Fréttabréf NSVE

Page 1

Stofnun samtakanna Þann 18. október 2011 var stofnfundur Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands haldinn í Gaflaraleikhúsinu við Víkingastræti í Hafnarfirði. Fundinn sóttu um 30 manns. Ellert Grétarsson flutti ávarp í upphafi fundar, Jóhannes Ágústsson var fundarstjóri og Björn Pálsson fundarritari. Á fundinum voru samþykkt nafn, lög og stefnuskrá Náttúrverndarsamtaka Suðvesturlands, skammstafað NSV og árgjald félaga. Samkvæmt lögum NSV geta menn gerst stofnfélagar til 1. janúar 2012 og eru félagar um þessar mundir um 100 talsins. Á fundinum fjallaði Inga Sigrún Atladóttir, forseti bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga, m. a. um lagningu Suðvesturlínu um Vatnsleysustönd, Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur, lýsti jarðfræði svæðisins og þegar gerðum og ætluðum gufuaflsvirkjunum og Ellert Grétarsson sýndi ljósmyndir af ýmsum nátturúperlum þar. Forsögu stofnunar NSV má rekja til fundar undir fyrirsögninni „Björgum Reykjanesskaganum“ í Firði í Hafnarfirði þann 20. september 2011 sem boðaður var af þeim Ellerti Grétarssyni og Jóhannesi Ágústssyni. Þar flutti Ellert Grétarsson

inngangserindi, þeir Sigmundur Einarsson jarðfræðingur og Ómar Smári Ármannsson leiðsögumaður fjölluðu um jarðfræði og náttúru Suðvesturlands, og Jóhannes Ágústsson fjallaði um þjóðgarðsmál á Suðvesturlandi. Fundinn sóttu um 20 manns og mynduðu þeir undirbúningsnefnd að stofnun náttúruverndarsamtaka. Á stofnfundi NSV voru eftirtalin kjörin í stjórn samtakanna: Björn Pálsson, Hveragerði, Ellert Grétarsson, Keflavík, Eydís Franzdóttir, Vatnsleysuströnd, Helena Mjöll Jóhannsdóttir, Hafnarfirði og Jóhannes Ágústsson Hafnarfirði. Verkaskipting stjórnar er þessi: Jóhannes er formaður (johannes49@simnet.is), Björn ritari (bjornpal@simnet.is), Eydís gjaldkeri (ef@ismennt.is), Ellert fjölmiðlafulltrúi (elg@elg.is) og Helena Mjöll meðstjórnandi (mjollin@simnet.is). Skoðunarmaður reikninga NSV var kjörinn Sigurður Jakob Halldórsson, Ásbrú.

Athugasemdir við Rammaáætlun Stjórn NSV tók þegar til óspilltra málanna hvað varðar gerð athugasemda við


Drög að þingsályktunartillögu um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði. Alls báust 225 athugasemdir og má lesa þær á vefsíðunni rammaaaetlun.is. NSV og ritari samtakanna áttu sjö þessara athugasemda þ. e. númer: 74, 82, 86, 89, 90, 96, 97. Auk þess áttu NSV þátt í sameiginlegri athugasemd 13 samtaka, númer 210, kennd við ritara athugasemdarinnar Rannveigu Magnúsdóttur. Á meðal samtakanna 13 eru Landvernd, Fuglavernd og Náttúruverndarsamtök Suðurlands. Vekja má sérstaka athygli á eftirfarandi athugasemdum, númer: 9 Hveragerðisbær – bæjarráð; 14 Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar; 21 Hafnarfjarðarbær; 45 Grindavíkurbær; 105 Samtök ferðaþjónustunnar; 142 Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur; 161 Ferðafélagið Útivist; 197 Friðrik Dagur Arnarson (vann að Rammaáætlun); 201 Græna netið og 224 borgarráð Reykjavíkur. Síðasti skiladagur athugasemda var 11. nóvember 2011.

Fundur í Hveragerði Þann 10. nóvember stóðu NSV fyrir almennum borgarafundi í Hveragerði. Á fundinum fluttu Björn Pálsson, ritari NSV, og Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur, erindi. Björn lýsti athafnasvæði Hellisheiðarvirkjunar og þeim fjölmörgu spurningum sem þar er ósvarað s.s. um mengunarvarnir og Sigmundur endurflutti erindi sitt frá stofnfundi með ýtarlegri lýsingu á Hellisheiðarog Nesjavallavirkjunum. Sigmundur telur það svæði þegar fullnýtt ef horft er til eðlilegs líftíma gufuaflsvirkjanna þar. Þeir Björn og Sigmundur ásamt Birgi Þórðarsyni, heilbrigðisfulltrúa, svöruðu fyrirspurnum ríflega 30 fundargesta. Þær fyrirspurnir beindust einkum að skaðlegum áhrifum

jarðvarmavirkjanna á heilsu manna. Það viðhorf ítrekar að náttúruvernd er jafnframt heilsuvernd. Fundarstjóri var Jóhannes Ágústsson, formaður NSV. Fundinn sátu um 30 manns og meirihlutinn skráði sig í Náttúrverndarsamtök Suðvesturlands.

Athugasemdir við Svæðisskipulag Suðurnesja Þann 17. nóvember, á skiladegi, afhentu NSV aðstandendum athugasemdir varðandi drög að svæðisskipulagi Suðurnesja 20082024. Átti Ellert Grétarsson veg og vanda að athugasemdum NSV. Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum, Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar eru aðstandendur þessa svæðisskipulags auk Skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar, Landhelgisgæslunnar og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Nánari upplýsingar um svæðisskipulagið má fá á heimasíðum aðstandenda.

Suðvesturlína Samþykkt Sveitarfélagsins Voga hinn 28. september 2011, að breyta aðalskipulagi sveitarfélagsins í þá átt að heimila lagningu jarðstrengs í stað loftlína um land þess, hefur vakið verðskuldaða athygli náttúruverndarfólks. Öflug samtök íbúa sveitarfélagsins hafa með baráttu sinni stuðlað að samþykkt þessari. NSV standa heilshugar að baki samtökum þessum sem og samþykkt bæjarstjórnar og munu veita þeim allan þann stuðning sem í þeirra valdi stendur. Eydís Franzdóttir, stjórnarmaður NSV, er virkur þátttakandi í baráttunni á Vatnsleysuströnd. Fulltrúar Voga, með Ingu Sigrúnu Atladóttur, forseta


bæjarstjórnar, í fararbroddi hafa m. a. hitt að máli bæði atvinnuveganefnd og umhverfis- og skipulagsnefnd Alþingis í þessu sambandi.

Árósarsamningurinn Í formála Árósasamningsins sem var undirritaður í Árósum 25. júní 1998 er: - sérstök áhersla lögð á tvö grundvallaratriði: umhverfisrétt sem mannréttindi annars vegar og mikilvægi aðgangs að upplýsingum, þátttöku almennings og aðgangs að réttlátri málsmeðferð við sjálfbæra þróun hins vegar. sú hugmynd að fullnægjandi umhverfisvernd sé undirstaða þess að menn geti notið grundvallarmannréttinda tengd þeirri hugmynd að hver einstaklingur eigi rétt á að lifa í heilbrigðu umhverfi og honum beri skylda til að vernda umhverfið. - dregin sú ályktun að til þess að geta krafist þessa réttar og sinnt þessari skyldu verði borgarar að hafa aðgang að upplýsingum, hafa rétt til þátttöku í ákvarðanatöku og njóta réttlátrar málsmeðferðar í umhverfismálum. - viðurkennt að sjálfbær og vistvæn þróun byggist á virkri ákvarðanatöku stjórnvalda sem grundvallist bæði á umhverfislegum sjónarmiðum og framlagi almennings. Þegar stjórnvöld veiti almenningi aðgang að upplýsingum um umhverfismál og geri honum kleift að eiga aðild að ákvarðanatöku stuðli þau að markmiðum samfélagsins um sjálfbæra þróun. Ísland verður frá og með 1. janúar fullgildur aðili að Árósarsamingnum en þá ganga í gildi Lög um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011. Lög þessi eru lokahnykkurinn í setningu

laga á Íslandi sem tengjast samningnum. Hin eru Lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000; Lög um breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr 106/2000, og skipulags- og byggingarlögum, nr. 73/1997, með síðari breytingum og Lög um upplýsingarétt um umhverfismál nr. 23/2006. Í lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála segir m. a. „Úrskurðarnefnd umhverfisog auðlindamála hefur það hlutverk að úrskurða í kærumálum vegna stórnvaldsákvarðana og ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála...(1. gr.).“ „Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir til úrskurðarnefndarinnar sem eiga lögvarða hagsmuni tengda ákvörðun sem kæra á. Umhverfisverndar-, útivistar- og hagsmunasamtök með minnst 30 félaga geta þó kært eftirtaldar ákvarðanir án þess að sýna fram á lögvarða hagsmuni enda samrýmist tilgangi samtakanna að gæta þeirra hagsmuna sem kæran lýtur að: a. ákvarðanir Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda, sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum og endurskoðun matsskýrslu samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, b. ákvarðanir um að veita leyfi vegna framkvæmda sem falla undir lög um mat á umhverfisáhrifum, c. ákvarðanir um að veita leyfi samkvæmt lögum um erfðabreyttar lífverur til sleppingar eða dreifingar erfðabreyttra lífvera...(4. gr.).“ reifingar erfðabreyttra lífvera...(4. gr.).“


Nýjir félagsmenn Landvernd Svæðisbundin starfsemi Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands leggja nú á það höfuðáherslu að afla nýrra félagsmanna. Lögð hefur verið áhersla á að afla sem flestra félaga en halda félagsgjöldum í lágmarki. Árgjald er kr. 1.500. Á félagssvæði NSV eru íbúar nálægt 230.000. NSV gætir mjög mikilvægra hagsmuna íbúanna. Lög þau sem byggja á Árósarsamningunum gefa NSV möguleika á að kæra hverskonar framkvæmdir á vegum hins opinberra, fyrirtækja eða einsaklinga er teljast að áliti samtakanna ógna náttúru og umhverfi. Í því augnamiði að NSV geti sinnt hlutverki sínu væri ráðning starfsmanns í hlutastarf mikilvægur áfangi. Þetta er ekki mögulegt nema með stuðningi íbúa við málstað samtakanna, með því að þeir gerist félagsmenn í NSV. Landvernd eru heildarsamtök náttúruverndarsamtaka á Íslandi. Í samræmi við lög NSV eru samtökin ein aðildarsamtaka Landverndar. Með tilliti til mikilvægis starfsemi Landverndar fyrir NSV mætti hugsa sér að 10% tekna NSV rynni til Landverndar. Eftir því sem NSV vex ásmegin geta samtökin stutt frekar við starfsemi svæðisbundinna samtaka og hópa er sinna náttúruverndar- og umhverfismálum á Suðvesturlandi.

Fésbókar- og heimasíða Eins og margir félagar NSV vafalaust þekkja til þá getur á Fésbókinni að líta síðu nokkra er kallast „Náttúruvernd á Reykjanesskaga“. Á síðu þessari birtast nánast daglega og stundum oft á dag fréttir og upplýsingar tengdar náttúru- og umhverfisvernd á Suðvesturlandi og starfsemi Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands. Fésbókarsíðan hóf starfsemi sína áður en NSV voru stofnuð og á fjölmiðlafulltrúi samtakanna Ellert Grétarsson, ljósmyndari og leiðsögumaður, veg og vanda að henni. Hugmyndin er að breyta nafni síðunnar í „Náttúruvernd á Suðvesturlandi“. Auk þess er ætlunin að setja á fót heimasíðu NSV þar sem birtar verða upplýsingar sem ætlast er til að félagsmenn geti haft aðgang að til lengri tíma s. s. lög og stefnuskrá samtakanna, fundargerðir o. s. frv.

Aðgerðir í Krýsuvík 2012 Þann 8. janúar 2012 eru liðin 100 ár frá fæðingu hins ástsæla jarðfræðings Sigurðar Þórarinssonar, sem lést 8. febrúar 1983. Sigurður var á meðal þeirra er áttu frumkvæði að náttúruvernd á Íslandi. Sagan segir að þetta frumkvæði hafi hann tekið þá honum blöskraði umgangur manna um náttúruperluna Krýsuvík og þá sérstaklega Grænavatn, sem óvandir aðilar nýttu sem ruslagryfju. NSV og væntanlega fleiri náttúruverndarsamtök vilja minnast 100 ára afmælisárs þessa náttúruvinar m. a. með viðhöfn í Krýsuvík. Reynir Ingibjartsson, stjórnarmaður í Hraunavinum og jafnframt einn stofnfélaga NSV, hefur kynnt ýmsar athyglisverðar hugmyndir í þessu sambandi. Af hálfu


stjórnar NSV mun Helena Mjöll Jóhannsdóttir sinna þessu verkefni fyrst og fremst. Félagar í NSV, er telja sig hafa möguleika á að sinna 100 ára

afmælisminningunni, eru hvattir til að hafasamband við Helenu Mjöll: mjollin@simnet.is.

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands óska félagsmönnum gleðilegra jóla og farsælls komandi árs!

Jafnframt minnum við á jólagjöfina í ár sem er félagsaðild að samtökunum, sérstaklega handa unga fólkinu! Tryggið vinum og vandamönnum stofnfélagsaðild að NSV! Náttúrverndarsamtök Suðvesturlands ------------------


Stofnfélagsaðild að Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands:

Nafn:

Heimili:

Netfang:

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Stjórn Náttúrverndarsamtaka Suðvesturlands Jóhannes Ágústsson formaður Björn Pálsson

Ellert Grétarsson

Eydís Franzdóttir Helena Mjöll Jóhannsdóttir


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.