Reikningar Nótubækur Eyðublöð Fjölritunar- og útgáfuþjónustan s: 437 2360
ÍBÚINN
frétta- og auglýsingablað
3. tbl. 11. árgangur
21. janúar 2016
Íþróttamaður Borgarfjarðar Helgi Guðjónsson knattspyrnumaður var kjörinn íþróttamaður Borgarfjarðar við athöfn í félagsheimilinu Brún um síðustu helgi. Hlaut hann titilinn annað árið í röð. Alls voru þessir 14 tilnefndir: Aðalsteinn Símonarson fyrir akstursíþróttir, Anton Elí Einarsson og Arna Jara Jökulsdóttir fyrir dans, Arnar Smári Bjarnason fyrir frjálsar íþróttir, Birgitta Dröfn Björnsdóttir fyrir dans, Daði Freyr Guðjónsson og Marta Carrasco fyrir dans, Einar Örn Guðnason fyrir kraftlyftingar, Guðmunda Ólöf Jónasdóttir fyrir sund, Helgi Guðjónssson fyrir knattspyrnu,
Ingibjörg Rósa Jónsdóttir fyrir badminton, Konráð Axel Gylfason fyrir hestaíþróttir, Sigtryggur Arnar Björnsson fyrir körfuknattleik, Sigursteinn Ásgeirsson fyrir frjálsar íþróttir, Viktor Már Jónasson fyrir knattspyrnu og Þorgeir Ólafsson fyrir hestaíþróttir. Veitt voru verðlaun fyrir 5 efstu sætin og var sem fyrr segir Helgi Guðjónsson í 1. sæti. Í 2. sæti var Einar Örn Guðnason, Aðalsteinn Símonarson var í 3. sæti, Konráð Axel Gylfason í 4. sæti og Arnar Smári Bjarnason í 5. sæti. Einnig voru veittar viðurkenningar til þeirra sem áttu
sæti í landsliðum Íslands á árinu 2015, en UMSB átti þar 6 fulltrúa: Bjarki Pétursson landslið í golfi, Daði Freyr Guðjónsson landslið í dansi, Harpa Hilmisdóttir landslið í badminton, Helgi Guðjónsson U-17 landslið í knattspyrnu, Konráð Axel Gylfason landslið í hestaíþróttum og Þorgeir Þorsteinsson U-15 landslið í körfuknattleik. Við þetta tækifæri veittu einnig nokkur aðildarfélög UMSB verðlaun og auk þess var úthlutað úr minningarsjóði Auðunns Hlíðkvist Kristmarssonar. Brynjar Snær Pálsson knattspyrnumaður hlaut þann heiður.