1 minute read

Lituð krem

GUINOT framleiðir lituð dagkrem sem bæði gefa fallega og frísklega áferð ásamt því að meðhöndla húðina. Með því móti gefur það möguleika að nota þau ein og sér þó sértækari virkni náist með því að nota serum eða annað krem undir þau. Lituðu kremin hafa þá eiginleika að brjóta ljósið upp og endurkasta því þannig að línur og önnur lýti verða ekki eins sjáanleg. Til viðbótar framleiðir GUINOT undirkrem og hyljara til að ná jafnari áferð í þeim tilfellum þar sem húðlýti af einhverjum toga eru til staðar.

Í litalínu eru: § Litað dagkrem sem gefur mikinn raka (BB krem) § Litað varnarkrem gegn öldrun og litaflekkjum § Kremfarði sem hefur endurnýjandi og stinnandi eiginleika (DD krem) § Hyljari sem bæði meðhöndlar og þekur vel húðlýti § Undirkrem fyrir húðlýti, línur og grófar húðholur

Advertisement