12. agust 2011

Page 50

46 

menning

Helgin 12.-14. ágúst 2011

leiklist Íslendingar og Vestur-Íslendingar leiða saman hesta sína

Á skítugum skónum? Friðgeir Einarsson, Ingibjörg Magnadóttir og Vestur-Íslendingarnir Arne MacPherson og Freya Olafson leiða saman hesta sína í sviðslistaverkinu Eyjan sem sýnt verður á leiklistarhátíðinni Lókal í haust.

Vestur Íslendingar rjúfa einangrunina við Ísland Þau Arne MacPherson og Freya Olafson röktu ættir sínar við aðra Íslendinga í Vesturfarasetrinu á Hófsósi og hafa í samvinnu við Friðgeir Einarsson og Ingibjörgu Magnadóttur þróað verk út frá þeirri einangrun sem skapaðist milli Vestur-Íslendinga og annarra Íslendinga gegnum tíðina.

V

ið lögðum upp með að kanna fyrirbærið einangrun en kveikjan var að skoða hvernig Vestur-Íslendingar hafa einangrast frá öðrum Íslendingum í gegnum tíðina,“ segir sviðslistamaðurinn Friðgeir Einarsson en hann vinnur nú að sýningunni The Island eða Eyjan ásamt myndlistarkonunni Ingibjörgu Magnadóttur og Vestur-Íslendingunum Arne MacPherson og Freya Olafson sem eru stödd hér á landi til að semja verkið. „Arne er leikari og Freya dansari og myndlistarmaður en þau eru bæði komin af íslenskum ættum og hafa ásamt

SÍA

fleirum staðið fyrir hátíðinni Núna/ Now í Winnipeg,“ en sú hátíð hefur það að markmiði að flytja inn íslenska listamenn til að koma fram í Kanada. „Ég var staddur þarna með leikritið Húmanimal í fyrra og Arne og Freya höfðu samband við okkur Ingibjörgu og buðu okkur að vera áfram til að vinna að nýju verki með þeim. Síðan þá höfum við ferðast milli Kanada og Íslands til að undirbúa verkið,“ en Freya og Arne eiga skyldfólk hér á landi sem þau þekkja lítillega og nýttu sér að rekja ættir sínar saman við Íslendinga í ættfræði og upplýsingastofu Vesturfarasetursins á

Hofsósi. Afraksturinn af samstarfsverkefninu lítur dagsins ljós á leiklistarhátíðinni Lókal í byrjun september. „Verkið fjallar um félagslega einangrun, einmanaleikann og þrá mannsins og líkamlega þörf til að tengjast öðrum. Þetta er þverfaglegt verkefni og við höfum öll mjög ólíkar stefnur en ætli þetta verði ekki einhvers konar gjörningaleikhús. Þetta verður ekki beinlínis saga eða hefðbundið leikrit heldur verður uppbyggingin svolítið afstrakt.“ Nánari upplýsingar um verkið er að finna á www.lokal.is

plötudómur Winter Sun Snorra Helgasonar

JÓNSSON & LE’MACKS

jl.is

Gamalt garn, nýtt munstur

S Það er allt í lagi. Pappelina vill láta ganga yfir sig á skítugum skónum. Hún er nefnilega úr plasti. Pappelina virkar því best þar sem mikið álag er á gólfinu. Tilvalinn félagi í forstofuna eða eldhúsið. Svo vill hún líka fara í þvottavél. Plastmotturnar frá Pappelinu hafa farið sigurför um heiminn og eru nú loksins fáanlegar á Íslandi. Kíktu á úrvalið í verslun Kokku eða á kokka.is.

norri sýndi hvað hann gat með Sprengjuhöllinni en hefur nú tekið miklum framförum frá fyrstu sólóplötunni, sem kom út 2009, enda búinn að helga sig tónlist síðustu misserin. Hann mætir hér sem mjög klár og uppfinningasamur lagasmiður, Winter Sun „singer-songwriter“ af  gamla skólanum – kassagítSnorri Helgason arpoppari frá því sirka 1972 – en með nútímaáherslum, sem Sindri Már Sigfússon úr Seabear og Sin Fang hjálpar til við að leggja á. Lögin grípa eins og litlir önglar og þig mun langa til að hlusta aftur og aftur á þessa plötu til að fullnægja þörfinni fyrir gott popp. Sjálfur er ég búinn að hlusta á hana daglega í tvær vikur og er ekki kominn með leiða á henni ennþá – hún er það langvirkandi, fjölbreytt og lúmsk. Snorri er tónlistargrúskari og því eru áhrifavaldarnir frá fáfarnari slóðum en

gengur og gerist. Lagasmíðar manna eins og Harrys Nilson og Johns Sebastian (úr The Lovin’ Spoonful) koma upp í hugann og Brian Wilson-áhrif eru allnokkur. Og Bítlarnir, maður. Snorri minnir bara á, hermir aldrei: þótt garnið sé gamalt er munstrið frumsamið og flott. „Þroskaður“ er orðið sem manni dettur í hug yfir lagahöfundinn Snorra; væri hann mangó ætti að borða hann núna. Alltumlykjandi fílingur á plötunni er sólríkur, bjartur og mildur. Þótt yfirbragðið sé frekar rólegt er lítill tregi til staðar og sama og ekkert vælt. Eins og margir hugsar Snorri til alþjóðamarkaðar og syngur einfalda og ágæta ensku textana eins og hann hafi dvalið lengi í fjallakofa í Montana og safnað skeggi. Athyglisvert verður að sjá hvort Snorri hefur erindi sem erfiði í æskudýrkandi poppheiminum því Vetrarsólin hans er alveg frábær og það besta sem hann hefur gert. -dr. Gunni

... væri hann mangó ætti að borða hann núna.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.