5. november 2010

Page 40

40

viðhorf

Helgin 5.-7. nóvember 2010

Skóli og þjóðfélag

Læra börn það sem fyrir þeim er haft? Aukaatriði í aðalhlutverkum Orsök og afleiðing

A

ð m i n ns t a Hér fór umræðan kosti móðursem sé eitthvað á m á l ið, s vo svig við það sem mikið er víst, en lagt var upp með aldrei skulu menn og allir kennarar sa mt gley ma þv í þekkja úr starfi að eitt er að kenna, sínu. Það er líka annað er að læra. miklu nærtækari Lítið dæmi um það raunveruleiki að er sagan um mennvorkenna einum ina sem voru úti að hundi heldur en að ganga með hundana læra um einhvern karl sem dó fyrir sína og annar þeirra sagði: „Ég er búinn löngu! Hér má líka að kenna hundinum taka dæmi af vísmínum að syngja.“ unni sem ágætur Sölvi Sveinsson „Hvað segirðu,“ sagði bóndi austur á Hérskólastjóri Landakotsskóla hinn, „hvaða lag aði orti um prestsyngur hann?“ „Ég inn sinn: sagðist vera búinn að kenna honum að syngja,“ svaraði hann, „ég sagði Merkilegt er hvað margir lof ´ann ekki að hann gæti sungið.“ Síðan menn sem aldrei hafa séð´ann er það svo að börnin læra með sínu skrýddan kápu Krists að ofan, móti hvert það sem fyrir þeim er klæddan skollabuxum neðan. haft. Gott dæmi um það er ljóð eftir Önnu Akhmatovu sem Vilborg Dag- Nú er þetta að vísu heldur ófögur bjartsdóttir þýddi og heitir Napó- mannlýsing og er þá frá því að segja leon: að öðrum bónda í sveitinni var jafnilla við prestinn og vildi læra þessa vísu. Hermt er að það hafi tekið Börn, hvenær var hann þrjú ár og var kveðskapurinn Napóleon Bonaparte þá svona í huga bónda: fæddur? spyr kennarinn. Fyrir þúsund árum, segja börnin. Fyrir hundrað árum, segja börnin. Merkilegt er hvað margir lof ´ann Enginn veit það. að ofan Börn, hvað var það sem menn sem aldrei hafa séð´ann Napóleon Bonaparte að neðan. gerði? spyr kennarinn. Hann vann stríð, segja börnin. Eiginlega eru báðar þessar vísur Hann tapaði stríði, segja börnin. snilld og kannski segir seinni vísan Enginn veit það. okkur að enginn lærdómur eigi sér Slátrarinn okkar átti hund stað í kennslustofunni nema börnsegir Frankí in tileinki sér eitthvað af því sem og hann hét Napóleon kennarinn hefur fyrir þeim, en sá og slátrarinn okkar var vanur lærdómur verður ekki inngróinn og að berja hann marktækur fyrr en börnin gefa honog hundurinn dó um persónulegt yfirbragð og laga úr hungri hann að skilningi sínum og áhuga. fyrir ári. Og nú vorkenna öll börnin Napóleon

Umræður og fréttir af meintri stöðutöku gegn íslensku krónunni undanfarnar vikur eru dæmigerðar fyrir hvernig aukaatriði eru gerð að aðalatriðum. Vissulega er fréttnæmt ef einhverjir hákarlar viðskiptalífsins, hvort sem þeir eru innlendir eða útlendir, hafa verið að spila með gjaldmiðil landsins. Aðalatriðið í þeirri frétt er þó ekki spilamennskan, heldur af hverju í ósköpunum íslenska krónan var komin í þá stöðu að allir helstu vogunarsjóðir heims tóku sig til og urðu sérfræðingar um hana. Þessi menntaþorsti vogunarsjóðanna og stöðutökur, sem sannarlega fóru fram, gegn krónunni, voru afleiðing. Hver var orsökin? Í raun er það sérstakt rannsóknarefni að skoða af hverju þeir, sem fóru með stjórn efnahagsmála landsJón Kaldal ins, leyfðu gengi krónunnkaldal@frettatiminn.is ar að ná þeim ógnarstyrk sem hún hafði, sérstaklega á árunum 2005 til 2007, áður en óhjákvæmilegt fall hófst í ársbyrjun 2008. Sannleikurinn er sá að fjármálakerfi okkar hvíldi á agnarsmáum og viðkvæmum gjaldmiðli. Undirstaðan var sem sagt mjög ótraust. Strax síðla árs 2005 höfðu fulltrúar ýmissa vogunarsjóða áttað sig á þessari stöðu. Gengi krónunnar féll hraustlega í byrjun árs 2006 en um vorið tókst að hrinda því sem kallað var árás vogunarsjóða á gjald-

Fært til bókar

Loks kallaður til yfirheyrslu Tölvuhakkarinn sem grunaður er um að hafa stolið trúnaðargögnum frá Gunnari Gunnarssyni lögfræðingi er vörðuðu fyrirtæki og einstaklinga sem hann hafði unnið fyrir, þar á meðal Milestone, var loks kallaður á fund lögreglu nú í nýliðnum október, eftir að Fréttatíminn greindi frá kæru hans. Í kærunni óskaði pilturinn m.a. eftir því að fá tölvur og fleiri gögn sem tekin voru af honum við húsrannsókn og benti um leið á að þótt liðnir væru átta mánuðir (í september) frá því að gögnin voru tekin, hefði hann ekki verið kallaður til yfirheyrslu. Það fer væntanlega eftir

Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu

fer fram mánudaginn 8. nóvember, kl. 18 í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg Á uppboðinu er úrval góðra verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna Verkin verða sýnd: í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–17, mánudag 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is

Eggert Magnússon

Listmunauppboð í Galleríi Fold

Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is

miðilinn. Seðlabankinn, bankarnir, lífeyrissjóðirnir og stjórnvöld tóku höndum saman til að hrinda árásinni, eins og fyrst var lýst í bók Ásgeirs Jónssonar hagfræðings, Why Iceland?, og síðar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Framhaldið er þekkt. Í stað þess að staldra við og taka áhuga vogunarsjóðanna á krónunni og íslensku efnahagslífi alvarlega, slógu bankarnir í klárinn og tvöfölduðu umfang sitt á næstu tveimur árum. Á hliðarlínunni stóðu þáverandi stjórnendur Seðlabankans, ánægðir svo lengi sem gengi hinnar ástkæru íslensku krónu hjálpaði þeim við að vera ekki alltof fjarri verðbólgumarkmiðum bankans, sem reyndar gekk ekkert sérstaklega vel hjá þeim. Afleiðingin varð enn meira tjón en hefði þurft að verða þegar bankarnir sprungu loks á limminu haustið 2008. Það fall varð ekki vegna vondra spákaupmanna. Og þeir orsökuðu ekki heldur hrun krónunnar. Það er bláeygur barnaskapur að halda að íslensk króna eigi erindi aftur óstudd út á hinn opna alþjóðlega fjármagnsmarkað, án þess að því fylgi miklar sveiflur á gengi. Við komumst ekkert fram veginn með því að kvarta yfir vondum kapítalistum sem nýta sér veikleika krónunnar, eins og til dæmis fyrrverandi stjórnendur Seðlabankans gerðu ítrekað. Kapítalistarnir munu ekki kveðja markaðinn, það er gjaldmiðill landsins sem þarf að breytast. Það liggur á að komast að því með hvaða hætti það verður gert.

gangi rannsóknar málsins hvenær tölvum og gögnum verður skilað en Jón H. B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri sagði við Fréttatímann að gögnum sem þessum ætti ekki að halda að nauðsynjalausu.

málastjórn að verkefni þetta samræmist illa hefðbundnum verkefnum borgaralegra flugmálayfirvalda.“ Betur verður máli varla ýtt út af borði en svona.

Nei Tafið af list Vart er ofmælt að rússnesku Sukhoi SU-30 herþoturnar sem Kristján Möller leyfði á síðustu metrum samgönguráðherratíðar sinnar vefjist fyrir arftakanum Ögmundi Jónassyni. Nokkuð er um liðið síðan fyrirtækið E.C.A. Program kynnti fyrst hugmyndir sínar um að skrá og starfrækja þoturnar á Keflavíkurflugvelli til þjálfunar og æfinga. Forráðamenn fyrirtækisins segja starfsemina skapa 150 störf auk þeirrar þjónustu sem fylgir. Það freistar manna á Suðurnesjum þar sem atvinnuleysi er mest á landinu. Vandinn er hins vegar sá að þetta eru hertól og trauðla að skapi Ögmundar, jafnvel þótt vopnlaus séu. Málið er því tafið snilldarlega með „kerfislægum“ hætti, án þess að því sé beinlínis hafnað. Það má lesa í niðurlagi tilkynningar ráðuneytisins vegna málsins en þar segir: „Ráðuneytið hefur, eins og áður er fram komið, haft þessi mál til skoðunar. Ljóst má vera að allnokkur undirbúningur, sem gæti tekið langan tíma, þyrfti að eiga sér stað ef setja á reglur hér að lútandi sem eru í samræmi við íslensk lög á þessu sviði og alþjóðaskuldbindingar. Einnig má ljóst vera að mikill kostnaður fylgir þeim undirbúningi og fjárveitingar eru ekki fyrirliggjandi. Ráðuneytið tekur undir með Flug-

Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið utan Evrópusambandsins. Markmið hreyfingarinnar er að stuðla að opinni umræðu um Evrópu- og alþjóðasamstarf. Sagan segir að forráðamenn Heimssýnar hafi í þessu skyni, þ.e. að stuðla að Evrópuumræðu, sótt um styrk til Evrópusambandsins. Sömu heimildir greina hins vegar að svar ESB hafi verið pent nei. Kannski kemur það ekki alveg á óvart.

Biskup á leik Varla una Íslendingar því að skreyta kirkjur sínar stolnum munum. Í heimildarmynd Hjálmtýs Heiðdal og Karls Smára Hreinssonar í Ríkissjónvarpinu á dögunum kom fram að steindir gluggar í Akureyrarkirkju og Áskirkju eru þýfi, komnir úr dómkirkjunni í Coventry á Englandi. Gluggarnir eru breskar þjóðargersemar og eiga væntanlega hvergi heima annars staðar en í Coventry. Nú á Karl Sigurbjörnsson biskup leik. Hvorki hann né þjóðkirkjan hafa átt sjö dagana sæla að undanförnu. Biskupinn getur bætt prikastöðuna með því að beita húsbóndavaldi og sjá til þess að gluggunum verði komið til réttra eigenda hið bráðasta.

Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Miðopnu ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.