2 minute read

STARFSFÓLK SEA LIFE TRUST:

Next Article
ÖSKUDAGURINN 2023

ÖSKUDAGURINN 2023

Vi Kynnumst Jorge Blanco Og Emily Betur

Jorge Blanco

Advertisement

Bernardez

Starfsheiti: Aðstoðarmaður dýraverndar

Hvaðan ertu: Spáni

Hversu lengi hefur þú unnið á Beluga Whale Sanctuary: Ég flutti hingað í janúar 2022 og lenti beint í snjóstormunum, sem urðu til þess að ég varð ástfanginn af eyjunni. Ég er vetrarmanneskja.

Hvernig er dæmigerður dagur hjá þér: Venjulega byrjum við daginn á að athuga hvort öll dýrin séu í lagi og eftir það fer ég venjulega í fiskieldhúsið að undirbúa fæðið. Svo er það góð morgunstund með hvölunum. Ég geri heildarlíkamspróf á mjöldrunum og athuga hvort þær séu heilbrigðar. Það er líka alltaf þriftími, ég byrja venjulega á að hreinsa sandsíurnar og meðan það er í gangi klára ég að þrífa eldhúsið. Klukkan 9 erum við með fund til að skipuleggja verkefni dagsins og skipuleggja þjálfunina sem við viljum gera á þessum degi. Við tökum venjulega stund með mjöldrunum, með hléum, á milli kl. 8 og 15 á daginn. Um kl. 15:00 byrjum við svo aftur að þrífa, gera djúphreinsun á eldhúsinu og allri dýraaðstöðunni áður en lagt er af stað heim.

Hver er uppáhaldsþátturinn þinn í starfinu: Að eyða tíma með hvölunum er einstakt. Ég nýt leikstundanna með þeim, því við sjáum að þær njóta félagsskapar okkar líka, í hvert skipti sem við göngum í gegnum aðstöðuna koma þær til okkar til að spjalla.

Hvert er uppáhaldsdýrið sem þú hefur unnið með: Nika, hún var suður-amerískt sæljón og hún hafði lent í mjög slæmri lífsreynslu áður fyrr svo hún var vön að bíta. Ég persónulega vann með henni í meira en ár daglega og við vorum orðin svo góðir vinir. Hún endaði á því að koma sjálfviljug til okkar í heilsufarsrannsóknir sem hún hefði aldrei áður gert. Í dag er ég með hana húðflúraða á mér.

Kanntu eitthvað íslenskt orð: já já, takk fyrir, nei þetta reddast, góðan daginn.

Einhver skemmtileg staðreynd um mjaldra: Þeir eru einu hvalirnir sem geta tjáð sig með hálsbeinunum.

Emily Figge

Starfsheiti: Sérfræðingur í dýravernd

Hvaðan ertu: Ég er frá Bandaríkjunum.

Hversu lengi hefur þú unnið á Beluga Whale Sanctuary : Ég hef unnið hér í 1 ár.

Hvernig er dæmigerður dagur hjá þér: Dæmigerður dagur hjá mér felur í sér nokkra kaffibolla, þó nokkuð af þrifum, hafa gaman með starfsfélögum mínum og að byggja upp gott samband við dýrin. Ég hef líka verið í þróunarvinnu með Frosta í Fab Lab til að gera umhverfi dýranna betra.

Hver er uppáhaldsþátturinn þinn í starfinu: Mér finnst ótrúlega gaman að fá að hanna og búa til ný þroskaleikföng fyrir dýrin.

Hvert er uppáhaldsdýrið þitt sem þú hefur unnið með: Atlantic Bottlenose Dolphins.

Kanntu eitthvað íslenskt orð: Þetta reddast.

Einhver skemmtileg staðreynd um mjaldra: Mjaldrar geta synt aftur á bak með því að nota litlu hliðaruggana sína.

Minnum á að um páskana verður ratleikur um allt safnið fyrir krakkana þar sem þau leita að eggjum með dýranöfnum inn í. Og þegar búið er að finna öll dýrin fá þau verðlaun. Hlökkum til að sjá ykkur á Beluga Whale Sanctuary.

This article is from: