3 minute read

Sólarlína

Sun Logic

Með SUN LOGIC sólarlínunni frá GUNOT fær húðin enn fullkomnari vörn en áður gegn geislum sólar. Hægt er að njóta sólar á skynsamlegan hátt án óþæginda með sólarvörn sem inniheldur efni sem lágmarka skaðleg áhrif sólargeisla en hámarkar jákvæðu eiginleikana og veitir húðinni fallegan lit. GUNOT býður fram SUN LOGIC sólarlínu með öflugu varnarkerfi sem hindrar ljósöldun húðar en jafnframt sefar og veitir henni fallegan, langvarandi brúnan lit. Sólarlínan inniheldur engin paraben rotvarnarefni.

Advertisement

Sólarlína með varnarkerfi gegn öllum geislum litrófsins

SUN LOGIC sólarlínan veitir möguleika á að njóta sólar á öruggari hátt en áður með því að hjálpa húðinni að verjast niðurbroti og neikvæðum áhrifum sólargeisla. Litarefni húðar, melanín, er eitt besta vopn hennar gegn skaðlegum geislum sólar. GUINOT var í fararbroddi með íbætt DNA úr jurtaríkinu í sólarlínu sinni til að verja kjarna húðfruma. Með því að nota jurta-DNA dregur úr ljósöldrun húðar. Í sólarvörn dregur það til sín ÚF geislana og verndar þannig hið eiginlega DNA húðfrumna. Jurta-DNA sameindir ásamt ÚFA og ÚFB sólvarnarsíum vernda sameindabyggingu húðar fullkomlega gegn skaðlegum ÚF geislum sólar. Með SUN LOGIC vörunum er húðin ekki eingöngu varin gegn ÚF geislum sólar heldur öllum geislum litrófsins eins og innrauðum og bláum geislum. SUN LOGIC vörurnar eru ekki eingöngu að vernda gegn geislun heldur innihalda kröftug efni sem viðhalda heilbrigði húðar. GUINOT ráðleggur að nota nýju SUN LOGIC vörurnar sem dagkrem yfir serumin yfir sumartímann.

Lykilefni í SUN LOGIC sólarlínunni er: § ÚFA og ÚFB sólarsíur sem vernda húðina gegn rafsegulbylgjum með því að gleypa eða frákasta ÚF geislum. ÚF geislar eru ábyrgir fyrir ljósöldrun húðar og hrukkumyndun, sólbruna og ertingu húðar ásamt því að örva melanínmyndun og gera húðina brúna. § Jurta-DNA sameindir sem dragað til sín ÚF geislana og verndar þannig hið eiginlega DNA húðfrumna og sameindabyggingu húðar gegn skaða ÚF geisla. § Elastoprotectin er prótín sem er unnið úr nornaherslisjurtinni (witch hazel) sem hamlar niðurbroti elastíns sem er hluti af stoðvef húðar. Það myndar lífrænan skjöld sem hlífir gegn stakeindavirkni vegna geislunar sólar og lágmarkar þannig oxunarálag sem vefirnar verða fyrir í sól. § Jurtamelanín eykur varnarhæfni húðar. Kemur til móts við ljósöldrun húðar og gleypir bláa geisla litrófsins (380-500 nm).

Bláir geislar eru hluti af litrófi ljóssins en myndast líka frá tilbúnum ljósgeislum eins og LED ljósi sem að hluta til er notað við skjái eins og tölvu eða farsíma.

DNA Verndar DNA í frumukjarna

MELANIN/LUTEIN Verndar DNA húðar gegn skaðlegu bláu ljósi ELASTOPROTECTIN Verndar elastin þræði

Í SUN LOGIC sólarlínunni er:

■ Uppbyggjandi andlitskrem með háa vörn SPF50 - Age Sun Summum ■ Augnkrem gegn ljósöldrun SPF 50 - Age sun ■ Andlitskrem gegn ljósöldrun SPF50 - Age Sun ■ Létt varnarolía fyrir líkamann með hárri vörn SPF50 - Age Sun ■ Krem fyrir líkamann með hárri vörn SPF50 ■ Andlitskrem gegn ljósöldrun SPF 30 - Age Sun ■ Smyrsl fyrir sérstök viðkvæm svæði - Age Sun Balm 50+ ■ Sólvarnarúði fyrir líkamann SPF30 - Age Sun ■ Sólarvarnarúði fyrir líkamann SPF15 – Age Sun ■ Litað andlitskrem SPF20 - Uni Bronze Age Sun ■ Andlitskrem fyrir og eftir sól - Longue Vie Soleil ■ Húðmjólk eftir sól - Longue Vie Soleil Corps ■ Maski eftir sól – Longue Vie Soleil maski

Brúnkukrem og brúnkuhylki

■ Brúnkumjólk fyrir líkama - Autobronze ■ Brúnkuhylki (brúnkuhvati) - Pro-Sun

Gagnleg ráð:

■ Bera sólvarnaráburð að minnsta kosti 30 mínútum áður en farið er út í sól og endurnýja áburðinn á tveggja tíma fresti til að viðhalda fullkominni vörn. ■ Endurnýja sólvörnina eftir sund, eftir æfingar eða þegar húð er þerruð með handklæði. ■ Bera andlits-sólvarnarkrem yfir serumið og undir farða daglega yfir sólríka mánuði. ■ Nauðsynlegt að nota sólarvörn í björtu veðri þó engin sól sé til staðar. ■ Mjög mikilvægt að kæla húð eftir sólargeislun. ■ SUN LOGIC sólarlínan hentar allri fjölskyldunni og er framleidd eftir nýjustu stöðlum franska lyfjaeftirlitsins og ISO vottun.

Að bera á sólarvörn: