Nissan Leaf - Bæklingur

Page 1

NISSAN

LEAF

Aรฐ utan | Aรฐ innan | Tรฆkni |

Aukahlutir

Prenta | Loka


NÝR NISSAN LEAF

MAGNAÐUR Heimsins mest seldi rafmagnsbíll tekur stórt stökk fram á við. Búðu þig undir alveg nýjan akstursmáta sem gerir alla daga skemmtilega. Njóttu meira öryggis, spennu og tengingar, hvert sem ferðinni er heitið. Allt í bíl sem gerir einfalda hluti ótrúlega vel.

Að utan | Að innan | Tækni | Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2

Aukahlutir

Prenta | Loka


Farðu hvert sem er Einu sinni voru rafbílar framtíðin í samgöngm. Nú eru þeir nútíðin

Aktu lengra 378 km* drægi og með ört stækkandi hraðhleðsluneti gera Nissan Leaf að fullvöxnum fjölskyldubíl.

Taktu með allt sem þú þarft Nissan LEAF kemur þér á leiðarenda með stíl með fimm sætum, rúmgóðri farangursgeymslu og fallegri hönnun.

* NEDC-prófun (New European Driving Cycle).

Að utan | Að innan | Tækni | Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2

Aukahlutir

Prenta | Loka


AÐ AKA RAFBÍL ER UPPLIFUN OG

NJÓTTU MEIRA ÖRYGGIS

með tafarlausu afli við inngjöf og hugvitssamlegum aksturstæknilausnum sem bjóða upp á mjúkan og hrífandi akstur.

með Nissan ProPILOT þér til aðstoðar. Kerfið grípur inn í þegar á þarf að halda og gerir þig að betri ökumanni.

VERTU VIÐ STJÓRNVÖLINN með Nissan e-Pedal. Já! Í Nissan LEAF þarftu aðeins að nota eitt fótstig til að gefa inn, hægja á og hemla.

SJÁÐU OG SKYNJAÐU MEIRA með umhverfismyndavélakerfi og snjalltækni á borð við umferðarskynjara að aftan, blindsvæðisskynjara og umferðarskiltagreiningu.

VERTU TENGDARI með NissanConnect EV og Apple Carplay™ og Android Auto™*

Undirbúðu skynfærin fyrir upplifun sem er engri lík og njóttu nýrrar tilfinningar í akstri sem skerpir alla skynjun. Með Nissan Intelligent Mobility tengistu LEAF-bílnum betur en nokkru sinni fyrr. Betri yfirsýn, betri skynjun og aukið öryggi. Svona átti aksturinn alltaf að vera. *Apple Car Play og Android Auto eru skrásett vörumerki. Framboð á tækni kann að vera mismunandi á milli markaðssvæða).

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka


Stuðakstur með e-Pedal Þetta er algjörlega nýr akstursmáti, alveg ótrúlega skemmtilegur. Ímyndaðu þér að geta ekið með aðeins einu fótstigi. Þú stígur einfaldlega á það til að þjóta af stað og lyftir fætinum til að hægja á þér. Þú getur meira að segja haldið bílnum kyrrum í brekku án þess að þurfa að snerta bremsuna. Að sjálfsögðu er ekkert mál að skipta aftur yfir í akstur með tveimur fótstigum, með einum rofa. En er það jafnskemmtilegt?

ST OP

e-Pedal. Auktu hraðann, hægðu á þér og hemlaðu með inngjafarfótstiginu einu saman til að einfalda aksturinn. GO

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Slappaðu af

og njóttu akstursins

HELDUR HRAÐA OG FJARLÆGÐ

GETUR MEIRA AÐ SEGJA STÖÐVAÐ BÍLINN

HEFUR AUGA MEÐ UMFERÐINNI

NISSAN ProPILOT. Aðstoð þegar á þarf að halda. Nissan ProPILOT heldur fyrirframákveðinni fjarlægð frá bílnum á undan og heldur bílnum á miðri akreininni. ProPILOT getur meira að segja stöðvað LEAF og haldið honum kyrrum í umferðarhnútum, svo það er einu atriði færra að huga að. Þetta breytir daglegum akstri í vinnuna í bjarta byrjun á deginum.

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Hugsaðu þér akstur með fjölbreyttum búnaði Nissan Intelligent Mobility þér til aðstoðar, þar á meðal:

Svo snjall að hann grípur inn í þegar á þarf að halda Þú veist kannski ekki hvers vegna skyndilega hægist á umferðinni. Intelligent-neyðarhemlun með greiningu gangandi vegfarenda fylgist með öllu og er tilbúin að hemla. Auðvitað er það ekki eini eiginleikinn sem LEAF getur notað til að forða þér frá vandræðum. *Athugið að ProPilot og aðstoðarkerfin eru ekki sjálfstýringarkerfi.

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

ProPILOT:

ProPILOT Park:

Greinir gang umferðarinnar til að viðhalda fyrirframákveðnum hraða og fjarlægð og halda bílnum á miðri akreininni. Varar þig líka við þegar bíllinn byrjar að stefna út úr akreininni og getur stöðvað bílinn í umferðarhnútum.

Engar hendur, engir fætur, bara ótrúlega auðveld leið til að leggja með einum fingri. Þessi eiginleiki Nissan Intelligent Mobility er svo framúrskarandi að það er unun að horfa á hann leggja.

INTELLIGENTHRAÐASTILLIR:

BLINDSVÆÐISKYNJARI:

Greinir umferðina og losar þig við öll leiðindi sem fylgja akstri á þjóðvegum.

Skiptu áhyggjulaus um akrein. Þessi eiginleiki vaktar blindsvæðið og varar þig við um leið og hann skynjar ökutæki á því.

SJÁLFVIRK INTELLIGENTLED-AÐALLJÓS: Aðalljós sem lýsa leiðina með því að kvikna sjálfkrafa þegar dimma tekur og beinast tímabundið niður á við þegar þau greina bíl sem kemur á móti.

INTELLIGENTAKREINAVIÐVÖRUN: Heldur þér á réttum stað. Kerfið beitir hemlunum til að beina þér varlega á rétta braut ef það greinir að þú reikar of lengi út úr akreininni.

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Lagt upp við gangstétt. Fannstu besta stæðið? Renndu upp að því, ýttu á hnappinn og fylgstu með LEAF renna sér mjúklega í það, jafnvel þrengstu stæði upp við gangstétt.

Lagt í samhliða stæði. Aktu að lausu stæði, haltu hnappinum inni og fylgstu svo með í andakt þegar LEAF leggur fullkomlega á milli línanna.

Slepptu takinu og horfðu á LEAF leggja fullkomlega ProPILOT Park. Engar hendur, engir fætur, bara auðveldari leið til að leggja. Þetta er það sem þú færð með þessum framúrskarandi eiginleika Nissan Intelligent Mobility, þar sem þú þarft aðeins að fylgjast með þegar lagt er í stæði. Þú ekur að bílastæðinu, heldur hnappinum inni og sinnir svo einhverju mikilvægara, eins og til dæmis að velta fyrir þér breyttu eðli bílastæða í tilveru þinni.

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Fáðu yfirlitsmynd

af hvaða rými sem er

INTELLIGENT-UMHVERFISMYNDAVÉLAKERFI gerir þér kleift að horfa betur í kringum þig og auðveldar vandasamar tilfæringar. 360° yfirsýn yfir umhverfi LEAF, auk vals um nærmyndir frá myndavél að framan, aftan og á hliðum á skiptum skjá, gerir þér kleift að leggja í þrengstu stæði og gera það vel.

MYND AÐ AFTAN OG OFAN

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

MYND AÐ FRAMAN OG OFAN

AÐ FRAMAN EÐA AFTAN OG FRÁ HLIÐUM

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Fáðu viðvörun

áður en þú tekur af stað TILFINNING FYRIR UMHVERFINU. Jafnvel þótt þú sjáir ekki bílinn sem nálgast að aftan eða barnið sem stendur á götuhorninu og er að leggja af stað út á götuna geturðu treyst á að eiginleikar Nissan Intelligent Mobility fylgist með og láti þig vita. Þessir eiginleikar auka meðvitund þína gagnvart umhverfinu og fylla þig áður óþekktu öryggi, hvort sem þú ert að bakka út úr stæði eða skipta um akrein á fjölfarinni götu.

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

INTELLIGENT-UMHVERFISMYNDAVÉLAKERFIÐ getur látið þig vita þegar það greinir hreyfingu í kringum bílinn. Þetta er kerfi sem eykur yfirsýn þína yfir umhverfið.

UMFERÐARSKYNJARI AÐ AFTAN Þessi eiginleiki gerir þér kleift að bakka úr stæði á öruggari máta. Hann vaktar svæðið fyrir LEAF og getur varað þig við bílum sem koma aðvífandi úr annarri hvorri áttinni.

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Nú kljúfum við loftið á skilvirkari máta STRAUMLÍNULÖGUÐ VINDSKEIÐ HLIÐARSPEGLAR SEM DREIFA VINDI

LÆGRI DREIFARI

SAMFELLDUR FLATUR UNDIRVAGN

Djarfar línur eru aðeins upphafið. Háþróuð straumlínulöguð hönnun LEAF gerir honum kleift að kljúfa loftið í stað þess að þrýsta sér í gegnum það og niðurstaðan er ótrúlega sparneytinn akstur en ekki síður hljóðlátur.

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Sparaðu með innstungunni

njóttu frelsisins SJÁÐU AF HVERJU MEIRA ER MINNA. Akstur rafmagnsbíls hefur margbreytilegan ávinning í för með sér. Hið augljósa er náttúrlega að án bensínvélar þarf ekki lengur að aka á bensínstöð til að fylla á. Þetta er þó ekki það eina. Hreyfanlegir hlutar eru í heildina færri sem skilar sér í minna viðhaldi. Nú þarftu bara að ákveða í hvað þú ætlar að eyða þessum frítíma.

BLESS, BENSÍNVÉL Með aflrás sem eingöngu er knúin rafmagni er mun minni þörf á skoðunum og viðhaldi og þeim mun meiri tími fyrir akstur. Núna vaknarðu fullhlaðin(n) og tilbúin(n) fyrir átök dagsins.

BLESS, OLÍUSKIPTI ÁSAMT ÖÐRU Með bensíninu fara smurolían og olíuskiptin. Svo ekki sé minnst á gírkassann, kertin, vatnskassann, reimarnar og fleira. Kostnaðurinn lækkar. Frítíminn eykst.

BLESS, BENSÍNSTÖÐ Biðröðin við bensíndæluna heyrir sögunni til.

HALLÓ, HÁÞRÓAÐA RAFHLAÐA Rafhlöðupakki LEAF var hannaður innanhúss hjá Nissan, er þaulprófaður og einstaklega áreiðanlegur. Þú getur ekið áhyggjulaus í þeirri vissu að bíllinn þinn er knúinn með einni bestu rafhlöðutækni sem fyrirfinnst.

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Aldrei hefur verið auðveldara eða skjótara að koma sér af stað, hvort sem LEAF er hlaðinn yfir nótt úr hefðbundinni heimilisinnstungu eða með hraðhleðslustöð. Staðsetningu hraðhleðslustöðva er m.a. að finna a heimasíðunni www.on.is/rafbilar

Auðveldara en nokkru sinni að hlaða

7 KW HLEÐSLA HEIMA VIÐ OG Á HLEÐSLUSTÖÐ

50 KW HRAÐHLEÐSLA Í HLEÐSLUSTÖÐ

HLEÐSLUTÍMI HRAÐHLEÐSLU HEIMA VIÐ MEÐ 7 KW HLEÐSLUSTÖÐ ER MINNA EN SEX KLUKKUSTUNDIR*.

HRAÐHLEÐSLA Á FERÐINNI: ALLT AÐ 80% Á 40/60 MÍNÚTUM.*

*Tími ræðst af hleðsluskilyrðum, þar á meðal gerð hraðhleðslutækis og ástandi, stærð rafhlöðu og umhverfishitastigi og hitastigi rafhlöðu við notkun.

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Allar

upplýsingar á glæsilegum skjá

Njóttu þess nýjasta í tækninni með háþróuðum stafrænum upplýsingaskjá. Þú getur valið hvaða upplýsingar eru birtar á meðan þú ekur, frá drægi til aflnotkunar eða leiðsagnar, á fallegum litaskjá. Upplýsingaöldin í allri sinni dýrð.

Stjórnaðu hljómtækjunum á einfaldan máta á skjánum og í stýri.

Aldrei hefur verið auðveldara að fylgja nákvæmri leiðsögn þar sem hver einasta beygja birtist beint fyrir framan þig.

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Allt annað og betra samband

við LEAF

HNÖKRALAUS SAMÞÆTTING VIÐ FARSÍMA Apple CarPlay™* og Android Auto™* bjóða upp á öruggari og snjallari leiðir til að njóta þess sem þú kannt best að meta í símanum. Fáðu aðgang að tónlist og kortum, hringdu símtöl, sendu og taktu á móti skilaboðum – allt handfrjálst. Þú tengir einfaldlega símann og allt er klárt.

Þetta innanrými er greinilega hugsað með tengdari upplifun í huga með haganlegri uppsetningu, afgerandi nýjum miðstokki og fljótandi upplýsingaskjá þar sem síminn þinn er í aðalhlutverki. Nissan LEAF leggur öll þau verkfæri sem þú þarft til að stjórna bílnum í þínar hendur. ÞÍN EIGIN TÓNLIST. EFTIR ÞÍNU EYRA Notaðu straumspilun með Bluetooth eða USB-innstunguna til að spila tónlist beint úr snjallsímanum þínum. *Apple CarPlay er skrásett vörumerki Apple Inc. Tækjakröfur Apple CarPlay: iAP2, iPhone 5 eða nýrri (Lightning-tengi) og iOS 8.3 eða nýrra; þarf að tengja í gegnum USB. (Framboð Apple CarPlay kann að vera mismunandi á milli markaðssvæða) ** Android Auto er hannað til að virka með Android-símum sem keyra stýrikerfi 5.0 (Lollipop) eða nýrra og það þarf að tengja í gegnum USB. (Framboð Android Auto kann að vera mismunandi á milli markaðssvæða)

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


AFGERANDI MÆLABORÐ

HITI Í SÆTUM*

MIKIÐ FÓTARÝMI EINSTAKUR BLÁR SAUMUR*

Upplifðu þægindi í fullkominni þögn Hvernig ætli það sé að aka algerlega hljóðlátum bíl? Prófaðu að setjast inn í íburðarmikið og hljóðlátt farþegarýmið og upplifa nýja gerð þagnar – það er að segja þangað til þú hækkar í Bose Premium-hljómtækjunum. Þegar við þetta bætast þægilegir eiginleikar á borð við upphituð sæti verður hver einasta bílferð ævintýri líkust.

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

*Búnaður er mismunandi eftir gerðum. Sjá verðlista.

BOSE PREMIUM-HLJÓMTÆKI* Meira að segja hljómtækin eru sparneytin. Verkfræðingar Bose þróuðu hljómtæki, með sjö litlum, léttum og nákvæmlega staðsettum hátölurum, sem spara orku án þess að það komi niður á hljómgæðunum. Allt er þetta gert til að þú getir notið uppáhaldstónlistarinnar þinnar.

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Rúmgóður LEAF er tilbúinn í næstu útivistarferð með sitt rúmgóða farangursrými, lágt gólf og 60/40-skiptingu á aftursætum sem einfalt er að leggja niður. Niðurstaðan er bíll sem ræður við nánast allt sem þú krefst af honum með rúmgóðu farangursrými.

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Nissan rafmagnsbílar Taktu þátt í rafmagnsbyltingunni. Sestu undir stýri í framtíðarbíl, í dag. Einstakt úrval Nissan af bílum og sendiferðabílum sem eingöngu eru knúnir rafmagni býður upp á fyrsta flokks afköst og nýjustu tækni sem gera þér kleift að njóta akstursins án útblásturs.

TAKTU ÞÁTT Í RAFMAGNSBYLTINGUNNI. Sestu undir stýri í bíl framtíðarinnar, strax í dag. Nissan býður upp á einstakt úrval fólksbíla og sendiferðabíla sem ganga eingöngu fyrir rafmagni. Fyrsta flokks afköst og nýjasta tækni gera þér kleift að njóta akstursins í sátt við umhverfið. NÝR NISSAN LEAF ER 100% RAFKNÚINN. Nissan LEAF getur ekið 378 km* á einni hraðhleðslu og er búinn Intelligent Mobility-eiginleikum á borð við PROPILOT, PROPILOT Park og e-Pedal-tækni. STÆKKANDI HLEÐSLUNET. Nissan vinnur með EV-hraðhleðslustaðalinn CHAdeMO og hefur nú þegar komið upp einu umfangsmesta hraðhleðsluneti Evrópu. Nú stendur yfir vinna við að koma á fót hleðslunetum, svokölluðum „grænum hliðum“, fyrir langa keyrslu eftir vinsælum leiðum í Evrópu.

* Samkvæmt NEDC-prófun og stöðlum (New European Driving Cycle).

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka

Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2 | Blaðsíða 3 | Blaðsíða 4 | Blaðsíða 5 | Blaðsíða 6 | Blaðsíða 7 | Blaðsíða 8 | Blaðsíða 9 | Blaðsíða 10 | Blaðsíða 11 | Blaðsíða 12 | Blaðsíða 13 | Blaðsíða 14


Viltu prófa eitthvað ótrúlegt?

Nýr LEAF vísar veginn Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2

Prenta | Loka


Taktu næsta skref

LITAVAL

Veldu leaf sem hentar þér VISIA

ACENTA

N-CONNECTA

TEKNA

STAÐALBÚNAÐUR*

STAÐALBÚNAÐUR* UMFRAM VISIA

STAÐALBÚNAÐUR* UMFRAM ACENTA

STAÐALBÚNAÐUR* UMFRAM N-CONNECTA

YTRA BYRÐI: • 16 tommu stálfelgur • Halógenaðalljós með ljóskeilu, LED-dagljósum og handvirkri hæðarstillingu • LED-afturljós • Hliðarspeglar: samlitir + aðfellanlegir + rafstilltir + hitari + stefnuljós • Krómaðir hurðarhúnar • Hleðsluinnstunga með lýsingu INNANRÝMI: • 7 tommu TFT-skjár og hliðrænn fjölmælir • Svört tauáklæði, stillanlegt ökumannssæti • Farþegasætið stillanlegt • Hurðaklæðning: Cloth-D með Bio PET • Fellanleg aftursæti (60/40) • Mjúkur púði + grár sanseraður listi á mælaborði • Armpúði á milli framsæta ÞÆGINDI OG BÚNAÐUR: • i-Key og ræsihnappur • Sjálfvirk loftkæling (tímastýring og PTChitari) • Sjálfvirkur birtu- og regnskynjari + heimreiðalýsing + sjálfvirk hættuljós • Baksýnisspegill með deyfingu • Hraðastillir + hraðatakmörkun + aðgerðarstýri • Rafdrifnar rúður • Sólskyggni með lýsingu • Veltistýri • 12 V innstunga + USBinnstunga

HLJÓÐ OG TÆKNI: • Hljómtæki með fjórum hátölurum (geislaspilari, útvarp, USB, AUX, Bluetooth) • Intelligent-neyðarhemlun • e-Pedal (með endurhleðslu) SÉRTÆKT FYRIR RAFBÍLA: • 50 kW Chademo hraðhleðsla • 6,6 kW innbyggt hleðslutæki ÖRYGGI: • ABS-kerfi + rafstýrð EBDhemlajöfnun + hemlunarhjálp + brekkuaðstoð • 6 loftpúðar (að framan, á hliðum, loftpúðatjöld) • ISOFIX-festingar • Intelligent-beygjustjórnun • 5** í árekstrarprófunum Euro NCAP • Intelligent-neyðarhemlun með greiningu gangandi vegfarenda • Akreinaskynjari • Intelligent-akreinaviðvörun • Umferðarskynjari • Blindsvæðisskynjari AUKABÚNAÐUR* YTRA BYRÐI: • 16" álfelgur • Skyggðar rúður ÞÆGINDI OG BÚNAÐUR: • Varadekk til bráðabirgða • Thatcham-viðvörun HLJÓÐ OG TÆKNI: • NissanConnect EV kerfi (Leiðsögn á 5,8 tommu skjá, útvarp, raddstýring, bakkmyndavél • Fjarlægðarskynjarar, 4 fr. + 4 aft.

YTRA BYRÐI: • 16" álfelgur • Þokuljós að framan • Hliðarspeglar felldir að með rafstýringu INNANRÝMI: • Sæti: Svart eða ljósgrátt tauáklæði úr endurunnu efni • Leðurklætt aðgerðastýri • Listi á mælaborði með tæknimynstri • Vasar í sætisbökum ÞÆGINDI OG BÚNAÐUR: • Hraðvirk miðstöð ásamt loftkælingu • Intelligent-hraðastillir (ICC) HLJÓÐ OG TÆKNI: • NissanConnect-kerfi EV 7 tommu skjár (leiðsögukerfi + útvarp + IPOD-tengi + Bluetooth + raddstýring + ANDROID + CARPLAY) • Sex hátalarar • Bakkmyndavél

YTRA BYRÐI: • 17 tommu álfelgur • Skyggðar rúður • Hliðarspeglar felldir að með rafstýringu • Gljásvört miðstoð ÞÆGINDI OG BÚNAÐUR: • Baksýnisspegill með deyfingu HLJÓÐ OG TÆKNI: • Intelligent -myndavélakerfi + MOD-hreyfigreining + Intelligentárveknikerfi fyrir ökumann AUKABÚNAÐUR* YTRA BYRÐI: • Sjálfvirk Intelligent LED-aðalljós (LED-aðalljós + LED-dagljós) • Tvílitur, hvítur með svörtum toppi og hliðarspeglum INNANRÝMI: • Upphituð sæti (fr. og aft.) + hiti í leðurstýri • Svört eða drapplituð leðursæti að hluta + hiti í sæti + hiti í stýri

AUKABÚNAÐUR* YTRA BYRÐI: • 17 tommu álfelgur • Skyggðar rúður

ÞÆGINDI OG BÚNAÐUR: • Varadekk til bráðabirgða • Thatcham-viðvörun • Varmadæla

ÞÆGINDI OG BÚNAÐUR: • Varadekk til bráðabirgða • Thatcham-viðvörun • Varmadæla

HLJÓÐ OG TÆKNI: • Bose Premium-hljóðkerfi + sjö hátalarar • ProPILOT

HLJÓÐ OG TÆKNI: • Fjarlægðarskynjarar, 4 fr. + 4 aft. • Intelligent-myndavélakerfi + MOD-hreyfigreining + Intelligentárveknikerfi fyrir ökumann

YTRA BYRÐI: • Sjálfvirk Intelligent LED-aðalljós + LED-dagljós

Hvítur 326

Perluhvítur QAB

Silfraður KYO

Fölgrænn KBR

Grásanseraður KAD

Svartsanseraður Z11

Rauður Z10

Dumbrauður NAJ

Brúnsanseraður CAN

Tvílitur, perluhvítur QAB + svartsanseraður toppur XDF

INNANRÝMI: • Svört eða drapplituð leðursæti að hluta (fr. og aft.) + hiti í sætum + hiti í stýri • Hurðaklæðning: leðuráferð • Hiti í sætum • Hiti í stýri ÞÆGINDI OG BÚNAÐUR: • e-handbremsa HLJÓÐ OG TÆKNI: • Bose Premium-hljóðkerfi + sjö hátalarar • ProPILOT

VELDU INNANRÝMI*

AUKABÚNAÐUR* YTRA BYRÐI: • Tvílitur, hvítur með svörtum toppi og hliðarspeglum

VISIA staðalbúnaður

ACENTA staðalbúnaður og N-CONNECTA staðalbúnaður

INNANRÝMI: • Svart eða drapplitað leður + hiti í framsætum ÞÆGINDI OG BÚNAÐUR: • Varadekk til bráðabirgða • Thatcham-viðvörun • Varmadæla

Svart tauáklæði

Ljósgrátt endurunnið tauáklæði

TEKNA staðalbúnaður og N-CONNECTA aukabúnaður

Svart endurunnið tauáklæði TEKNA aukabúnaður

TEKNA aukabúnaður

HLJÓÐ OG TÆKNI: • ProPILOT Park *NEDC (New European Driving Cycle) **Niðurstöður í enda 2017, byrjun 2018. Athugið að staðalbúnaður og aukabúnaður getur breyst. Nánari upplýsingar í verðlista og hjá sölufulltrúa.

Svart leður að hluta

FELGUR

Svart leður að hluta

Svart leður

Drapplitað leður að hluta

MÁL A: Heildarlengd : 4490 MM

D

B: Hjólhaf : 2700 MM C: Heildarbreidd : 1788 MM D: Heildarhæð: 1540 MM VISIA 16 TOMMU HJÓLKOPPUR

Að utan | Að innan | Tækni |

ACENTA 16 TOMMU ÁLFELGA

Aukahlutir Blaðsíða 1 | Blaðsíða 2

N-CONNECTA OG TEKNA 17 TOMMU ÁLFELGA

*Staðal- og aukabúnaður getur breyst án fyrirvara. Nánari upplýsingar í verðlista og hjá sölufulltrúa.

B A

C

Prenta | Loka


HJÁ NISSAN

ERU GÆÐIN Í FYRIRRÚMI

BYGGT Á REYNSLU Hjá Nissan leggjum við áherslu á viðskiptavininn. Allt sem við gerum og allar ákvarðanir sem við tökum byggjast á vandlegri skoðun, nákvæmni og gæðum, því þegar upp er staðið snýst þetta allt um þig. Frá hugmynd að bíl til framleiðslu hans, frá gæðaprófunum til gagnsæis, frá þjónustu við viðskiptavini til skuldbindingar. Gæðin skína í gegn, hvert sem litið er.

360° FERLI Við byggjum á gæðum frá upphafi og þaulhugsum hvern einasta bíl til að gera hann þægilegri og endingarbetri með framsækinni hönnun, hugvitssamlegri tækni og vandlega völdu útliti fyrir þig.

ÖRYGGI Aksturskerfin okkar eru í stöðugri endurskoðun til að tryggja betur öryggi þitt og koma í veg fyrir óhöpp svo að þú megir njóta öruggs aksturs alla daga. Umhverfismyndavélakerfið er búið fjórum myndavélum sem bjóða upp á yfirsýn yfir umhverfi bílsins.

ÓTRÚLEGUR ÁREIÐANLEIKI Við reynum bílana okkar til hins ýtrasta til að tryggja afköst og áreiðanleika. Við ökum milljónir kílómetra í prófunum fyrir framleiðslu, opnum og lokum dyrum og vélarrými mörg þúsund sinnum á dag og notum ösku úr japönskum eldfjöllum til að prófa rúðurnar.

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka


ÞJÓNUSTUSAMNINGAR Þjónustusamningur Nissan er besti valkosturinn til að tryggja Nissan LEAF-bílnum þínum það viðhald sem hann á skilið! Við hugsum um Nissan-bílinn þinn og tryggjum að þú borgir fast verð fyrir alla þjónustu að kaupum loknum. Þegar þú kemur með bílinn til söluaðila skiptum við um varahluti og vökva í samræmi við staðlaða viðhaldsáætlun Nissan og framkvæmum skoðanir til að tryggja áhyggjulausan akstur. Nissan gerir þér kleift að hafa stjórn á útgjöldunum með því að láta vita hvenær næsta þjónusta fer fram og leggja fram tillögu um þjónustu sem uppfyllir þínar þarfir á tíma sem hentar þér.

OKKAR LOFORÐ. ÞÍN REYNSLA

VIÐBÓTARTRYGGING Viðbótartrygging Nissan gerir þér kleift að framlengja þriggja ára / 160.000 kílómetra ábyrgðina. Veldu þann samning sem hentar þínum akstri best. Komi til viðgerða eru eingöngu notaðir varahlutir frá Nissan á verkstæði sem vottað er af Nissan.

GILDISTÍMI LOFORÐA OKKAR ER ÓTAKMARKAÐUR. EF ÞÚ HEFUR SKRÁÐ ÞIG Í YOU+NISSAN OG VILT FÁ ÓSVIKIN, FÖLSKVALAUS OG HEIÐARLEG SVÖR SJÁUM VIÐ UM ÞIG. ALLTAF. VIÐ LOFUM ÞVÍ.

ÓKEYPIS LÁNSBÍLL Við lofum að halda þér á ferðinni á meðan verið er að þjónusta bílinn þinn. Með því að bóka tímanlega gerirðu okkur kleift að tryggja þér lánsbíl. Við bjóðum meira að segja upp á rafmagnsbíla á völdum þjónustustöðum, auk annarra fjölbreyttra samgöngulausna sem henta þér.

VERÐVERND Á ÞJÓNUSTU Við lofum fyrsta flokks vinnu fyrir Nissan-bílinn þinn í gegnum sérfræðiþekkingu viðgerðarfólks frá Nissan og notkun varahluta frá Nissan. Við erum sérfræðingar í að þjónusta Nissan. Til að tryggja að þú fáir það sem þú borgar fyrir býður Nissan upp á verðvernd gagnvart samsvarandi vinnu hjá þjónustuaðilum innan 10 km radíuss frá söluaðila.

ÓKEYPIS SKOÐUN Á BÍLNUM Við lofum ókeypis skoðun í hvert skipti sem vinna þarf við bílinn. Þannig veistu upp á hár hvað þarf að gera og hvað það kostar. Allt verð er einnig aðgengilegt á netinu og hjá söluaðilum.

AFBURÐA ÞJÓNUSTA Við lofum að halda þér á ferðinni allan sólarhringinn. Ef eitthvað óvænt kemur upp á er Nissan-aðstoð í boði allan sólarhringinn, sama hversu gamall Nissanbíllinn þinn er.

NISSAN ÍSLANDI - BL EHF. - SÆVARHÖFÐA 2 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 525 8000 - WWW.BL.IS

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

ÞÚ NÆRÐ ÞVÍ BESTA ÚT ÚR STARFSFÓLKI NISSAN. Þú ert neistinn sem kveikir hugmyndirnar okkar. Þú eykur okkur hugvit. Þú veitir okkur innblástur til að breyta reglum og spila af fingrum fram. Hjá Nissan eru nýjungar ekki bara hugsaðar til að bæta við eða breyta heldur til að stíga út f yrir rammann og endurskapa. Hugmyndin er að galdra fram óvæntar lausnir sem uppfylla þína villtustu og hagnýtustu drauma. Við hjá Nissan hönnum bíla, aukabúnað og þjónustu sem ekki finnst annars staðar, við gerum notagildið spennandi og spennandi eiginleika hagnýta, sem skilar sér í gefandi akstursupplifun alla daga.

MEÐ NISSAN LEAF BÝÐST ÞÉR: 5 ÁRA* / 100.000 KM ÁBYRGÐ Á ÖLLUM RAFBÍLAÍHLUTUM OG 3 ÁRA* / 100.000 KM FYRIR STAÐLAÐA ÍHLUTI TÓLF ÁRA RYÐVARNARÁBYRGÐ VIÐHALDSÁÆTLUN* Á 30.000 KM FRESTI ÁBYRGÐ Á LI-ION RAFHLÖÐU NISSAN LEAF VERNDAR ÞIG EINNIG FYRIR AFKASTAMINNKUN UNDIR 9 STIGUM (AF 12) SEM BIRTAST Á AFKASTAMÆLI LEAF.

*Nánari upplýsingar um *Til að viðhalda verksmiðjuábyrgð þurfa eigendur að mæta með bílinn í árlegar þjónustuskoðanir eða á 15.000 km fresti hvort sem kemur fyrr kemur. Þjónustuskoðanir fela í sér kostnað fyrir eigendur. Nánari upplýsingar um ábyrgðarskilmála er að finna í ábyrgðarbók og á nissan.is ábyrgðarskilmála er að finna í ábyrgðarbók og á nissan.is

Prenta | Loka


Nissan Intelligent Mobility er á bak við allt sem við gerum. Nissan hefur verið frumkvöðull í framleiðslu og sölu rafmagnsbíla í 70 ár. Frá þeim tíma hefur Nissan lagt áherslu á að þróa bíla frá því að vera farartæki yfir í að vera ferðafélagi. Þannig er ferðin öruggari, tengdari og meira spennandi í bíl sem deilir með þér ábyrgðinni á akstrinum. Það markmið er nú að verða að veruleika í nýjum NISSAN LEAF, þar sem drægi er ekki lengur hindrun.

Langar þig í glænýjan Nissan LEAF? Heimsæktu okkur á netinu til að panta. www.nissan.is

BL ehf. - Sævarhöfða 2 - 110 Reykjavík

Fylgstu með Nissan LEAF á:

BL ehf. - Sævarhöfða 2 - 110 Reykjavík - Sími 525 8000 Áhersla hefur verið lögð á að tryggja að efni þessa bæklings sé rétt á þeim tíma sem hann fer í prentun (desember 2017). Í þessum bæklingi getur að líta frumútgáfur bíla. Í samræmi við áherslu fyrirtækisins um stöðuga þróun vara áskilur Nissan Europe sér rétt til að breyta hvenær sem er tæknilýsingum og ökutækjum sem lýst er og sýnd eru í þessum bæklingi. Söluaðilum Nissan verða tilkynntar slíkar breytingar eins fljótt og unnt er. Nýjustu upplýsingar er hægt að nálgast hjá næsta söluaðila Nissan. Vegna takmarkana við prentun kunna litir sem birtast í þessum bæklingi að vera aðeins öðruvísi en raunverulegir litir á yfirbyggingu og áklæði í innanrými og ábyrgðarskilmálar. Allur réttur áskilinn. Fjölföldun þessa bæklings, að hluta eða í heild, er óheimil án skriflegs leyfis frá Nissan Europe. Þessi bæklingur er prentaður á óbleiktan pappír – MY17 LEAF LAUNCH-bæklingur 11/2017 – Prentaður í ESB. Hannaður hjá DESIGNORY í Frakklandi og brotinn um og prentaður hjá eg+ worldwide – sími: +33 1 49 09 25 35

Að utan | Að innan | Tækni |

Aukahlutir

Prenta | Loka


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.