Skóladagatal og skipulag skólaársins
Samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands skulu skóladagar nemenda vera 180 á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní. Sérstakir undirbúningsdagar kennara á starfstíma skóla eru fimm og skulu ákveðnir af skólastjóra í samráði við kennara með hliðsjón af kjarasamningum. Undirbúningsdagar kennara utan starfstíma nemenda eru 8. Fjólubláir dagar: Undirbúningsdagar á skólaárinu. Fimm dagar áður en skóli hefst, fimm á skólaárinu og þrír eftir skólaslit. Eftirskólaúrræðin Skólasel og Skýið eru lokuð á fjólubláum dögum. Gulir dagar: Skertir nemendadagar/uppbrot. Nemendur dvelja skemur í skólanum en venjulegt er. Rauðir dagar: Haustfrí 20. og 23. október, jólafrí 21. desember – 2. janúar, vetrarfrí 19. og 20. febrúar, páskafrí 25. – 27. mars. Skólasel og Skýið eru lokuð á rauðum dögum. Appelsínugulir dagar: 21. mars og 4. júní teljast tvöfaldir nemendadagar. Bláir dagar: eru uppbrotsdagar, sem eru nýttir fyrir óhefðbundið skólastarf en upphaf og lok skóladags er hefðbundið. Skólaárið er eitt tímabil sem lýkur með vitnisburði á skólaslitum 4. júní. Námsmat fer fram allt skólaárið þar sem unnið er með hæfniviðmið.
Tilhögun kennslu 12