Starfsáætlun 2023-2024

Page 27

Viðmið um mætingar í Sandgerðisskóla Starfsfólk Sandgerðisskóla fer eftir verkferlum þegar um ófullnægjandi skólasókn er að ræða. Verkferlar vegna ófullnægjandi skólasóknar eru á heimasíðu skólans. Umsjónarkennarar senda foreldum aðra hvora viku tölvupóst með ástundun nemenda. Umsjónarkennari fylgir eftir verkferlum ásamt náms og starfsráðgjafa ef tilefni er til. Á þessu skólaári er verið að innleiða nýjar verkferla við ófullnægjandi skólasókn vegna leyfa, veikinda og fjarvista í samráði við Fræðsluskrifstofu Suðurnesjabæjar.

Mætingareglur nemenda Viðbragðsáætlun Sandgerðisskóla við skólasóknarvanda skiptist í viðbrögð við fjarvistum nemenda og óhóflegum leyfisóskum. Þegar grunur vaknar um skólasóknarvanda skal skoða síðastliðna þrjá mánuði og telja saman leyfi eða fjarvistir. Umsjónarkennari í samstarfi við deildastjóra gerir mætingarsamning ef þess þarf.

Forföll og leyfi Veikindi nemenda er hægt að tilkynna með tölvupósti eða símtali við ritara, einnig í gegn um Mentor. Umsjónakennarar og skrifstofustjóri geta gefið leyfi í einn dag ef óskað er eftir lengra leyfi fyrir nemendur ber foreldrum/forráðamönnum að sækja um það í tíma til stjórnenda. Sé óskað eftir leyfi í lengri tíma en viku ber að sinna námi barns samkvæmt samtali við umsjónarkennara.

26


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.