Sumar á Selfossi 2024

Page 1


8. - 11. ágúst 2024

Framtíðin er björt!

Gerum þetta saman.

Bæjarhátíðin Sumar á Selfossi fer nú fram í 28.skipti og er alltaf jafn gaman að undirbúa þessa frábæru hátíð. Þar sem hátíðin snýst um að skapa minningar með vinum og kunningjum og síðast en ekki sýst að skapa minningar með NÁGRÖNNUM okkar sem er gríðarlega mikilvægt fyrir íþróttabæinn Selfoss.

Knattspyrnufélagið ÁRBORG hefur lagt gríðarlega vinnu ár hvert til þess að skapa þessar minningar sem bæjarbúar fá að njóta yfir þessa helgi og langar mig að þakka ykkur öllum kærlega fyrir að sýna okkur þann stuðning að mæta og njóta! Góður félagsskapur og gleði hefur verið haft að leiðarljósi hjá þessum hópi í góðu blandi við árangur og reynum við að skila því inn í samfélagið ár hvert.

Félagið stendur í ströngu þessa dagana við að koma sér upp í 3.deildina. Við sitjum í 3.sæti með fimm leiki eftir. Ótrúlega flottur árangur hjá hópnum sem ætlar sér alla leið þetta árið.

Framtíðin er heldur betur björt. Knattspyrnufélagið Árborg ætlar sér að búa til umhverfi hvað varðar aðbúnað og fagmennsku fyrir unga sem og eldri leikmenn til að eflast sem knattspyrnumenn. Með gleði og árangur að leiðarljósi.

Að þessu sögðu hlakkar okkur til þess að eiga skemmtilega helgi með ykkur þar sem við hjálpumst að við að gera hátíðina okkar enn glæsilegri með frábærri þátttöku. Skorum við á alla íbúa til að skreyta hús sín í hverfalitunum, halda góð og öflug götugrill til að kynnast sínum nágrönnum og síðast en ekki síst að mæta á alla þá viðburði sem í boði eru, ekki bara til að sækja góða afþreyingu heldur einnig til að upplifa stemninguna með sinni fjölskyldu, vinum og nágrönnum.

Bestu þakkir til sveitarfélagsins Árborg og öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem að hátíðinni koma. Takk kærlega fyrir stuðninginn.

Að lokum vil ég segja þetta. Ég er ótrúlega stoltur af þessum hóp sem samanstendur af leikmönnum, þjálfurum, stjórnarmönnum og sjálfboðaliðum. Við getum verið stolt af Sunnlenskum fótbolta. Hann stendur fyrir margt það besta sem okkar samfélag hefur upp á að bjóða. Á sama tíma og við eigum að gleðjast yfir því sem vel er gert þá eigum við ávallt að reyna að bæta okkur. Ég tel okkur vera á þeirri vegferð saman.

F.h. Knattspyrnufélags Árborgar Árni Páll Hafþórsson Forseti Knattspyrnufélags Árborgar

LYFIN FRÍTT HEIM AÐ DYRUM

Í Lyfju appinu getur þú fengið lyfseðilsskyldu lyfin send frítt heim að dyrum að jafnaði innan klukkustundar.

Í Lyfju appinu getur þú einnig verslað heilsu- og hjúkrunarvörur og sótt um umboð til að versla lyf fyrir aðra. Í Lyfju appinu getur þú fengið ráðgjöf sérfræðings í gegnum netspjall alla daga milli kl. 10-22.

Þeir sem sjá um hátíðina

Hátíðin Sumar á Selfossi er orðinn fastur liður hjá bæjarbúum en þó að hátíðin sé á allra vörum eru ekki allir meðvitaðir um hverjir það eru sem halda hátíðina.

Hátíðarhaldararnir eru stjórnarmenn, leikmenn og velunnarar Knattspyrnufélags Árborgar. Knattspyrnufélag Árborgar var stofnað árið 2000 og hefur allar götur síðan verið starfrækt með frábærum árangri. Góður félagsskapur og gleði hefur verið haft að leiðarljósi hjá þessum hópi í góðu blandi við árangur. Fyrir tæpum 15 árum síðan varð hátíðin Sumar á Selfossi munarðarlaus og á sama tíma vantaði Knattspyrnufélag Árborgar fjármuni til að reka félagið. Lá því beinast við að félagið tæki að sér hátíðina sem fjáröflun en um leið að reyna að smita íbúa sveitarfélagsins af þeirri miklu gleði sem ríkir í Knattspyrnufélagi Árborgar. Vel hefur tekist og er þetta orðinn stærsti viðburðurinn í Árborg. Við vonumst innilega til að hátíðin muni halda áfram að vaxa í hugum ykkar og hjörtum.

Leikmenn, þjálfarar og stjórnarmenn sem mynda Knattspyrnufélag Árborgar þetta árið og standa að þessari hátíð eru:

Efsta röð: Gauti Gunnar Halldórsson, Guðmundur Gýgjar Sigurbjörnsson, Sveinn Kristinn Símonarson, Þorkell Þráinsson, Jón Þór Sveinsson, Gísli Magnússon, Þorvarður Hjaltason, Aron Darri Auðunsson, Bjarni Haukur Guðnason.

Miðröð: Þórarinn Smári Thorlacius, Halldór Rafn Halldórsson, Ingimar Helgi Finnsson, Ísak Leó Guðmundsson, Elfar Ísak Halldórsson, Elvar Orri Sigurbjörnsson, Andrés Karl Guðjónsson, Aron Freyr Margeirsson, Tomasz Luba, Sindri Rúnarsson og Eiríkur Sigmarsson.

Fremsta: Tómas Orri, Þormar Elvarsson, Þorsteinn Daníel, Stefán Blær, Magnús Hilmar, Sigurður Óli, Kristinn Ásgeir

Við hlökkum til að sjá þig um helgina og á vellinum.

Árborg ALLT!

LITASKIPTING Á HVERFUM - BYRJUM AÐ SKREYTA Á MIÐVIKUDAGINN - DÓMNEFND VERÐUR Á FERÐ Á LAUGARDAGINN

E i g n i r v a nt a r á s k r á

– í þí nu hver f i

Veg n a sí au k i n n a r e f t i r spu r n a r get u m v ið b æt t v ið ok k u r eig nu m a f öl lu m

st ærð u m o g gerð u m á S el fo s si. Með þv í að leit a t i l ok k a r kemu r þú þí nu m

m á lu m st r a x í ör u g g a r hendu r.

V ið er um umboðsmenn þínir.

R e y n sl a ok k a r sk i l a r s ér í sk jót r i þjónu st u s em sp a r a r þ ér b æ ð i t í m a o g p eni ng a .

N á n a r i u p p l ý s i n g a r á vef s íð u n n i l o g. i s

S endu ok k u r t öl v up ó st , h r i ngdu í sí m a 4 8 0 2 9 0 0 eð a komdu v ið á

sk r i f st of u ok k a r, A u st u r veg i 3, a l l a v i rk a d a g a m il l i k l. 9 o g 16 .

Grillum saman!

Á laugardeginum hvetjum við íbúa við allar götur á Selfossi að halda götugrill. Íbúar eru hvattir til þess að draga grillin og garðhúsgögnin fram á götu og kveikja í grillum kl: 17:30 og borða svo saman í framhaldinu og halda síðan öll saman á Brekkusönginn.

Menningargangan á Sumri á Selfossi

Menningargangan í ár er sú fjórtánda sem farin verður á bæjarhátíðinni Sumar á Selfossi 2024, laugardaginn 10. ágúst. Gangan hefst klukkan 15.00 á Sýslumannstúninu. Gengið verður austur Hrísholt undir leiðsögn Kolbrúnar Svavarsdóttur, yfir í Merkilandið þar sem Ólafur Sigurðsson tekur við leiðsögninni og leiðir hópinn svo yfir í Mjólkurbúshverfið þar sem verður farið yfir sögu húsanna.

Allir velkomnir og í enda göngunnar verður líkt og áður boðið upp á kaffi og kleinur. Göngustjóri verður eins og í öllum Menningargöngum hingað til, upphafsmaður þeirra Kjartan Björnsson rakari og formaður Menningarnefndar Árborgar.

ENDURBÆTT OG ENN BETRI VERSLUN!

Hver sem hugmyndin er - þá gerum við þetta saman!

Sumar á Selfossi... Sjáumst á

Viðtalið

„Sælan

með Skímó væri þemalag lífsins“

Janus Daði Smárason er 29.ára gamall Selfyssingur og einn okkar fremsti atvinnumaður, hann hefur leikið 72 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim 114 mörk. Hann leikur nú með ungverska liðinu SC Pick Szeged. Við heyrðum í Janusi og fengum hann í viðtal

Nú varst þú að færa þig um set frá Þýskalands meisturunum í Magdeburg til SC Pick Szeged. Hvernig líst þér á liðið og möguleika ykkar fyrir komandi tímabil?

Við komum 6 nýir leikmenn i sumar og nýr þjálfari svo það verður spennandi að sjá hvernig við komum út eftir undirbúningstímabilið . Þetta eru við og Veszprém að keppast um titlana í Ungverjalandi , og svo er stefnan að komast i final four i Champions League.

Hvernig er fyrstu vikurnar í Ungverjalandi búnar að vera?

Heitt og rólegt , kom út viku fyrir fyrstu æfingu með fjölskyldunni að koma okkur fyrir og fá smá sól.

Hver er þín eftirminnilegasta minning frá því að spila fyrir Selfoss ? Ég man alltaf eftir fyrstu leikjunum. Kom inn í úrslitakeppnina i 1.deild árið 2012. Annars er eftirminnilegasta þegar ég varð Íslandsmeistari i 3.flokki með bestu vinum minum.

Nú ertu búinn að vinna titla á Íslandi, Danmörku, Noregi og nú síðast í Þýskalandi. Er einhver einn titill sem stendur upp úr?

Allir hafa þeir sitt líf. Hver og einn stendur upp úr á sinn hátt. Engin aðstæða eins en alltaf jafn gaman.

Hvað gerir þú í þínum frítíma ?

Mér finnst frábært að komast út á golfvöll. Annars gríp ég reglulega í lyklaborðið þegar tækifæri gefst og spjalla við félaga mína i leiðinni.

Ertu með einhverja hjátrú/vana fyrir leiki?

Ég ákvað frekar snemma að reyna að vera laus við það . Vildi ekki lenda i þvi að geta notað það sem afsökun ef aðstæður myndu ekki leyfa.

Ef að lífið þitt væri með þemalag, hvaða lag væri það? Sælan – Skímó

Hvert stefnir þú? Hvar sérðu sjálfan þig eftir til dæmis 5 ár? 5 ár er enginn tími . Vonandi á svipuðum stað i dag nema þá kannski hæfari íþróttamaður.

Ertu með einhver ráð fyrir unga leikmenn sem vilja ná langt í sinni íþrótt? Því meira sem þú frestar ávinningum því stærri verður hann.

Ef þú klárar ferilinn á Íslandi, hvort væri það með Selfoss eða Haukum? Selfoss.

Eitthvað að lokum?

Kaupa nóg á barnum hjá strákunum í tjaldinu á Sumar á Selfossi

Endurgreiðslur í 30 ár

Á hverju ári fá þúsundir tjónlausra viðskiptavina Sjóvá Stofnendurgreiðslu. Þannig hefur það verið í 30 ár.

Sjóvá | Austurvegi 38 | 440 2000 | sudurland@sjova.is

Íbúar Árborgar skreyta húsin sín í litum hverfanna. Þátttakan hefur verið frábær undanfarin ár og vonumst við til að hún haldi áfram að aukast. Hvaða gata mun hljóta nafnbótina, Skemmtilegasta gatan í Árborg, og hver mun vinna best skreytta húsið.

Fimmtudagurinn 8. ágúst

18:30 - Jón Jónsson

Einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands mun halda fjölskyldutónleika í tjaldinu í Sigtúnsgarðinum. ATH ÞAÐ ER FRÍTT Á ÞESSA TÓNLEIKA Í BOÐI LINDEX.

19:30 - Grill og sprell í Sigtúnsgarðinum

Knattspyrnudeild Selfoss ætlar að selja eðal hamborgara meðan tónleikum stendur og þangað til fólk er orðið mett. Svo eftir tónleika mæta BMX Bros á svæðið ásamt Sprell leiktækjum og tívólíi.

21:00 - Leifur Viðars og Már verða með Pubquiz á miðbæjartorginu

Kahoot spurningakeppni verður haldin í Miðbænum. Láttu þig ekki vanta.

22:00 - Samsöngur með Guðrúnu Árný

Guðrún Árný hendir í eitt risa upphitunar partý á Miðbæjartorginu til að hita hressilega upp raddböndin fyrir helgina. Mælum með að allir syngi með og taki þátt.

Föstudagurinn 9. ágúst

14:00 - Olísmótið í knattspyrnu

Hið stórglæsilega mót knattspyrnudeildar Selfoss og Olís, Meistaradeild Olís í kattspyrnu, hefst kl 14:00 á Jáverkvellinum. Þar munu leikmenn 5. fl. karla etja kappi og munu verðandi landsliðsmenn í knattspyrnu láta ljós sitt skína. Mætið og fylgist með og styðjið ykkar lið til sigur. Fylgjast má með mótinu á www.olismot.is og á facebooksíðunni Meistaradeild Olís.

20:00 - Stuðlabandið ásamt RISAgestum

Stórtónleikar með Stuðlabandinu þar sem okkar ástkæra Jóhanna Guðrún og hinn magnaði Sverrir Bergmann munu troða upp með þeim. Tryggðu þér miða á þessa glæsilegu tónleika.

Laugardagurinn 10. ágúst

09:00 - Olísmótið

Olísmótið heldur áfram. Mætum og hvetjum okkar lið til sigurs.

Brúarhlaupið er orðinn fastur viðburður meðal íbúa Árborgar. Hlaupið er orðið stór partur af hátíðinni Sumar á Selfossi og hvetjum við sem flesta til að taka þátt, unga sem aldna. 11:30 - Brúarhlaupið

Alls konar fjör í Sigtúnsgarðinum fyrir

margbreytilegt handverk til sölu og sýnis

Árni Beinteinn og Sylvía Erla úr vinsælu sjónvarpsþáttunum Bestu lög barnanna mæta eldhress á svæðið og taka vel valin skemmtileg lög sem fá alla í stuð. Frábær skemmtun til þess að keyra upp stemninguna, syngja og dansa með! 14:00 -Barnadagskrá á útisviði

14:45 - Töframaðurinn Daníel Örn

Töfamaðurinn Daníel Örn mun leika listir sínar og verður spennandi að sjá hvað hann gerir.

15:00 - Menningargangan, göngum um

Selfoss

Fjórtánda Menningargangan 2024 á Selfossi.

Menningargangan í ár sú fjórtánda sem verður farin á bæjarhátíðinni Sumar á Selfossi 2024, laugardaginn 10. ágúst. Gangan hefst klukkan 15.00 á Sýslumannstúninu. Gengið verður austur Hrísholt undir leiðsögn Kolbrúnar Svavarsdóttur, yfir í Merkilandið þar sem Ólafur Sigurðsson tekur við leiðsögninni og leiðir hópinn svo yfir í Mjólkurbúshverfið þar sem verður farið yfir sögu húsanna. Allir velkomnir og í enda göngunnar verður líkt og áður boðið upp á kaffi og kleinur. Göngustjóri verður eins og í öllum Menningargöngum hingað til, upphafsmaður þeirra Kjartan Björnsson rakari og formaður Menningarnefndar Árborgar.

17:00 - Götugrill og garðagleði

Íbúar Árborgar sýna öllum hvað sé mikil samstaða í þeirra götu. Íbúar hittast og grilla og gera sér glaðan dag og hópast síðan allir saman í skrúðgöngum í bæjargarðinn og syngja af lífs og sálarkröftum á sléttusöngnum.

21:45 - Hátíðarávarp

Hátíðarávarp fulltrúa sveitarfélagsins verður áður en sléttusöngur hefst.

22:00 - Sléttusöngur

Árborgarinn Magnús Kjartan Eyjólfsson, heitasti trúbador landsins um þessar mundir, mun af sinni einstöku snilld leiða fjölmennasta kór Suðurlands í sléttusöngnum í Sigtúnsgarðinum. Íbúar hverfanna eru hvattir til að streyma tímanlega saman í Sigtúnsgarðinn. Veitt verða verðlaun fyrir skemmtilegustu götu Selfoss, sem mun hljóta þá nafnbót næsta árið. Hvaða gata verður það?

23:30 - Stuðlabandið í hátíðartjaldinu

Hið sjóðandi heita band, Stuðlabandið, mun sjá um að halda gleðinni áfram í Hvítatjaldinu Sigtúnsgarðinum fram á rauða nótt. Ekki hægt að biðja um það betra.- Tryggðu þér miða!

Sunnudagurinn

11. ágúst

09:00 - Úrslit Olísmótssins

Úrslitaleiki í Olísmótinu fara fram. Mættu og sjáðu góða og upprennandi knattspyrnudrengi leika listir sínar.

09:00 - Sprettþríþraut

Vertu með í sprett-þríþrautakeppni sem haldin er á Selfossi. Keppni hefst kl 9:20 sunnudaginn 11. ágúst. Þríþraut snýst um að synda, hjóla og hlaupa eins hratt og þú getur. Keppnin hefst á 750 metra sundi í Sundhöll Selfoss því næst eru hjólaðir 18 km um Selfoss og nágrenni og endar keppnin á 5 km hlaupi.

14:00 - Fjölskyldu Pub Quiz

Fjölskyldu Pub Quiz á Brúartorgi

15:00 - Fjölskyldubíó í Bíóhúsinu

Ljúkum þessari frábæru helgi með því að fara með alla fjölskylduna í bíó í Bíóhúsið.

H ll k stur í hádeginu-

OPIÐ 11:30-13:30 482-1770

Tryggvagötu 40, 800 Selfossi

eldhusid selfossi

Eldhúsið Selfossi

Við elskum Sumar á Selfossi

E i g n i r v a nt a r á s k r á

– í þí nu hver f i

Veg n a sí au k i n n a r e f t i r spu r n a r get u m v ið b æt t v ið ok k u r eig nu m a f öl lu m

st ærð u m o g gerð u m á S el fo s si. Með þv í að leit a t i l ok k a r kemu r þú þí nu m

m á lu m st r a x í ör u g g a r hendu r.

V ið er um umboðsmenn þínir.

R e y n sl a ok k a r sk i l a r s ér í sk jót r i þjónu st u s em sp a r a r þ ér b æ ð i t í m a o g p eni ng a .

N á n a r i u p p l ý s i n g a r á vef s íð u n n i l o g. i s

S endu ok k u r t öl v up ó st , h r i ngdu í sí m a 4 8 0 2 9 0 0 eð a komdu v ið á

sk r i f st of u ok k a r, A u st u r veg i 3, a l l a v i rk a d a g a m il l i k l. 9 o g 16 .

Átt þú rétt á bótum?

Slysa- og skaðabætur

Við erum umboðsmenn þínir

FASTEIGNASALA

Flestir eru vel tryggðir en þekkja ekki rétt sinn Ef þú hefur orðið fyrir skaða í slysi eða af öðrum völdum áttu í flestum tilfellum rétt á bótum Fyrsta viðtal við lögmann þar sem lagt er mat á réttarstöðu þín er þér alltaf að kostnaðarlausu

Í rúm 30 ár hafa Lögmenn Suðurlandi annast slysa og skaðabótamál Reynsla okkar skilar sér í skjótri þjónustu sem sparar þér bæði tíma og peninga

• Umferðarslys

• Vinnuslys

• Slys í frítíma

• Íþróttaslys

• Annar skaði, s s vegna líkamsárásar

Sendu okkur tölvupóst á netfangið selfoss@log is, hringdu í síma

480 2900 eða komdu við á skrifstofu okkar milli k l 9:0 0 –17:0 0

SLYSA- OG BÓTAMÁL

Verið velkomin í verslun Líflands

á Selfossi

Búrekstrarvörur - Hestavörur - Fóður

Gæludýravörur - Útivistarvörur

Al Alvö vöru r Mö Mömm mmum umat atur u Alvöru Mömmumatur

í há háde degi ginu n al alla l vi virk rka

hádeginu alla virka da daga g mi mill lli 11 1 - 13 13:30 3 daga milli 11 - 13:30

Sjáumst svöng! Sjáumst svöng!

Kahoot Pub Quiz & Singalong tröppusöngur í miðbænum

Fimmtudagur 8.ágúst

21:00 Leifur og Már mæta með sitt stórskemmtilega Kahoot Pub Quiz.

22:00 Guðrún Árný stýrir singalong tröppusöng með sinni alkunnu snilld

Sunnudagur 11.ágúst

14:00 Fjölskyldu Pub Quiz á Brúartorgi.

Hver biti skiptir máli

Vinsæla Arion Original hundafóðrið hefur nú verið endurbætt með meiri áherslu á náttúruleg bætiefni og ferskt kjöt. Arion Original kemur nú í nýjum umbúðum og meira úrvali. Veldu aðeins það besta fyrir hundinn þinn.

Arion Original fæst í Líflandi

Lífland Selfossi

Austurvegi 69

Sími 540 1165

Opið virka daga frá 9 - 17 og laugardaga frá 10 - 14

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.