Nýliðaþjálfun 2022-24 Almennar upplýsingar um nýliðaþjálfun Hjálparsveitar skáta í Reykjavík.

Inngangur Á haustin gefst almenningi kostur á að hefja nýliðaþjálfun hjá Hjálparsveit skáta í Reykjavík (HSSR). Tilgangur þjálfunar er að fá fólk á útkallsskrá til virkrar þátttöku í leitar- og björgunarstarfi sem og öðru starfi sveitarinnar, s.s. fjáröflunum.
Nýliðaþjálfun HSSR er fyrir þig ef þú: - sérð fram á að geta tekið þátt í útköllum eftir að þjálfun lýkur - hefur áhuga á að kynnast og starfa með skemmtilegu fólki - vilt taka þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum Í þessum bæklingi er nýliðaþjálfun HSSR kynnt. Við hvetjum þig til þess að kynna þér dag skrána sem og þær kröfur sem gerðar eru til fólks í nýliðaþjálfun og kanna hvort þú eigir ekki samleið með okkur.
Nýliðateymi HSSR Hjálparsveit skáta í Reykjavík !
2


Sjúkraráð
Kynning á HSSR
Flygildahópur Leitartæknihópur Léttsveit Snjóbílshópur Straumvatnsbjörgun Vélsleðahópur
Starfsárið 2021-22 fóru félagar í samtals 73 útköll. Leitaraðgerðir voru 29 talsins og björgunaraðgerðir tólf. Lokanir vegna óveðurs voru þrettán og sveitin var kölluð út alls sextán sinnum vegna óveðurs.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík var stofnuð 1932 og er í dag ein stærsta björgunarsveit landsins. Hún er aðili að Slysavarnafélaginu Landsbjörg og er heildarfjöldi félaga um 240. Útkallskerfi sveitarinnar er virkjað af lögreglu og er sveitin hluti af viðbragði almanna varnadeildar ríkislögreglustjóra. Sveitin er landbjörgunarsveit og miðast búnaður félaga og þjálfun við það. Ávallt er fyrirliggjandi dagskrá með yfirliti yfir æfingar, ferðir og fyrirlestra auk annarra liða, en fyrir utan nýliðadagskrá eru farnar fjölmargar ferðir á vegum útkallshópa auk almennra ferða. Sjö manna stjórn er yfir starfsemi HSSR. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæði og frumkvæði útkallshópa sem og félaganna sjálfra. Sveitin er að mestu rekin fyrir sjálfsaflafé og er fjáröflun því talsverður hluti af starfi félaga og nýliða. Húsnæði sveitarinnar er að Malarhöfða 6 og er það um 1.200 m2 að stærð. Þar er búnaður sveitarinnar geymdur, en hún er vel tækjum búin. Nánar má fræðast um starfsemi sveitarinnar á vefnum hssr.is.
Nýliðaþjálfun 2022-24 3
Yfirlit yfir útkallshópa
Bílahópur Búðahópur Bækistöðvarhópur Fjallahópur
Undanfarar HSSR í hnotskurn Fj. félaga: 242 Fj. útkalla á síðasta starfsári: 73 Fjöldi útkallshópa: 12 Kallmerki: Reykur Bækistöð: Malarhöfði 6 (M6)



Frá fjöru til fjalls Nýliðar fá alhliða þjálfun í öllu því sem gerir þá hæfa til að taka þátt í flóknum og erfiðum aðgerðum á sviði leitar og björgunar. Á þjálfunartíma fá nýliðar kennslu í fjölmörgum atriðum sem snerta björgunarstörf. Ekki er um tæmandi þjálfun að ræða og er það á ábyrgð nýliða að halda áfram uns þeir hafa náð fullnægjandi tökum á viðfangsefninu. Umsjónarfólk þjálfunar er ávallt reiðubúið til að aðstoða og leiðbeina nýliðum í þessum efnum.


Umsjónarfólk nýliðaþjálfunar Bæði erum við alin upp við útivist. Stefán var í skátunum öll sín uppvaxtarár, en Snædís var send í sveit á sumrin þar sem hún gekk sjálfala innan um annan búfénað. Það er því kannski ekki furða að við heillumst af útilífi. Við unum okkur best í tjaldi og vitum fátt betra en gott bras. Við verðum seint talin til fljótustu hlaupara eða sterkustu klifrara, hörðustu fjallamanna eða mestra skíðahetja en við erum tilbúin að prófa allt. Við bröltum upp heiðar á skíðum eða skóm með púlku í togi eða sekk á baki, kútveltumst niður brekkur og hlíðar, allt fyrir góðan nætursvefn undir stjörnubjörtum himni. Áherslan verður lögð á að nýliðar hjá HSSR læri að lifa og líða vel í náttúrunni og upplifa sig örugg í öllum aðstæðum. Við viljum að þau geti tryggt eigið öryggi jafnt sem öryggi félaganna. Að þau læri að takast á við verkefni undir erfiðum kringumstæðum og leysa þau af hendi á fumlausan hátt. Að þau læri að þekkja eigin mörk, hvað þau geta en ennfremur hvenær sé tími til kominn að stoppa og snúa við. Við hlökkum til að vinna með ykkur í vetur! Snædís & Stefán
Nýliðaþjálfun 2022-24 7


!
Hjálparsveit skáta í Reykjavík 8 Spurningar og svör Hverjir geta hafið nýliðastarf? Aldurstakmark er 18 ár, en þjálfunin hentar hraustu fólki á öllum aldri. Þú þarft að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi, en einnig er mjög mikilvægt að eiga gott með að vinna í hópi hress fólks og að vera félagslega hæf/ hæfur. Reynsla af útivist er mikill kostur. Gerðar eru þær lágmarks kröfur til nýliða að þeir komist upp að Steini á Esju á innan við klukkustund. Námskeið, sem og í raun öll verkefni á vegum sveitarinnar, fara fram á íslensku og eru góð tök á íslensku máli, töluðu og rituðu, því ófrávíkjanlegt Stelpur eða strákar? Aldrei hefur verið gerður munur á hlutverkum kvenna og karla innan HSSR. Þar ganga allir félagar jafnt í öll verk. Er þetta tímafrekt? Dagskráin er þétt og miklar kröfur eru gerðar um mætingu á námskeið, í gönguferðir og fjáraflanir. Þar að auki er ætlast til að þú undirbúir þig fyrir öll námskeið. Dagskrá vetrarins er á síðu 20. Til viðbótar því sem hér er upp talið er gert ráð fyrir að nýliðar gefi sér góðan tíma til æfinga utan reglubundinnar dagskrár og að þeir hafi sjálfir frumkvæði að því að æfa það frekar sem þeim er kennt á námskeiðum. Þarf maður að vera í góðu formi? Á flestum námskeiðum er gengið töluvert, oft með miklar byrðar. Því er mikilvægt að nýliðar séu í þokkalega góðu formi þegar þjálfunin hefst. Þarf að mæta í alla dagskrárliði í þjálfuninni? Allir dagskrárliðir hafa tilgang og ekkert er óþarft. Mikil áhersla er lögð á stundvísi í öllu starfi sveitarinnar. Ef upp koma aðstæður sem aftra þér frá að mæta á stöku viðburði er slíkt metið hverju sinni. Forfallist nýliði þarf hann að láta vita strax með tölvupósti í netfangið nylidar.2022@ hssr.is og tilkynningu í Facebook-hópinn sem verður notaður til upplýsingamiðlunar. Þá er rík áhersla lögð á góða mætingu í fjár öflunarverkefni. Kröfum um mætingu er nánar lýst á síðu 16.


Kostar þetta peninga? Nýliðar greiða á kostnaðarverði námsefni, gistigjöld og annan tilfallandi kostnað. Sá kostnaður sem eftir stendur vegna þátttöku í námskeiðum og ferðum er greiddur af HSSR. Þar koma á móti fjáraflanir sem nýliðar eiga að taka virkan þátt í. Þarf ég að eiga allar græjur? Fullgildir félagar á útkallsskrá verða að eiga allan sinn persónubúnað. Nýliðar þurfa að hafa allan almennan búnað til fullra umráða á þjálfunartímanum, en sérstaklega er mælt með því að nýliðar reyni eftir fremsta megni að fá dýran og sérhæfðan búnað lánaðan á meðan á þjálfun stendur. Ef ómögulegt er að fá búnað að láni á HSSR takmarkað magn af búnaði til útláns. Búnaðarlisti er á síðu 15. Fara nýliðar í útköll? Nei, aðeins fullgildir félagar eru sendir í útköll á vegum sveitarinnar. Hins vegar er stundum óskað eftir aðstoð nýliða í húsi í lengri útköllum. Hvað tekur nýliðaþjálfun langan tíma? Þjálfunin tekur í heild 21 mánuð, en hægt er að lengja tímann í 30 mánuði ef þurfa þykir. Fyrsta árið í þjálfun eru einstaklingar í hópnum Nýliðar 1. Eftir þann tíma eru tekin einstaklingsviðtöl og þeir sem hafa staðist kröfur verða Nýliðar 2. Hvernig er þjálfunin uppbyggð? Mikil áhersla er lögð á liðsheild og samvinnu, en jafnframt á að byggja upp frumkvæði einstaklingins sem og getu hans til sjálfs bjargar. Á fyrsta ári taka allir sömu skyldunámskeið og eru rötun, ferða- og fjallamennska og fyrsta hjálp langstærstu liðirnir. Oftast er frammistaða metin af leiðbeinendum, en stundum eru formleg próf. Á öðru ári snýst starfið að miklu leyti um það að nýliðar kynni sér sérhæfingu innan sveitarinnar, en þeir geta þá valið námskeið eftir áhugasviði. Miðvikudagar eru nýliðadagar. Oft er formleg dagskrá, en annars nýta nýliðar þá til þjálfunar og æfinga.
9
Nýliðaþjálfun 2022-24

Spurningar og svör, frh. Hvernig er framvindan metin? Nokkrum sinnum í þjálfunarferlinu er hver nýliði metinn af umsjónarfólki þjálfunar sem og leiðbeinendum. Matskröfur byggja á því að fólk nýtist í björgunarstarfi og er m.a. tekið mið af mætingu, frammistöðu, áhuga og félagslegri hæfni. Þeim sem hafa ekki sýnt nægilega ástundun eða viðunandi frammistöðu verður, eftir atvikum, gefið færi á að bæta sig eða vera vísað úr þjálfun. Eru nýliðar gjaldgengir í almennt starf? Nýliðar eru velkomnir í alla almenna viðburði og fundi á vegum HSSR. Einu undantekning arnar eru viðburðir sem krefjast þjálfunar eða hæfni á einhverjum sviðum sem nýliðar hafa þá ekki enn tileinkað sér.
Hvernig er haldið utan um nýliðastarf? Tilnefndir umsjónaraðilar halda utan um nýliðastarf með nýliðateymi HSSR sér við hlið. Stöðufundir eru haldnir með nýliðum nokkrum sinnum á þjálfunartímabilinu þar sem farið er yfir það sem á undan er gengið og það sem í vændum er. Hvað eiga félagar í HSSR sameiginlegt? Brennandi áhugi á leitar- og björgunarmálum sameinar félaga í HSSR. Það sem knýr félaga þó ekki síður áfram er mikill og innilegur áhugi á hvers konar útivist og ferðamennsku og samheldni fjölbreytilegs hóps af skemmtilegu fólki, bæði á léttum stundum og við erfiðari og meira krefjandi kringumstæður. í Reykjavík
10 Hjálparsveit skáta

Upplýsingamiðlun, samskipti og dagskrá Stofnaður verður lokaður hópur á Facebook fyrir nýliða og verður hann miðpunktur allrar almennrar upplýsingamiðlunar. Þá er netfangið nylidar.2022@hssr.is virkt fyrir einkasendingar til umsjónarfólks. HSSR notar dagskrárkerfi til að halda utan um starfsemi sveitarinnar, þ.m.t. dagskrá í nýliðaþjálfun. Nýliðar munu fljótlega fá aðgang að þessu kerfi og í því geta þeir nálgast upplýsingar um viðburði sem og að skrá sig í þá. Reynt verður eins og kostur er að halda uppgefinni dagskrá. Hins vegar geta komið upp aðstæður sem gera það óhjákvæmilegt að gera breytingar og eru þær þá kynntar í dagskrárkerfi og lokaða Facebook-hópnum
. !
Nýliðaþjálfun 2022-24 11 Námskeið og ástundun Ætlast er til þess að nýliðar láti námskeið í þjálfuninni ganga fyrir öðru starfi eða viðburðum í sveitinni. Þannig mæta nýliðar á námskeið í þjálfunardagskránni þrátt fyrir að aðrir spennandi viðburðir í almennri dagskrá sveitarinnar standi þeim til boða. Eigin þjálfun og æfingar Eins og áður hefur komið fram ber nýliðum að þjálfa sig í þeirri hæfni sem kynnt er fyrir þeim á námskeiðum. Þessi þjálfun er alfarið á ábyrgð nýliðanna og er best að þeir æfi saman í litlum hópum utan reglubundinnar dagskrár. Húsnæði HSSR við Malarhöfða stendur nýliðum opið í samráði við umsjónar fólk þjálfunarinnar.

Út fyrir þægindarammann Á þjálfunartíma upplifa nýliðar fjölmargt nýtt og sumt ýtir þeim eitthvað út fyrir þægindarammann. Í ferðum er oft farið á framandi slóðir og vel reynt á þrek og þor. Fyllsta öryggis er ávallt gætt, enda er markmiðið alltaf að allir ferðalangar komi heim úr ferðunum ögn betri en þegar lagt var af stað.



Nýliðaþjálfun 2022-24
Oft er hægt að fá búnað lánaðan hjá fjölskyldu og vinum, en þá er nauðsynlegt að hafa í huga að hann er mikið notaður á þjálfunartíma og þarf því yfirleitt að vera laus til notkunar. Í byrjun er nýliðum ráðlagt að reyna að fá lánaðan allan dýran og sérhæfðan búnað, s.s. snjóflóða-, klifur- og sigbúnað, ef nokkur kostur er. Sveitin á svo nokkurt magn búnaðar sem hægt er að fá lánaðan, ef í nauðirnar rekur. Eftirfarandi er upptalning á búnaði sem nýliðar þurfa að nota í þjálfun sinni.
Persónubúnaður Göngubuxur, gönguskór, jakki úr öndunarefni (skel), buxur úr öndunarefni (skel), peysa (flís eða ull), bolur (helst ull), föðurland (helst ull), sokkar, vettlingar eða hanskar, skel yfir vettlinga og húfa. Áttaviti, hitabrúsi, sjúkrabúnaður, höfuðljós og auka rafhlöður. Svefnpoki, einangrunardýna, bakpoki, vatnsheldur innri poki í bakpoka, tjald og prímus með potti.
Sérhæfður búnaður Skíðagleraugu, mannbroddar, ísexi, snjóflóðaýlir, snjóflóðastöng, skófla, gönguskíði og stafir. Hjálmur, sigbelti, sigtól, karabínur (3-4 stk.), slingar og prússik-bönd (4-5 stk.).
!15
Búnaðarþörf nýliða Hér er að finna yfirlit yfir þann búnað sem nýliðar þurfa að nota í þjálfuninni. Mikilvægt er að hver nýliði verði sér úti um þann búnað sem hann ætlar að nota, enda er nauðsynlegt að kynnast og venjast eigin búnaði vel. Megnið af búnaðinum nýtist fólki vel í almennri ferðamennsku þannig að það er síður en svo glatað fé sem fer í búnað af þessu tagi.


Hjálparsveit skáta í Reykjavík 16 Kröfur um þátttöku í námskeiðum og ferðum Kjarnanámskeið Allir nýliðar þurfa að ljúka eftirtöldum grunnnámskeiðum til þess að öðlast fullgildingu sem björgunarmenn. Þessi námskeið eru fjölbreytt, fræðandi og krefjandi og mynda þann grunn sem önnur námskeið byggja á. Hver nýliði er ábyrgur fyrir eigin framgangi á þjálfunartíma. Námskeið Klst. Rauntími Lokið, dagsetning Björgunarmaður í aðgerðum 3 Kvöld Ferðamennska og rötun 18 Helgi Fjallamennska 1 20 Helgi Fjallamennska 2 20 Helgi Fjarskipti (VHF/Tetra) 3 Kvöld Fyrsta hjálp 1 20 Helgi Fyrsta hjálp 2 20 Helgi Gengið á jökli 10 Dagur GPS 4 Kvöld Leitartækni 16 Helgi Snjóflóð 1 20 Helgi Snjóflóð 2 20 Helgi Straumvatnsbjörgun 20 Helgi Veðurfræði til fjalla 3 Kvöld Öryggi við sjó og vötn 3 Kvöld Fjáraflanir Hjálparsveitir og slysavarnadeildir reka sig að langmestu leyti á sjálfsaflafé. Í HSSR eru þessar fjáraflanirFlugeldasalahelstar: Neyðarkall Vallargæsla Hengilsverkefnið Menningarnótt Lokunarverkefni Að jafnaði er hver vakt í þessum fjáröflunarverkefnum 3-4 tímar að lengd og eru þær yfirleitt unnar eftir dagvinnutíma, en þó geta verið undantekningar á því. Ætlast er til þess að nýliðar taki fullan þátt í þessu mikilvæga starfi strax frá byrjun og skili, að lágmarki, 2-3 vöktum í hverri fjáröflun eða 40 klukkustundum á hvoru tímabili þjálfunar. Þetta er ein forsendan fyrir því að nýliðar geti orðið fullgildir björgunarmenn við lok þjálfunar.
17 Nýliðaþjálfun 2022-24 Valnámskeið Fjöldi valnámskeiða um hvaðeina sem snertir björgunarstörf eru í boði fyrir nýliða og eru þau flest tekin á seinna ári þjálfunarinnar. Með þátttöku í þessum valnámskeiðum geta nýliðar sérhæft sig enn frekar út frá eigin áhugasviði. Að lágmarki skulu teknar samtals 50 klukkustundir. Námskeið Klst. Rauntími Lokið, dagsetning Aðgerðagrunnur 4 Kvöld Fjallabjörgun 20 Helgi Hópslys 4 Kvöld Klettaklifur og bergtryggingar 20 Helgi Óveður og björgun verðmæta 4 Kvöld Rústabjörgun 14 Helgi Sálræn hjálp 3 Kvöld Sprungubjörgun 20 Helgi Ferðir Á þjálfunartíma fara nýliðar í nokkrar lengri og styttri gönguferðir. Lögð er áhersla á að þjálfa nýliða í að undirbúa og skipuleggja langar ferðir ásamt því að vera sjálfbjarga í íslenskri náttúru. Öllum nýliðum er skylt að fara í fimm efstu ferðirnar og að lágmarki fjórar ferðir af hinum sex. Lýsing Rauntími Lokið, dagsetning Sumarferð (3-4 saman) Tvær nætur Skylda Vetrarferð (3-4 saman) Ein nótt Skylda Jómfrúarferð (N1) Dagur Skylda Nýliðaraunin (N2) Dagur Skylda Helgargönguferð Tvær nætur Skylda Esjan endilöng Dagur Fjallaferð í skála Tvær nætur Skíðaganga Ein nótt Fjallaferð Dagur Jöklaferð Dagur Alpavorferð Tvær nætur
Gleðin í góðra vina hópi Á þjálfunartíma myndast iðulega varanleg og traust tengsl á milli nýliða. Þegar fólk hefur gengið saman í gegnum þjálfunina, hefur það oft upplifað hluti sem fáir skilja nema þeir sem voru með í för. Upp úr standa svo gleðin og ánægjan sem fylgja því að ná markmiðinu með dugnaði og góðri ástundun.


Kvöldnámskeið, fyrirlestur eða stutt æfing? Hver veit nema þau sem mæta?
Kvöldganga / 7. september Létt ganga á Helgafell þar sem verðandi nýliðar kynnast félögum í HSSR. Dagsganga / 10. september Gengið á Vörðu-Skeggja í góðum félagsskap og sennilega góðu veðri. Lokafrestur umsóknar: hssr.is/nylidar
Ferðamennska og rötun / 16.-18. september
Helgargönguferð / 23.-25. september
Nýliðakvöld / 19. október Helgarferð með tjald/í skála / 21.-23. október Reynt verður á þá þekkingu sem nýliðar hafa tileinkað sér. Nýliðakvöld / 2. nóvember Neyðarkall / 3.-6. nóv. Sala Neyðarkalls er skemmtilegt verkefni sem allir nýliðar taka kátir þátt í.
Búnaðarkynning / 14. september
Félagi, sannarlega hokinn af reynslu, sýnir nýliðum hvað hann er með í bakpokanum sínum.
Nýliðakvöld / 21. september
Upphitunarferð fyrir veturinn, hæfilega ögrandi. Tjaldgisting? Eina vitið. Nýliðakvöld / 5. október Gengið á jökli / 8. eða 9. október Brunað á nálægan jökul hvar nýliðar fá kennslu í því hvernig þeir athafna sig í slíku umhverfi.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík 20 Dagskrá fyrra kennslutímabils (2022-23)
Hér er tíunduð dagskrá fyrir N1 fyrir utan tilfallandi fjáröflunarverkefni. Athugið að sumir viðburðir eru háðir ytri aðstæðum eins og t.d. veðri og snjóalögum og því er ekki hægt að ganga að því sem vísu að þeir verði á dagskrá skv. eftirfarandi áætlun. Þá er ekki gert ráð fyrir öllum þeim tíma sem nýliðar setja í æfingar utan skipulagðrar dagskrár, en hann ætti að vera umtalsverður.
Kennd eru undirstöðuatriði ferðamennsku ásamt kortalestri, notkun áttavita og grunnatriði GPS.
Skemmtilegar æfingar og mögnuð lokaraun.


Við festum á okkur skíðin og höldum til heiða. Tjöldum, hlöðum skjólveggi og horfum til himins. Nýliðakvöld / 8. mars
1
Nýliðaþjálfun 2022-24 21 Nýliðakvöld / 16. nóv. Fyrsta hjálp 1 / 18.-20. nóv. Aðkoma að vettvangi, greining á aðstæðum, ástandsskoðun þolenda og fyrstu viðbrögð. Nýliðakvöld / 30. nóvember Flugeldar, undirbúningur og sala / 9.-31. desember Undirbúningur fyrir flugeldasölu hefst. Nýliðum ber að sinna þeim verkefnum sem upp koma og taka svo nokkrar söluvaktir þegar þær hefjast. Sala flugelda er hryggjarstykkið og burðarásinn í fjármögnun sveitarinnar, en líka einn allra, allra, allra skemmtilegasti viðburðurinn og nokkuð sem margir félagar bíða eftir allt árið. Þessu má enginn missa af! Flugeldar, sala og frágangur / 2.-15. janúar Gengið verður frá öllu sem viðkemur flugeldasölunni og söluvaktir mannaðar í tengslum við Þrettándasöluna. Uppskeruhátíð flugeldasölu fylgir í kjölfarið. Nýliðakvöld / 25. janúar
Snjóflóð
Kynnt verða helstu atriði sem tangjast mati á snjó yfir hvað beri að hafa í huga við skipulagningu og framkvæmd leitar í snjóflóði. FjallamennskaNýliðakvöld
1
Erfið og krefjandi helgi við íslenskrivetrarnáttúru. Verk leg kennsla og þjálfun í undirstöðuatriðum sem tengjast vetrarferðamennsku á fjöllum. Eitthvað sem allir munu hugsa hlýlega til eftir á. GönguskíðafjörNýliðakvöld



Hjálparsveit skáta í Reykjavík 22 Dagskrá fyrra kennslutímabils (2022-23), frh. Nýliðakvöld / 22. mars Fjallamennska 2 / 24.-26. mars Framhaldsnámskeið í fjallamennsku. Farið verður dýpra í línuvinnu og flóknari æfingar. Nýliðakvöld / 19. apríl Jómfrúarferð / 21.-23. apríl Hér eru nýliðar reyndir í öllu: Hnútum, línuvinnu, fjarskiptum, böruburði, ýlaleit og meira Spurningartil. og verkefni = gleði! Klettaklifur / 3. maí Farið verður yfir grunnatriði klettaklifurs til undirbúnings fyrir komandi ævintýri. Nýliðakvöld / 17. maí Alpavorferð / 19.-21. maí Sannkallað fjall ársins, metnaðarfull ferð í hverri áfangastaðurinn er einn af meiri háttar tindum fósturjarðarinnar! Sumarferð / júní-ágúst Nýliðar fara 3-4 saman í tveggja nátta sumarferðir um mestmegnis ótroðnar slóðir. Ferðaáætlun skilað til umsjónarfólks fyrir brottför. Lokadagur til að fara sumarferð er 1. september. Vallargæsla / vor, sumar og haust Vaktin staðin á Laugardalsvelli. Skemmtilegt sjónarhorn á fótboltaleiki. Hengilsverkefnið / vor, sumar og haust Fjáröflun í fallegu landslagi Hengilssvæðisins. Góð leið til að kynnast þessu skemmtilega svæði. Menningarnótt / ágúst Flugeldasýningin á Menningarnótt undirbúin!


Draumurinn rætist
Við höfum flest látið okkur dreyma um að taka þátt í einhverju sem er stærra en við ein ráðum við.
Markmiðið með nýliðaþjálfun er að verða fullgildur björgunarmaður og taka þátt í útköllum og almennu starfi í sveitinni, að koma öðrum til hjálpar í verstu kringumstæðum sem þau hafa máské upplifað. Það er uppskeran úr þeim tíma sem margir segja einn þann skemmtilegasta sem þeir hafa upplifað, að hafa farið í gegnum þjálfunina með góðum félögum og vinum.
Er ekki tímabært að slá til og stökkva af stað?



Óveðursviðbúnaður og björgun verðmæta Farið er yfir helstu atriði sem tengjast viðbúnaði í óveðursútköllum, s.s. öryggismál og verklag. Sálræn hjálp Farið er yfir helstu atriði hvernig veita má sálræna hjálp, stuðning í aðgerð eða á vettvangi, hver einkenni geta verið eftir andlegt áfall o.fl. Gott er að ráðfæra sig við umsjónarfólk þjálfunar þegar kemur að vali námskeiða.
Fjallabjörgun Grunnatriði fjallabjörgunar kynnt, s.s. uppsetning öryggis- og aðallínu og ferli fjallabjörgunar. Rústabjörgun Fjallað er um aðkomu að hamfarasvæðum í kjölfar ofanflóða eða jarðskjálfta. Klettaklifur og bergtryggingar Helstu atriði varðandi tryggingar í klettum kennd auk klifurferils í klettaklifri.
Dagskrá seinna tímabilsins er mun lausari í reipunum en á því fyrra. Nýliðar 2 hefja þá starf með hópum sveitarinnar og sjá enn meira um sinn framgang í þjálfuninni en áður. Seinna tímabilið eiga N2 að sýna virkni í a.m.k. 190 tíma (fyrir utan ferðir) yfir veturinn sem telur frá 1. september fram að sveitarfundi í maí. Tímarnir skiptast sem hér segir: Hópastarf, 50 tímar Fjáraflanir, 40 tímar Auka námskeið, 50 tímar Val (eitthvað úr öllu hinu), 50 tímar Námskeið á öðru ári eru skyldunámskeið annars vegar og valnámskeið hins vegar. Eftirfarandi námskeið gefa nokkra vísbendingu um það úrval sem í boði getur verið.
Dagskrá seinna kennslutímabils (2023-24)



CMYKPantone 287 Malarhöfði 6, 110 Reykjavík | 577-1212 | hssr@hssr.is | hssr.is | facebook.com/reykur
