Bókun 8 Bókun frá 14. maí 1993 og greiðslureglur frá 9. desember 1992 sem eru í viðauka 4 í síðustu útgáfu kjarasamnings kveða á um miðlægt ákvarðaðan tímafjölda fyrir ákveðnar skyldur kennara. Samkomulag er um að þessi ákvæði verði endurskoðuð af samningsaðilum í tengslum við kerfisbreytingu þann 1. maí 2006. Markmið þeirrar skoðunar er að skólarnir hafi sjálfir val um með hvaða hætti þeir meta þessa vinnu til launa. Sjá “Greiðslureglur vegna nemenda sem mæta að jafnaði ekki í kennslustundir en njóta þó leiðsagnar kennara” á bls. 52. Bókun 9 Bókun 7 með síðasta kjarasamningi um sérkennslu fékk ekki á síðasta samningstímabili þá úrvinnslu sem reiknað var með. Því eru aðilar ásáttir um að hún haldi gildi sínu að breyttum breytanda. Önnur álög á kennslu skulu einnig yfirfarin á samningstímanum. Bókun 7 með kjarasamningi undirrituðum 7. janúar 2001
Þrátt fyrir niðurfellingu viðauka 7 með fyrri kjarasamningi skal greiða óbreytt álag, þ.e. 17% ef nemendur eru þrír eða fleiri, en 12% ef nemendur eru tveir og 6% ef um einkatíma er að ræða, í sérdeildum til 1. ágúst 2001. Samningsaðilar eru sammála um að leita eftir því við menntamálaráðuneytið að gerð verði úttekt á sérkennslu í framhaldsskóla. Skoðuð verði starfsemi sérdeilda og vinnufyrirkomulag í þeim. Úttekt þessari verði lokið fyrir 1. júní 2001. Þangað til gilda óbreyttar álagsgreiðslur vegna sérkennslu. Samningsaðilar telja rétt að launaröðun taki við af sérkennsluálögum í sérdeildum frá 1. ágúst 2001. Samkomulag samstarfsnefndar KÍ og fjármálaráðuneytis [frá 13.11.2001] um framkvæmd bókunar 7 um greiðslur til kennara í sérkennslu í framhaldsskóla í kjarasamningi frá 7. janúar 2001.
Samningsaðilar eru sammála um að dagsetningin 1. ágúst 2001 í 1. mgr. bókunar 7 verði framlengd til 1. janúar 2002 þar sem úttekt samkvæmt 2. mgr. bókunarinnar liggur ekki fyrir. Umfjöllun í samstarfsnefnd KÍ og fjármálaráðuneytis um efni 3. mgr. byggi m.a. á niðurstöðum úttektar skv. 2. mgr. Bókun 10 Mismunandi vægi kennslugreina er hugsanlega áhugaverð leið í framtíðarvinnumati á vinnu kennara. Aðilar telja því rétt að skoða með menntamálaráðuneytinu og skólameisturum hvernig slíkt mat gæti virkað til framfara í framhaldsskólum. Bókun 11 Aðilar voru sammála um að á miðju síðasta samningstímabilinu yrði skoðað sérstaklega hvaða þróun hefði orðið á launasetningu stjórnenda í framhaldsskólum. Þar skyldi sérstaklega horft til þess hvort þróunin yrði mismunandi eftir stærð eða gerð framhaldsskóla og hvort nýtt launakerfi skilaði eðlilegri þróun launa. Skyldu aðilar leggja sameiginlegt mat á þróunina og gera tillögur um viðbrögð. Bókun þessa efnis skilaði ekki þeirri niðurstöðu sem vænst var í launasamsetningu eða launaþróun stjórnenda. Sá samanburður sem gerður var sýndi að dagvinnulaun stjórnenda hækkuðu minna en annarra félagsmanna KÍ í framhaldsskólum. Aðilar eru sammála um að bregðast eigi við þessu í stofnanasamningum og eigi síðar en við kerfisbreytinguna í maí 2006. Sérstaklega verði litið til þess að efla hlut dagvinnulauna stjórnenda í heildarlaunum.
Gildistími frá 1. febrúar 2005 til 30. apríl 2008
39