
1 minute read
FRÓÐLEIKUR FRÁ BELUGA WHALE SANCTUARY
Vissir þú að Litla Hvít og Litla Grá eru að hjálpa villtum náhvölum?
Litla Hvít og Litla Grá hjálpa til við að þróa frumgerð af merki sem verður notað til að safna upplýsingum um villta stofna náhvala og hegðun þeirra. Mjaldrar og náhvalir eru náskyldir og með því að safna gögnum frá Litlu Hvít og Litlu
Advertisement
Grá geta samstarfsaðilar okkar (Grønlands naturinstitut) þróað lokaafurðina.
Þetta er einföld sogskálahönnun sem festist við húð mjaldranna. Merkið safnar gögnum um stefnu, hraða, dýpt og líkamsstöðu í vatni, svo og bergmál, smelli og tíðni. Með þessari vöru geta vísindamenn sagt hvernig náhvalir bergmála bráð sína, umhverfi og hvern annan. Gögnunum er safnað eftir hverja merkjaþjálfun, hægt er á sjá myndband af þessu á Facebook síðunni okkar.
Merkið er líka mjög gagnlegt fyrir okkur, þar sem það greinir hvers kyns mun á hegðun þeirra í innilauginni sem við getum síðan borið saman við hegðun þeirra þegar þær fara út í Klettsvík. Við hófum þetta samstarf á síðasta ári og erum mjög spennt að bera saman gögnin þegar stelpurnar fara aftur út í vor.
Svo minnum við á að við erum með opið á föstudögum og laugardögum frá kl. 13-16. Einnig bjóðum við uppá leiðsöguferðir alla daga vikunnar kl 14 þar sem starfsmenn okkar fara með ykkur í gegnum safnið og sýna m.a. frá því hvernig maturinn er útbúinn og lífið á safninu er. Árskort fyrir fullorðna kostar 3500 kr. Árskort fyrir börn kostar 2500 kr.
Svo er hægt að panta í bátsferðir út í Klettsvík, frá og með maí, á heimasíðunni okkar https:// belugasanctuary.sealifetrust. org/en/tickets/
