Hjá Epal finnið þið úrval af jólagjöfum fyrir alla fjölskylduna. Skoðið jólagjafahandbókina okkar í ár og fáið hugmyndir að jólagjöfum, jólaskreytingum og hver veit nema sitthvað leynist á næstu blaðsíðum sem endar á óskalistanum þínum.
Jólagjafahandbók Epal er full af fallegum gjafahugmyndum fyrir alla og má hér finna yfir 160 jólagjafahugmyndir. Jólaandinn mun svífa yfir i desember og bjóðum við upp á hátíðlega jóladagskrá vikurnar fram að jólum.
Vefverslun okkar er einnig opin allan sólarhringinn og því hægt að versla jólagjafirnar heima í stofu í rólegheitum.
Við tökum vel á móti ykkur,
Starfsfólk Epal
*Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur Epal sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.