigurbára Sigurðardóttir
Adda Jóhanna Sigurðardóttir
Vigdís Sigurðardóttir
Lilja Sigurðardóttir
Elísabet Hrönn Pálmadóttir
Óskar Friðbjörnsson
Magnús Bragason
Erlingur Birgir Richardsson
Rúnar Hjartarson barnabörn og langafabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi,
ÓLI ÁGÚST ÓLAFSSON FOLDAHRAUN 41, VESTMANNAEYJUM fyrir hönd aðstandenda

Lést laugardaginn 18. febrúar á Gran Canaria. Útför auglýst síðar.
Sigurveig Andersen
Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Verð: 12.400 kr.