


Dagskrá 40. landsþings Kvenfélagasambands Íslands.
Ísafirði 11. – 13. október 2024
Valkyrjur milli fjalls og fjöru
Föstudagur11.október
16:00 - 17:30 Skráning þátttakenda og afhending gagna (Hótel Torg – Logni)
15:00 - 16:30 Formannaráðsfundur (formenn héraðssambanda KÍ) í Edinborgarhúsinu
18:00 Þingsetning í Ísafjarðarkirkju
Prestur: Sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir
Ávörp:
o Gyða Björg Jónsdóttir formaður SVK
o Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti KÍ
Kvennakór Ísafjarðar syngur
19:30 – 21:00 Móttaka íEdinborgarhúsinu í umsjón gestgjafa SVK
Laugardagur 12.október
8:30 Skráning og afhending gagna í Edinborgarhúsinu
9:00 Þingfundur hefst í Edinborgarhúsinu
Kosning embættismanna þingsins
Skýrslur og umræður
Mál lögð fyrir þingið, ályktanir og lagabreytingar
10:15 – 12:00 Vinnustofa og fyrirlestur
Íslenski þjóðbúningurinn í umsjón Þjóðbúningafélaga Íslands og Vestfjarða
100 ára afmæli Kvenfélagasambands Íslands
Kvennaárið 2025
12:00 Hádegisverður
13:00 Þingfundi framhaldið
Húsfreyjan 75 ára
Kynning frambjóðenda til embætta KÍ
14:00 Valkyrjur milli fjalls og fjöru
Fyrirlestrar um þema þingsins í boði SVK
o Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu.
Er byggðaþróun karlamál?
o Anna Jörundsdóttir Dropi
Lúxuslýsisframleiðsla í Bolungarvík
o Dóra Hlín Gísladóttir - Kerecis
Nýsköpun á landsbyggðinni – Reynslusaga
o Íris Ösp Heiðrúnardóttir listakona Netagerðinni á Ísafirði.
YOGER - jógaspil fyrir heimaiðkun
o Umræður og fyrirspurnir
16:00 Frjáls tími síðdegis til að skoða sig um í bænum, nánar kynnt á þingstað
Kvölddagskrá og hátíðarkvöldverður í Félagsheimilinu Bolungarvík
18:30 Rútur byrja að fara frá Hótel Torgi í Félagsheimilið í Bolungarvík
19:30 Fordrykkur
20:00 Hátíðarkvöldverður ogdagskrá í boði SVK íFélagsheimilinu Bolungarvík
24:00 Rútur fara frá Bolungarvík til Ísafjarðar
Sunnudagur13.október
09:00 Komum okkur í gang, umsjón: Matthildur Helgadóttir Jónudóttir
09:30 Umræður og erindi
Stuðningur við konur af erlendum uppruna
Einsemd og einmanaleiki
11:00 Þingfundi framhaldið
Tímasetning 41. landsþings KÍ árið 2027 ákveðin
Umræður, niðurstöður og ályktanir
Kosningar í embætti KÍ
Önnur mál
13:00 Þingslit
13:15 Hádegisverður og heimferð
Dagskrábirt meðfyrirvaraumbreytingar
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var stofnað 1930 sem samstarfsvettvangur og málsvari kvenfélaganna í landinu. KÍ er fjölmennasta kvennahreyfingin á Íslandi sem starfar á landsvísu, með 17 héraðssambönd og 135 kvenfélög sem telja um 4000 félaga. KÍ rekur þjónustuskrifstofu í
Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum þar sem veittar eru upplýsingar, ráðgjöf og fræðsla til kvenfélaganna. KÍ heldur landsþing, norræn þing, Evrópuþing, formannaráðsfundi, námskeið, fræðslufundi, sinnir alþjóðlegu samstarfi kvenfélaga, rekur heimasíðurnar kvenfelag.is og leidbeiningastod.is, gefur út tímaritið Húsfreyjuna og er í samstarfi við ýmis félagasamtök til að ná fram markmiðum sínum. Kvenfélagasambandið hefur aðsetur og skrifstofu í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, Túngötu 14 í Reykjavík.
Gildi Kvenfélagasambands Íslands eru Kærleikur-Samvinna-Virðing. Þau voru valin á landsþingi2018 á Húsavík.
Forseti Íslands Halla Tómasdóttir er verndari KÍ.
Guðni Th. Jóhannesson var verndari KÍ, meðan hann gegndi embætti forseta Íslands.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Aðrar konur í stjórn KÍ á tímabilinu voru:
Þórný Jóhannsdóttir varaforseti KÍ frá febrúar 2019 - 2022
Sólrún Guðjónsdóttir ritari frá mars 2017 – mars2023
Sólveig Ólafsdóttir í varastjórn frá febrúar 2019 – 2022
Aðal- og varastjórnarkonur eru boðaðará alla fundi stjórnarinnar
Kristín Linda Jónsdóttir hætti sem ritstjóri Húsfreyjunnar haustið 2022 og tók þá Sigríður Ingvarsdóttir við sem ritstjóri Húsfreyjunnar til haustsins 2024.
Jenný Jóakimsdóttir á skrifstofu KÍ hefur nú verið ráðin ritstjóri Húsfreyjunnar.
Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Stefanía María Pétursdóttir heiðursfélagi KÍ, fædd 16. ágúst 1931 lést 3. nóvember 2023
Stefanía María Pétursdóttir var öflug kvenfélagskona sem lét til sín taka á sviði félagsmála. Hún var kjörin forseti Kvenfélagasambands Íslands árið 1987 og hafði þar áður verið varaforseti frá árinu 1983. Meðan hún gegndi því embætti vann hún jafnframt á skrifstofu Kvenfélagasambandsinsáþeimtímaþegar umbreytingar voru miklar, þar sem skrifstofan var tölvuvædd, en fram að því hafði allt verið unnið handvirkt. Stefaníu var annt um kvenfélögin um land allt og var iðin að sækja þau heim, hvetja þau áframog segjaþeim hversu mikilvæg störf þeirra væru fyrir samfélagið. Stefanía var stolt af því að vera ein af forystukonum Kvenfélagasambandsins og eiga sinn þátt í aðvefaáframþannmiklamarglitavefsem settur var upp þegar Kvenfélagasambandið var stofnað, eins og kemur fram í viðtali við hana sem birtist í tímaritinu Húsfreyjunni þegar Kvenfélagasambandið varð 90 ára. Stefanía var gerð að heiðursfélaga Kvenfélagasambands Íslands árið 2000.
Um leið og Kvenfélagasamband Íslands þakkar henni fyrir mikil og óeigingjörn störf og stuðning við kvenfélagskonur um land allt sendum við eftirlifandi eiginmanni hennar og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur
DagmarElínSigurðardóttir
Forseti Kvenfélagasambands Íslands
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
StjórnKvenfélagasambandsÍslandsleggurnúframársskýrslusína á 40. landsþingi sem haldið er á Ísafirði. Fer vel á því að fagna þessumtímamótumfyrirvestan,fjarrihöfuðborgarsvæðinuenda hafa stjórnarkonur Kvenfélagasambandsins sl. þrjú ár lagt mikla áherslu á að rækta tengslin við konur á landsbyggðinni. Aðildarfélög Kvenfélagasambandsins starfa um allt land, meirihluti stjórnarkvenna eru utan höfuðborgarsvæðisins og viljum við virkja vel þann félagsauð sem býr í félögunum innan vébanda Kvenfélagasambandsins.
Í ársskýrslunni er drepið á stórum verkefnum sem hefur verið byrjað á og einnig þeim sem þessari stjórn var falið að klára en aðrar stjórnir hófu. Hæst ber þar verkefnið ”Gjöf til allra kvenna” en söfnuninhófstá90áraafmæliKvenfélagasambandsins 1.febrúar2020ogstóðíeittár. Stærstihluti gjafarinnar var hugbúnaður sem vinnaþurfti að ámörgum stöðum og sökum heimsfaraldurs var ekki hægt að ljúka við verkefnið fyrr en í september 2024 að gjöfin var formlega afhent. Hugbúnaðurinn er settur upp á 7 fæðingarstöðum og verður ekki lokið innleiðingu á öllum þessum stöðum fyrr en í ársbyrjun 2025. Mikil vinna hefur farið í að fylgja þessu eftir en við fögnum því að nú sé þetta orðið að veruleika og mikil bylting, sérstaklega fyrir landsbyggðarkonur.
Nokkur smærri verkefni hafa litið dagsins ljós eins og t.a.m. ”Kvenfélagskvöldkaffið” sem var endurvakið og svo vel hafa kvenfélagskonur tekið því að formannaráð og stjórn Kvenfélagasambandsinsákvað að halda það árlega á milli landsþinga.
Eitt af nýjum verkefnum stjórnar, sem tengist því að vera í betri tengslum við samböndin, eru úthringingar sem stjórnarkonur sinna í upphafi hvers árs þar sem hringt er í alla formenn héraðssambanda til að leita álits á ákveðnum málum og eins til að afla frétta úr heimabyggð. Jafnframt hafa stjórnarkonur verið á faraldsfæti og leitast við að sækja aðalfundi sambandanna og aðra viðburði.
Kvenfélagasamband Íslands er byggt á gömlum og góðum gildum en tileinkar sér allar þær nýjungar sem treystir þær stoðir. Með því er Kvenfélagasambandið síungt samband sem samanstendur af öflugu tengslaneti kvenna um land allt, geysilega miklum félagsauði og er drifkraftur í margvíslegum verkefnum.
Við vonum að við lestur þessarar skýrslu fáist glögg mynd af því fjölbreytta starfi sem fer fram innan Kvenfélagasambandsins þó ekki sé hægt að tíunda allt í smáatriðum. Þökkum svo öllum þeim fjölmörgu kvenfélagskonum og samstarfsaðilum fyrir gott samstarf. Megi kvenfélögin og Kvenfélagasamband Íslandshalda áfram að vaxa og dafna um ókomin ár.
f.h. stjórnar Kvenfélagasambands Íslands
DagmarElínSigurðardóttir,forsetiKvenfélagasambandsÍslands
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Frá síðasta landsþingi árið 2021 hefur stjórn Kvenfélagasambands Íslands haldið 24 stjórnarfundi, að mestu fjarfundi, þar sem stór hluti stjórnar býr úti á landsbyggðinni. Á milli funda voru margs konar mál rædd og ákveðin í tölvusamskiptum og símtölum. Fimm formannaráðsfundir hafa verið haldnir. Þar af einn fjarfundur. Aðrir fastir KÍ-viðburðir eru jólafundir KÍ, sem haldnir eru ínóvember árhvert. Tvisvar sinnum bauð KÍ öllum kvenfélagskonum í kvenfélagskvöldkaffi með fjarfundarsniði. Mæting hefur verið mjög góð ogverða slíkir fundir haldnir árlega þau ár sem ekki er landsþing.
Stjórn hefur í upphafi hvers árs skipst á að hringja og eiga samtal um starfið við alla formenn héraðssambanda. Tengslin og samskiptin við kvenfélögin skipta stjórn KÍ miklu máli og hafa forseti, starfsmaður skrifstofu KÍ og stjórnarkonur sótt hátíðaviðburði, sambandsfundi og félagsfundi kvenfélaga hafi boð um það borist. Útbúin var samræmd kynning um starf Kvenfélagasambandsins sem stjórnarkonur tókumeð sér á aðalfundi héraðssambanda til að segja frá starfseminni.
Meðfylgjandi eru myndir frá nokkrum af þeim fundum sem voru heimsóttir.
Aðalfundur Kvennasambands Eyjafjarðar í maí
2024 Dagmar Elín Sigurðardóttir ásamt stjórn KSE
Helga Magnúsdóttir ásamt Friðriku Baldvinsdóttur formanni KvSÞ á aðalfundi 2024
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Hópmynd tekin á aðalfundi KSH í apríl 2024
Helga Magnúsdóttir ritari KÍ og Jenný Jóakimsdóttur voru gestir fundarins.
Aðalfundur SBK 2023 – Dagmar Elín, Linda B. Sverrisdóttir formaður SBK og Þuríður Guðmundsdóttir meðstjórnandi í stjórn KÍ.
Ársfundur SSK 2022 – Magdalena K. Jónsdóttir gjaldkeri KÍ og Dagmar Elín.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Ársfundur SSK 2023.
Elinborg Sigurðardóttir þáverandi formaður SSK og Jenný Jóakimsdóttir starfsmaður KÍ.
Aðalfundur KSGK 2024 – Eva Björk Harðardóttir varaforseti KÍ, Jóna Rún
Gunnarsdóttir formaður KSGK og
Dagmar Elín
70 ára afmæli Kvenfélags Langholtssóknar.
Ása Steinunn Atladóttir formaður og Dagmar Elín.
Nóvemberfundur Líknar í Vestmannaeyjum 2023María Sigurbjörnsdóttir, Dagmar Elín Sigurðardóttir, Herdís Hermannsdóttir, Steinunn Ásta Hermannsdóttir, Betsý Kristmannsdóttir og JúlíaElsa Friðriksdóttir.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
65. formannaráðsfundur haldinn á Hallveigarstöðum 26. mars 2022
Yfirskrift fundar: Af góðum hug koma góð verk
Að loknum almennum fundarstörfum á þessum aðalformannaráðsfundi var farið yfir helstu verkefni KÍ á árinu. Norræna þing NKF sumarið 2022 var kynnt og er það kynnt nánar síðar í skýrslunni.
Umræður voruum orlof húsmæðraognokkursamböndsögðu fráfréttumúrsínu starfi.Rætt varum hvernig mætti þétta raðir kvenfélaganna í umræðuhópum og hvar KÍ getur aðstoðað í því.
Formannaráð samþykkti á fundinum eftirfarandi áskoranir:
Formannaráð Kvenfélagasambands Íslands skorar á kvenfélagskonur að taka þátt í móttöku flóttafólks sem nú streymir til landsins. Ljóst er að flóttafólk mun þurfa margskonar aðstoð og eru kvenfélög hvött til að leggja málefninu lið hvert á sínu svæði.
Formannaráð Kvenfélagasambands Íslands lýsir yfir áhyggjum af fæðuöryggi í heiminum. Hið stríðshrjáða land Úkraína ermeð stærstu korn- og hveitiframleiðendum íheimi. Við Íslendingar ættum að huga vel að því hvað við getum gert til að bæta fæðuöryggi á Íslandi með meiri ræktun og framleiðslu margvíslegra matvæla.
Kosningar: Eva BjörkHarðardóttir, kvenfélagi Kirkjubæjarhrepps SVSK, varkosin varaforseti KÍ. Helga Guðmundsdóttir, kvenfélagi Eiðaþinghár, SAK, var kosin varamaður í stjórn KÍ. Í uppstillingarnefnd voru kosnar: Bára Höskuldsdóttir kvenfélaginu Hvöt, Árskógsströnd KSE, Jóhanna Skúladóttir kvenfélagi Borgarness, SBK og Karólína Jónsdóttir kvenfélaginu Sif, Patreksfirði SVK.
66. formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands haldinn 19. nóvember 2022 á
Hallveigarstöðum
Yfirskrift fundarins:Hvernig getum við haft meiri áhrif á samfélagið?
Ásamt venjubundnum fundarstörfum var farið yfir ný lög er varða almannaheillaskrá ásamt því að unnið var í hópavinnu um yfirskrift fundarins.
Á fundinum var eftirfarandi ályktun lögð fram og samþykkt.
66. formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands haldinn á Hallveigarstöðum 19. nóvember
2022 hvetur fjölskyldur til þess að gefa sér tíma, ræða saman og eiga gæðastundir án truflana frá netmiðlum.
Í umhverfi okkar er gríðarlegt áreiti af samfélagsmiðlum sem sofa aldrei og gefa aldrei grið. Stafrænt ofbeldi, áreitni, notkun samfélagsmiðla, fíkn og kvíði hefur farið stigvaxandi ár frá ári sem hefur ófyrirséðar afleiðingar fyrir líðan og heilsu barna og fullorðinna.
Aldrei hefur verið jafn mikil þörf og í dag, að gefa sér tíma til þess að njóta samverustunda með þeim sem okkur þykir vænt um, borða saman í rólegheitum og eiga gott samtal.
Efsta röð frá vinstri: Linda B. Sverrisdóttir (form. SBK), MagðalenaK.Jónsdóttir(gjaldkeri KÍ), Helga Magnea Steinsson (form. SAK), Edda M. Jensdóttir (stjórnKSGK),SólrúnGuðjónsdóttir (ritari KÍ), Björg Baldursdóttir (stjórnKÍ),ÞóraSverrisdóttir(form. SAHK), Lína Hrönn Þorkelsdóttir (form. KSH), Elinborg Sigurðardóttir (form SSK), Ágústa Magnúsdóttir (form. KSGK), Þuríður Guðmundsdóttir (stjórn KÍ), Gyða Björg Jónsdóttir (form. SVK),KristínSnorradóttir(formSSK Skagafirði), Dagmar Elín Sigurðardóttir (forseti KÍ), Hafdís AlexíudóttirBjörgvinsdóttir(stjórn KSH), IngibjörgHjálmarsdóttir(gjaldk.KSR),BirgitSchov(form.KSE),FriðrikaBaldvinsdóttir(form.KSSÞ),EvaBjörk Harðardóttir (varaforseti KÍ og form. SVSK). Á myndina vantar af þeim sem mættu á fundinn; Þórunni Kolbeins Matthíasdóttur(form.KSK),HelguGuðmundsdóttur(KSR)ogJennýjuJóakimsdóttur(starfsm.KÍ)
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
67.formannaráðsfundurhaldinn10.–11.mars2023áHótelLaka,Kirkjubæjarklaustri
Yfirskrift fundarins:Njótum samverunnar og samstarfsins í góðra vina hópi
Fundurinn að þessu sinni var aðalformannaráðsfundur milli landsþinga og ásamt öðrum aðalfundarstörfum var kosin nýr ritari í stjórn, varastjórnarkona var endurkjörin og kjörnefnd kosin fyrir landsþingið á Ísafirði 2024.
Formannaráðiðlætursigmörgmálvarðaogræðiráfundumsínummálervarðakvenfélöginílandinu og þau mál sem eru í þjóðfélagsumræðunni hverju sinni. Að þessu sinni samþykkti og sendi formannaráð frá sér eftirfarandi ályktun varðandi geðheilsu.
Geðheilsa er vaxandi vandamál í þjóðfélaginu. Fundurinn hvetur stjórnvöld til að gefa þessum málaflokki enn meiri gaum en nú er, hlúa betur að veikum einstaklingum og grípa þá fyrr inn til aðstoðar.
Geðheilsaerjafnmikilvægoglíkamlegheilsaogþvímáekkisofnaáverðinumþósvoaðgeðheilsan sé ekki eins sýnileg og líkamlegt sár. Í þjóðfélagsumræðunni heyrast margar alvarlegar sögur um mjög veika einstaklinga sem kerfið nær ekki að grípa. Átröskun, kvíði, sjálfsvíg, kulnun, allt eru þetta alvarlegir sjúkdómar sem einstaklingar bera oft ekki utan á sér og skellur hart á aðstandendum. Því þarf að gera átak í að grípa einstaklingana fyrr, hlúa að þeim og aðstandendum þeirra, sem oftar en ekki þurfa að glíma við áföll í kjölfarið.
ÁfundinumvarrættfrumvarpsemlagtvarfyriráAlþingiennánýumafnámlagaumorlofhúsmæðra nr. 53/1972 með síðari breytingum og gerir frumvarpið ráð fyrir því að lög um orlof húsmæðra falli brott. Formannaráð samþykkti að setja sig ekki á móti því en benda á að huga þurfi vel að tímasetningu þess og var forseta KÍ falið að ganga frá umsögn þess efnis.
Kosin var ný kona í stjórn Kvenfélagasambands Íslands. Helga Magnúsdóttir frá Félagi Kvenna í Kópavogi (FKK) í Kvenfélagasambandi Kópavogs (KSK) var kosin ritari KÍtil næstu þriggja ára. Sólrúnu GuðjónsdótturfráKvenfélaginuGleymméreiíGrundarfirðivarþakkaðfyrirvelunninstörfsíðastliðin 6 ár sem ritari KÍ. Björg Baldursdóttir frá Kvenfélagi Garðabæjar var endurkjörin í varastjórn KÍ til þriggja ára.
Kjörnefndvarendurkjörinogíhennisitja:Aðalkonur;ElfaEydalÁrmannsdóttir,KvenfélagiÓlafsvíkur (KSH), Guðrún Þóranna Jónsdóttir, KvenfélagiSelfoss (SSK), Gyða BjörgJónsdóttir,Kvenfélaginu Hvöt Hnífsdal (SVK) Varakonur; Ágústína Sigríður Konráðsdóttir, Kvenfélagi Eiðaþinghár (SAK), Sólrún Tryggvadóttir,KvenfélagiSelfoss(SSK).ÞaðvarSambandvesturskaftfellskrakvennasemvargestgjafi fundarins og er sambandinu þakkað kærlega fyrir góða skemmtun og viðurgjörning á Kirkjubæjarklaustri.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024 12
Mynd frá 67. Formannaráðsfundi á Kirkjubæjarklaustri
Efst frá vinstri: Eydís Dóra Einarsdóttir SASK, Þóra Sverrisdóttir SAHK, Jóna Rún Gunnarsdóttir KSGK, Gyða Björg Jónsdóttir SVK, Regína Sigurðardóttir KVSÞ, Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir SSK, Elinborg Sigurðardóttir SSK, Magðalena Jónsdóttir gjaldkeri KÍ, Ása Erlingsdóttir SBK, Sólrún Guðjónsdóttir fráfarandiritariKÍ,MaríaSigurbjörnsdóttirLíkn,Miðröðfrávinstri:HelgaMagnúsdóttirritariKÍ,Helga MagneaSteinsson SAK,Björg BaldursdóttirvarastjórnKÍ,JennýJóakimsdóttirstarfsmKÍ,DagmarElín SigurðardóttirforsetiKÍ,ÞuríðurGuðmundsdóttirmeðstjórnandiKÍ,HerdísHermannsdottirLíkn,Lína Hrönn Þorkelsdóttir KSH. Neðsta röð sitjandi: Kristín Snorradóttir SSK Skagafirði, Eva Björk Harðardóttir varaforseti KÍ og formaður SVSK, Lísa Þorsteinsdóttir SASK og Guðbjörg Ósk Jónsdóttir SASK.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
68. formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands var haldinn 21. október 2023
Fundurinn hófst að venju á skýrslu frá stjórn KÍ. Jenný Jóakimsdóttir starfsmaður KÍ og Leiðbeiningastöðvar heimilanna flutti skýrslu Leiðbeiningastöðvar heimilanna, sem þetta árið fagnar 60 ára starfi stöðvarinnar. Jenný fór í skýrslunni, af því tilefni, yfir aðdraganda þess að KvenfélagasambandiðákvaðásínumtímaaðhefjaþettastóraverkefnisemLeiðbeiningastöðinhefur staðið fyrir í öll þessi ár. Heimasíða stöðvarinnar fær þúsundir heimsókna í viku hverri. Formenn héraðssambandanna sögðu því næst frá því helsta sem er að frétta af kvenfélögunum á sínum svæðum. Að loknu hádegisverðarhléi var Jenný Jóakimsdóttir með kynningu á starfi Alþjóðasamtaka dreifbýliskvenna (ACWW) sem KÍ er að aðili að. Jenný hvatti héraðssamböndin til að skoða að gerast beiniraðilaraðsamtökunum ogfluttieinnigfréttirog sýndimyndirfráheimsþingiACWWsemhaldið var í Kúala Lúmpúr í maí síðastliðnum. Gyða Björg Jónsdóttir formaður Sambands vestfirskra kvenna og Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti KÍ sögðu frá undirbúningi 40. landsþings KÍ.
ÁfundinumvarkosinnefndtilaðfarayfirlögKvenfélagasambandsinsogundirbúaþærlagabreytingar sem lagðar verða fyrir landsþing. Í nefndinni sitja; Dagmar Elín Sigurðardóttir, forseti KÍ, Eva Björk Harðardóttir varaforseti KÍ, Helga Magnúsdóttir ritari KÍ, Ása Steinunn Atladóttir formaður Kvennasambands Reykjavíkur, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir formaður Sambands austur skaftfellskra kvenna og Sólveig Þórðardóttir formaður Sambands sunnlenskra kvenna, (til vara Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir).
Sér dagskrárliður var tilað ræða Kvennaverkfallið, farið var yfir aðkomu Kvenfélagasambands Íslands að deginum og þeirra kvenfélagskvenna sem lagt hafa á sig vinnu við undirbúning viðburða víða um land í tengslum við daginn,
Umræður voru um ályktun fundarins sem var samþykkt:
68. formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands haldinn á Hallveigarstöðum 21. október 2023 lýsir yfir áhyggjum sínum vegna vaxandi ofbeldis meðal barna og ungmenna.
Fjölskyldan erþaðdýrmætasta semviðeigum oggott erað geta einnigátt trausta félagahvort sem um börn eða fullorðna er að ræða. Til þess að skapa meira jafnvægi í samskiptum þarf fjölskyldan að gefa sér tíma saman án utanaðkomandi truflana.
Þær skelfilegu fréttir sem við heyrum um þessar mundir, að börn og unglingar séu að ráðast á og beita aðra einstaklinga ofbeldi, þarf að taka alvarlega og bregðast skjótt við slíkri hegðun. Í umhverfi okkar er gríðarlegt áreiti af samfélagsmiðlum og mikið sýnt af ofbeldi sem á aldrei að líðast.
Fundurinn hvetur jafnt fjölskyldur, forráðamenn og skóla til að taka höndum saman og vinna markvisst að því að börn og unglingar fái að njóta áhyggjulausrar æsku, þar sem samkennd og kærleikur ráða ríkjum. Það er besta veganestið sem hver einstaklingur fær út í lífið
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024 14
69.formannaráðsfundur var fjarfundur á Zoom 17. apríl 2024
Á þessum síðasta formannaráðsfundi fyrir landsþing var dagskráin, eins og búast mátti við, helguð komandi landsþingi. Farið var yfir dagskrá þingsins og tillögur að umræðuefnum voru teknar niður tilaðvinnaaðíhópastarfiáþinginu. Lagabreytinganefndin,semerþannigskipuð;Formaðurnefndar Sólveig Þórðardóttir frá Sambandi Sunnlenskra kvenna, nefndarkonur: Eva Björk Harðardóttir varaformaður KÍ, Ása Steinunn Atladóttir Kvennasambandi Reykjavíkur, og Helga Magnúsdóttir ritari KÍ, fór yfir þær lagabreytingar sem nefndin leggur til að verði lagðar fyrir landsþing.
Á fundinum var lögð sérstök áhersla á að kynna komandi landsþing á Ísafirði og hvetja konur til þátttöku.
Myndir frá jólafundi KÍ 2023
Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Félagsmálabók KÍ er að finna á heimasíðu KÍ. Bókin skiptist í þrjá kafla; stjórnarhandbók, fundahandbók og ræðuhandbók. Kvenfélögin eru hvött til að hlaða niður bókinni og nýta efni hennar í félagsstarfinu.
Kvenfélögum er velkomið að hafa samband við Jenný á skrifstofu KÍ ef áhugi er á félagsmálanámskeiði. Efni námskeiðanna er að miklu leyti upp úr Félagsmálabókinni sem Jenný tók saman.
Frá námskeiði í fundarstjórn 2022 sem haldið var í Laugarborg á Hrafnagili. Kvenfélagið Iðunn, Kvenfélagið Hjálpin og Kvenfélagið Aldan tóku sig saman og stóðu að námskeiðinu
Frá félagsmálanámskeiði sem haldið var á Reyðarfirði í september 2023. Samband austfirskra kvenna SAK bauð konum í sambandinu á námskeið í Ræðumennsku og fundarstjórn.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Nú er komin nokkur reynsla af rafræna skýrsluforminu sem var tekið var í gagnið 2019. Slóðir á skýrsluformineru sendút íbyrjunársánetföng semKÍúthlutaðisamböndunumogkvenfélögumþ.e. xxxx@kvenfelag.is. Nú hafa því öll kvenfélög og héraðssambönd netfang á sínu nafni, sem myndar ákveðnaheildmeðalþeirrafélagasem eruaðilaraðKÍ.Erufélöginogsamböndinhvötttilaðnýtasér þessi netföng í starfinu. Hafa skal samband við skrifstofu ef félaginð vantar aðgang að skýrslum eða netfangi. Samkvæmt lögum KÍ skulu héraðssambönd vera búin að skila skýrslu um starfsemi kvenfélaganna á sínu svæði eigi síðar en 1. mars ár hvert. Fyrir þann tíma ættu öll kvenfélög að vera búin að fylla út sínar skýrslur. Athugið að tölur og efni skýrslu á alltaf við árið á undan. Sem dæmi, félagafjöldi í árslok.
Á þessum tölum í töflunni hér að neðan sést að félögin innan KÍ hafa gefið alls 164.517.419 kr. alls til samfélagsins á þessum árum. Dágóð upphæð það. Mest er gefið til líknar- og góðgerðarmála eða 113.421.562 kr. Gott er að sjá að á síðasta ári 2023 hafa fjáraflanir kvenfélaganna komist á nokkuð gott ról eftir mikla lægð sem varð í starfinu í kringum heimsfaraldur.
Viðsjáumeinnigaðskilináskýrslumhafaaukistverulegaenísíðustuskýrslu2018-2020þávoruskilin í kringum 76%.
Bakviðþessargjafirgefakvenfélöginupprúmlega200þúsundvinnustundiráþremurárum. Ætlamá að þær séu mun fleiriþar sem enn vantar nokkuðupp á að vinnustundir séu teknar skipulegasaman.
Það er því ástæða til að hvetja til þess að félagskonur skrái hjá sér þann tíma sem fer í vinnu þeirra fyrir kvenfélagið.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024 17
Kvenfélagskvöldkaffi
Í maí 2021 var í fyrsta sinn haldinn fjarfundur á Zoom. Hugmyndin með fundinum var sú að sameina kvenfélagskonur alls staðar af landinu í létt og skemmtilegt kvöld til að hressa allar við eftir erfiðan tíma í félagsstarfinu í heimsfaraldri. Svo vel tókst til að stjórn KÍ ákvað að endurtaka leikinn og voru haldnir tveir svona fundir. Formannaráð KÍ samþykkti að þeir yrðu árlegir á haustin á þeim árum sem landsþing er ekki haldið.
Sá fyrri var haldinn 19. október 2022. 182 konur voru skráðar áfundinn. Gestir kvöldsins voru; Katrín Tanja Davíðsdóttir afrekskona í Crossfit og félagskona í Hvítabandinu og Sigríður Ingvarsdóttir, þá nýtekinvið semritstjóriHúsfreyjunnar.KvenfélagskonuríSambandi vestfirskrakvennabuðusvoupp á upphitun fyrir landsþingið. Seinni fundurinn var svo haldinn 11. Október 2023. Gestur þess fundar varfyrstiformaðurFélagskvennaíKópavogiBryndísSteinaFriðgeirsdóttirerindiðhennarhét„Ífylgd með fullorðnum“. Gyða Björg Jónsdóttir formaður Sambands vestfirskra kvenna kynnti svo yfirskrift landsþings „Valkyrjur milli fjalls og fjöru“. Einnig var sagt frá Kvennaverkfallinu 24. október. Lukkuhjólinu var snúið og dregið í happdrætti á báðum fundunum.
Öllum þeim sem tóku þátt og mættu á þessa fundi eru færðar innilegar þakkir.
Þeim,sem,gáfu vinninga í happdrættið er einnig þakkað kærlega.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Verkefnið Vitundarvakning um fatasóun hefur verið styrkt af Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu síðan2018.Verkefniðhófstformlegaífebrúar2018.Árið2022varsvosíðastaáriðsemstyrkurfékkst frá ráðuneytinu,
Markmið verkefnisins var:
a) að fræða almenning um mikilvægi þess að sporna gegn fatasóun
b) að fræða um umhverfisáhrif fatasóunar
c) að fá sem flestar kvenfélagskonur til að taka þátt á einn eða annan hátt
d) að sameina kvenfélagskonur í landsverkefni sem hefur sterk samfélagsleg og umhverfisleg áhrif samkvæmt markmiðum KÍ
Kvenfélagasamband Íslands og Leiðbeiningastöð heimilanna buðu í fjórða sinn almenningi á Umhverfisdag í október 2022. Kvenfélagskonur settu upp saumaverkstæði og aðstoðuðu gesti og gangandi við fataviðgerðir og breytingar. Fataskiptimarkaður var á staðnum þar sem gestum var boðið að mæta með vel með farnar flíkur sem ekki eru í notkun og fá aðrar í staðinn. Þema dagsins var; Endurnýting á textíl. Fengum við til okkar nokkrar hugmyndaríkar konur sem voru með sýnikennsluogkynninguáýmsusemtengistendurnýtinguátextíl.SigríðurJúlíaBjarnadóttir,kennari og myndlistamaður, mætti með fatnað sem hún hannar upp úr endurnýttu til að vinna á risa fatahrúgunni sem skapast á hverju ári með tilheyrandi sóun. Ólöf Sveinhildur Helgadóttir sýndi poka og töskur úr endurnýttum textíl sem hún hannar og framleiðir undir nafninu Sveinu pokar. Ingunn Hróðný Guðjónsdóttir sýndi hvernig hún endurnýtir gallabuxur og saumar t.d svuntur, pottaleppa og töskur. Ingunn hannar sínar vörur undir merkinu Made by Hróðný.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Sigríður Tryggvadóttir í Saumahorni Siggu, setti upp örvinnustofu í fatabreytingum og sýndi hvað er hægt að gera til að breyta flíkum á skemmtilegan hátt. Það var markaðsstemmning í sal Hallveigarstaða, kaffi og vöfflusala ásamt því að boðið var upp á fræðslu.
Í tengslum við verkefnið voru skrifaðar greinar um fatasóun, endurnýtingu og betri nýtingu í Húsfreyjuna auk þess sem margar greinar og efni hafa verið sett inn á vef Leiðbeiningastöðvar heimilanna.
Sérstakur vinnuhópur var settur á fót í ársbyrjun 2021 í kringum verkefnið og fór fyrsta verkefni hópsins í gang það ár í september. Að loknu landsþingi 2021 fóru fram nokkrar vinnusmiðjur í fatabreytingumhaustið2021og2022ísamstarfiviðSigríðiTryggvadóttur.Áeittslíktnámskeiðmætti Landinn á RÚV sem fylgdist með og tók viðtöl.
Þær sem stóðu að Vinnusmiðjum í fatabreytingum: Sigríður Tryggvadóttir, Ágústa Magnúsdóttir, Edda Jensdóttir,JennýJóakimsdóttirogGuðrúnK.Hafsteinsdóttir.
ÁgústaMagnúsdóttirfráKvenfélagiGarðabæjar,EddaJensdótturfráKvenfélaginuSeltjörnogGuðrún K.HafsteinsdóttirfráKvenfélagiMosfellsbæjarvorumeðJenný,starfsmanniKÍ,ísérstökumvinnuhóp sem vann einstaklega vel að verkefninu og þökkum við þeim vel fyrir þeirra framlag til verkefnisins. Einnigkomfjöldi kvenfélagskvennaað verkefninumeðalannarsmeðþvíað leggjatilvinnuframlagog saumaskap á Umhverfisdögum á Hallveigarstöðum. Eiga þær allar hrós skilið fyrir þátttökuna. Án þeirra væri ekki hægt að sinna svo umfangsmiklu verkefni sem þessu.
Ekki fékkst áframhaldandi styrkur fyrir verkefnið frá ráðuneytinu en málefnið er þó enn á dagskrá á vef Leiðbeiningastöðvar heimilanna.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Pallborðsumræður kvenkyns forsetaframbjóðenda
Kvenfélagasamband Íslands ásamt Kvenréttindafélagi Íslands og Bandalagi kvenna í Reykjavík stóðu fyrir pallborðsumræðum kvenkyns forsetaframbjóðenda á Kynjaþingi Kvenréttindafélagsins sem haldið var Í Fjölbrautaskólanum í Ármúla 25. maí 2024. Öllum kvenkyns frambjóðendum til forseta var boðið að taka þátt en það voru þær Halla Tómasdóttir og Halla Hrund Logadóttir sem enduðu á að sitja tvær í sófanum með Tatjönu Latinovic formanni Kvenréttindafélagsins sem stjórnaði umræðunum. Við þökkum þeim kærlega fyrir að gefa sér tíma til að ræða jafnréttisbaráttuna og mál kvenna. Virkilega áhugavert að heyra þeirra sýn og leiðir í baráttunni.
TATJANA LATINOVIC, JENNÝJÓAKIMSDÓTTIROG HALLA
TÓMASDÓTTIR
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Þann21.Júní2024fórfram minningarathöfn áHallveigarstöðumítilefni100áradánardægursÓlafíu Jóhannsdóttur.
Athöfnin byrjaði á móttöku og ávörpum frá nokkrum af þeim fjölmörgu aðilum sem stóðu að athöfninni þar á meðal frá Dagmar Elínu Sigurðardóttur, forseta KÍ. Gengið var síðan í fylkingu að leiði Ólafíu í Hólavallarkirkjugarði þar sem blómsveigur var lagður að leiði hennar, farið með blessun og fulltrúi djákna leiddi bæn. Að því loknu var boðið í kaffi á Hallveigarstöðum.
ÁsamtKvenfélagasambandiÍslandsstóðueftirtaldirsamanaðathöfninni; BandalagkvennaíReykjavík, Djáknafélag Íslands, Félagsráðgjafafélag Íslands, Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, Handleiðslufélag Íslands, Hvítabandið, Kvenréttindafélag Íslands og Mosfellsprestakall.
Ólafía var forvígismaður íslenskrar kvennabaráttu, byltingarkona og heimskona. Hún ferðaðist víða um Ísland, var ein af stofnendum Hvítabandsins og hélt fyrirlestra á vegum þess. Síðar fór hún til Bandaríkjanna, Kanada, Englands, Skotlands og Noregs til að halda fyrirlestra um jafnréttismál, menntamál, trúmál, lífeyrisréttindi og heilbrigðismál. Árið 1912 stofnaði hún heimili fyrir utangarðskonur og skrifaði síðan bókina Aumastar allra: Myndir frá skuggahliðum Kristjaníu. Ólafía ritaði síðar endurminningar sínar Frá myrkri til ljóss. Bókin, sem gefin var út árið 1925, var tímamótaverk í íslenskri bókmenntasögu en þetta var í fyrsta sinn sem sjálfsævisaga konu kom út á prenti.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Saga Ólafíu er samofin sögu íslenskra kvenna á ofanverðri nítjándu öld og fram yfir aldamótin 1900. Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
ritaði Ævisögu Ólafíu sem kom út 2006.
Kvenfélagskonur á Íslandi ryðja braut fyrir möguleika á rafrænni tengingu milli landsbyggðar og sérfræðinga á Kvennadeild Landspítalans og nú er orðinn möguleiki á rafrænni vistun gagna.
Frá afhendingu gjafarinnar á sjúkrahúsinu á Akranesi.
fv. Elinborg Sigurðardóttir, Guðrún Þórðardóttir, Dagmar
Elín Sigurðardóttir, Björk Steindórsdóttir, Linda B. Sverrisdóttir. Þórný Jóhannsdóttir, Jenný Jóakimsdóttir og Ágústa Magnúsdóttir. Mynd Silla Páls
Eins og fram kom í skýrslu afmælisnefndar sem skrifuð var fyrir Landsþing KÍ sem haldið var í Borgarnesi árið 2021 stóð Afmælisnefnd í samvinnu við stjórn KÍ fyrir landssöfnun í tilefni af 90 ára afmæli sambandsins. Safnað var fyrir tækjum og hugbúnaði að nafni Milou og Astria en þau eiga að gagnast öllum konum á Íslandi á meðgöngu, við fæðingu og skoðunar á kvenlíffærum. Söfnuninni var ýtt úr vör á Bessastöðum 1. febrúar 2020. Kvenfélögin um land allt kusu sum að leggja bein framlög inn í söfnunina en einnig gátu þau selt merkt armböndogsúkkulaði.Einnig stóð nefndin fyrir að konur bökuðu kökur í heilan sólarhring og seldu þær afraksturinn. Nokkur fyrirtæki styrktu einnig söfnunina. Þegar söfnuninni lauk formlega ári seinna höfðu alls safnast um 30 milljónir króna. Ýmsar hindranir voru svo á leiðinni sem töfðu það að tækin og hugbúnaðurinn komust í gagnið. Þar er fyrst að nefna Covid faraldurinn sem geisaði bæði meðan á söfnuninni stóð og eftir hana. Einnig voru ýmsir tæknilegir örðugleikar vegna tenginga og að kerfi landsbyggðar og Lsp. næðu að “tala” saman o.s.frv. Ýmsar mannabreytingar urðu á framkvæmdatímanum.
Björk Steindórsdóttir yfirljósmóðir á HSU tók við sem faglegur sérfræðingur og tengiliður við ljósmæður á landsbyggðinni. Helga Margrét Clark varð tengiliður verkefnisins fyrir hönd Embættis Landlæknis ásamt Ólafi K. Ragnarssyni. Tæknileiðbeiningar hjá LSH voru í höndum Rögnu Sifjar Þórarinsdóttur.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Ákveðið var að þessi búnaður kæmi inn á 7 fæðingastaði á Íslandi og var Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi valin tilraunastaður. Þar starfaði tæknimaður Fannar Sólbergsson, sem var afarhjálplegurviðaðfinnaútúrýmsumtæknilegumerfiðleikum.Loksinsnáðistinnleiðingogaðopna kerfið þar þann 13. júní 2024.
Ánægðar kvenfélagskonur að lokinni afhendingu á Gjöf til allra kvenna á Íslandi. Mynd Silla Páls
Það var okkur nefndarkonum mikið hjartans mál að markmið söfnunarinnar tækist. Við vildum ekki afhenda peninga heldur vildum við vera vissar um að verkefnið héldi áfram eins og að var stefnt, hringinn í kring um landið. Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti KÍ og Elinborg Sigurðardóttir ritari afmælisnefndar hafa ýtt verkefninu áfram og setið ýmsa fundi því tengdu. Það var mjög hátíðlegur stund á Akranesi 26. sept.sl. þegar gjöfintil allra kvenna á Íslandi var afhent formlega. Nú liggur fyrir áætlun um innleiðingu og afhendingu á hina staðina og er áætlað að henni verði að fullu lokið árið 2025.
Afmælisnefnd KÍ skipuðu: Elinborg Sigurðardóttir frá SSK, Eva Michelsen frá KSK, Ágústa Magnúsdóttir frá KSGK og Linda B. Sverrisdóttir frá SBK. Fulltrúar KÍ í nefndinni voru: Guðrún Þórðardóttir þáverandi forseti KÍ, Þórný Jóhannsdóttir þáverandi varaforseti KÍ, Sólveig Ólafsdóttir í varastjórn KÍ og Jenný Jóakimsdóttir starfsmaður KÍ.
F.h.Afmælisnefndar ElinborgSigurðardóttir,ritar
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Kvenfélagasamband Íslands er aðili að ýmsum nefndum, ráðum og stjórnum sem snerta hag fjölskyldna og fólksins í landinu, oft með fulltrúa í stjórn eða á aðalfundum þeirra, auk þess að vera í samstarfi við önnur félagasamtök vegna ýmissa verkefna.
Samráðsvettvangur um jafnrétti kynjanna, Jafnréttisráð
Í lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem samþykkt voru á Alþingi í lok árs
2020 er gert ráð fyrir að starfandi verði samráðsvettvangur um jafnréttismál, Jafnréttisráð sbr. 24. greinlagannaþarsemsegirað:„Minnsteinusinniááriskalkallasamansamráðsvettvangumjafnrétti kynjanna, Jafnréttisráð, með fulltrúum frá aðilum vinnumarkaðarins, fræðasamfélaginu og samtökum sem vinna að kynjajafnrétti samkvæmt lögum þessum. Hlutverk samráðsvettvangsins er að vera ráðherra jafnréttismála til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málum sem tengjast jafnrétti kynjanna og skal ráðherra funda einu sinni á ári með samráðsvettvangnum….“
Annar fundur ráðsins var haldin 5. desember 2022 Dagskrá fundarins var í anda nýrrar jafnréttislöggjafar og flutti dr. Gyða Margrét Pétursdóttir, prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands, erindið „ Að mæta samfélaginu þar sem það er statt og toga í jafnréttisátt“. Að loknum erindum var unnið í hópum að því að svara tilteknum lykilspurningum sem tengdust efninu. Þriðji fundurinn var svohaldinnþann6.desember 2023.Hatursorðræðavarumfjöllunarefnifundarinsogfluttudr.María Rún Bjarnadóttir, verkefnisstjóri stafræns ofbeldis hjá Embætti ríkislögreglustjóra og Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands erindi um málefnið.
Jenný Jóakimsdóttir starfsmaður sat þessatvo fundi fyrir hönd KÍ.
Landgræðslan og skógræktin
Kvenfélagasambandið hefur verið einn af samstarfsaðilum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar um söfnun Birkifræja.
Átakið er liður í því að útbreiða á ný birkiskóglendi sem þakti a.m.k. fjórðung landsins við landnám. Á rýru landi er gjarnan kolefnislosunþvíaðþarergamalljarðvegurenn að rotna. Ef landið klæðist birkiskógi stöðvast þessi losun og binding hefst í staðinn. Svona verkefni eru því líka loftslagsverkefni. Kvenfélagasamband Íslands vonar að kvenfélagskonur geri frætínsluna að árlegu verkefni innan sinna kvenfélaga og njóti útiverunnar við að aðstoða við að breiða út birkiskóga. Nánari upplýsingar á birkiskogur.is
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024 25
Spítalinn okkar
Spítalinn okkar - landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala voru stofnuð miðvikudaginn9.aprílárið2014.Stofnfélagarvoruum300mannsmeðfjölbreyttareynslu,allsstaðar að á landinu. Kvenfélagasamband Íslands er stofnfélagi.
Áaðalfundisamtakanna23.apríl2024á10áraafmælisamtakanna,gafAnnaStefánsdóttirsemverið hefur formaður frá stofnun ekki kost á sér áfram og var Þorkell Sigurlaugsson kosinn nýr formaður á fundinum. Á fundinum voru samþykktar breytingar á lögum samtakanna þar sem hlutverkið var víkkað út og nær til samstarfsaðila sem tengjast bæði aðflæði og fráflæði Landspítala, aðbúnaði starfsmannaogsjúklingaogþeimmönnunarvandasemerviðvarandi.Samtökinmunuþvíleggjaauka áherslu á þessa þætti auk áframhaldandi mikilvægis sjúkrahúsbygginga og endurnýjun eldri bygginga. Jenný Jóakimsdóttir sat þennan aðalfund fyrir hönd KÍ.
Sjá nánar á spitalinnokkar.is
Landvernd
Landvernd eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu.Landvernd virðir íslenska náttúru og styður sjálfbæranýtingu hennar.Kvenfélagasambandið er félagsaðili Landverndar og hefuf verið í samstarfi við félagið vegna fjölmargra verkefna í gegnum árin. Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti KÍ hefur sótt aðalfundi Landverndar.
Sjá nánar á landvernd.is
Almannaheill, samtök þriðja geirans
KvenfélagasambandiðeraðiliaðAlmannaheill,enþausamtökvorustofnuðsumarið2008tilaðvinna að sameiginlegum hagsmunamálum fyrir almannaheillasamtök og sjálfseignarstofnanir sem starfa í almannaþágu, vinna að sem hagfelldustu starfsumhverfi fyrir þessa aðila, styrkja ímynd þeirra, efla stöðu þeirra í samfélaginu og koma fram fyrir hönd þriðja geirans gagnvart opinberum aðilum og fjölmiðlum. Samtökin hafa unnið að því að heildarlöggjöf verði sett um starfsemi frjálsra félagasamtaka, að skattaleg staða þeirra verði bætt,og að sýnileiki þriðjageirans íþjóðfélaginu verði aukinn.
Laufey Guðmundsdóttir félagskona í kvenfélagi Grímsneshrepps var kosin í aðalstjórn Almannaheilla til tveggja ára 2021 sem fulltrúi Kvenfélagasambands Íslands. Una Sveinsdóttir félagskona í KvenfélaginuFiðlunnisiturnúívarastjórnAlmannaheillafyrirhöndKvenfélagasambandÍslands20232025. Almannaheill hefur staðið fyrir Fundi fólksins. Fundur fólksins fór fram í Norræna húsinu og Grósku helgina 16. – 17. september 2022 og svo aftur helgina 15. – 16. september 2023. Tilgangur fundarins er að skapa vandaðan vettvang þar sem boðið er til samtals milli almennings,
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
stjórnmálafólks og frjálsra félagasamtaka, þar sem lýðræði og opin skoðanaskipti eru leiðarstefið. Lýðræðishátíðin Fundur fólksins verður haldin í Hörpunni 29. nóvember 2024. Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti KÍhefur sótt aðalfundi Almannaheilla.
Sjá nánar á almannaheill.is
Öldrunarráð Íslands
Fulltrúi er Vilborg Eiríksdóttir.
Öldrunarráð Íslands eru regnhlífasamtök þeirra sem starfa að hagsmunum aldraðra hér á landi. Að Öldrunarráði Íslands eiga því aðild samtök, félög, fyrirtæki og stofnanir, þar með talið sveitarfélög, sem vinna að málefnum aldraðra. Eru aðilar nú alls 32. Markmið Öldrunarráðs Íslands er að vinna að bættumhag aldraðra. Björg Baldursdóttir ívarastjórn KÍ hefur sóttaðalfundi Öldrunarráðsfyrir hönd KÍ.
Sjá vefsíðu Öldrunarráðs oldrunarrad.is
Kvennasögusafn
Stjórnarnefnd, fulltrúi er Vilborg Eiríksdóttir, til vara Edda Margrét Jensdóttir.
Vilborg Eiríksdóttir tók við sem aðalmaður í stjórn vorið 2018. Edda Margrét Jensdóttir var svo tilnefnd sem varamaður.
Markmið Kvennasögusafns Íslands er að skrá, varðveita og safna heimildum um sögu kvenna ásamt því að miðla þeirri þekkingu og hvetja til rannsókna. Það er eina safnið sinnar tegundar á Íslandi. Safnið er sérstök eining í Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni, Þjóðarbókhlöðu.
Sjá nánar um Kvennasögusafnið á kvennasogusafn.is
Samstarfsráð um forvarnir - SAFF
Fulltrúi er Guðrún Þórðardóttir.
Sjá nánar: foms.is
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Beinvernd
Kvenfélagasamband Íslands er einn af stofnfélögum Beinverndar og hefur verið í samstarfi við Beinvernd í tengslum við alþjóðlega beinverndardaginn 20. október ár hvert.
Sjá nánar á beinvernd.net
Þjóðbúningaráð
Hlutverk Þjóðbúningaráðs er að varðveita þekkingu á íslenskum búningum og leiðbeina um gerð þeirra. Þjóðbúningaráð var stofnað eftir þingsályktunartillögu sem alþingi samþykkti á löggjafarþingi 1998-99. Flutningsmenn tillögunnar voru Drífa Hjartardóttir þáverandi þingmaður (og nú heiðursfélagi KÍ) og Sturla Böðvarsson þáverandi þingmaður. Sjá tillöguna nánar: https://www.althingi.is/altext/123/s/0221.html
Þjóðbúningaráð hefur ekki verið starfandi síðastliðin ár. Fulltrúi er Margrét Skúladóttir og til vara Elinborg Sigurðardóttir.
Sjá nánar á buningurinn.is
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní eru Fjallkonur ómissandi partur af hátíðleika dagsins. Það eru ekki allir sem gera sér grein fyrirþví að í mörgumtilfellumeru það kvenfélögin á staðnum sem sjáum að velja og skrýða fjallkonurnar hverju sinni og hafa gert í fjölda ára. Oft eru fjallkonurnar í búning sem kvenfélögin eiga sjálf. Við báðum kvenfélögin um að senda okkur myndir af sínum Fjallkonum og báðum þær um að segja okkur aðeins frá búningnum og deginum. Á fésbókarsíðu KÍ er finna albúm þar semsafnaðhefurverið myndum ogsögum afFjallkonumkvenfélagannaeftirþvísemþærberast. Myndir og texti skal sendur á kvenfelag@kvenfelag.is. Myndirnar hér að ofan er af nokkrum Fjallkonum sem er að finna í albúminu.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991. Dagsetning átaksins var valin til að tengja á táknrænan hátt kynbundið ofbeldi og mannréttindi. Þann 25. nóvember er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og 10. desember er hinn alþjóðlegi mannréttindadagur. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls kynbundins ofbeldis. KÍ hefur tekiðþáttí átakinu. MannréttindaskrifstofaÍslands hefur haldiðutanum átakið sem hefur síðastliðin ár meðal annars falist í að birtar eru greinar í fjölmiðlum frá hinum ýmsu aðilum þessa 16 daga sem átakið stendur yfir. Í desember 2021 fékk KÍ Kristínu S. Bjarnadóttur til að skrifa grein fyrir hönd KÍ.Á síðasta ári 2023 þýddi KÍ efni frá ACWW í tengslum við átakið og birti á samfélagsmiðlum. Hér að neðan má sjá sýnishorn af þvíátaki.
Heimsókn jafnréttisnefndar Evrópuþings
Þann 4. nóvember 2021 tók Kvenfélagasamband Íslands ásamt Kvenréttindafélagi Íslands og Bandalagi kvenna í Reykjavík á móti jafnréttisnefnd Evrópuþings á Hallveigarstöðum. Tilefni heimsóknar nefndarinnar til Íslands var meðal annars umfjöllun nefndarinnar um tillögu framkvæmdastjórnar ESB að tilskipun um launagagnsæi, auk þess sem Evelyn Regner formaður nefndarinnar sagðist vilja læra af Íslandi. Félögin þrjú kynntu sín samtök ásamt því sem nefndin fékk kynningu á tilurð, byggingu og starfsemi Hallveigarstaða. Að þessu tilefni var dregið fram forláta bollastell í eigu Kvenréttindafélagsins sem konurnar sem skipulögðu fyrsta Kvennaverkfallið drukku úr á Hallveigarstöðum 1975.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Jafnréttisþing
Katrín Jakobsdóttir þáverandi forsætisráðherra boðaði til Jafnréttisþings sem var haldið í Hörpu 26. október 2022 og sátu Björg Baldursdóttir úr stjórn KÍ og Jenný Jóakimsdóttir starfsmaður KÍ þingið.
Á Jafnréttisþinginu var fjallað um stöðu kvenna af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði.
Sérstaklega var fjallað um aðgengi, möguleika og hindranir sem konur af erlendum uppruna mæta á íslenskum vinnumarkaði. Þá var skoðuð staða erlendra kvenna af ólíkum stéttum og með ólíka sögu.
Fyrirlesarar fjölluðu um stöðu erlendra kvenna af ólíkum stéttum og með ólíka stöðu auk þess sem forsætisráðherratókþátt íogstjórnaðiumræðummeðkonumaferlendumupprunaogfulltrúumfrá aðilum vinnumarkaðar.
Samantekt jafnréttisþings má finna á vef stjórnarráðsins. Þar má jafnframt finna upptöku frá þinginu og myndir. https://www.stjornarradid.is/verkefni/mannrettindi-ogjafnretti/jafnretti/jafnrettisthing-2022/
Næsta jafnréttisþing verður haldið 24. október 2024 í Hörpu. Yfirskrift þess þings er: Fatlaðar konur á vinnumarkaði – hindranir sem koma í veg fyrir þátttöku.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Kvennafrí
Kvenfélagasambandið hefurtekið þátt í kvennafrídeginum 24. október árhvert. Að átaki, viðburðum og fundum þennan dag standa samtök kvenna og launafólks.
Kvennafrídagurinner baráttudagur sem var fyrst haldinn
24. október árið 1975 í tilefni af því að Allsherjarþing
Sameinuðu þjóðannahelgaði árið málefnum kvenna.Um 90% kvenna á Íslandi lögðu niður störf til að sýna fram á
mikilvægi kvenna á vinnumarkaði og til að krefjast sömu réttindaoglaunakjaraogkarlarhöfðu.
Þann 24. október 2021 var yfirskrift dagsins: „Leiðréttum skakkt verðmætamat“. Árið 2021 var launamunur kynjanna samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands þannig að meðalatvinnutekjur kvenna voru 77,2% af meðalatvinnutekjum karla. Konur því með 22,8% lægri atvinnutekjur að meðaltali samkvæmt þessum útreikningum Hagstofunnar. Samkvæmt því höfðu því konur unnið fyrir launum sínum eftir 6 klukkustundir og 10 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9-17. Daglegum vinnuskyldum kvenna því lokið kl. 15:10.
Þann 24. október 2022 var yfirskriftin sú sama og árið áður eða „Leiðréttum skakkt verðmætamat“. Þá sýndu tölur frá Hagstofu Íslands um launamun kynjanna að konur væru með 21,9% lægri atvinnutekjur en karlar að meðaltali. Samkvæmt því höfðu konur unnið fyrir launum sínum eftir 6 klukkustundir og 15 mínútur miðað við fullan vinnudag frá klukkan 9 til 17. Daglegum vinnuskyldum kvenna því lokið kl. 15:15.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Kvennaverkfall 2023
Kvenfélagasamband Íslands var aðstandandi að sögulegu Kvennaverkfalli24. október 2023.
Mögnuð samstaðakvennaáArnarhóli,taliðeraðallt að100.000konur,kvárog jafnvelnokkrirmenn hafi mætt á fundinn. Kvenfélagskonur voru einnig með í skipulagningu samstöðufunda víða um land. Jenný Jóakimsdóttir sat fundi undirbúningsnefndar fyrir hönd KÍ.
Að Kvennaverkfallinu 2023 stóðu fjölmörg samtök kvenna, hinsegin fólks og launafólks. Slagorð fundarins var: Kallarðu þetta jafnrétti?
Kvenfélagasambandið var einnig aðili að upphitun fyrir fundinn sem haldinn var í anddyri Hallveigarstaða. Anddyrið fylltist og stór hópursafnaðistlíkafyrirutan Hallveigarstaði, við giskum á að um 300 - 400 hafi mætt þar og þegið kaffi og kleinur sem Hallveigarstaðir buðu upp á.
Á myndinni eru kvenfélagskonur við anddyri Hallveigarstaða tilbúnar á fundinn á Arnarhóli.
Kristín Linda Jónsdóttir, Sólveig Ólafsdóttir, Jenný Jóakimsdóttir, Jóhanna Hermannsdóttir, Vilborg Eiríksdóttir og Þórný Jóhannsdóttir.
Hér að neðan eru kröfur fundarins.
Kvennaverkfall 24. október 2023!
Við krefjumst leiðréttingar á vanmati „svokallaðra“ kvennastarfa!
Að atvinnurekendur hætti að veita sér afslátt á launum kvenna og kvára!
Við krefjumst sértækra aðgerða til þess að leiðrétta kjör þeirra kvenna og kvára sem lægstar tekjur hafa, því engin á að þurfa að lifa við fátækt!
Við krefjumst þess að launamisrétti og mismunun verði útrýmt!
Að konur og kvár geti lifað af launum sínum og fáitækifæri til að þróast í starfi til jafns við karla!
Að fatlaðar konur og kvár hafi tækifæri til atvinnuþátttöku til að geta bætt kjör sín!
Að menntun og hæfni kvenna af erlendum uppruna sé metin að verðleikum!
Að konum og kvárum verði ekki lengur refsað fjárhagslega fyrir þá ólaunuðu umönnunarábyrgð sem þau axla yfir ævina og gjalda fyrir þegar á lífeyrisaldur er komið.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Að gert verði samfélagslegt átak til að útrýma fordómum gegn fólki með fötlun, hinsegin fólki, fólki af erlendum uppruna og öðrum jaðarhópum.
Við krefjumst þess að karlar taki ábyrgð á við konur og kvár!
Taki ábyrgð á ólaunuðum heimilisstörfum og við umönnun fjölskyldumeðlima!
Taki ábyrgð á ólaunaðri þriðju vaktinni!
Við krefjumst þess að konur og kvár séu ekki í fjárhagslegum fjötrum ofbeldismanna!
Aðkonurogkvár fáistuðningviðaðbyggjauppfjárhagslegtsjálfstæðieftiraðhafalifaðafkynbundið fjárhagslegt ofbeldi!
Við krefjumst réttlætis og réttarbóta fyrir þolendur kynferðislegs og kynbundins ofbeldis!
Að ofbeldismenn sæti ábyrgð og kynfrelsi sé virt!
Að konur og kvár njóti öryggis og frelsi frá ofbeldi og áreitni í vinnunni, heima og í almannarými!
Að kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi verði útrýmt!
Við krefjumst þess að stjórnmálin geri kröfur Kvennaverkfalls að forgangsmáli! STRAX!
VIÐ KREFJUMST AÐGERÐA OG BREYTINGA! NÚNA!
Sjá nánar á síðunni kvennafri.is
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Matvælaþing varhaldiðíannaðsinníHörpu15.nóvember2023.Hringrásarhagkerfið,ísamhengivið nýsamþykkta matvælastefnu til ársins 2040, var meginviðfangsefni þingsins. Á þinginu komu saman þærfjölmörguogólíkustarfsgreinarsemkomaaðframleiðslu,vinnsluogdreifingumatvælaáÍslandi. Þingið er vettvangur fyrir samræðu milli neytenda, stjórnvalda og framleiðenda um matvæli í hringrásarhagkerfinu.
Jenný Jóakimsdóttir sat þingið fyrir hönd Leiðbeiningastöðvar heimilanna auk Evu Bjarkar Harðardóttur varaforseta og Þuríðar Guðmundsdótturmeðstjórnandasem sátu þingið fyrir hönd KÍ.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Nordens Kvinneforbund - NKF (hét áður Nordens husmoderforbund) voru stofnuð árið 1919 og gekk KÍ til liðs við þau árið 1949. Norðurlöndin skiptust þar á formennsku og skiptust á að halda norrænt sumarþing þar sem kvenfélagskonur komu saman og miðla reynslu, efla kynni og fræðast.
Sumarþing NKF 2020 átti að vera á Íslandi í Reykjanesbæ í júní og var búið að skipuleggja það og skráningar hafnar þegar hætta varð við þingið vegna heimsfaraldurs. Fyrst um sinn var hugsað að þetta yrði einungis frestun fram til 2021, en svo fór að hætta varð við þingið 2021 líka. NKF sumarþingið var svo loks haldið á Íslandi í júní 2022.
Kvenfélagasamband Íslands var gestgjafi á þessu síðasta Norræna sumarþingi Nordens Kvinnoförbund (NKF) sem haldið var á Park Inn í Reykjanesbæ 10. og 11. júní 2022 í blíðskaparveðri. Rúmlega 80 konur frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi tóku þátt í þinginu.
Föstudagurinn var helgaður fræðslu og fyrirlestrum tengdum þema þingsins sem var Grænni skrefbjartari framtíð, konur, loftslag og kraftur jarðar. Á laugardeginum var svo farið í rútum í skoðunarferðumReykjanesið,KvenfélagGrindavíkurbauðtilhádegisverðarogþinginu lauksvomeð hátíðarkvöldverði á laugardagskvöldinu þar sem Guðrún Þórðardóttir formaður NKF sleit þinginu formlega með því að afhenda keðju NKF til Noregs. Keðjan er nú varðveitt á Kvennasafni (Kvinnemuseet) í Kongsvinger.
Á þessu vel heppnaða þingi var 103ja ára sögu NKF slitið en það var sameiginleg ákvörðun stjórnar NKF að ekki væri lengur skilyrði fyrir að halda áfram í þessari mynd. Allir þátttakendur voru sammála um að halda vinskapnum og norrænu samstarfi áfram í breyttri mynd í takt við nýja tíma. Finnsk –sænsku Mörturnar buðu til ráðstefnu sumarið 2023, en engin fór því miður frá Íslandi.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Alþjóðasamband dreifbýliskvenna (Associated Country Women of the World – ACWW), var stofnað árið 1929 (hét áður Alþjóðasamband húsmæðra).KÍ gerðist aðili að ACWW árið 1980. ACWW heldur alþjóðaþing á þriggja ára fresti. ACWW hefur ráðgjafastöðu við Sameinuðu þjóðirnar og vinnur markvisst að heimsmarkmiðum SÞ. Um 10 milljónir kvenna í um 450 félögum í 80 löndum um allan heim eru meðlimir í ACWW, hafa samtökin staðið að mörgum þörfum og merkum málefnum.
Lykilhugtakið í öllu starfi ACWW er valdefling kvenna í öllum sínum fjölbreytileika hvar sem er í heiminum. ACWW var stofnað til að magna upp raddir kvenna á landsbyggðinni, safna saman staðreyndum um líf þeirra og notar síðan þær upplýsingar til að kalla stjórnvöld til ábyrgðar.
Skipta má starfi ACWW í þrjú áherslusvið: loftslagssnjallan landbúnað, heilsu kvenna í dreifbýli og menntunogsamfélagsþróun.ACWWstyrkirþróunarverkefniáþessumsviðum,sembætirekkiaðeins sveitarfélög um allan heim, heldur stuðlar einnig að skilvirkri og upplýstri hagsmunagæslu.
ACWW heldur alþjóðaþing og svæðisþing á þriggja ára fresti. Vitandi að rödd kvenna er svo miklu sterkari þegar við tölum saman. Vinátta myndastog konur um allan heim geta lært hver af annarri.
AðalskrifstofaACWW erstaðsett íLondon, Englandi. Á skrifstofunni starfa7 starfsmenn ífullu starfi.
Evrópuþing ACWW í Glasgow
Dagana 19. – 23. september fór framEvrópuþingACWW (Associated Country Womenof the WorldAlþjóðasamband dreifbýliskvenna). Gestgjafar þingsins voru skosku kvennasamtökin SWI (Scottish Women´s Institutes). Þingið var haldið á ráðstefnuhóteli rétt fyrir utan Glasgow. Yfirskrift þingsins var:Fjölbreytileikinnerokkarstyrkur.Áþingiðmættualls130þátttakendur frá9löndum.Þarafvoru 18 hressar kvenfélagskonur frá Íslandi ásamt fjórum mökum. Það var ánægjulegt að sjá svo góðan hóp frá Íslandi. Flestar í hópnum höfðu aldrei mætt áður á þing hjá ACWW og voru því spenntar að kynnast starfi samtakanna. Á myndinni hér til hliðar er hópurinn:
Dagskrá þingsins var blanda af þingfundum, fyrirlestrum og vinnustofum. Einn dagur fór svo sérstaklega í afar áhugaverða skoðunarferð um Skotland. Á kvöldin var svo boðið upp á skemmtanir á skoskan máta, meðal annars borin fram Haggis við sekkjapípu undirspil. Á þinginu voru fluttar skýrslur frá tveimur aðildarlöndum og var það Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti Kvenfélagasambands Íslands sem flutti skýrslu Íslands og fór yfir starf sambandsins síðastliðin ár. Skýrslunnivarveltekiðenhúnvarfluttbæðiímáliogmyndum. Þaðvarklappaðmikiðísalnumþegar Dagmar sagði frá því hversu mikið fé kvenfélögin á Íslandi hefðu gefið til samfélagsins árin 2018 –2021. Nánar má lesa um ferðina á Evrópuþingið í 4. tbl Húsfreyjunnar 2022.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Þátttakendur á Evrópuþinginu í Glasgow: Frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir fyrrum forseti KÍ (sitjandi), Jenný Jóakimsdóttir starfsmaður KÍ, Katrín Ragnheiður Guðmundsdóttir frá Kvenfélaginu Iðunni Eyjafjarðarsveit, Dagný Hildur Þorgeirsdóttir frá Kvenfélaginu Einingu Skagaströnd, Árný Ósk Hálfdánardóttir frá Einingu Skagaströnd, Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti KÍ, Jóhanna Bára Þórisdóttir frá Iðunni Eyjafjarðarsveit, Unnur ÓskKristjónsdóttir frá Kvenfélaginu Eyrarbakka, Lena Jónsdóttir gjaldkeri KÍ ogGuðný Rannveig Reynisdóttir frá Kvenfélaginu Eyrarbakka, Sitjandi frá vinstri: Björg Bjarnadóttir frá Kvenfélaginu Vonin Blönduósi, Mjöll Einarsdóttir Kvenfélagi Selfoss, Eyrún Olsen Kvenfélagi Selfoss, Þuríður Jóna Schiöth Iðunni Eyjafjarðarsveit, Hrönn Arnheiður Björnsdóttir Iðunni Eyjafjarðarsveit og Ásta Heiðrún Stefánsdóttir Iðunni Eyjafjarðarsveit. Á myndina vantar: Guðnýju Nönnu Þórsdóttur og Elínu Ósk Ómarsdóttur báðar frá Einingu Skagaströnd. (ljósm. Alan Photography)
Næsta Evrópuþing ACWW verður haldið í Hollandi í október 2025. „Vrouwen van Nu“ í Hollandi verða gestgjafar en það eru stór Kvenfélagasamtök í Hollandi sem eru aðilar að ACWW. Til gamans má geta þess að þau samtök eru jafnaldra KÍ, stofnuð 1930. Lesa má nánar um samtökin á https://vrouwenvannu.nl/.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Heimsþing ACWW í Kúala Lúmpur.
Alheimsþing Dreifbýliskvenna (ACWW- Associated Country Women of the World) var haldið í Kúala Lúmpur í Malasíu 17. – 25. maí 2023. Jenný Jóakimsdóttir starfsmaður KÍ sat þingfundi og fór með atkvæði Kvenfélagasambandsins á þinginu fyrir hönd stjórnar KÍ.
11 Íslendingar sóttu þingið fyrir hönd Kvenfélaga-sambands Íslands (KÍ) og naut hópurinn gestrisni kvenfélagsins í Pahang í Malasíu sem voru gestgjafar þingsins.
Á myndinni hér fyrir ofan er hópurinn prúðbúinn í Konungshöllinni. Frá vinstri að ofan: Sólveig Ólafsdóttir, Guðrún Finnbjörnsdóttir, Ólína Hulda Guðmundsdóttir, Þórunn Drífa Oddsdóttir, Áslaug BirnaÓlafsdóttir,LindaB.Sverrisdóttir,JennýJóakimsdóttir.Sitjandifrávinstri: GuðrúnÞórðardóttir, Drífa Hjartardóttir, Helga Guðmundsdottir. Sá sem tók myndina var Stefán Ólafsson sem var eini makinn sem var með í íslenska hópnum.
Fjölbreytt og glæsileg dagskrá var skipulögð í kringum hina hefðbundnu þingfundi. Skemmtanir á hverju kvöldi með hinum ýmsu þemum, boðið var upp á skoðunarferðir og menningu landsins var gerð góð skil. Hápunkturinn ídagskránni var Galahátíðarkvöldverðurinn iKonungshöllinni íMalasíu, en drottning þeirra Queen Azizah er forseti kvenfélagasambandsins í Pahang og var gestgjafi kvöldsins. Það er ekki hægt að segja annað en að þetta heimsþing hafi verið mikil upplifun, enda vel staðiðaðölluskipulagiafhálfugestgjafannaíKvenfélagasambandinuíPahangíMalasíuogstarfsfólki skrifstofu ACWW, sem voru óþreytandi við að liðsinna þinggestum. Hér hefur aðeins verið stiklað á
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
stóruafþvísemþingiðhafðiuppáaðbjóða.MagdiedeKockfráSuður-AfríkuerheimsforsetiACWW ogstjórnaðihún þingfundunumsemvoru allsníuáþinginu.Áhverjumþingfundi vorufluttarskýrslur fráformönnum nefndaogsvæðisforsetumásamtþvíaðkosiðvarumþærlagabreytingarogályktanir sem höfðu verið lagðar fram fyrir þingið. Kosningar fóru svo fram í embætti til næstu þriggja ára og var Magdie de Kock endurkjörin heimsforseti til næstu þriggja ára og Afrodita Roman evrópuforseti sömuleiðis.
Á síðasta þingfundinum og á lokaathöfninni var svo kynning á næsta heimsþingi ACWW sem haldið verður í Ottawa í Kanada í 26. apríl – 1. maí 2026. Þingið verður kynnt nánar þegar nær dregur og hvetjum við kvenfélagskonur til að fylgjast vel með því og fjölmenna þangað með okkur.
ÁheimsþinginutókJennýJóakimsdóttiraðséraðverasérlegurumsjónarmaðurACWWáÍslandifyrir hönd KÍ eða „ACWW Coordinator“ sem felur meðal annars í sér að kynna starf og verkefni ACWW fyrir aðildarfélögum í sínu heimalandi og sitja reglulegafundi með öðrum umsjónarmönnum.
Ályktanir sem samþykktar voru á heimsþinginu
„Kynjaáhrifagreining á landsbyggðinni“
„ACWW hvetur ríkisstjórnir til að greina áhrif þess á öll kyn að búa í dreifbýli þegar hugað er að áætlana- og stefnugerð. Tryggja þarf að skoðuð verði áhrif þessara tveggja breytna, að vera kona og að búa í dreifbýli. Lögð er áhersla á að tekið verið fullt tillit til kynjabreytunnar í dreifbýli þannig að dregið verði úr skaðlegum áhrifum fyrirhugaðra áætlana og stefnu um landsbyggðina er varða konur.“
„Stofnun aðgerðaáætlana um atvinnu kvenna í dreifbýli“
„ACWW hvetur allar ríkisstjórnir til að sinna sérstökum þörfum dreifbýliskvenna með því að vinna með fulltrúum kvennahópa til að koma á, innleiða og fylgjast reglulega með aðgerðaáætlun um atvinnumál kvenna sem tryggir aðgang þeirra að þjálfun og menntun; sanngjarna og örugga starfshætti; vinnuskilyrði þeirra og laun; aðgangi að auðlindum eins og fjármagni, efni, tækni og land/eignir og; þar á meðal en ekki takmarkað við ráðgjöf varðandi starfsferil, viðskipti og frumkvöðlastarfsemi."
„Að taka á matarsóun“
„Að ACWW leggi áherslu á að taka á matarsóun í öllum sínum verkefnum og aðgerðum og málsvörn (advocacy), með því að viðurkenna að matarsóun á sér stað um alla alþjóðlegu fæðuframboðskeðjuna og að samræmdar aðgerðir eru nauðsynlegar til að draga úr matartapi og matarsóun á hverju stigi."
Nánar má lesa um Heimsþingið í 3. tbl Húsfreyjunnar 2023.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Kvennanefndarfundur Sameinuðu þjóðanna hefur verið haldinn árlega frá árinu 1946. Safnast aðildarríki SÞ saman í höfuðstöðvunum í New York til að setja alþjóðleg markmið, móta stefnu og gera ráðstafanir sem stuðla að jafnrétti kynjanna á heimsvísu. Fundur kvennanefndarinnar fjallar þannigummálefnisem snúaaðkonumumheimallan,er vettvangurtilaðeflatengslanetið,segjafrá stöðu málaísínuheimalandiogfræðastumhvernigþeimmálumerháttaðíöðrumlöndum.Áhverju ári eru tvö þemu á dagskrá, meginþema og eftirfylgdarþema. Fundurinn stendur yfir í tvær vikur og er vettvangur fyrir aðildarríki, frjáls félagasamtök og grasrótarhreyfingar til að koma saman, deila reynslu og aðferðum við að auka jafnrétti og styrkja stöðu kvenna og stúlkna. Fundurinn er sá fjölsóttasti sinnar tegundar sem fólk hvaðanæva úr heiminum sækir. KÍ hefur sent fulltrúa sem taka þátt í fundinum.
Kvennanefndarfundurinn 2022 - CSW66 var haldinn eins og ávallt í mars. Umfjöllunarefni fundarins var: Hvernig má ná jöfnuði og valdefla konur og stúlkurí tengslum við loftslagsbreytingarog viðbragðsáætlunum við þeim? Vegna áhrifa Covid 19 sem enn gætti voru hliðarviðburðir sendir út rafrænt að þessu sinni og engin fór á fundinn frá íslenskum félagasamtökum.
Kvennanefndarfundurinn 2023 CSW67 fór fram í New York í mars 2023 Áherslur fundarinsaðþessusinnivoruánýsköpunog tækni og hvernig megi nýta hana í þágu jafnréttis. Rætt var um hvernig má tryggja að nýsköpun og tækni hafi jákvæð áhrif á samfélög, veiti konum rödd og sé öruggt rými fyrir konur? Eva Björk Harðardóttir, varaforseti sótti fundinn fyrir hönd KÍ.
Kvennefndarfundurinn 2024 CSW68 fór svo aftur fram með venjulegu sniði í mars 2024 og þar var lögðáherslaáaðflýtafyrir því að jafnrétti kynjanna náist sem og valdefling kvenna og stúlkna með því að taka á fátækt, efla stofnanir og fjárfestingar með kynjasjónarmið að leiðarljósi. Heimurinn stendur á mikilvægum krossgötum hvað jafnrétti kynjanna varðar. Í dagbúa10,3% kvennaá heimsvísu við sárafátækt og eru þær að jafnaði fátækari en karlar. Til þess að útrýma fátækt og ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (SDGs) fyrir árið 2030, þurfa hlutirnir að ganga 26 sinnum hraðar fyrir sig. En til að svo megi verða þarf að fjárfesta í hraðari framförum. Eva Björk Harðardóttir, varaforseti sótti fundinn fyrir hönd KÍ.
Forsætisráðuneytið sem hefur umsjón með jafnréttismálum hefur veitt íslenskum félagasamtökum styrk til fararinnar sem nýtist við ferðir og gistingu eins fulltrúa. Var áður veittur styrkur fyrir tvo fulltrúa.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Sjóðurinn var stofnaður 25. ágúst 1987 samkvæmt ákvæði í erfðaskrá Helgu og fer úthlutun fram annað hvert ár. Hlutverksjóðsins er að styrkja ungar konur til framhaldsnáms sbr. 3. grein stofnskrár hans. Kvenfélagasambandi Íslands var falin varsla sjóðsins. Forseti KÍ er formaður sjóðsstjórnar og gjaldkeri og meðstjórnandi stjórnarmenn.
Úthlutun úr sjóðnum hefur ekki farið fram vegna þess hversu lítið er til úthlutunar.
Hér að neðan er smá sýnishorn af kynningarátaki sem er í gangi á samfélagsmiðlum.
Hafið samband við skrifstofu KÍ ef þitt kvenfélag vill taka þátt.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Skýrsla formanns útgáfustjórnar
“Á undanförnumþingumKÍ hafa komiðframákveðnar óskir um,að KÍ hefði sitt eigið blað eða tímarit, er ræddi aðallega mál heimilanna. Á síðasta landsþingi KÍ, 1949 var svo kosin nefnd, er ásamtstjórninniáttiaðvinnaaðundirbúningiogútgáfuþessarits.”
Þannig hljóðar ávarp Guðrúnar Pétursdóttur í 1. tölublaði, 1. árgangi Húsfreyjunnar.
Það má með sanni segja að þær framsýnu konur sem áttu þessa hugmynd, hafi ekki látið sitja við orðin tóm. Húsfreyjan hefur nú komið út í 75 ár og hefur haft að leiðarljósi að fjalla um málefni heimilanna þótt áherslur á efnisval hafi þróast í takt við tímann. Jafnréttismál, náttúruvernd og umhverfismál hafa einnig fengið stóran sess í blaðinu.
Húsfreyjan er eitt elsta tímarit landsins, ef ekki það elsta sinnar tegundar, sem komið hefur út samfellt í 75 ár, 4 tölublöð á ári. Að blaðinu hefur alla tíð verið staðið meðmiklummyndarbrag,þóttefnisöflunhafiaðlíkindumveriðmuntímafrekariogerfiðarifyrirtíma nútímatækni.
Húsfreyjan er hluti af menningu íslenskrar þjóðar frá miðri síðustu öld. Tímaritið varðveitir á síðum sínum merka sögu um þróun og framfaraskeið kvenna á miklu breytingaskeiði. „Í Húsfreyjunni var skrifað um stéttamálefni íslenskra húsmæðra, sem og stöðu konunnar og réttindi hennar eða réttindaleysi bæði á heimilinu og úti í þjóðfélaginu.“ (Lana Kolbrún Eddudóttir, 1. tbl. 2019). Fjallað er um samstarf KÍ við erlend kvennasamtök s.s. NKF (Nordisk kvinneforbund og ACWW, Alþjóðasambanddreifbýliskvenna)ÍtarlegavarfariðyfirsöguHúsfreyjunnarítímaritumsemkomuút á 70 ára afmælisári 2019. Kristín Linda Jónsdóttir tók saman sögu, útgáfu, ritstjórn og efni í tveimur greinum í 1. og 2.tbl. Þórdís Kristjánsdóttir gerði handavinnusögunni góð skil á síðum Húsfreyjunnar í 3. tbl. og Guðrún Hallgrímsdóttir sagði frá matargerð og uppskriftum í sögu þjóðar í 4. tbl. Það nýmælivarað haldinvarljóðasamkeppni2018 og2019ogsmásagnakeppnifrá2020tildagsinsídag. Teljamá líklegt að hún verðifastur liður héreftir. Þessar samkeppnirhafagengið afar velogþátttaka hefur verið mjöggóð.Dómnefndir hafavalið úrfjölmörgum innsendum og góðum verkum sem síðan voru birt í Húsfreyjunni. Fjölmargir höfundar og skúffuskáld hafa þar séð verk sín birt í fyrsta skipti auk þess sem vanir rithöfundar hafa einnig tekið þátt.
Matarþættirhúsfreyjunnarhafaveriðfjölbreyttirogoftastveriðíhöndumfrábærramatgæðingavíðs vegar að. Frá 1. tbl. 2020 hefur ritstjórinn séð um að miðla uppskriftum og fróðleik frá nokkrum viðmælendum sem allir eiga sameiginlegt að hafa verið að vinna við matargerð og/eða veislur. Tilgangurinnvaraðkomaáframfærimismunandihugmyndumímatogmatargerðogkynnastaðeins
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
fólkinu semgefuruppskriftirnar.Matarþættirvíðsvegaraðaflandinuhafabirstíblaðinuoghafaótal matgæðingar þar látið ljós sitt skína. Frá því í 3. tbl. 2021 hefur matgæðingurinn og matarbloggarinn Albert Eiríksson, sem getið hefur sér góðan orðstír á þessu sviði, séð um matarþáttinn.
Handavinnan hefur verið í höndum hæfra kvenna sem hafa gefið fjölbreyttar uppskriftir og leiðsögn. Prjón, hekl, útsaumur og fleira hefur verið í þættinum. Lesendur Húsfreyjunnar hafa sýnt þessum efnisþætti Húsfreyjunnar mikinn áhuga í gegnum tíðina.
Þá ber að nefna ótal viðtöl við athyglisverðar konur úr öllum geirum þjóðlífsins og kennir þar margra grasa.
Árið 2017varákveðiðaðflýtaútgáfu Húsfreyjunnar,hún kæmiút ífebrúarístað marsogyrðihelguð kvenfélögum og kvenfélagskonum. Það mæltist vel fyrir.
Árið 2020 var hætt að senda Húsfreyjuna í plastumbúðum og er hún nú borin út í pappírsumslagi. Ás vinnustofa hefur séð um pökkun á Húsfreyjunni undanfarin ár. Í lok árs 2020 var boðið upp á möguleikann að gerast áskrifandi á rafrænu formi eingöngu. Allir áskrifendur hafa nú aðgang að rafrænum vef Húsfreyjunnar þar sem hægt er að skoða nýjustu tölublöðin.
Kynningar á Húsfreyjunni hafa verið víða um land undanfarin ár en mun minna árið 2020 og 2021
Kristín Linda Jónsdóttir lét af störfum sem ritstjóri 2022 eftir frábært starf til 20 ára. Við keflinu tók SigríðurIngvarsdóttir,núverandibæjarstjóriFjallabyggðar.Húnhefurnúlátiðafritstjórastörfum. Eru þeim færðar innilegustu þakkir fyrir frábær störf.
Nýráðinn ritstjóri er Jenný Jóakimsdóttir, sem er okkur að góðu kunn sem starfsmaður Kvenfélagasambandsins.
Forsenda tímaritsútgáfu af þessu tagi er að áskrifendur séu nægilega margir til að útgáfan standi undir sér. Áskrifendum hefurfækkað nokkuð undanfarið og fjöldi nýrra áskrifenda hefur ekki haldið í viðfækkunina.Viðskorumákvenfélagskonurlandsinsaðvinnaaðfjölgunáskrifendaþessamerkilega, fróðlega og fallega blaðs, málgagns Kvenfélagasambands Íslands og kvenfélagskvenna um land allt. Stefnum ötular að því að Húsfreyjan okkar nái a.m.k. 100 ára aldri.
Útgáfustjórn Húsfreyjunnar skipa:
Björg Baldursdóttir, formaður, Garðabæ, Guðrún Þóranna Jónsdóttir, Selfossi, Magðalena Jónsdóttir, gjaldkeri KÍ, Rangárþingi eystra, Þóra Sverrisdóttir, A-Húnavatnssýslu, Eva Hilmarsdóttir, Eyjafirði. Til vara: Guðný Valberg, Rangárþingi eystra og Linda B Sverrisdóttir, Borgarnesi.
BjörgBaldursdóttir,formaðurútgáfustjórnarHúsfreyjunnar
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024 44
Starfiðhjá Leiðbeiningastöð heimilanna (Lh) felstsem fyrr íað svara erindum og gefa ráð og upplýsingar í síma og tölvupósti. Einnig miðlun efnis á vefsíðu og á fésbókarsíðu Lh og í tímaritið Húsfreyjuna. Leiðbeiningastöðin aflar upplýsinga og heimilda í stórum gagnabanka sem orðið hefur til hjá stöðinni í gegnum árin, einnig með því að afla áreiðanlegar heimilda mjög víða. Gefin eru góð ráð við innkaup á heimilistækjum og er stöðin með áskrift að erlendum gæðakönnunum í þeim tilgangi. Starfsmaður er undirrituð, Jenný Jóakimsdóttir, sem sinnir störfum Lh ásamt öðru á skrifstofu KÍ. Engir styrkir hafa fengist til reksturs Leiðbeiningastöðvarinnar þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir tilráðuneytaogfyrirtækja. Tilaðþessimiðlunefnissémeðsembestumhætti þarf að verja miklum tíma í heimildarvinnu og vinnslu efnis.
Fyrirspurnum í síma og tölvupósti fer sífellt fækkandi, fólk er einfaldlega farið að nýta sér stafræna miðla til að leita sér upplýsinga. Heimasíða Leiðbeiningastöðvarinnar er þó mjög mikið sótt og fær húnþúsundirheimsóknaíhverrivikuogíleitarvélGoogleerhúnmjögofarlegaíleit. Þaðerþvíóhætt að segja að heimasíðaLeiðbeiningastöðvarinnar sé mjögverðmætog ef ætluninerað haldaútistarfi Leiðbeiningastöðvarinnar áfram þarf að fjárfesta í síðunni og jafnvel skoða hvernig síðan gæti gefið afséreinhverjartekjur. Starfsmaðursértilþessaðnýttefnikomiinnásíðunareglulegatilaðviðhalda vinsældum hennar. Oft þá efni/fræðsla um það sem fólk er mögulega sérstaklega að leita að á hverjumtíma. Vinsælastagreininundanfarinárhefurveriðumeldun/steikinguákjöti,súgreinvirðist alltaf halda sér á toppnum sem mest lesna greinin. Ég tel það nauðsynlegt að fleiri komi að því að finna áhugavert efni til að setja inn á síðuna, til að halda henni jafn vinsælli og hún hefur verið. Vel tókst til þegar verkefni KÍ tengd matarsóun og fatasóun voru í gangi. Þó svo þeim verkefnum sé formlega lokið er það þó efni sem alltaf er hægt að tengja við starf Lh. Hugmyndavinna þarf að fara fram til að greina hvaða fleiri verkefni væri hægt að tengja við stöðina, svo ekki sé verið að tyggja alltaf áþví sama. Jafnvelfaraaf stað með gott verkefni semhægtværi að sækja um styrkifyrir.Égsé fyrirméraðvelskipuðnefndeðavinnuhópuráhugasamrakvenfélagskvennagætiveriðgóð leiðtilað halda starfi Leiðbeiningastöðvarinnar meira lifandi.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Leiðbeiningastöðin 60 ára!
Á formannafundi KÍ 1962 var skipuð nefnd til að semja tillögur um fræðslustarfsemi landssambandsins. Nefnd þessi lagði fram tillögur að fræðslustarfsemi fyrir heimilin á landsþingi 1963. Leiðbeiningastöðin tók svo til starfa þetta ár í október í umsjón Sigríðar Kristjánsdóttur húsmæðrakennara sem starfaði við stöðina fyrstu tvö árin.
Kvenfélagasamband Íslands fagnaði að þessu tilefni 60 ára starfi Leiðbeiningastöðvar heimilanna í móttöku sem var haldin í samkomusal Hallveigarstaða að loknum formannaráðsfundi laugardaginn 21. október 2023. Meðal gesta voru fyrrum starfsmenn stöðvarinnar ásamt stjórn og formannaráði KÍ, heiðursfélögum og fyrrum forsetum KÍ. Sett var upp sýning á munum sem tengjast starfi Leiðbeiningastöðvarinnar í þessi 60 ár og eldri muna sem tengjast ferðum heimilisráðunauta Kvenfélagasambandsins sem fóru um landið með námskeið fyrir húsmæður sem var fyrir tíma Leiðbeiningastöðvarinnar.
Veislustjóri í móttökunni var Eva Björk Harðardóttir. Jenný Jóakimsdóttir starfsmaður KÍ og Leiðbeiningastöðvarinnar flutti hátíðarræðu og fór þar yfir sögu Leiðbeiningastöðvarinnar og skálað varfyrirþeimkonumsemhöfðulagttilstofnunstöðvarinnarfyrir60árum.Íboðivorugóðarveitingar og tónlistaratriði.
Frá vinstri: Jenný Jóakimsdóttir starfsmaður KÍ og Leiðbeiningastöðvar heimilanna, Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti KÍ, Guðrún Þórðardóttir fyrrum forsetiKÍ,UnaMaríaÓskarsdóttirfyrrum forsetiKÍ,SigurlaugViborgfyrrumforseti KÍ,HelgaGuðmundsdóttirfyrrumforseti KÍ, Eygló Guðjónsdóttir fyrrum forstöðumaður Leiðbeiningastöðvar heimilanna og Kristín Guðmundsdóttir fyrrum starfsmaður KÍ og Leiðbeiningastöðvarheimilanna.
Í tilefni afmælisins var Leiðbeiningastöð heimilanna með sérstakan bakstursþátt í fjórða tölublaði Húsfreyjunnar.
Það er gaman að líta til fortíðar og tóku nokkrar konur í útgáfustjórn Húsfreyjunnar og stjórn KÍ þá áskorun að baka uppskriftir sem birtust í jólablaði Húsfreyjunnar 1965. Þær konur sem tóku áskoruninni að skella sér í fortíðarbakstur fá miklar þakkir fyrir.
JennýJóakimsdóttirstarfsmaðurLeiðbeiningastöðvarheimilanna
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Skýrsla:
Kvennaheimilið Hallveigarstaðir er sjálfseignarstofnun í eigu Kvenfélagasambands Íslands (KÍ), Kvenréttindafélags Íslands (KRFÍ) og Bandalags kvenna í Reykjavík (BKR).
Húsið var vígt 19. júní 1967 og á hvert félag jafnan eignarhlut í húsinu.Félöginskiptameðséraðsjá um rekstur hússins á þriggja ára frestiogtókKÍviðumsjónhússinsaf BKR á aðalfundi Hallveigarstaða vorið 2021.
Dagmar Elín Sigurðardóttir var formaðurhússtjórnarfrávori2021ogframtilvors2024,þegarKvenréttindafélagiðtókviðhússtjórn. Jenný Jóakimsdóttir, starfsmaður KÍ, var starfandi framkvæmdastýra hússins á sama tíma. Dagmar situr nú í hússtjórn sem meðstjórnandi fyrir hönd KÍ. Félögin þrjú eru öll með aðsetur í húsinu en annað er leigt út sem skrifstofur m.a. til sendiráða, félagasamtaka, lögfræðinga og annarra aðila. Auður Anna Magnúsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafélagsins er nú starfandi framkvæmdastýra Hallveigarstaða.
Eins og alltaf hefur verið unnið að nauðsynlegu viðhaldi í húsinu. Stærsta og kostnaðarsamasta verkefni síðustu ára var fóðrun lagna undir húsinu. Farið var í það verkefni í ársbyrjun 2023 og gekk vel og var unnið á tíma, en aðgengi að salnum var lokað þennan mánuð sem verkefnið tók.
Samkomusalurinn á Hallveigarstöðum er leigður út til veislu- og fundarhalda og hefur verið mikil aðsókn í leigu á salnum. Aðgengi í salinn er þó ábótavant og mikilvægt að fara í að tryggja aðgengi allraísalinnogumhúsið. Aðildarfélögþeirraþriggjafélagasemskiptameðsérstjórnhússinsfásalinn leigðan sér að kostnaðarlausu. Pantanir á sal fara í gegnum netfangið hallveigarstadir@gmail.com. Hvítabandið og Kvenfélagið Fiðlan sem eru aðilar að KÍ í gegnum Kvennasamband Reykjavikur halda sína föstu félagsfundi á Hallveigarstöðum. Húsmóðir Hallveigarstaða er Ásdís Hjálmtýsdóttir og sér hún um mönnun í sal í veislum og á fundum, er leigjendum salarins innan handar auk þess sem hún býðuruppáveisluþjónustu.HúsverðirHallveigarstaðaeruGuðmundurHjaltiJónssonogLisaMikaela Gunnarsdóttir.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Haldið var upp á 55 ára afmæli hússins 19. júní 2022, þar sem góðum gestum var boðið. Heiðursgesturinnvar frúEliza Reidforsetafrúsemfluttiávarpogsagðim.a.frábóksinni „Sprakkar“.Rakel Adolfsdóttir, forstöðukona Kvennasögusafnsins flutti erindið: Horft til baka um sögu hússins. Kristín Sigsteinsdóttir, dóttir Helgu Magnúsdóttur á Blikastöðum sagði gestum skemmtilega sögu afmóður sinni, en hún var ein af þeim sem komu að söfnuninni fyrir húsinu. Kvennakórinn Hrynjandi sem æfir í samkomusalnum söng að lokum nokkur lög. Húsmóðir Hallveigarstaða, Ásdís Hjálmtýsdóttir sá um kaffiveitingar og um veislustjórnsá EvaBjörk Harðardóttir, varaforsetiKÍ í veikindaforföllum undirritaðrar sem var fjarri góðu gamni með Covid.
Á myndinni eru; Dagmar Elín Sigurðardóttir, Eva Björk Harðardóttir, Frú Elíza Reid, Vilborg Bergman formaður BKR og Tatjana Latinovic formaður KRFÍ
Nánari upplýsingar um húsið er að finna á heimasíðu hússins www.hallveigarstadir.is
JennýJóakimsdóttir,framkvæmdastjóriHallveigarstaðatilvors2024
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Það hefur gengið frekar illa að fá styrki frá ríkinu til að til að styðja við rekstur Kvenfélagasambandsins undanfarin ár. Við erum því að rekasambandiðnánastánúllinuogerlítiðsemekkertafgangsíönnur verkefni en daglegan rekstur. Þessir styrkir eru í raun forsenda þess að sambandið geti staðið fyrir allskonar verkefnum eins og til dæmis verkefninu um fatasóun.
Þegar horft er á skýrslur kvenfélaganna sést glöggt hversu öflug kvenfélögin um allt land eru. Á síðustu þremur árum höfum við gefið til samfélagsins yfir 160 milljónir króna. Við megum nú aldeilis vera stoltar af því. Þetta mættu ríki og sveitarfélög meta okkur til tekna þegar sótt er um styrki fyrir Kvenfélagasambandið, því að stærstur hluti þessara styrkja renna til þeirra. Við höldum áfram að sækja um styrkinæstuár. Ekkierástefnuskráokkaraðhækkaárgjöldfélaganna í bili.
Taprekstur hefur verið á Húsfreyjunni sl. ár og er erfitt að halda í við þann áskrifendafjölda sem þarf til að blaðið standi undir sér. Við þurfum því virkilega á því að halda að kvenfélagskonur flykki sér í áskrifendahópinn og standi þétt við bakið á þessu 75 ára gamla riti okkar.
Í tilefni 90 ára afmælis KÍ hófst söfnunin Gjöf til allra kvenna á Íslandi. Loksins erum við að klára þetta verkefni og höfum greitt allt sem til þarf af söfnunarfénu. Við fengum óneitanlega hlýtt í hjartað á afhendingu verkefnisins á Akranesi nú í september. Og það verður ánægjulegt að fylgjast með þegar tæknibúnaðurinn verður tekinn í notkun víðs vegar um landið
Magðalena K. Jónsdóttir, gjaldkeri KÍ
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
20242023
TekjurÁætlunRauntölur
Framlagríkisins1.500.000450.000
Verkefnastyrkirfráríkinu
FramlagfráHallveigarstöðum1.200.0001.455.600
Árgjöld-félagsgjöld4.600.0004.601.250
Tekjurv/funda600.000528.100
Aðrartekjur1.000.000320.830
Vaxtatekjur1.100.0001.172.768
Launoglaunat.gjöld
Tekjursamtals:10.000.0008.528.548
Launoglaunat.gjöld6.110.9934.512.437
Samtals:6.110.9934.512.437
Annarrekstrarkostnaður Símioginternet270.000260.087
Bókhalds-ogsölukerfi600.000593.399
Reksturheimasíðna130.000126.506
Kostnaðurvegnaverkefna500.000
ACWWogSÞþingNY250.000726.236
Afmælileiðbeiningastöðog jólafundur100.000593.563
FramlagtilHúsfreyjunnar1.000.000
Kostnaðurviðendursöluvörur550.000
Ýmiskostnaður400.000387.828
Árgjöld60.00054.671
Bókhaldogendurskoðun220.000
Vátryggingar33.00032.450
Kaffistofa,fundakostnaður200.000199.187 Þjónustugjöld4.0003.841
Blómoggjafir65.00063.724
Vaxtagjöld270.000273.263
Samtals:3.652.0004.041.492
Fjármagnsliðir
Vaxtatekjur
Vaxtagjöld
Heildartekjur
Heildargjöld
Rekstrarhagnaður(tap)
FjárhagsáætlunHúsfreyjunnar
20242023
TekjurÁætlunRauntölur
Áskriftarsalaáblaði16.783.00012.644.0252700erunú2446
Seldarauglýsingarogstyrktarlínur1.300.0001.225.000
LausasalaPenninn500.000
Vaxtatekjur280.000281.802
Tekjursamtals18.863.00014.150.827
Aðkeyptirverktakar6.500.0006.443.828
Prentunogpappírvegnaútgáfu4.600.0004.544.080
Launoglaunatengdgjöld3.500.0004.515.497
Samtals14.600.00015.503.405
Burðargjöld2.600.0002.665.735
GreittfráKÍ1.000.000 -
Reksturkaffistofu12.00011.888
Tölvuoghugbúnaðarkostn730.000726.608
Aðkeyptreikningsskil100.000
Fundakostnaður100.00093.077
Þjónustugjöld377.000316.071
Vaxtagjöld60.00062.149
Samtals3.979.0002.875.528
Heildartekjur18.863.00014.150.827
Heildargjöld18.579.00018.378.933
Rekstrarhagnaður(tap)284.000,00-4.228.106,00
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
1. grein
Heiti, heimili og varnarþing
Landssamband íslenskra kvenfélaga heitir Kvenfélagasamband Íslands, skammstafað KÍ.
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. grein
Aðild
1. Kvenfélagasamband Íslands er myndað af héraðssamböndum kvenfélaga. Kvenfélög sem fullnægja ákveðnum skilyrðum, sbr. 2. grein lið 4. geta átt beina aðild að KÍ og teljast þá sem eitt héraðssamband.
2. Héraðssamböndum sem mynda KÍ ber að fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
að tilgangur starfsemi þeirra samrýmist markmiðum KÍ
að í héraðssambandi séu við stofnun þess minnst þrjú kvenfélög
að stjórn héraðssambandsins sé alla jafna búsett á héraðssvæðinu
að breytingar á sambandi eða héraðssvæði verði gerðar í samráði við stjórn KÍ
að senda árlega skýrslu um starfsemi sína og samantekt um störf kvenfélaga í héraðinu eigi síðar en 1. mars ár hvert
að greiða árgjöld, sem ákveðin eru af landsþingum KÍ eðaformannaráðsfundum fyrir komandi ár. Greiðsluna skal inna af hendi eigi síðar en 1. apríl ár hvert. Ef vanskil verða á árgjöldum missa héraðssambönd rétt til atkvæðis á lögbundnum fundum og þingum KÍ.
3. Kvenfélögum sem eru aðilar að KÍ í gegnum héraðssamband ber að fullnægja eftirtöldu:
að tilgangur félagsins samrýmist markmiðum viðkomandi héraðssambands og þá um leið markmiðum KÍ
að lög félagsins séu samþykkt af hlutaðeigandi héraðssambandi
að félagið sendi árlega skýrslu til hlutaðeigandi héraðssambands um stjórnskipan, félagafjölda og starfsemi sína og standi skil á árgjöldum.
4. Einstökkvenfélöggeta ekkiorðiðbeiniraðilaraðKÍ. Undanskiliðer þaðkvenfélagsemþegarvarbeinnaðili samkvæmt eldri lögum þegar breytt ákvæði tók gildi. Það félag lýtur sömu skilyrðum og héraðssamböndin.
5. Kvenfélagasamband Íslands er aðili að Kvennasambandi Norðurlanda, Nordens Kvindeforbund skammstafað NKF, og Alþjóðasambandi dreifbýliskvenna, Associated Country Women of the World, skammstafað ACWW.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
3. grein
Markmið og leiðir
1. Að efla tengsl og samvinnu kvenna með því að
a) stuðla að samskiptum kvenna með funda- og ráðstefnuhaldi
b) starfa með öðrum samtökum sem láta sig varða hagsmunamál kvenna
c) hvetja konur til áhrifa í þjóðfélaginu
d) vinna að jafnréttismálum
2. Að efla félagsleg tengsl innan KÍ með því að
a) vera til stuðnings héraðssamböndum og einstökum kvenfélögum
b) veita fræðslu um skyldur þeirra sem gegna trúnaðarstörfum fyrir félög sín
c) vinna að upplýsingamiðlun með fundum, ráðstefnum og námskeiðum
d) vera talsmaður héraðssambandanna
3. Að gefa út Húsfreyjuna - Tímarit Kvenfélagasambands Íslands sjá nánar í reglugerð númer 2
4. Að reka Leiðbeiningastöð heimilanna sjá nánar í reglugerð númer 3
5. Að standa vörð um hag íslenskra heimila með því að:
a) fylgjast með opinberum ákvörðunum sem hafa áhrif á hag heimilanna
c) koma á framfæri hugmyndum og ábendingum um almenn framfaramál.
d) styðja mál sem efla vináttu og frið
e) veita umsagnir í málum er berast frá Alþingi.
f) sitja í opinberum nefndum og ráðum
6. Að vinna að stefnumálum NKF og ACWW svo sem kostur er hverju sinni.
(Sjá markmið og leiðir ACWW og NKF).
4. grein
Stjórnun Kvenfélagasambands Íslands
1. Landsþing Kvenfélagasambands Íslands, sem haldið er á þriggja ára fresti fer með æðsta vald í málefnum KÍ.
2. Stjórn KÍ annast stjórn KÍ milli landsþinga og ber ábyrgð á því að lögum KÍ sé fylgt og samþykktum landsþings og formannaráðs sé framfylgt. Auk þess sér stjórnin um undirbúning landsþings og formannaráðsfunda.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
3. Formannaráð fer með æðsta vald um málefni KÍ milli landsþinga.
5. grein
Landsþing
1. LandsþingKvenfélagasambandsÍslandsskalhaldiðþriðjahvertáráþeimstaðogtímasemstjórninákveður. Landsþing skal boða 60 dögum fyrir þing með bréfi til allra héraðssambanda ásamt drögum að dagskrá þingsins. Landsþing er löglegt ef löglega er til þess boðað. Þingið fer fram samkvæmt þingsköpum fyrir landsþing KÍ.
2. Tillögur að ályktunum sem óskað er eftir að séu lagðar fyrir landsþing skulu berast stjórn KÍ eigi síðar en 30 dögum fyrir landsþing en stjórn getur ákveðið frávik frá því ef talin er þörf á.
3. Landsþing eru opin öllum kvenfélagskonum og hafa þær þar málfrelsi og tillögurétt.
4. Stjórnarkonur KÍ eru ekki kjörgengnar á landsþing sem fulltrúar héraðssambanda. Þær hafa sem stjórnarkonur rétt til setu á landsþingum með fullum réttindum.
5. Atkvæðisbærir fulltrúar á landsþingi eru stjórnarkonur KÍ, formenn héraðssambanda og hefur hvert félag sem sendir fulltrúa sinn á landsþing eitt atkvæði.
6. Samþykkt breytinga á lögumKÍ samanber 10. og 11. greinþarf aðhljóta2/3 hluta greiddra atkvæða löglegs fundar. Aðrar samþykktir þurfa að hljóta meirihluta.
7. Fundargerð landsþings skal senda til allra kvenfélaga og héraðssambanda. Birta skal útdrátt úr fundargerð landsþings og ályktanir þess í tímaritinu Húsfreyjunni svo fljótt sem unnt er.
6. grein
Stjórn
1. Stjórn Kvenfélagasambands Íslands skipa fimm konur: Forseti, varaforseti, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Tvær konur sitja í varastjórn.
2. Kosningu stjórnar skal haga þannig:
a) Forseti er kosinn á hverju landsþingi til þriggja ára í senn.
b) Gjaldkeri og meðstjórnandi eru kosnir á hverju landsþingi til þriggja ára í senn.
c) Varaforseti, ritari og varastjórnarkonur eru kosnir á formannaráðsfundum:
o Á fyrri aðalformannaráðsfundi eftir landsþing skal kjósa varaforseta til þriggja ára og eina konu í varastjórn til þriggja ára.
o Á síðari aðalformannaráðsfundi eftir landsþing skal kjósa ritara til þriggja ára og eina konu í varastjórn til þriggja ára.
d) Tveir skoðunarmenn reikninga og varamenn þeirra eru kosnir á landsþingi til þriggja ára í senn.
3. Kosning stjórnar skal vera leynileg og bindandi og skal einfaldur meirihluti atkvæða ráða úrslitum. Fái tvær eða fleiri konur jafnmörg atkvæði skal greiða atkvæði að nýju þar til meirihluti fæst.
4. Engin kona má gegna sama embætti innan stjórnar KÍ lengur en tvö kjörtímabil í senn.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Hlutverk stjórnar Kvenfélagasambands Íslands
1. Forseti Kvenfélagasambands Íslands er málsvari KÍ út á við og æðsti yfirmaður inn á við. Forseti boðar til funda og sér um að málefni og dagskrá séu undirbúin fyrir stjórnarfundi, formannaráðsfundi og landsþing.
2. Varaforseti sér um ákveðna verkþætti í samráði við forseta og tekur við störfum forseta í forföllum.
3. Ritari bókarfundagerðirstjórnar-ogformannaráðsfunda.Ritariannastfrágangfundagerðalandsþingsmeð kosnum þingriturum. Ritara ber að ganga frá skjölum sem varðveita skal í skjalasafni KÍ.
4. Gjaldkeri annast fjárreiður KÍ, greiðslur reikninga og launamál, frágang ársreikninga KÍ og samningu fjárhagsáætlana og leggja þá fram.
5. Meðstjórnandi starfar án sérstakrar verkaskiptingar en vinnur að þeim verkefnum sem honum eru falin hverju sinni.
6. Varakonur stjórnar sækja stjórnarfundi samkvæmt ákvörðun stjórnar. Þeim skulu sendar fundagerðir stjórnarfunda svo fljótt sem hægt er.
Stjórn KÍ er heimilt að ráða það starfslið sem þurfa þykir hverju sinni en er þá um leið skylt að gera samning um verksvið og launakjör viðkomandi.
Í forföllum stjórnarkvenna:
Varaforseti tekur við störfum forseta.
Í forföllum varaforseta tekur ritari við störfum hans.
Í forföllum ritara eða gjaldkera tekur meðstjórnandi við starfi þeirra.
Komi meðstjórnandi eða varakona til lengri tíma í stað annarrar stjórnarkonu skal hún sitja það tímabil sem viðkomandi var kjörin til. Við frekari forföll tekur önnur varakona sæti í aðalstjórn á sömu forsendum.
8. grein
Formannaráð
1. Formannaráð er skipað formönnum héraðssambanda og stjórn KÍ.
2. Halda skal tvo formannaráðsfundi á ári. Formannaráðsfundur að vori er þó aðalformannaráðsfundur þess árs og á þeim fundi skulu fara fram lögbundnar kosningar.
3. Formannaráðsfund skal boða með bréfi minnst mánuði fyrir fund og skal fylgja fundarboði drög að dagskrá fundarins og tillögur að ályktunum ef hafa borist. Tillögur að ályktunum sem óskað er eftir að lagðar verði fyrir fundinn skulu hafa borist stjórn KÍ eigi síðar en 35 dögum fyrir formannaráðsfund en stjórn getur ákveðið frávik frá því ef þurfa þykir.
4. Á aðalformannaráðsfundi skal stjórn KÍ leggja fram skýrslu um starfsemina s.l. ár svo og endurskoðaða reikninga. Formannaráð skalendurskoða fjárhagsáætlun KÍ árlega. Auk þess getur formannaráð samþykkt breytingar á árgjaldi ef þörf krefur.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
9. grein
Nefndir
1. Uppstillinganefnd
Uppstillinganefnderskipuðþremur konumogskalkosin á fyrstaaðalformannaráðsfundieftir landsþingog skal starfa fram yfir næsta landsþing (í 3 ár). Hlutverk nefndarinnar er að undirbúa kosningu stjórnar, skoðunarmanna reikninga og kosningar í aðrar trúnaðarstöður, ráð og nefndir er starfa fyrir KÍ.
2. Kjörbréfanefnd
Kjörbréfanefnd er skipuð þremur konum og tveimur til vara og skulu þær kosnar á síðari aðalformannaráðsfundifyrirlandsþing. Hlutverkkjörbréfanefndareraðathugakjörbréflandsþingsfulltrúa, úrskurða um atkvæðamagn á landsþingi KÍ og annast talningu atkvæða á landsþingi.
10. grein
Ákvæði sem gilda, ef starfsemi KÍ yrði lögð niður
Komi fram tillaga um að leggja niður starfsemi Kvenfélagasambands Íslands þarf sú tillaga 2/3 hluta greiddra atkvæða. Ef landsþing samþykkir tillögu um að leggja starfssemi KÍ niður skal boða til aukalandsþings innan sex mánaða og skal tillagan tekin þar aftur til umræðu og afgreiðslu.
Millilandsþingsogaukalandsþingsskalstarfaþingkjörinnefndsemkannartillögunagaumgæfilegaogveitirumsögn þar um.
Komi til slita Kvenfélagasambands Íslands, skulu eigur þess skiptast á milli aðildarsambanda þess, nema annað sé skjalfest (sjá reglugerð Kvennaheimilisins Hallveigarstaðir).
11. grein Lagabreytingar.
Lögum KÍ má aðeins breyta á landsþingi og þarf 2/3 greiddra atkvæða til að samþykkja breytingarnar.
Tillögur frá héraðssamböndum eða einstökum félögum um breytingar á lögum KÍ skulu hafa borist stjórn KÍ eigi síðar en 60 dögum fyrir landsþing. Allar tillögur um lagabreytingar skulu sendar héraðssambandsformönnum eigi síðar en 30 dögum fyrir landsþing.
Lög KÍ skal endurskoða svo oft sem þurfa þykir.
Samþykkt á 39. landsþingi KÍ í Borgarnesi 15. – 17. október 2021
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Reglugerðir samþykktar af stjórn KÍ 20.03.2021
Reglugerð 1: Um kjör heiðursfélaga KÍ
1. Tillögur að kjöri heiðursfélaga skulu lagðar fyrir stjórn Kvenfélagasambands Ísland sem tekur ákvörðun um kjör þeirra.
2. Einróma samþykkt stjórnar ræður kjöri.
3. Heiðursfélagar Kvenfélagasambands Íslands skulu aldrei vera fleiri en tíu.
4. Við andlát heiðursfélaga ber aðstandendum hans að skila heiðursorðu til Kvenfélagasambands Íslands.
Reglugerð 2: Um málgagn Kvenfélagasambands Íslands, tímaritið Húsfreyjuna
1. Tímaritið heitir Húsfreyjan og er málgagn Kvenfélagasambands Íslands.
2. Útgáfustjórn skal skipuð fimm konum og tveimur til vara. Stjórn KÍ skipar þrjár konur í útgáfustjórn á fyrsta fundi eftir landsþing og eina til vara. Af þessum þremur konum skal ein vera skipuð formaður útgáfustjórnar og ein skal vera gjaldkeri KÍ. Tvær konur og ein til vara skulu skipaðar á fyrsta fundi annars árs eftir landsþing. Útgáfustjórn ber ábyrgð á tímaritinu.
3. Útgáfustjórn skal ráða ritstjóra við tímaritið í samvinnu við stjórn KÍ. Ritstjóri skal ráðinn til þriggja ára í senn.
4. Ritstjóri ber ábyrgð á efni tímaritsins eins ogfram kemur í ráðningarsamningi við hann.
5. Formannaráð skal skipa rýnihóp annað hvort ár sem hefur það hlutverk að koma með ábendingar og tillögur um útgáfu og efnistök blaðsins.
6. Ekki má leggja niður útgáfu tímaritsins nema því aðeins að landsþing KÍ hafi samþykkt það með minnst 2/3 hlutum atkvæða, enda hafi áður farið fram minnst tvær umræður um málið.
Reglugerð 3: Leiðbeiningastöð heimilanna
Kvenfélagasamband Íslands rekur Leiðbeiningastöð heimilanna og er markmið hennar:
1. Að halda úti öflugri alhliða upplýsingagjöf fyrir almenning um allt sem lýtur að heimilishaldi.
2. Að birta fræðsluefni á þessu sviði í Húsfreyjunni.
3. Að gefa út fræðsluefni og stuðla að útbreiðslu þess.
Reglugerð 4: Um Uppstillinganefnd
1. Uppstillinganefnd skal kosin á fyrri formannaráðsfundi og í henni sitja þrjár konur. Starfstímabil uppstillinganefndar eru þrjú ár.
2. Uppstillinganefnd annast undirbúning og framkvæmd kosninga í trúnaðarstöður K.Í.
3. Uppstillinganefnd skal auglýsa eftir frambjóðendum (skv. lögum og kosningaáætlun KÍ), með bréfi til allra héraðs- og svæðaformanna í febrúarmánuði ár hvert. Framboðsfrestur skal vera einn mánuður frá dagsetningu útsends bréfs. Tillögur um frambjóðendur skulu sendar til
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
héraðssambanda með fundarboði landsþings eða formannaráðsfundar. Uppstillinganefnd sker úr um ágreiningsefni sem kunna að verða við talningu atkvæða í kosningum.
Lagabreytingatillögur: 2. grein, 3. grein, 5. grein, og 8. grein
2.grein
Aðild
4. liður hljóðar svo núna:
4. Einstök kvenfélög geta ekki orðið beinir aðilar að KÍ. Undanskilið er það kvenfélag sem þegar var beinn aðili samkvæmt eldri lögum þegar breytt ákvæði tók gildi. Það félag lýtur sömu skilyrðum og héraðssamböndin.
verður svona:
4. Einstök kvenfélög geta ekki orðið beinir aðilar að KÍ. Undanskilin eru kvenfélög þar sem héraðssamband á þeirra félagssvæði er ekki aðili að KÍ, þá geta þau kvenfélög átt beina aðild meðan svo er. Þau félög njóta sömu réttinda og þurfa að uppfylla sömuskilyrði og héraðssamböndin. Það kvenfélag, sem þegar var beinn aðili samkvæmt eldri lögum þegar breytt ákvæði tók gildi, er áfram félagi á upprunalegu forsendunum og lýtur einnig sömu skilyrðum og héraðssamböndin
5. liður hljóðar svona núna:
5. Kvenfélagasamband Íslands er aðili að Kvennasambandi Norðurlanda, Nordens Kvindeforbund skammstafað NKF, og Alþjóðasambandi dreifbýliskvenna, Associated Country Women of the World, skammstafað ACWW.
Verður svona:
5. Kvenfélagasamband Íslands er aðili að Alþjóðasambandi dreifbýliskvenna, Associated Country Women of the World, skammstafað ACWW.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
3.grein
6. liður hljóðar svona núna:
6. Að vinna að stefnumálum NKF og ACWW svo sem kostur er hverju sinni.
(Sjá markmið og leiðir ACWW og NKF).
Verður svona:
6. Að vinna að stefnumálum ACWW svo sem kostur er hverju sinni.
(Sjá markmið og leiðir ACWW).
5.grein
Landsþing
1. liður hljóðar svona núna:
1. Landsþing Kvenfélagasambands Íslands skal haldið þriðja hvert ár á þeim stað og tíma sem stjórnin ákveður.Landsþingskalboða60dögumfyrirþingmeð bréfi tilallrahéraðssambanda ásamtdrögumaðdagskráþingsins.Landsþingerlöglegteflöglegaertilþessboðað.Þingiðfer fram samkvæmt þingsköpum fyrir landsþing KÍ.
Verður svona:
1. Landsþing Kvenfélagasambands Íslands skal haldið þriðja hvert ár á þeim stað og tíma sem stjórnin ákveður. Landsþing skal boða 60 dögum fyrir þing með sannanlegum hætti til allra héraðssambandaásamtdrögumaðdagskráþingsins.Landsþingerlöglegteflöglegaertilþess boðað. Þingið fer fram samkvæmt þingsköpum fyrir landsþing KÍ.
4. liður hljóðar svona núna:
4. Stjórnarkonur KÍ eru ekki kjörgengnar á landsþing sem fulltrúar héraðssambanda. Þær hafa sem stjórnarkonur rétt til setu á landsþingum með fullum réttindum.
Verður svona:
4. Á Landsþingi eru eftirfarandi aðilar atkvæðisbærir: Stjórnarkonur KÍ, formenn héraðssambanda og fulltrúar kvenfélaga. Handhafi kjörbréfs sem mætir á Landsþing hefur eitt atkvæði.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
5. liður hljóðar svona núna:
5. Atkvæðisbærirfulltrúarálandsþingieru stjórnarkonurKÍ,formennhéraðssambanda oghefur hvert félag sem sendir fulltrúa sinn á landsþing eitt atkvæði.
Verður svona:
5. Héraðssambönd og kvenfélög þurfa að skila inn út fylltu kjörbréfi fyrir upphaf Landsþings til staðfestingar atkvæðisréttar fulltrúa undirrituðu af stjórnarkonu í upphafi Landsþings.
8.grein
Formannaráð
3. liður hljóðar svona núna:
3. Formannaráðsfund skal boða með bréfi minnst mánuði fyrir fund og skal fylgja fundarboði drög að dagskrá fundarins og tillögur að ályktunum ef hafa borist. Tillögur að ályktunum sem óskað er eftir að lagðar verði fyrir fundinn skulu hafa borist stjórn KÍ eigi síðar en 35 dögum fyrir formannaráðsfund en stjórn getur ákveðið frávik frá því ef þurfa þykir.
Verður svona:
3. Formannaráðsfund skalboða með sannanlegumhætti minnst mánuðifyrir fund og skalfylgja fundarboði drög að dagskrá fundarins og tillögur að ályktunum ef hafa borist. Tillögur að ályktunum semóskað ereftir að lagðar verði fyrirfundinn skulu hafa borist stjórn KÍeigi síðar en 35 dögum fyrir formannaráðsfund en stjórn getur ákveðið frávik frá því ef þurfa þykir.
Flutningsmaður þessara tillagna er: Dagmar Elín Sigurðardóttir, forseti KÍ
Stuðningsmaður er: Helga Magnúsdóttir, ritari KÍ
Á 68. formannaráðsfundi sem haldin var 21. október 2023 voru eftirtaldar konur tilnefndar til að fara yfir lög KÍ: Úr stjórn KÍ: Dagmar Sigurðardóttir forseti, Eva Björk Harðardóttir varaforseti, Helga Magnúsdóttir ritari. Ása Steinunn Atladóttir formaður Kvennasambands Reykjavíkur, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir formaður Sambands austur skaftfellskra kvenna, Sólveig Þórðardóttir formaður Sambands sunnlenskra kvenna (til vara Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir) Ofangreindar lagabreytingatillögur er afrakstur þeirra vinnu.
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024
Skýrsla Kvenfélagasambands Íslands 2021-2024