29 04 2016

Page 34

FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016

Jarðarber og jógúrt í öll mál? Kæra Magga Pála! Ég er með fjögurra ára stelpu sem er búin að skrúfa sig upp í ótrúlega mikla matvendni. Nú er svo komið að hún borðar bara jarðarber, kjötbúðing, eina tegund af jógúrt og hvítlauks-naanbrauð. Þetta hefur ekki alltaf verið svona heldur hefur ágerst undanfarna mánuði. Þegar hún var tveggja borðaði hún allt, þegar hún var þriggja var hún farin að fúlsa við ýmsum mat en núna er svo komið að matseðillinn er sá sami öll kvöld. Ég er búin að ráðgast við lækni sem sagði að þetta væri allt í lagi af því að hún borðaði allt í leikskólanum og það er rétt. Þar borðar hún kjöt, fisk, grænmeti, hrísgrjón og alls konar brauð með alls konar áleggi án þess að gera neinar athugasemdir og leikskólakennarinn hennar trúði mér ekki þegar ég sagði að hún væri með þessa stæla heima. Ég var að hugsa um hvort þetta snúist eitthvað um að hún sé að stjórna mér en hún virðist alveg ánægð bara ef hún fær naan og jógúrt á meðan að ég borða heitan mat. Ef ég býð henni eitthvað annað þá segir áður en hún lítur á matinn og áður en hún smakkar „ég borða ekki svona.“ Er þetta eitthvað tímabil sem mun ganga yfir eða á ég að gera eitthvað í þessu? Og þá hverskonar sérfræðing ætti ég að tala við?

Klippur

Trjáklippur - Greinaklippur - Limgerðisklippur - Rósaklippur

Heil og sæl, kæra móðir og þakkir bestar fyrir bréfið þitt. Dóttir þín er ákveðin, ung kona og afar athyglisvert að heyra um val hennar á fæðutegundum, þ.e. þegar heim er komið.

Limgerðisklippur

Átök um mat, hvíld og fatnað

Trjáklippur Greinaklippur

Rósaklippur Greinaklippur

Kurlarar

Öflugir greinakurlarar - taka allt að 45 mm stofna

Model SDL 2800 EVO

Einfasa rafmótor 2800 W Sjálfbrýnandi kurlaravals Koma með safnkassa Meðfærilegir Auðveldir í allri notkun Hljóðlátir

ÞÓR

H F

Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500

Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555

Vefsíða og Opnunartími: Opið alla virka daga netverslun: frá kl 8:00 - 18:00 www.thor.is Lokað um helgar

Öll börn eru fædd með óendanlega sterkan vilja sem gefur þeim kjark og kraft til að fást við allar þær erfiðu en um leið stórkostlegu æfingar sem bíða þeirra. Að reisa upp höfuðin, að velta sér, að skríða, að ganga; endalausar æfingar og mistök og enn meiri æfingar. Á hverjum degi sýna þessi litlu börn þrautseigju og viljastyrk sem við fullorðin höfum oft gleymt að við ættum í fórum okkar. En – svo verðum við agndofa þegar krílin okkar vaxa upp og viljinn þarf að fá útrás og æfingar á nýjum sviðum. Þær viljaæfingar eru teknar út á foreldrunum – þessum einstaklingum sem börnin elska meira en allt annað í heiminum. Klassísku stríðin eru háð á þremur sviðum heimilislífsins; matarmálin, hvíldarmálin og fatamálin. Jarðarber og júgúrt í öll mál Í fljótu bragði sýnist mér að dóttir þín sé í viljaæfingum eða með öðrum orðum; í átökum við þig um matinn með að neita öllu öðru en þessum eftirlætistegundum sem þú nefnir. Þú ert búin að skoða stöðuna og leita þér stuðnings sem er ávallt best með bæði samráði við skóla barnsins þar sem barnið hefur prýðislyst á öllum mat og eins hefur læknir hitt ykkur og metið að stúlkan sé við hestaheilsu þar sem hún nærist á fjölbreyttum mat alla virka daga. Auðvitað væri áhugavert að vita hvort hún velur fjölbreyttari fæðu í fjölskylduboðum eða á veitingahúsum en samkvæmt bréfinu þínu einskorðast matvendnin hennar við heimilismáltíðina sem þú berð á borð fyrir hana. Sem sagt, kæra móðir, hún virðist vera að spila með þig og þá hefur þú val um viðbrögð. Reiptog – sleppa eða taka slaginn? Þegar tveir togast á, gefur oft bestu raunina að sleppa bara sínum enda og sjá hvað gerist. Þú getur gefið henni eftirlætismat á disk-

inn en þú skalt elda og njóta þess að borða góðan mat við borðið með henni. Allir fá nóg af jarðarberjum í kvöldmat eftir einhverja mánuði og ef þú ert ekkert að bjóða henni annað, fær hún ekkert út úr því að neita. Önnur leið getur verið að eiga ekki jarðarberin og naanbrauðið til og hún fer þá bara svöng í háttinn. Um helgar yrði hún illa svöng þegar liði á daginn og það dugar mörgum til að brjóta odd af oflæti sínu og innbyrða einhverja aðra fæðutegund. Þetta getur rofið vítahringinn en getur kostað mikil átök sem þú þarft að meta hvort geri eitthvað fyrir ykkur mæðgurnar. Er hætta á ferðum? Auðvitað eru margar hliðar á öllum málum og við skulum ekki vanmeta mögulegar afleiðingar þess að barn þrói sérkennilegar matarvenjur. Jarðarber og jógúrt í hvert mál getur endað með þráhyggjuhegðun á fleiri sviðum. Eins geta átraskanir birst í mörgum myndum og foreldrar verða að vera vel á verði, ekki síst með stúlkurnar sínar. En þar sem dóttir þín er aðeins fjögurra ára og bæði leikskólinn og læknir hafa staðfest að hún nærist vel og sé frísk, er ekki hætta á ferðum að mínu mati. Síðar getur þú leitað til sérfræðinga ef þörf krefur. Núna skaltu bara elda þér afskaplega góðan kvöldverð og njóta hvers bita í frelsi frá áhyggjum. Magga Pála

Uppeldisáhöldin Sendið Möggu Pálu spurningar á maggapala@frettatiminn.is og hún mun svara í næstu blöðum.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
29 04 2016 by Fréttatíminn - Issuu