Dagskráin 8. apríl - 14. apríl 2021

Page 56

VILT ÞÚ VERA Í OKKAR LIÐI? Krambúðin Reykjahlíð leitar eftir starfsmanni í almenn verslunarstörf. Um er að ræða fullt starf frá 1. maí til 31. ágúst með möguleika á áframhaldandi hlutastarfi í vetur. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Krambúðin er skemmtilegur og líflegur vinnustaður og hentar starfið einstaklingum af öllum kynjum.

Hæfniskröfur: • Rík þjónustulund • Sjálfstæði • Snyrtimennska • Reynsla af verslunarstörfum er kostur • Skipulögð vinnubrögð Helstu verkefni: • Áfyllingar á vörum • Afgreiðsla • Þjónusta við viðskiptavini • Framstillingar

Umsóknarfrestur: 15. apríl 2021. Frekari upplýsingar veitir verslunarstjóri í gegnum netfangið reykjahlid@krambudin.is Umsóknir skulu berast í gegnum heimasíðu Samkaupa: samkaup.is (Atvinnuumsóknir). Samkaup hf. rekur yfir 60 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Iceland og Samkaup strax. Hjá félaginu starfa um 1400 starfsmenn í rúmlega 700 stöðugildum.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.