
1 minute read
Skóladagatal og skipulag skólaársins
Samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands skulu skóladagar nemenda vera 180 á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní. Sérstakir undirbúningsdagar kennara á starfstíma skóla eru fimm og skulu ákveðnir af skólastjóra í samráði við kennara með hliðsjón af kjarasamningum. Undirbúningsdagar kennara utan starfstíma nemenda eru 8. Fjólubláir dagar: Undirbúningsdagar á skólaárinu. Fimm dagar áður en skóli hefst, fimm á skólaárinu og þrír eftir skólaslit. Eftirskólaúrræðin Skólasel og Skýið eru lokuð á fjólubláum dögum. Gulir dagar: Skertir nemendadagar/uppbrot. Nemendur dvelja skemur í skólanum en venjulegt er. Rauðir dagar: Haustfrí 17. og 18. október, jólafrí 21. desember –2. janúar, vetrarfrí 3. og 6. mars, páskafrí 3. –5. apríl.Skólasel og Skýið eru lokuð á rauðum dögum. Appelsínugulir dagar: 30. mars og 5. júní teljast tvöfaldir nemendadagar. Grænir dagar: eru uppbrotsdagar, sem eru nýttir fyrir óhefðbundið skólastarf en upphaf og lok skóladags er hefðbundið. Skólaárið er eitt tímabil sem lýkur með vitnisburði á skólaslitum 5. júní. Námsmat fer fram allt skólaárið þar sem unnið er með hæfniviðmið.
Advertisement