Búkolla 27. feb. - 4. mars - 24. árg. 8. tbl. 2020
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
Annað vetrarmót Geysis fer fram í Rangárhöllinni laugardaginn 29. febrúar
Mótið verður með hefðbundnu sniði. Keppt verður í barna-, unglinga-, ungmenna-, áhugamanna og opnum flokki. Pollastund hefst kl. 12. Skráning verður í anddyrinu milli 12-13 og hefst keppni kl. 13.
DEILDAFUNDUR Sameiginlegur deildafundur Sláturfélags Suðurlands fyrir Rangárvalla-, Holta og Landmanna-, Ása og Djúpárdeildar verður haldinn að Laugalandi í Holtum miðvikudaginn 4. mars kl. 20.30. Dagskrá fundarins. Skýrsla forstjóra, Steinþórs Skúlasonar Venjuleg deildafundarstörf. Veitingar í boði félagsins . Félagsmenn hvattir til að mæta. Deildastjórar.