Skátablaðið 2018

Page 1

skátablaðið 1. tölublað 2018

Varúð:

Eldfim verkefni fyrir skátastarfið! 1


í þessu blaði:

Grunngildin drekar fálkar dróttir rekkar & róver fullorðnir Skátaaðferðin

Falinn fjársjóður | Uppþvottaboðhlaup | Brauð á teini | Stórleikir

Bananaleikurinn | Umgengni við hnífa | Flugnavörnin mikla

Spurningakönnun | Blaðamennska | Flekagerð

Hornstrandir | Gönguferðir | Þinn eigin svitalyktareyðir

Verkefnahugmyndir | Leiðtogaþjálfun | Góð ráð fyrir útileguna

2

Skátablaðið | 1. tölublað 2018

4 6 10 14 18 26


Ritstýruspjall

Skátablaðið, 1. tbl 2018 Útgefandi: Bandalag íslenskra skáta (BÍS) Ritstjórn: Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir (ritstýra), Heiður Dögg Sigmarsdóttir, Magnús Geir Björnsson og Sunna Líf Þórarinsdóttir. Aðrir pistlahöfundar: Arnór Bjarki Svarfdal, Vala Hauksdóttir (þýðingar). Prófarkalestur: Heiður Dögg Sigmarsdóttir. Útlit og umbrot: Inga Auðbjörg Straumland. Ljósmyndir: Halldór Valberg Skúlason og Anna Margrét Sverrisdóttir. Ábyrgðarmaður: Kristinn Ólafsson Áskrift: Breytingar á póstfangi tilkynnist í síma 550 9800 eða með tölvupósti á netfangið skatar@skatar.is Bandalag íslenskra skáta Hraunbær 123 110 Reykjavík Sími: 5509800 Netfang: skatar@ skatar.is Vefföng: skatamal.is og skatar.is Facebook: Skátarnir Snapchat: Skatarnir Instagram: @skatarnir #skatarnir Bandalag íslenskra skáta er aðili að WAGGGS, World Association of Girl Guides and Girl Scouts og WOSM, World Scout Organisation of the Scout Movement.

Breyttar áherslur Skátablaðsins Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir, ritstýra

Fyrir þremur árum síðan bauðst mér að taka þátt í Upplýsingaráði BÍS. Hluti af starfi mínu fyrir ráðið er að semja Skátablaðið. Ég hef gaman að því að skrifa greinar og taka viðtöl og vinnan hefur mér fundist skemmtileg, lærdómsrík og gefandi. Vinnan á bakvið Skátablaðið er þó meiri en flesta órar fyrir. Það þarf til að mynda að velja viðfangsefni, skrifa greinar, endurskrifa greinarnar, hella upp á kaffi, finna réttu myndirnar, prófarkalesa, brjóta um blaðið, drekka kaffið, safna auglýsingum og ýmislegt fleira. Því er mikilvægt að blaðið skili tilsettum árangri og þjóni tilgangi sínum, en þá er einmitt nauðsynlegt að staldra aðeins við og velta fyrir sér: Hver er tilgangurinn með útgáfu Skátablaðsins?

Upplýsingar á nýjum vettvangi

Ég hóf smá rannsóknarvinnu og skoðaði eldri eintök af blaðinu. Það sem ég sá voru blöð sem höfðu þann tilgang að upplýsa

skáta landsins um allt það helsta sem skeð hafði síðastliðið ár. Upplýsingaflæði er vissulega mikilvægt fyrir félagasamtök á við skátana, en í dag höfum við fleiri leiðir til þess að uppfylla upplýsingaskylduna. Í einu orði: Netið. Við erum með nokkra vefi á vegum skátanna, Facebookhópa, Instagram-aðgang og síðast en ekki síst; Þriðjudagspóstinn.

Gott skátastarf er góð auglýsing

Svo virðist sem að ákveðinn samhugur sé innan skátahreyfingarinnar um að besta auglýsingin fyrir skátana sé gott skátastarf. Stuðningur við skátaforingjann skiptir þar höfuðmáli.

starfsemi skátanna síðustu misseri, þá kynnir blaðið hvern aldurshóp fyrir sig með fjölbreyttum verkefnum. Landsmót aldursbila og umhverfið eru sérstök áhersluatriði í blaðinu. Tilgangur blaðsins er hreinlega að stuðla að góðu skátastarfi með hugmyndum að verkefnum. Von ritstjórnar er að blaðið komi til með að nýtast sem hugmyndabanki fyrir einstaka skáta, sveitir, flokka og sjálfboðaliða. Að blaðið sé tímalaust, nýtist sem kynningarefni og geymist á góðum stað. Ég vona að þið séuð jafn spennt fyrir blaðinu og ég er! Bestu skátakveðjur til ykkar allra,

Vigdís Fríða

Þetta blað gengur út á skátastarf. Blaðið er ekki upptalning á atvikum og afrekum skátanna síðastliðið ár, heldur verkefnamiðað upplýsingarrit fyrir alla þá sem vilja stunda virkt skátastarf næsta veturinn og í framtíðinni. Í stað greinargerða um 3


grunngildi skátahreyfingarinnar Hvernig fer skátastarf eiginlega fram? Í skátunum förum við í útilegur, vinnum góðverk, syngjum og segjum sögur, klífum fjöll og lendum í ævintýrum, en hvað liggur eiginlega á bakvið þetta allt? Svarið er skátaaðferðin! Skátaaðferðin samanstendur af átta þáttum sem allir haldast í hendur og vinna sem ein heild að því að gera skátastarf skemmtilegt, lærdómsríkt, ögrandi og einstakt. Ef það rúmast innan skátaaðferðarinnar, þá er það skátastarf!

Skátalög, skátaheitið og kjörorð skáta

Saman mynda lögin, heitið og kjörorðið siðaboðskap skátanna. Allt okkar starf snýst um að læra að lifa eftir gildunum sem felast í þeim. Þegar þú gengur í skátana ferð þú með skátaheitið og lofar að halda skátalögin. Þau eru leiðarvísir í lífinu, eins konar siðferðislegur áttaviti, jafnt innan sem utan skátastarfs. Það er þó ekki þannig að lögin og heitið séu utanbókarlærdómur. Þau eru frekar eins konar hugarfar sem við temjum okkur hægt og rólega. Þau lýsa því hvernig skáti er og vill vera.

Flokkakerfið

Skátaflokkurinn er grunneining skátastarfs, þ.e. langstærsti hluti skátastarfs á að fara fram í flokknum. Flokkurinn samanstendur af 4-8 skátum sem mynda vinahóp þar sem meðlimirnir vinna verkefni saman og skipta með sér hlutverkum. Einn er valinn flokksforingi og hann eða hún verkstýrir flokknum. Gott er að krakkarnir skiptist á að vera flokksforingjar. Skátaflokkar mynda síðan saman skátasveitir og skátafélög sem fullorðnir foringjar leiða, en flokkurinn er aðalatriðið!

Stuðningur fullorðinna

Hér er lykilorðið stuðningur. Skátarnir eru nefnilega grasrótarhreyfing barna og ungmenna, en fullorðnir styðja við starf þeirra. Hlutverk fullorðinna er annars vegar formlegt - t.d. að sjá til þess að öryggis sé gætt, fjármál séu í lagi, foreldrar séu upplýstir, lögum sé fylgt og skátaaðferðin notuð - og hins vegar óformlegt - t.d. að vera jákvæðar fyrirmyndir, hvetja gott starf og búa til stemmingu - en alltaf eru það börnin og ungmennin sjálf sem eiga að vinna verkefnin. Þau ráða og þau gera. Skátaforingi er stóri bróðir eða systir, ekki yfirmaður, kennari eða herforingi.

Framfarir einstaklingsins

Hvað meina skátar með “framförum einstaklingsins?” í raun tvennt: • Í fyrsta lagi að enginn getur allt, en allir geta eitthvað. Allir geta lært og þroskast. Það er hlutverk skátaforingjanna að finna þetta „eitthvað” og hjálpa krökkunum að blómstra á því sviði. • Í öðru lagi að skátar fylgjast með og viðurkenna framfarir. Þetta má t.d. gera með markmiðasetningu, merkjum, viðurkenningum, hátíðum o.fl. Svo lengi sem fylgst er með framförum og þær viðurkenndar. 4

Skátablaðið | 1. tölublað 2018


Reynslunám

Þetta hefur oft verið nefnt „að læra með því að gera” (e. learning by doing). Í skátunum eiga verkefnin að vera áþreifanleg og tengjast raunverulegri reynslu barnanna. Þau eiga að fá að leysa verkefnin sjálf. Reynslunám er andstæðan við fyrirlestra og bókalestur, enda fer skátastarf fram í leikjum, verklegum viðfangsefnum og raunhæfum verkefnum. Sem dæmi: ef skáti ætlar að læra á áttavita, þá les hann ekki um segulgráður í bók, heldur fer hann í fjallgöngu þar sem hann þarf að reiða sig á áttavita. Það er þó ekki nóg að bara „gera” - það þarf líka að undirbúa og endurmeta. Krakkarnir eiga sjálfir að fá aðkomu að því að velja og undirbúa verkefnin, framkvæma þau svo sjálf og endurmeta þau svo. Þannig verður lærdómurinn dýpri en með eintómum æfingum.

Texti: Arnór Bjarki Svarfdal. Tákn hönnuð af Freepik og fengin af Flaticon.com

Táknrænn rammi

Orðið skáti þýðir könnuður og vísar til þess að skátinn kannar nýjar lendur, bæði táknrænt og bókstaflega. Þetta setur tóninn fyrir skátastarf og er dæmi um „tákn.” Í skátunum vinnum við með stórar hugmyndir og til að tengja þær betur við reynsluheim og ímyndunarafl krakka notum við tákn, sögur, hefðir og fyrirmyndir. Saman nefnist þetta „táknrænn rammi.” Hér er af ógrynni að taka, og augljósust eru ýmis ytri tákn á borð við skátabúninga og skátakveðjur. Með því að segja sögur, búa til hefðir í skátaflokkum og vísa í jákvæðar fyrirmyndir má t.d. gera skátalögin áþreifanlegri. Táknin og sögurnar búa líka til mikla „skátastemmingu” og eru þannig góð verkfæri til þess að búa til samheldni og félagsskap. Innan táknræna rammans falla líka þemu, t.d. Skógarlífs þema drekaskátanna. Einfalt verkefni á borð við að kveikja eld verður að ævintýri ef foringinn tengir eldinn við söguna af rauða blóminu í Skógarlífi.

Náttúran

Skátastarf á að fara fram í náttúrunni, í sátt við náttúruna og fjalla um náttúruna. Skátar fara í útilegur vegna þess að þær eru smekkfullar af lærdómstækifærum. Náttúran er risastór skólastofa þar sem hægt er að læra sjálfsbjargarviðleitni, virðingu, samvinnu og ýmsa verklega færni. Úti í náttúrunni má öðlast líkamlegt hreysti og andlega vellíðan. Hægt er að vinna með náttúruna á margan hátt, t.d. með fjallgöngum, klifri, siglingum og öðru útilífi, en einnig með útileikjum, föndri úr náttúrulegum hráefnum, umhverfisvernd, og náttúrufræði. Allt þetta á svo náttúrulega að leiða til löngunar til að vernda náttúruna. Enda er skáti náttúruvinur.

Samfélagsþátttaka

Markmið skátanna er að þroska börn og ungt fólk til þess að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir þátttakendur í samfélaginu. Það verður auðvitað ekki gert nema skátastarfið hafi einhvern snertiflöt við samfélagið. Skátar eiga að gera starf sitt sýnilegt og velta fyrir sér hvernig verkefnin nýtast þeim sem þátttakendur í samfélaginu. Skáti er nefnilega virkur gerandi, ekki óvirkur áhorfandi. Að vinna ýmis sjálfboðastörf fyrir nærsamfélagið, gera góðverk, rækja skyldur sínar og temja sér hjálpsemi ætti að vera stór hluti skátastarfsins. Skáti spyr sig: Hvernig verð ég virkari þátttakandi? Með því að læra skyndihjálp? Baka köku? Kjósa til þingkosninga? 5


Drekaskátar | 7-9 ára

Glaðværir grallarar

Drekaskátar hittast og læra nýja hluti innan- sem utandyra. Skátastarf þeirra einkennist af ævintýrum, leikjum og spennandi verkefnum í hópi jafnaldra. Lögð er áhersla á hjálpsemi og glaðværð, sjálfstæði og tillitssemi, ábyrgð og virðingu fyrir náttúrunni.

a g e l t t u t S #

Falinn fjársjóður! Viltu sjá hvernig náttúran fer með ólíka hluti? Í þessu verkefni er nokkrum hlutum safnað og þeir síðan grafnir niður. Eftir um það bil hálft ár eru þeir grafnir upp aftur til að skoða hvernig þeir líta út.

í blómapottinn, hann fylltur með mold og svo grafinn niður þannig að efsta brún standi aðeins upp úr jörðinni.

Fyrsti hluti verkefnis: Safnið nokkrum mismunandi hlutum sem þið viljið prófa að grafa niður. Setjið hlutina í blómapott og grafið hann svo niður í jörðina!

• •

Áður en hlutirnir eru grafnir niður er giskað á það hve lengi þeir eru að brotna niður í náttúrunni. Gott er að taka ljósmyndir af því sem þið settuð í blómapottinn og búa til lista yfir það sem fór í hann. Þá er allt sett

6

Skátablaðið | 1. tölublað 2018

Hvað getum við grafið niður? Hér eru nokkur dæmi!

• • • • • • • • • • •

Eplahýði Umbúðir utan af nammi Tyggjó Bananahýði Álpappír Vírbútur Appelsínubörkur Plastpoki Spotti Blað Nagli Eggjaskurn Brauðsneið

Annar hluti verkefnis: Þegar liðið er hálft ár er blómapotturinn grafinn upp aftur. Setjið upp rannsóknarstofu og skoðið það sem er eftir af hlutunum og berið saman við ágiskanirnar sem þið skráðuð niður þegar þið grófuð pottinn niður.


Uppþvottaboðhlaup! Þegar skátasveitin ykkar hefur borðað ljúffenga máltíð og það eina sem á eftir að gera fyrir fundarslit er að vaska upp, þá er um að gera að búa til smá leik úr því!

Tímavélin! Hefur þú einhverntímann óskað þess að þú gætir fengið bréf frá sjálfum þér í fortíðinni? Það er mögulegt með þessu verkefni! Það sem þarf: • Blöð • Blýanta • Umslög • Traustan aðila til þess að passa uppá bréfin

Verkefnalýsing: 1. Ákveðið hvenær þið viljið fá bréfin frá ykkur sjálfum aftur. Ætlið þið að láta hálft ár líða? Eitt ár eða jafnvel tvö? 2. Setjist niður með blaðið og blýantinn, veltið fyrir ykkur hverju þið viljið koma til skila við “ykkur í framtíðinni”. 3. Skrifið allt sem þið viljið í bréfið, setjið það í umslag og lokið því. 4. Látið skátaforingjann ykkar eða annan traustan aðila hafa bréfin. Þegar tíminn er liðinn lætur hann ykkur svo hafa bréfin.

Lýsing á leik: 1. Sveitinni er skipt upp í tvö lið sem standa við línu, um það bil 5 metrum frá þeim stað þar sem uppþvotturinn fer fram. Sami fjöldi óhreinna mataríláta er settur annað hvort í einn stafla sem allir þátttakendur taka af eða í tvo minni stafla. 2. Ílát með sápuvatni og hreinu vatni fyrir hvorn hóp. 3. Svo hefst keppnin: Einn keppandi úr hvoru liði hleypur að þvottastaðnum, þvær, skolar og þurrkar eitt ílát, leggur það á fyrirfram ákveðinn stað og hleypur til baka. 4. Sá næsti hleypur þá

af stað og þannig fer leikurinn fram þar til allt leirtau er hreint. 5. Athugið: Leikurinn hentar best úti en má auðvitað leika inni, en þá þarf að þrífa gólfið á eftir. Þátttakendur eiga alls ekki að hlaupa með uppvaskið og æskilegt er að hafa enga beitta hnífa með í leiknum.

7


landsmót drekaskáta Á landsmóti drekaskáta var ýmislegt brallað. Þar á meðal bakstur, klifur, bogfimi, vatnsslagur, þrautabraut, poppað popp og blindraþraut. Skoðum þetta nánar.

Brauð á teini Uppskrift fyrir 5

Innihald

2,5 dl hveiti 1 tsk lyftiduft 0,5 tsk salt 1 dl vatn

Aðferð

1. Kveiktu varðeld eins og sannur skáti! 2. Blandaðu innihaldsefnunum saman í skál, hnoðaðu deigið og rúllaðu í mjóar lengjur. 3. Vefðu brauðlengjunni um endan á löngum teini eða trjágrein. 4. Njóttu!

Góð ráð

Ef eldurinn er aflangur komast fleiri að honum. Einnig má vefja öllu deiginu um eina grein eða trjábút sem komið er fyrir yfir eldinum og snúið öðru hvoru meðan deigið bakast.

Komdu með mér í blindraþraut! Það eina sem þarf í blindraþrautina er eitthvað til þess að binda fyrir augun. Hægt er að framkvæma þrautina nánast hvar sem er.

Lýsing á verkefni:

Veljið einn aðila til þess að vera tímabundið blindur. Hinir í hópnum leiðbeina hinum blinda

8

Skátablaðið | 1. tölublað 2018

í því verkefni sem hann þarf að sinna. Það getur til dæmis verið að ná í eitthvað, ganga þrautabraut eða búa til spilaborg. Einnig er hægt að útfæra leikinn þannig að sá blindi matar annan einstakling. Alls kyns útfærslur eru í boði en þær krefjast allar samvinnu.

#STUTTLEGA


5 góð ráð til að gera velheppnaðan stórleik Hvað er stórleikur? Einfalt svar, það er stór leikur sem inniheldur marga minni leiki. Stórleikir geta verið bæði flóknir eða einfaldir og geta hentað drekum jafnt sem „ávallt skátum“ á besta aldri. Leikirnir geta verið af ýmsum toga; sumir eru einstaklingsmiðaðir, aðrir henta fyrir hópa. Oft eru leikirnir settir í ævintýralegan búnað með þema, þemun eru svo stundum sett í samhengi með spilaborði eða markaði sem þátttakendur verða að nýta til að vinna og klára leikinn. Að skapa góðan stórleik getur verið tímafrekt, en hér eru nokkur ráð sem geta komið að góðum notum.

1. Uppbygging Fyrst er gott að spyrja hver tilgangur leiksins á að vera: er þetta stigakeppni, eða keppni um að komast á endapunktinn á spilaborðinu, þarf að finna efnivið til að búa til pizzu eða smíða eitthvað, eða þarf að snúa á og sigra „vonda karlinn“ eða hin liðin?

2. Hagkerfi Flestir stórleikir innihalda einhverskonar hagkerfi. Það gæti verið allt frá baunum yfir í ávísanir

sem skátarnir þurfa að safna með því að leysa þrautir. Gjaldmiðillinn er í raun og veru ekkert annað en leið til að halda utan um stig liðanna. Til að flækja leikinn má nota gjaldmiðilinn sem „lykil“ að lausn leiksins, til dæmis til að kaupa sér teningaköst fyrir spilaborð, efnivið í lokaverkefnið (t.d. grillpinna til að byggja brú, - liðið með sterkustu brúna vinnur í lok leiksins). Núna er aðal spurningin, gengur hagkerfið upp? Hversu mörg verkefni þarf að leysa og hversu mörg stig fást fyrir hvert? Hvað taka verkefnin langan tíma og hvað þarf að klára mörg til að geta klárað leikinn? Þetta kemur í veg fyrir að leikurinn klárist óvænt á mikið styttri tíma en var áætlað eða þá að leikurinn ætli aldrei að taka enda.

3. Þema Stórleiki má oft tvinna saman við þema viðburðarins. Sem dæmi má nefna að á Drekaskátamótinu voru táknrænar fyrirmyndir drekaskáta nýttar í stórleikinn, skátarnir unnu verkefni á mismunandi þroskasviðum og fengu límmiða með myndum af Bagheera, Balú, Kotick og félögum. Þema

mótsins getur til dæmis endurspeglast í búningum póstastjóranna, skreytingum á spilaborði, heildarhugmynd í uppbyggingu og fleiru.

4. Verkefni Þegar uppbygging, útfærsla og hagkerfi hafa verið hönnuð þarf að búa til verkefnin sjálf sem eru megininnihald leiksins. Verkefnin, eða þrautirnar, geta verið af fjölbreyttum toga, til dæmis limbó, hrópa bottom-sjú, labba aftur á bak á stultum, borða sítrónusneið, syngja lag eða gera manngerðan pýramída. Þrautirnar eiga að reyna á vitsmunalega og líkamlega burði. Þær eiga einnig að stuðla að samvinnu og útsjónarsemi hópsins.

5. Reglur Það er lykilatriði að allir skilji reglurnar, hvort sem það eru drekaskátar í upphafi einfalds stórleiks, eða fullorðnir skátar sem eru að fara að hefja margslunginn leik þar sem nauðsynlegt er að beita kænsku. Vertu búin/n að hugsa fyrirfram hvernig þú vilt koma reglunum til skila og prófa að útskýra leikinn fyrir einverjum sem tók ekki þátt í að búa hann til.

9


Fálkaskátar | 10-12 ára

Ólm í ævintýri! Fálkaskátar eru á aldrinum 10 - 12 ára. Flokkarnir velja sér spennandi verkefni til að fást við og vinna saman að margskonar verkefnum. Starfið á fyrst og fremst að vera spennandi og skemmtilegt. Verkefnin, fundirnir og útilegurnar búa skátana undir lífið með því að auka þekkingu og færni. Lögð er áhersla á virkni, ábyrgð, virðingu fyrir sér og öðrum, sjálfstæði og náttúruna.

Bananaleikurinn Vantar þig skemmtilegan ísbrjót? Þá er banana leikurinn málið!

Hér eru einfaldar leiðbeiningar:

1. Sveitinni er skipt í jöfn lið. 2. Hverju liði er fenginn einn banani. 3. Hvert lið leggst í beina línu með tá í haus með smá millibili. 4. Banani er látinn ganga frá fremsta manni til þess aftasta en aðeins má meðhöndla bananann með fótunum. 5. Seinasti maður borðar bananann og hleypur því næst fremst í röðina og leggst niður. 6. Liðið sem fyrst klárar þrautina fær banana í verðlaun.

Vantar þig fleiri dagskrárhugmyndir? Kynntu þér dagskrárpakkann „Byggjum betri heim“ á vef skátanna.

A

B

D

Ð

E

É

F

G

H

Í

J

K

Ert þú orðin(n) þreytt(ur) á að fá aldrei að ráða neinu? Þá er þessi leikur tilvalinn fyrir flokksfundinn þinn!

Hér eru einfaldar leiðbeiningar:

1. Flokkurinn myndar hring og einn leggst á grúfu í miðjunni. 2. Með handbendingum og án þess að tala ákveður flokkurinn hver sé foringinn fyrir þessa umferð. 3. Skátinn í miðjunni stendur upp. 4. Foringinn gerir einhverja sérstaka hreyfingu og skiptir reglulega um hreyfingu, allir hinir í hringnum herma eftir hreyfingunni. 5. Skátinn í miðjunni hefur þrjú gisk til að komast að því hver sé foringinn. Ef giskið er rétt fer foringinn í miðjuna, annars er miðjumaðurinn aftur í miðjunni og leikur hefst á ný (skref 1-5 endurtekið).

M

N

P

R

S

A Á B D Ð E É F G H I Í J K L

M

N O Ó P

R

S T U

Skátablaðið | 1. tölublað 2018

I

Fylgdu foringjanum

L

10

Á

Heimsókn í endurvinnslustöð!

O

Ó

T

U

Hafið þið séð hvað verður um ruslið sem við hendum? Það er kjörið tækifæri fyrir skátasveitir að fara saman og heimsækja endurvinnslustöð í nágrenni við skátaheimilið. Þá er einnig mögulegt að heimsækja Græna skáta sem er fjáröflunarfyrirtæki skátanna. Bæði er hægt að fara í vettvangsferð í Hraunbæ og á Eldshöfða.

Aðferð:

Fáðu foringjann þinn til þess að panta kynningu fyrir sveitina. Farið saman í vettvangsferðina og takið sérstaklega vel eftir: • Hvað verður um plast? • Hvað verður um pappír? • Hvað verður um það sem fer í almenna ruslið?

Ígrundun:

Eftir ferðina gæti verið góð hugmynd að spjalla saman um það sem þið lærðuð, • Er eitthvað sem kom ykkur sérstaklega á óvart? • Flokkið þið í skátaheimilinu? • En heima hjá ykkur? • Er eitthvað sem þið gætuð gert betur sjálf? Ú

V

X

Y

Ý

Þ

Æ

Ö

Ú V X

Y

Ý

Þ

Æ

Ö


Getur þú leyst dulmálið? ÞAÐ ER ÞESS VIRÐI AÐ GLEÐJA AÐRA SKÁTAR BROSA OG FLAUTA UNDIR ÖLLUM KRINGUMSTÆÐUM EKKERT KEMUR SKÁTA Á ÓVART HANN HEFUR RÁÐ UNDIR RIFI HVERJU KLÚTURINN ER SAMEININGARTÁKN OKKAR HANN BRÝTUR Á BAK ÞAÐ SEM AÐGREINIR OKKUR ÞJÓÐERNI OG STÉTT 11 11


landsmót FÁLKAskáta Á Laugum í Sælingsdal þar sem kvenskörungurinn Auður Djúpúðga nam land var haldið landsmót fálkaskáta 5.-8. júlí síðastliðinn. Táp, fjör og ísbirnir voru einkennandi fyrir þetta glæsilega mót. Fjölbreytt dagskrá var á mótinu og meðal annars var boðið upp á að taka þátt í ísbjarnar áskorun, spjalla við talandi hrafn, prjóna og þæfa að hætti landnema, leita uppi seiðkonu og margt fleira. Einnig má nefna að snilldar kvöldvaka var haldin á laugardagskvöldinu og hlaupið var á eftir fljúgandi matartjöldum á sunnudagsmorgninum. Landsmótið á Laugum var frábært og allir sem komu að skipulagningu, framkvæmd og þátttöku eiga rikk tikk skilið.

a g e l ð ó j þ # 12

Hreinna og beinna Notaðu bitið með viti! Til þess að allt fari vel fram í útilegum og að allt dótið komi aftur heim er mikilvægt að tileinka sér nokkrar reglur í útilegum og lengri ferðum. Hefð er fyrir tjaldbúðaskoðunum þar sem farið er yfir hvort allt sé ekki í tipp topp ástandi í tjaldbúðinni. Hér eru nokkrar reglur sem gott er að hafa í huga og eru oft notaðar í tjaldbúðaskoðun: • Hreinlæti skáta, tennur, hár, hendur, neglur og allt hitt. • Uppsetning tjalda, passa þarf að stög og hælar séu almennilega fest og strekkt. • Rusl í tjaldbúð, allt í poka og ekkert á jörðinni. • Umgengni í tjaldi, allt dót í bakpoka nema dýna og svefnpoki sem er raðað snyrtilega í svefnrými. Pokum og skóm raðað í forstofu tjalds. • Eldhússvæði snyrtilegt og brunavarnir í lagi.

Skátablaðið | 1. tölublað 2018

-10 ráð um umgengni við hnífa.

Það er fátt skemmtilegra en að geta búið til næstum hvað sem er með skátahnífnum þínum. Gleymdist grillspaðinn heima? Hvernig væri að tálga bara nýjan úr eldiviðarhrúgunni? Hér eru 10 öryggisráð um hvernig er gott að meðhöndla hnífa á öruggan hátt: 1. Geymdu hnífinn alltaf í hulstri og láttu oddinn vísa niður. 2. Gættu að því þegar hnífurinn er tekinn úr hulstri að hönd komist aldrei í snertingu við hnífsblaðið. 3. Þegar þú notar hnífinn sitjandi gættu að því að olnbogar hvíli á hnjám og að hnífurinn sé vel frá líkamanum. 4. Skerðu alltaf í átt frá líkamanum. 5. Hafðu rúmt pláss í

kringum þig þegar þú vinnur með hníf. 6. Hafðu alltaf blaðið beitt, beittur hnífur er öruggur hnífur. 7. Notaðu stöðugt undirlag þegar þú skerð með hníf. 8. Notaðu réttan hníf í verkið, pældu í stærð og lagi blaðsins. 9. Fylgstu vel með og einbeittu þér þegar þú notar hníf. 10. Geymdu samanbrjótanlega hnífa alltaf samanbrotna.


Þinn eiginn klútur Fátt er skemmtilegra en

að eiga flottan mótsklút og ekki er leiðinlegra ef maður gerir hann sjálfur! Þetta verkefni var gert á Fálkaskátamótinu 2018 en þú getur gert það líka sjálf/ur heima, hvort sem er fyrir flokkinn þinn, sveitina eða næstu ævintýraferð.

Hvað þarf: •

• • •

Eitthvað efni (geggjað sniðugt að nota gömul föt, eða rúmföt.) Skæri eða hníf. Málningu eða tússpenna. Skraut og fylgihluti.

Hvernig?

1. Taktu efnið þitt og klipptu út hyrnu, það er sniðugt að merkja útlínur á efnið áður en hafist er handa við að klippa út hyrnuna. 2. Skreyttu klútinn. Núna er tíminn til að láta sköpunargleðina leika lausum hala, gamlar rúnir, skemmtilegar myndir og margir litir voru það sem einkenndi meistaraverkin á Fálkaskátamótinu. Skraut og fylgihlutir eru sérlega kúl á heimatilbúnum klútum, litlir hlutir eins og band með apahnút á endanum eða fallegur hnappur af gamalli peysu er það sem setur punktinn yfir i-ið.

Hvernig fer maður í gott hæk?

1. Skipulegðu leiðina vel, veldu leið, taktu kort og gagnlega fylgihluti með eins og áttavita. 2. Taktu sjúkrakassann með og passaðu að allt sé á sínum stað í honum. 3. Pakkaðu nesti og vatnsflösku. 4. Passaðu að vera klædd/ur eftir aðstæðum. 5. Láttu vita hvert þú ert að fara, hvað þú ætlar að vera lengi og hvenær þú kemur aftur. 6. Taktu fullorðinn með og drífðu þig af stað!

Flugnavörnin mikla Stundum gerist það í útilegum á Íslandi að veður er gott. Þrátt fyrir að það sé ekki jafn oft og við vildum flest, þá er mikilvægt að vera undir það búinn. Á landsmóti fálkaskáta var veðrið gott alveg fram að seinasta deginum en þá fór að hvessa. Þessu góða veðri fylgdi mikið af flugu og hér til hliðar eru örfá ráð til að verjast þessum skaðræðisskepnum:

• • •

• •

Settu hendina upp, flugur leita að hæsta punkti. Leitaðu að golu, flugur fíla ekki vind. Haltu umhverfinu þínu hreinu, flugur og matarafgangar eru bestu vinir. Láttu köngulærnar í friði, þær eru með þér í liði. Búðu til þína eigin flugnagildru, hér til hliðar er ein einföld og fljótleg.

Vantar þig fleiri dagskrárhugmyndir? Kynntu þér færnimerkin á vef skátanna.

Hvað þarf? • • • • • • • • •

Plastflösku Sætan vökva (til dæmis gos eða safi) Hníf Límband Hvernig fer ég að? Skerðu efsta hlutann af flöskunni (sirka þriðjung). Láttu stút flöskunnar snúa niður og legðu ofan á flöskuna. Límdu stútinn við flöskuna Helltu vökvanum ofan í flöskuna.

Lifðu áhyggjulaus með aðeins færri flugum!

Háskalaust hæk Þegar þú er orðin/n

þreytt/ur á skátasveitinni á næstu flöt, sem virðist vera með ging gang-gúlí gúlí fast í hálsinum, er afbragðs hugmynd að skella sér í gott hæk. Að mörgu er þó að huga áður en haldið er af stað. 13


Dróttskátar | 13-15 ára

Djarfar dróttir Dróttskátaflokkar fá mikið frelsi til þess að velja sér verkefni sjálfir en áherslan er ábyrgð á eigin starfi. Þátttaka í ákvörðunum og undirbúningi er mikil á þessum aldri.

Hversu mörg rétt svör fékkstu?

0 - 2: Við mælum með að þú takir skátaforingjann þinn með í næstu ferð! 3 - 4: Ekki svo slæmt, þú kannt greinilega ýmislegt en það má alltaf bæta sig! 5 - 6: Vel gert! Þú ert augljóslega útivistartýpan og ert með allt á hreinu!

Getur þú bjarurgnanði? þér í náttú nun Spurningðaskpjaönra þig

a í Kannt þú spýtur úti in ig e á fið upp ró p ni? Taktu ikla náttúrun m u út hvers ú og finndu þ i n arviðleit sjálfsbjarg hefur!

1. Lifðu af! - Hvað af þessu er mikilvægast? A. Matur. B. Skýli. C. Vatn. 2. Svalaðu þorstanum hvað áttu að gera ef eina drykkjarvatnið sem þú finnur er saltvatn/sjór? A. Drekka vatnið, það er mikilvægt að líkaminn fái eitthvað vatn. B. Sleppir því að drekka vatnið, saltvatn gerir þig þyrstari en þú varst fyrir. C. Drekka vatnið, steinefnin í

saltvatninu hjálpa þér að lifa af. 3. Eitthvað í kroppinn - Hungur steðjar að en það er enginn matur sjáanlegur. Hvað gerirðu? A. Sleikir stein/hraun, inniheldur steinefni. B. Sleppir því að borða, heilinn hugsar svo rökrétt þegar hann er svangur. C. Borðar pöddur eða flugur, þær innihalda prótein. 4. Finndu réttu leiðina -

14 14 Skátablaðið Skátablaðið | 1. |tölublað 1. tölublað 2018 2018

hvert af þessum ráðum hjálpa þér ekki við rötun? A. Staðsetning sólarinnar á himninum, sólin rís í austri og sest í vestri. B. Árfarvegur áa, vatnið rennur alltaf frá norðri í suður. C. Staðsetning skugga á hlut, skugginn snýr yfirleitt í vestur. 5. Kallaðu á hjálp! - Ef að þú ert með vasaljós, prik eða byssu (fyrir fullorðna), hversu oft áttu að senda merki svo

það þýði ósk um aðstoð? A. 3 B. 6 C. 9 6. Góður nætursvefn - Ef þú ert með jakka meðferðis, hvernig er best að halda á sér hita yfir nótt? A. Hengja hann yfir þig svo hann skýli þér fyrir rigningunni. B. Leggja hann undir þig svo hann skýli þér fyrir kaldri jörðinni. C. Leggja hann yfir þig svo hann skýli þér fyrir köldu loftinu.

Rétt svör: 1: C, 2: B, 3: C, 4: B, 5: A, 6:B


Súra ruslatunnan Ertu súr? Er ekki flokkað í tjaldbúðinni þinni? Ekki vera súr, súrraðu frekar hina fullkomnu flokkunarstöð með plássi fyrir öll lífrænu súru eplin og alla endurvinnanlegu pappírspokana þína!

Hér eru einfaldar leiðbeiningar: 1. Farðu á Youtube og finndu Square Lashing, Diagonal Lashing og Tripod Lashing. Þessar þrjár súrringar ættu að gefa þér góðan grunn til að geta súrrað næstum hvað sem er. 2. Teiknaðu upp flokkunarstöðina þína á blaði eða notaðu aðra teikningu. 3. Safnaðu saman því sem þú þarft, hníf, spottum, trönum og öðru sem teikningin gefur til kynna að þú þurfir. 4. Ef spýtur eru reknar niður í jörðina á teikningunni er það gert fyrst. 5. Súrraðu! 6. Flokkaðu!

Dagsferðir • Lengri ferðir Útivistarhópar • Námskeið Utanlandsferðir FJA L L A L E I D S O G U M E N N . I S M O U N TA I N G U I D E S . I S

Blundar í þér blaðamaður? Hefur þig alltaf langað að prófa greinaskrif? Þá ættir þú kannski að prófa þetta með skátaflokknum þínum!

Efniviður: • Tölva • Pennar • Pappír • Ljósmyndir • Leikja og þrautabækur • Gömul fréttabréf og tímarit

Undirbúningur

Ræðið og takið ákvörðun um: • Þema blaðsins, innihald, uppsetning, fjöldi eintaka, kostnaður o.fl. • Hver er markhópurinn ykkar? - hverjir ættu að lesa blaðið? • Hugmyndir að greinum og þema í blaðið: Upphaf skátahreyfingarinnar, stofnun skátafélagsins. • Mikilvægir atburðir í sögu félagsins. Viðtöl við unga sem aldna; til dæmis minningar úr starfinu, hvaða gildi skátastarf hefur haft í þeirra lífi eða uppáhaldsiðja í starfinu. • Skiptið verkefnum á flokkinn, t.d. að lesa gömul blöð, taka viðtöl, skoða skjalasöfn. • Hver á að ritstýra blaðinu? Hver ber ábyrgð á hverju?

Framkvæmd:

Mörg ritvinnsluforrit, t.d. Microsoft Publisher, koma með fyrirfram útbúnum formum og römmum sem gætu hjálpað við hönnun á útliti og uppsetningu. • Fáið einhvern, sem ekki hefur verið með í framleiðsluferlinu til að lesa greinarnar og fáið prófarkalesara til að lesa yfir málfar og stafsetningu. • Safnið auglýsingum til að fjármagna prentun. • Gerið lokabreytingar og lagfæringar fyrir prentun. • Leitið tilboða í prentun eða ljósritun blaðsins. • Látið prenta og dreifið. • Verið viss um að eintak af blaðinu berist til bókasafns, bæjarstjóra, héraðsskjalasafns, ritstjóra héraðsblaðsins og skiljið einnig

eftir nokkur eintök hér og þar, t.d. á kaffihúsum eða í íþróttamiðstöðinni. Athugið! Munið að fá samþykki fyrir notkun efnis sem fer í blaðið!

Endurmat:

Ræðið saman um hvernig ykkur þótti til takast. • Var undirbúningur verkefnisins góður eða mátti gera betur? • Hvernig gekk að útvega allt efnið í blaðið? • Gátu allir tekið virkan þátt í verkefninu? • Hvað munduð þið gera öðruvísi ef þið ætluðuð að útbúa annað blað? • Var verkefnið skemmtilegt? • Hvað lærðuð þið um skátastarf? • Hvað lærðuð þið af því að vinna verkefnið? • Eruð þið ánægð með blaðið ykkar? 15


landsmót Dróttskáta Landsmót dróttskáta var haldið 20.-24. júní í Viðey. Dagskráin var margslungin enda margt hægt að gera í Viðey og nágrenni. Skátarnir fóru meðal annars í fjallgöngu, sigu niður kletta, spiluðu fótbolta, bjuggu til fleka og dönsuðu af sér gönguskóna á hinu árlega bryggjuballi.

Vélmennið

Fluga í fjallgöngu

Það er alltaf fjör á bryggjuballinu, en þú getur komið fjörinu á hærra plan með að sýna öllum hvað þú ert frábær dansari! Einn auðveldur skemmtilegur dans er vélmennadansinn. Til þess að dansa vélmennadansinn þarftu að hugsa eins og þú sért vélmenni. Allar hreyfingar eru stífar og beinar. Fyrsta skref er að standa bein/nn með hendur út til hliðanna. Þú hreyfir bara einn líkamshluta í einu, t.d lætur hendina frá olnboga detta niður eða labbar eins og vélmenni. Hljóðbrellur gera muninn á ryðguðu þreyttu vélmenni og vel smurðu ofur vélmenni. Fáðu vini þína með í vélmennadansinn og takið saman yfir bryggjuballið!

Á leiðinni upp og niður tindinn er ágætt að vera með eitthvað skemmtilegt hliðarverkefni. Ein þvottaklemma getur gert gæfumun í útilegum, fjallgöngum og lengri ferðum.

#fjörlega 16

Skátablaðið | 1. tölublað 2018

Foringinn byrjar með fluguna (þvottaklemmuna) og markmið leiksins er að láta annan aðila fá fluguna án þess að hann taki eftir því. Þegar þið stoppið á leiðinni upp fjallið, þá er athugað hvert flugan hefur ferðast og sá aðili sem er með hana þarf að draga sér eitt verkefni og framkvæma það í pásunni. Athugið! Passið að allir séu meðvitaðir um leikinn. Gott er að fara vel yfir leikreglur áður en flugan fer af stað.

Dæmi um verkefni: • • • • • • •

Hrópa hróp Gefa foringja bita af nestinu þínu Halda á tösku annars skáta Syngja félagssöng Herma eftir foringjanum Sýna fimleika atriði Segja örsögu sem inniheldur orðin fluga, fákur og ferskja.


Farsæl flekagerð Það eykur styrk að takast á við verkefni sem þetta. Hugmyndaflug og samvinna er líka nauðsynleg.

Lýsing á verkefni Fleki er gerður úr sterkum, þurrum trönum sem eru bundnar saman. Flekinn er byggður rétt við vatnið og tryggja þarf að hann fljóti vel. Ágætt er að nota stórar olíutunnur eða tunnur úr plasti sem bundnar eru fastar með reipi. Komið flotholtunum fyrir eins nálægt brúnum flekans og hægt er til að koma í veg fyrir að honum hvolfi þegar setið er utarlega á honum. Ágætt er að reikna með 100 lítra af lofti til að halda uppi hverjum skáta.

Undirbúningur Ræðið og takið ákvörðun um; • Hvar er heppilegt að sigla flekanum. Öruggast er að vera á vatni þar sem straumur er lítill. • Hvar er heppilegt að byggja flekann með tilliti til aðfanga og sjósetningar. • Hversu stór flekinn á að vera. Útbúið vandaða vinnuteikningu af flekanum. Það má bæði finna teikningar í ýmsum verkefnabókum skáta og kennslumyndbönd á netinu (leitið með leitarorðunum How to build a raft?) Útbúið efnislista yfir allt efni og búnað sem þarf til verkefnisins, skipuleggið og skiptið á milli ykkar efnisútvegun. • Skipuleggið flutning efnis og aðfanga á byggingastað. • Farið vandlega yfir öll

möguleg öryggisatriði og skráið þau niður. Leitið leyfa fyrir verkefninu og siglingunni (landeigandi, sveitarforingi, foreldrar).

Framkvæmd Þegar öll leyfi eru fengin, efni komið á byggingarstað og búið að tryggja alla öryggisþætti er ekki eftir neinu að bíða með að hefjast handa við flekasmíðina. Hafið með ykkur nokkur eintök af vinnuteikningunni þannig að allir geti unnið í einu. Að smíðinni lokinni er rétt að setja flekann á flot þar sem aðgrunnt er í fjörunni. Bindið kaðal í flekann og stjakið honum mannlausum frá landi í fyrstu atrennu. Þannig sjáið þið hvernig hann flýtur, hvort hann hallar og hvort gera þurfi á honum einhverjar breytingar. Þegar allt er klárt þá stökkvið þið um borð og siglingarævintýrið hefst.

Frágangur Hluti verkefnisins er að ganga frá öllu efni og búnaði. Skila því sem fengið var að láni og þakka fyrir ykkur.

Efni og búnaður Fjórar olíutunnur ættu að duga til að halda uppi átta skátum. Langar trönur, kaðlar, snæri, árar, björgunarvesti, farangur.

Endurmat

Ræðið saman um hvernig ykkur þótti til takast: • Var undirbúningur verkefnisin s góður eða mátti gera betur? • Hvernig gekk að útvega allt efni og búnað og koma því á staðinn? • Gátu allir tekið virkan þátt í verkefninu? • Hvað mynduð þið gera öðruvís i ef þið ætluðuð að útbúa fleka aftur? • Var verkefnið skemmtilegt? • Hvað lærðuð þið af verkefn inu? • Hvað lærðuð þið af því að vinna verkefnið? • Eruð þið ánægð með flekasmíðina ykkar?

17


Rekkaskátar | 16-18 ára

hugrekkið uppmálað

Rekkaskátar eru á aldrinum 16 - 18 ára. Á þessum aldri eru skátarnir komnir með mjög mikið frelsi í starfi. Rekkaskátar velja sjálfir hvaða viðfangsefni þeir taka fyrir. Forsetamerkið er aðal einkenni aldurshópsins.

30 daga plastlaus áskorun

Plast endist í þúsundir ára og er ekki gott fyrir umhverfið. Það er sérstaklega slæmur kostur fyrir einnota notkun. Leggðu þitt af mörkum til að draga úr plastnotkun, þó ekki sé nema í einn mánuð. Kannski verður það að lífsstíl!

Hefur þú áhuga á plastlausum lífstíl? Þú finnur nánari upplýsingar á vefsíðunni plastlausseptember.is

Bannað að nota og kaupa: • Einnota hnífapör, plaströr, plastglös, plastdiska og plastpoka • Matvöru í plasti • Snyrtivörur í plastumbúðum og með plastögnum • Þurrvörur í plastumbúðum • Tannbursta úr plasti • Plastfilmu • Allt einnota plast! Hugmyndir að lausnum: • Taktu með þér fjölnota hnífapör, glös, mataráhöld og rör. • Notaðu fjölnota poka við innkaup. • Prófaðu að fá þér tannbursta úr bambus. • Leitaðu uppi búðir sem selja umbúðalausar vörur. Athugið! Ef að þú neyðist til þess að nota plast, passaðu þá að það sé margnota og endurvinnanlegt.

18

Skátablaðið | 1. tölublað 2018

Hefur þú tekið þátt í alþjóðastarfi?

Innan skátahreyfingarinnar gefast mörg tækifæri til þess að taka þátt í alþjóðastarfi. Viltu dæmi um slík? Þú getur skellt þér á landsmót skáta í öðru landi! Þú getur tekið þátt í alls kyns alþjóðlegum viðburðum! Skátaflokkurinn þinn getur ákveðið að hafa alþjóðaþema á fundi! Þú getur orðið sjálfboðaliði í skátamiðstöðvum víðsvegar um heiminn! Ef þú hefur áhuga getur þú sent Alþjóðaráði BÍS póst á netfangið althjodarad@skatar.is eða fylgst með Facebook hópnum Tækifæri í Alþjóðastarfi.

Pappírsskátinn föndrar!

Það er hægt að finna ótal aðferðir við origami á netinu og gera þannig einfalt blað að einhverju allt öðru! Nánast hverju sem er. Viltu skreyta íbúðina þína með pappafuglum? Gefa frænku þinni seðil í afmælisgjöf sem lítur út eins og gítar? Eða bíll? Æfðu þig! Það eina sem þarf er blað og þolinmæði til verksins.


Þrjár skotheldar leiðir til að laga kaffi úti í náttúrunni Gleymdu instant kaffinu og vektu ferðafélagana með almennilegu kaffi í næstu útilegu! Hér á eftir fylgja þrjár leiðir til að brugga hinn fullkomna kaffibolla við frumstæðar aðstæður. Það er nefnilega ekkert mál að laga gott kaffi ef maður hefur aðferðirnar á hreinu.

Aeropress – fljótlegt og bragðgott Tekur um 1.5 mín.

Aeropress er létt og fyrirferðarlítil græja sem útbýr gæða kaffi beint í bollann. Þetta er svipað pressukönnukaffi þar sem kaffið blandast vel við vatnið áður en því er þrýst í gegnum síu niður í bollann. Svo er auðvelt að þrífa kaffipressuna og stinga henni í bakpokann að lokinni kaffipásu. Byrjendum er bent á að nota meðalmalað kaffi í Aeropress en lengra komnir geta prófað sig áfram með mismunandi kornastærðir, hlutföll og lögunartíma. Þetta þarftu: • Aeropress kaffipressu • Kaffi (prófið 3 msk á móti 2 dl af vatni) • Aeropress síur Aðferð: Fyrst þarf að sjóða vatnið

og láta það standa í 1-2 mínútur til að ná hitanum niður í 92°-96°C. Á meðan skal mæla kaffið, en kaffimagnið hefur mikil áhrif á útkomuna. Hvolfið Aeropress hólknum og ýtið stimplinum inn þar til hann nemur við tölustafinn 4 á hólknum. Setjið kaffið í hólkinn og hellið vatninu útí. Skolið eina síu með hreinu vatni, komið henni í síuhaldarann og skrúfið hann á pressuna. Leyfið kaffinu að samlagast vatninu í eina mínútu. Hafið gott og stöðugt undirlag undir kaffibollanum, komið Aeropressunni tryggilega fyrir á kaffibollanum og þrýstið þéttingsfast á stimpilinn þar til allt kaffið er komið í bollann. Þá er ekkert eftir nema að drekka rjúkandi heitt og sterkt kaffið og njóta. Verði þér að góðu!

Handvirk uppáhelling heppileg í félagsútilegunni Tekur um 3 mín.

Þessi gamla góða aðferð færir þér kaffi sem bragðast alveg eins og kaffi úr klassískum uppáhellingarvélum. Munurinn er aðeins sá að hér er ekki þörf á rafmagni. Þetta er góð leið til að laga mikið kaffi á stuttum tíma, fyrir lítinn pening. Uppáhelt kaffi er hreint og milt og krefst ekki mikils umstangs. Ljóst eða meðalbrennt kaffi hentar vel og best er að hafa það grófmalað. Þetta þarftu: • Hitabrúsi (1 líter) • Trekt

Greinin er þýdd og staðfærð úr grein af dds.dk

• •

Kaffipoki Kaffi (prófið 65 grömm á móti 1 líter af vatni)

Aðferð: Sjóðum vatnið og látum það standa í 1-2 mínútur þar til hitastigið hefur fallið í 92°-96°C. Á meðan má vigta kaffið eða mæla það með öðrum hætti. Við mælum með að skola kaffipokann áður en honum er komið fyrir í trektinni til að koma í veg fyrir að það komi pappírsbragð af kaffinu. Svo er gott að bretta aðeins upp á kaffipokann að neðanverðu svo hann rifni síður. Trektin er látin standa í kaffibrúsa með rökum kaffipokanum, réttu magni af kaffi mokað í og vatninu að lokum hellt yfir. Nú er bara að halda athyglinni, það er auðvelt að gleyma sér á meðan vatnið sígur hægt úr trektinni. Pössum því að hella jafnt og rólega í miðja trektina og aldrei láta hana tæmast fyrr en kaffibrúsinn er orðinn fullur. Ilmurinn af uppáhellingunni dugir oftast til að fá ferðafélagana á lappir mótmælalaust.

Jet-boil pressukaffi

fínustu pressukönnu. Til að laga gott pressukaffi þarf grófmalað kaffi. Ef kaffið er of fínt vill það sleppa í gegnum síuna og þá verður kaffið gruggugt. Athugið að þessir prímusar eru misjafnir að stærð og þú gætir þurft að prófa þig áfram með hlutföllin á milli vatns og kaffis. Þetta þarftu: • Jet-boil eða sambærilegan prímus • Pressukönnustimpil af sömu gerð • Kaffi (prófið 4 msk á móti 3 dl af vatni) Aðferð: Sjóðið vatn í jetboil könnunni og passið að það sé nóg pláss í pottinum fyrir kaffið. Slökkvið undir, smellið suðupottinum af prímusnum og látið standa í stutta stund. Setjið næst hæfilegt magn af kaffi út í og hrærið varlega með skeið. Lokið könnunni með pressunni en látið standa í 2-3 mínútur áður en þið þrýstið stimplinum varlega niður. Passið að hafa stöðugt undirlag undir pottinum svo hann velti ekki. Best notið í fjallakyrrð á köldum vetrarmorgni á meðan mesta frostið þiðnar úr gönguskónum.

Tekur um 3 mín

Síðasta aðferðin er frábær fyrir alvöru útivistarfólk. Jet-boil og sambærilegir hólklaga prímusar eru vinsælir í bakpokaferðum þar sem þeir eru fyrirferðarlitlir og sjóða vatn á augabragði. Það sem færri vita er að það fást pressukönnu stimplar í flestar gerðir slíkra prímusa. Með þessum litla aukahlut ertu ekki bara með suðupott í bakpokanum heldur líka 19


Róverskátar | 19-25 ára

róverskátar Róverskátar eru á aldrinum 19 - 25 ára. Það má segja að róverstarfið sé lokaáfanginn á vegferð skátans í skipulögðu skátastarfi. Starfið snýr fyrst og fremst að því að gera skátann að leiðtoga í eigin lífi. Algengt er að róverskátar skipuleggi eigin ferðir og útilegur án aðstoðar foringja. Róverskátar starfa sjálfstætt en hafa yfirleitt fullorðinn aðila innan félagsins sem að þau geta leitað til.

20

Skátablaðið | 1. tölublað 2018


Gönguferð um Hornstrandir Róverskátar eiga að geta valið sína eigin dagskrá og framkvæmt hana á eigin spýtur en það er alltaf gott að fá smá innblástur. Hornstrandir eru skemmtileg gönguleið og tilvalin sumarferð fyrir sveit eða hópa. Hópurinn tekur bát frá Ísafirði yfir á Hornstrandir en þar er hægt að labba margar mismunandi leiðir svo að þið stjórnið hversu löng ferð þetta getur orðið. Á Hornströndum eru um 5-6 áfangastaðir sem hægt er að velja á milli t.d. Aðalvík, Hesteyri og Veiðileysufjörður. Gott er að kynna sér bátaáætlunina yfir til Hornstranda með góðum fyrirvara svo hægt sé að bóka þá bátsferð sem hentar best fyrir gönguleiðina ykkar. Það er möguleiki að ganga með allt á bakinu en þægilegast er að fá einhvern til að trússa hluta farangursins svo að gangan verði þægilegri. Hornstrandir eru friðað landsvæði og því er mikilvægt að kynna sér reglur um umgengni á svæðinu og virða náttúruna. Einnig er mikilvægt að skoða kort, veðurspár og skilja eftir ferðaáætlun hjá einhverjum t.d félagsforingja, með helstu upplýsingum um hópinn, enda er markmið okkar allra að við skiljum ekkert eftir, hvorki rusl né ferðafélaga okkar.

Hér er dæmi um útbúnaðarlista, hann er ekki tæmandi og hver og einn þarf að sníða hann eftir persónulegum þörfum.

Gönguklæðnaður • • • • •

Göngufatnaður Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar Nærföt, ull eða flís, eftir veðri Peysa úr ull eða flís Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokann • • • • • • • • • • •

• • •

Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum Áttaviti, landakort og GPS tæki Smurt nesti fyrir daginn Göngunasl t.d þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur Vatnsbrúsi Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi Göngustafir Myndavél og kíkir Sólgleraugu Góð sólarvörn og varasalvi Sjúkrataska sem inniheldur m.a hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf Klósettpappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír Húfa, vettlingar og buff fyrir hálsinn Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður Legghlífar, vaðskór og broddar (fer eftir veðri)

Það sem fer í trúss

• • •

• • • • • • • • • •

• • • • • •

Svefnpoki og lítill koddi Bolur til skiptanna og til að sofa í Auka nærbuxur og sokkar Höfuðljós Tannbursti og tannkrem Sápa / sjampó Lítið handklæði Eyrnatappar Skálaskór Peningar Núðlur eða pasta í pokum Eitthvað fljótlegt til að elda t.d pulsur/ bulsur eða foreldaðar kjúklingabringur Eitthvað gott á grillið Kol og uppkveikilögur Haframjöl Brauð og flatkökur Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt Hrökkbrauð og kex

Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur fyrir gönguna Kakó, te og/eða kaffi Súpur Krydd, t.d. salt og pipar

Ef þið viljið sofa í tjaldi* • • • • • • • • •

Tjald og tjalddýna Prímus og eldsneyti Eldspýtur Pottur Hitabrúsi og drykkjarbrúsi Diskur og drykkjarmál Hnífapör Vasahnífur / skæri Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

*Ef þið sofið í skála þurfið þið ekki tjald og dýnu en það er gott að hafa allt hitt með

21


Aldursbilamót rekka- og róverskáta fór fram í Þórsmörk í júlí. Dagana fyrir mótið gekk stór hópur mótsgesta hinn svokallaða Laugaveg frá Landmannalaugum og í Þórsmörk og þjófstartaði þannig gleðinni. Rekkaog róverskátamótið í Þórsmörk var fjölbreytt, svo að allir skátar gætu notið þess, óháð áhugasviði.

Sex ráð fyrir lengri gönguferðir

landsmót rekka &

róverskáta 22 Skátablaðið | 1. tölublað 2018

1. Athuga veðurspá áður en lagt er af stað og fylgjast með veðurþróun fram að ferð. 2. Fara vel yfir allan búnað og gæta þess að allt sem þarf sé með og að það sem ekki þarf sé heima. Gott er að fara yfir hvað var ekki notað í seinustu ferð og meta hvort það sé nauðsynlegt. 3. Gera ferðaáætlun, setja inn atriði á borð við hverjir fari í ferðina og tengiliðsupplýsingar. Ferða áætlun; hvaðan, hvenær, hvernig, hvaða leið, hvenær á að koma til baka og hvenær á fólk að byrja að hafa áhyggjur. Búnaður og flóttaleiðir er einnig gott að

hafa. Nauðsynlegt er að skilja eftir nokkur eintök í byggð, til dæmis hjá félagsforingja eða mömmu. Einnig gott að skrá ferðina sína inn á safetravel.is. 4. Matarplan, passa að hafa nægan mat sem endist alla ferðina, gott að muna að líkaminn brennir meiru í löngum gönguferðum heldur en dags daglega. 5. Athugið staðarhætti, má tjalda alls staðar? Er svæðið friðað? Þarf að bóka ferju? Þarf einhvern sérhæfðan búnað? 6. Ert þú líkamlega undirbúinn í ferðina? Væri gott að taka nokkrar styttri göngur til að undirbúa þig? Jafnvel heilsa uppá stigavélina í ræktinni?


Finndu þinn stað

Stundum er krefjandi að standa á tímamótum þar sem maður þarf að velja eina leið fram yfir aðra. Hvað langar mig að læra? Hvað langar mig að gera? Hér er einfalt flokksverkefni fullkomið fyrir næsta dagskrárhring. 1. Lesið ykkur til um áhugasviðskenningu Hollands á netinu og veljið í sameiningu eitt svið. Áhugasvið Hollands eru mjög fjölbreytt, þar má meðal annars nefna skipulagssvið, athafnasvið og listasvið. 2. Finnið fyrirtæki, einstaklinga eða stofnanir í nærumhverfi ykkar sem falla undir þetta svið. 3. Hafið samband við eitthvert þessara fyrirtækja og spyrjið hvort þið megið koma í starfskynningu. 4. Munið að áin rennur alltaf til sjávar að lokum.

Búðu til þinn eigin svitalyktareyði!

Innihald: • 2 ½ Kúfullar teskeiðar af matarsóda • 4 teskeiðar af örvarrót • 2,5 teskeiðar af kókosolíu • 2 – 5 dropar af ilmkjarnaolíu að eigin vild Byrjið á því að blanda saman matarsódanum og örvarrótinni. Bætið hinum hráefnunum síðan saman við og hrærið vel. Að því loknu má bæta við smá þurrefnum eða kókosolíu til þess að ná þeirri áferð sem óskað er eftir.

#náttúrulega 23


Pökkunarpælingar Við getum öll verið sammála um að það er mikilvægt að vera með góðan bakpoka í ferðum, en það gleymist oft að hugsa út í hvernig á að pakka sem best í pokann sinn. Veist þú hvernig er best að pakka í bakpokann þinn? Þumalputtareglan er að pakka þyngsta dótinu sem næst hryggnum (merkt rautt og gult) og því léttasta fjær. Hér geymum við allt þunga dótið: vatn, matur, prímus, tjaldsúlur og margt fleira á heima hér. Við reynum alltaf að hafa þyngstu hlutina í pokanum sem næst bakinu því þyngdarpunkturinn á að vera eins þétt upp við bakið og unnt er. Harðir hlutir og hvassir eiga ekki að vera beint upp við bakið.

Axlarböndin eiga að halda pokanum nálægt líkamanum en eiga ekki að bera þunga pokans.

Mjaðmaböndin eiga að vera vel föst. Mjaðmirnar eiga að bera mestan þunga pokans.

24

Skátablaðið | 1. tölublað 2018

Hér geymum við allt sem við viljum hafa auðvelt aðgengi að, eins og til dæmis höfuðljós, hníf, regnföt og sjúkratösku. Við pössum samt upp á að efsti hluti bakpokans sé eins léttur og mögulegt er. Hér er allt létt sem ekki þarf að ná í á göngu. Tjaldið og matarsettið kunna mjög vel við sig hérna svo eitthvað sé nefnt.

Hér geymum við meðalþungu hlutina okkar. Til dæmis föt og dýnu.

Hér geymum við svefnpokann. Á mörgum pokum er sér hólf fyrir hann neðst.


Dagsferð á Hamra eða Úlfljótsvatn

3 nætur í Skátastykki í Vestmannaeyjum

Drekasveitin þín hefur ákveðið að fara í dagsferð. Það verður mikið að gera hjá ykkur en þið ætlið meðal annars að fara í stutta fjallgöngu og skella ykkur í vatnasafaríið ef að veður leyfir.

Dróttskátasveit leggur upp í fjögurra daga ferðalag til Vestmannaeyja og ætlar að hitta sveit úr Faxa og gista í Skátastykkinu. Veðurspáin segir að eyjan verði þakin snjó en það stoppar ekki hressan dróttskátahóp enda er ekkert mál að klæða sig vel. Aðalspurningin er, hvað er það helsta sem þarf að fara í bakpokann góða?

Hvað þarft þú að taka með þér í þessa ævintýraferð? Hvort er betra að taka með spilastokk eða Twistermottu? Jólastellið eða útilegu matarsett? Með listanum hér fyrir neðan getur þú verið viss um að ferðin verði hlý og skemmtileg.

Útbúnaður: • • • • • • • • • • • • • • • •

Regnjakki/úlpa Útibuxur (regn og vindheldar) Ullarnærfatnaður Húfa Vettlingar Hlýir sokkar Hlý peysa Föt til skiptanna ef þú blotnar Sundföt Handklæði Gönguskór Matarsett (diskur, bolli, skál og hnífapör) Vatnsflaska Höfuðljós ef að það er dimmt eða ef þið farið í helli Nesti Hnífur

Útilega í 2 nætur á Hafravatn eða í Vaglaskóg Það er október og það er komið að sveitarútilegu hjá Fálkaskátasveitinni þinni. Það er byrjað að kólna í veðri en þið viljið gista í tjaldi í 2 nætur. Þessi listi er tilvalinn til að nota fyrir stuttar haust útilegur:

Útbúnaður: • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • •

Tjald Svefnpoki Bakpoki Einangrunardýna Matur fyrir 3 daga 1 par ullarnærföt Regnjakki/úlpa Útibuxur (regn og vindheldar) 1 húfa 2 vettlingapör 4 pör hlýir sokkar Hlý peysa Föt til skiptana Sundföt Handklæði Gönguskór Prímus Dagpoki fyrir göngur Vatnsbrúsi Matarsett (diskur, bolli, skál og hnífapör) Hreinlætisvörur (tannbursti, tannkrem og sápa) Spilastokkur Gítar fyrir kvöldvöku (ef þú kannt á svoleiðis)

Útbúnaður: • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • •

Svefnpoki Bakpoki Matur fyrir 4 daga Lítil sjúkrataska með helstu nauðsynjum 1 par ullarnærföt Regnjakki/úlpa/ snjógalli Útibuxur (regn og vindheldar) 2 Húfur 2 pör vettlingar 5-6 pör hlýja sokka Hlý peysa Föt til skiptanna Handklæði Gönguskór Inniskór Prímus Dagpoki fyrir göngur Vatnsbrúsi Áttaviti/GPS Vasahnífur Matarsett (diskur, bolli, skál og hnífapör) Hreinlætisvörur (tannbursti, tannkrem og sápa) Spilastokkur eða eitthvað skemmtilegt borðspil Gítar fyrir kvöldvöku (ef þú kannt á svoleiðis)

25


Hvers vegna að verða sjálfboðaliði fyrir skáta? Ertu orðinn 26 ára? Ertu jafnvel eldri en það? Engar áhyggjur, þú getur enn tekið þátt í skátastarfi! Skátar sem hafa náð 26 ára aldri kallast fullorðnir sjálfboðaliðar. Til að halda úti góðu skátastarfi fyrir börn og unglinga er nauðsynlegt að hafa fullorðna sjálfboðaliða til að sinna ýmsum verkefnum, stórum og smáum til lengri eða skemmri tíma. Verkefnin sem fullorðnir geta sinnt eru nánast óteljandi og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Mikilvægustu störfin eru án efa þau þar sem unnið er beint með skátunum, til dæmis sem sveitarforingjar, aðstoðarsveitarforingjar 26

eða ráðgjafar rekka- og róversveita. Önnur mikilvæg störf eru til dæmis að taka sæti í stjórn skátafélagsins, skátasambanda eða Bandalags íslenskra skáta (BÍS). Þá er einnig hægt að setjast í ráð, nefnd eða vinnuhóp á vegum skátafélags, skátasambands eða BÍS. Ef að þú ert foreldri barns í skátunum að þá getur verið auðvelt að byrja sjálfboðaliðastarfið sem hluti af baklandi félagsins. Þar er hægt að taka að sér mörg einföld verkefni eins og að hita kaffi fyrir kvöldvökur, taka að sér eldhúsvakt í útilegu eða á skátamóti, taka að sér dagskrárpóst í útilegu, taka myndir af

Skátablaðið | 1. tölublað 2018

krökkunum á viðburðum, laga brotna hurð í skátaheimilinu, aðstoða sveitarforingja í dagsferð, hjálpa til við fjáraflanir skátanna eða skutla og sækja skáta í útilegur. Fyrir þau sem hafa áhuga á viðburðastjórnun viðburðastjórnun þá er skátastarf góður vettvangur til að framkvæma góðar hugmyndir um viðburði, fræðslu og námskeið. Tilvalið er að sækja um fjármagn fyrir slíkt í Styrktarsjóð skáta.Sum skátafélög eru einnig með stóra viðburði á sínum snærum eins og Vormót, Viðeyjarmót og hátíðarhöld í tengslum við sumardaginn fyrsta eða 17. júní.

Kostir þess að vera sjálfboðaliði í skátunum: • •

• • • •

Gott á ferilskrá. Öðlast reynslu í viðburðastjórnun og verkefnastjórnun. Góður félagsskapur. Færð tækifæri til að vinna með börnum. Öðlast reynslu af samstarfi og hópavinnu. Færð að fara ókeypis í sturturnar á Úlfljótsvatni, sem eru bestu sturtur í heimi!


Verkefnahugmyndir fyrir fullorðna:

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir möguleg verkefni fyrir fullorðna sjálfboðaliða. Þessi listi var búinn til af verkefnahóp á vegum Félagaráðs sem tók að sér afmarkað verkefni í sjálfboðaliðastarfi fyrir ráðið. Listinn er að sjálfsögðu ekki tæmandi en gefur góða yfirsýn yfir fjölbreytileika þeirra verkefna sem skátahreyfingin býður upp á:

Flokks- eða sveitarstarfið: •

• •

Aðstoða við viðburði, s.s.útilegur, hellaferðir, gönguferðir, hjólaferðir... Aðstoða við dagskrá á flokksfundum Akstur, flutningur, matur, dagskrá, fjáröflun, búnaður, kennsla, ráðgjöf.

Félagseignir, uppbygging og viðhald • • • •

Verkefni tengd skátaheimili Verkefni tengd skátaskála Verkefni tengd útivistarsvæði Verkefni tengd útbúnaði skátafélags

Verkefni á vegum BÍS eða skátasambanda • • • •

Félagsstarfið

• •

• •

• • • • •

Aðstoða við félagsviðburði t.d. akstur, flutningur, matur, dagskrá, uppsetning, frágangur, fjáröflun, búnaður... Fjáraflanir Samskipti við sveitarstjórn Eignastjórn (skátaheimili, skáli, birgðir...) Seta í félagsstjórn Sveitarforingi

Seta í stjórn Seta í ýmsum nefndum Aðstoð við rekstur og/eða viðhald útilífsmiðstöðva Undirbúa og annast framkvæmd viðburða (skátamót, hátíðir o.fl.) Tengsl við stjórnvöld Tengsl við önnur félagasamtök Almannatengsl Fjáröflun

Rétt upp hönd sem vill verða leiðtogi! BÍS rekur öfluga og metnaðarfulla leiðtogaþjálfun fyrir fullorðna sjálfboðaliða í skátastarfi sem kallast Gilwell. Fyrir þá sem hafa metnað og áhuga á að starfa af fullum krafti í leiðtoga og sjálfboðaliðastarfi í skátunum ættu að skrá sig á Gilwell námskeið. Boðið er bæði upp á grunnnámskeið og framhaldsnámskeið. Þá eru reglulega haldnir Gilwell hittingar hér á landi en einnig er hægt að skella sér á Gilwell skátamót í Bretlandi. Meiri upplýsingar um Gilwell leiðtogaþjálfnunina er hægt að nálgast á Skátamálum, upplýsinga og fréttaveitu skátanna.

27


5 góð ráð 3. fyrir útileguna 1. 4. 2.

Gleymdirðu koddanum heima? Settu föt ofan í pokann utan af svefnpokanum þínum og notaðu það sem kodda. Það er mjög snyrtileg og smart lausn. Svo er líka hægt að stinga fötunum beint undir höfuðið en það er auðvitað ekki jafn smart.

Misstir þú símann ofan í Úlfljótsvatn eða vatnasafaríið? Prufaðu að setja símann ofan í hrísgrjónapoka og geymdu hann þar í 2 daga. Það er aldrei að vita nema að hrísgrjónin nái að sjúga vatnið úr símanum í sig og bjargi honum þannig. Við ábyrgjumst þó ekki að þetta virki alltaf.

28

Gleymdir þú matardisknum heima? Eða ertu folfari (frisbígolfspilari)? Sláðu tvær flugur í einu höggi og notaðu frisbídiskinn þinn í stað venjulegs plastdisks. Það sparar pláss og gerir frisbídiskinn fjölnota!

Skátablaðið | 1. tölublað 2018

Ertu að yfirfara tjöldin hjá félaginu og tókst eftir því að rennilásarnir eru eitthvað slappir? Prufaðu að nudda kerti/ kertavaxi á rennilásana. Kertavaxið gæti hjálpað rennilásunum að vera rennilegri og betri.

5.

Fattaðir þú of seint að klemmurnar gleymdust heima? Notaðu hvíta plaststykkið á brauðpokum sem klemmur. Plaststykkin taka margfalt minna pláss en hefðbundnar klemmur og því er auðvelt að koma heilum haug fyrir í farangrinum. Hinsvegar geta stykkin brotnað auðveldlega svo farið þið varlega þegar þið hengið upp þvott eða takið hann niður. Þetta hentar stórkostlega vel fyrir tuskur, sokka og boli en kannski verr fyrir þykkar buxur og peysur.


Við þökkum stuðninginn: Reykjavík

Aðalverkstæðið ehf, Malarhöfða 2 Aðalvík ehf, Síðumúla 13 Arkís arkitektar ehf, Kleppsvegi 152 Auglýsingastofan ENNEMM, Skeifunni 10 Árbæjarapótek ehf, Hraunbæ 115 Ásbjörn Ólafsson ehf, Köllunarklettsvegi 6 ÁTVR Vínbúðir, Stuðlahálsi 2 B.B. rafverktakar ehf, Bíldshöfða 18 Bílasala Guðfinns ehf, Stórhöfða 15 Bílasmiðurinn hf, Bíldshöfða 16 Bókhaldsstofa Arnar Ingólfssonar ehf, Nethyl 2a Bókhaldsstofa Haraldar slf, Síðumúla 29 Bólstrarinn ehf, Langholtsvegi 82 Danica sjávarafurðir ehf, Suðurgötu 10 Dansskóli Jóns Péturs og Köru, Síðumúla 30 E.T. hf, Klettagörðum 11 Engo verkefni ehf, Sporhömrum 12 Ernst & Young ehf, Borgartúni 30 Ferðafélagið Útivist, Laugavegi 178 Ferskar kjötvörur hf, Síðumúla 34 Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22 Fjárfestingamiðlun Íslands ehf, Síðumúla 35 Fjárhald ehf Föt og skór ehf, Kringlunni 8-12 Gallerí Fold, Rauðarárstíg12-14 Gallerý Fiskur, Nethyl 2 GB Tjónaviðgerðir ehf, Draghálsi 6-8 Gilbert úrsmiður-www. jswatch.com, Laugavegi 62 Gjögur hf, Kringlunni 7 Guðmundur Arason ehf, smíðajárn, Skútuvogi 4 Gullsmiðurinn í Mjódd,

Álfabakka 14b Hamborgarabúlla Tómasar - Við erum öll jöfn, Bíldshöfða 18 Henson sports, Brautarholti 24 Hið íslenska reðasafn ehf, Laugavegi 116 Hitastýring hf, Ármúla 16 Hótel Leifur Eiríksson ehf, Skólavörðustíg 45 Hótel Óðinsvé, Þórsgötu 1 Hótel Örkin, sjómannaheimili, Brautarholti 29 Húsaklæðning ehf-www. husco.is, Kaplaskjólsvegi 93 Höfði fasteignasala, Suðurlandsbraut 52 Innnes ehf, Fossaleyni 21 Íslenska útflutningsmiðstöðin hf, Síðumúla 34 Ísmar ehf, Síðumúla 28 Ísold ehf, Nethyl 3 Íþrótta-og tómstundasvið Reykjavíkur, Borgartúni 12-14 Íþróttasamband fatlaðra, Engjavegi 6 Kemi ehf-www.kemi.is, Tunguhálsi 10 KOM almannatengsl, Katrínartúni 2 Landssamband lögreglumanna, Grettisgötu 89 Landsvirkjun, Háaleitisbraut 68 Lifandi vísindi, Klapparstíg 25 Logoflex ehf, Smiðshöfða 9 Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Hverfisgötu 115 Löndun ehf, Kjalarvogi 21 MG flísalagnir ehf, Vallengi 5 Múlaradíó ehf, Fellsmúla 28 Nýi ökuskólinn ehf, Klettagörðum 11 Ósal ehf, Tangarhöfða 4 Rafstilling ehf, Dugguvogi 23 Rafsvið sf, Viðarhöfða 6 Rafver hf, Skeifunni 3e Rannsókna- og háskólanet Íslands hf,

Dunhaga 5 Rannsóknarþjónustan Sýni ehf, Lynghálsi 3 Rarik ohf, Dvergshöfða 2 Ratsjá ehf, Laugavegi 26 Regla - netbókhaldskerfi, Suðurlandsbraut 50 Reykjagarður hf, Fosshálsi 1 Rikki Chan ehf, Kringlunni 4-12 og Smáratorgi 1 Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Borgartúni 35 Segull ehf, Hólmaslóð 6 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs, Skógarhlíð 14 Steypustöðin ehf, Malarhöfða 10 Stólpi Gámar, Klettagörðum 5 TREX-Hópferðamiðstöðin, Hesthálsi 10 Umslag ehf, Lágmúla 5 Velmerkt ehf, Dugguvogi 23 Verslunartækni ehf, Draghálsi 4 Verslunin Brynja ehf, Laugavegi 29 Vélar og verkfæri ehf, Skútuvogi 1c Vélvík ehf, Höfðabakka 1 VSÓ Ráðgjöf ehf, Borgartúni 20 Wurth á Íslandi ehf, Norðlingabraut 8 www.tst.is, Laugavegi 26 Ögurverk ehf, S kipholti 29b Örninn ehf, Faxafeni 8

Seltjarnarnes

Falleg gólf parketþjónusta frá 1984, Nesbala 25 H.Ó. & B. sf, Nesbala 54

Kópavogur

ALARK arkitektar ehf, Dalvegi 18 Atlantic Tank Storage ehf, Hlíðasmára 4 Bifreiðastillingin ehf, Smiðjuvegi 40d Bílasprautun og réttingar Auðuns, Nýbýlavegi 10 Bílaverkstæði Kjartans og

Þorgeirs sf, Smiðjuvegi 48d Iðnvélar ehf, Smiðjuvegi 44 Init ehf, Smáratorgi 3 JS-hús ehf, Skemmuvegi 34a Kambur ehf, Geirlandi v/ Suðurlandsveg Kraftvélar ehf, Dalvegi 6-8 Loft og raftæki ehf, Hjallabrekku 1 MHG verslun ehf, Víkurhvarfi 8 Rafholt ehf, Smiðjuvegi 8 Rafmiðlun hf, Ögurhvarfi 8 Svansprent ehf, Auðbrekku 12 Söluturninn Smári, Dalvegi 16c Ungmennafélagið Breiðablik, Dalsmára 5

Garðabær

Dýraspítalinn Garðabæ, Kirkjulundi 13 Garðabær, Garðatorgi 7 Garðasókn, Kirkjuhvoli Geislatækni ehf - Laser þjónustan, Suðurhrauni 12c Hannes Arnórsson ehf, Móaflöt 41 Kópavogspósturinn ehf, Stekkjarflöt 22 Spöng ehf, Furulundi 9 Val - Ás ehf, Suðurhrauni 2 Öryggisgirðingar ehf, Suðurhrauni 2

Hafnarfjörður

Barkasuða Guðmundar ehf, Hvaleyrarbraut 27 Bortækni ehf, Miðhrauni 14 Danco Daníel Pétursson ehf Donna ehf Dverghamrar ehf, Lækjarbergi 46 EÓ-Tréverk sf, Háabergi 23 Gámaþjónustan hf, Berghellu 1 Hafnarfjarðarhöfn, Óseyrarbraut 4 Hagstál ehf, Brekkutröð 1 29


Hagtak hf, Fjarðargötu 13-15 Hársnyrtistofan Fagfólk ehf, Fjarðargötu 19 Hlaðbær-Colas hf, malbikunarstöð, Gullhellu 1 Hvalur hf, Reykjavíkurvegi 48 Marax ehf, Lónsbraut 2 Markus Lifenet, Gjáhellu 13 Opal Sjávarfang ehf, Grandatröð 4 Rafgeymasalan ehf, Dalshrauni 17 Raftaki ehf, Efstuhlíð 4 Strendingur ehf, Fjarðargötu 13-15 Umbúðamiðlun ehf, Fornubúðum 3 Víðir og Alda ehf, Reykjavíkurvegi 52a VSB verkfræðistofa ehf, Bæjarhrauni 20

Álftanes

GO múrverk ehf, Norðurtúni 14 Prentmiðlun ehf, Hólmatúni 55

Reykjanesbær

Dacoda ehf, Krossmóa 4a DMM Lausnir ehf, Hafnargötu 91 M² Fasteignasala & Leigumiðlun, Hólmgarði 2c Nesraf ehf, Grófinni 18a OSN lagnir ehf, Iðavöllum 7b Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945 Skólamatur ehf, Iðavöllum 1 Skólar ehf, Flugvallarbraut 752 Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis, Krossmóa 4a Verslunarmannafélag Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14 Vísir, félag skipstjórnarmanna á Suðurnesjum, Hafnargötu 90

Mosfellsbær

Eignarhaldsfélagið Bakki ehf, Þverholti 2 Fagverk verktakar sf, Spóahöfða 18 Hestaleigan Laxnesi, Laxnesi Ísfugl ehf, Reykjavegi 36 Kjósarhreppur, Ásgarði Mosfellsbakarí, Háholti 13-15 Mosfellsbær, Þverholti 2 Nonni litli ehf, Þverholti 8

Akranes

Bifreiðastöð Þórðar Þ. Þórðarsonar, Smiðjuvellir 15 Bílver, bílaverkstæði ehf, Innnesvegi 1 Fasteignasalan Hákot, Kirkjubraut 12 Galito veitingastaður, Stillholti 16-18 Smurstöð Akraness sf, Smiðjuvöllum 2 Snókur verktakar ehf, Vogatungu

Borgarnes

Borgarbyggð, Borgarbraut 14 Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsnesi Hótel Borgarnes hf, Egilsgötu 14-16 Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Bjarnarbraut 8 Skorradalshreppur Sprautu- og bifreiðaverkstæðið Borgarness sf, Sólbakka 5

Grundarfjörður

Guðmundur Runólfsson hf, útgerð, Sólvöllum 2 KB bílaverkstæði ehf, Sólvöllum 5 Þjónustustofan ehf, Grundargötu 30

Búðardalur

Dalabyggð, Miðbraut 11

Reykhóla-hreppur

Þörungaverksmiðjan hf

Ísafjörður

Bílasmiðja S.G.B. ehf, Seljalandsvegi 86 Ferðaþjónustan í Heydal, Mjóafirði Hamraborg ehf, Hafnarstræti 7 Ísblikk ehf, Árnagötu 1 Orkubú Vestfjarða ohf, Stakkanesi 1 Samgöngufélagið-www. samgongur.is, Engjavegi 29 Sólberg ehf, Góuholti 8

Bolungarvík

Endurskoðun Vestfjarða ehf, Aðalstræti 19 Glaður ehf, Holtabrún 5 Sigurgeir G. Jóhannsson ehf, Hafnargötu 17

Patreksfjörður

Einherji ehf, Mýrum 15

Tálknafjörður

Bókhaldsstofan Tálknafirði, Strandgötu 40

Hvammstangi

Geitafell - Seafood Restaurant, Geitafelli, Vatnsnesi Kaupfélag VesturHúnvetninga, Strandgötu 1

Blönduós

Húnavatnshreppur, Húnavöllum Pöntunar og viðgerðarþjónusta Villa ehf, Árbraut 19 Skagabyggð, Ytra-Hóli 1 Stéttarfélagið Samstaða, Þverbraut 1 Sveitabakarí sf, Auðkúlu 1

Sauðárkrókur

Ó.K. Gámaþjónustasorphirða ehf, Borgarflöt 15 Steinull hf, Skarðseyri 5 Steypustöð Skagafjarðar, Skarðseyri 2

Hofsós

Íslenska fánasaumastofan ehf, Suðurbraut 8 30

Skátablaðið | 1. tölublað 2018

Akureyri

Ásco ehf, bílarafmagn, Glerárgötu 34b Bifreiðastöð Oddeyrar ehf, Strandgötu Blikk- og tækniþjónustan ehf, Kaldbaksgötu 2 Blikkrás ehf, Óseyri 16 Finnur ehf, Óseyri 2 Geimstofan ehf, auglýsingastofa og skiltagerð, Glerárgötu 34b Hagvís ehf, Hvammi 1 HSH verktakar ehf, Skarðshlíð 7 Höldur ehf, bílaleiga, Tryggvabraut 12 Jafnréttisstofa, Borgum v/ Norðurslóð Kranabílar Norðurlands, Daggarlundi 18 Norðurorka hf, Rangárvöllum S.S. byggir ehf, Njarðarnesi 14 Samherji ehf, Glerárgötu 30 Timbra ehf,byggingarverktaki, Vaðlatúni 1 Þverá, Eyjafjarðarsveit Ösp sf, trésmiðja, Furulundi 15f

Grímsey

Sigurbjörn ehf

Húsavík

Fjallasýn Rúnars Óskarssonar ehf-www. fjallasyn.is, Smiðjuteigi 7 Víkurraf ehf, Garðarsbraut 18a

Þórshöfn

Geir ehf, Sunnuvegi 3

Egilsstaðir

Bókráð, bókhald og ráðgjöf ehf, Miðvangi 2-4 Fljótsdalshérað, Lyngási 12 Gistihúsið - Lake Hotel Egilsstadir, Egilsstöðum 1-2 Skrifstofuþjónusta Austurlands ehf, Fagradalsbraut 11

Reyðarfjörður

Fjarðabyggð, Hafnargötu


Neskaupstaður

Síldarvinnslan hf, Hafnarbraut 6

Selfoss

Árvirkinn ehf, Eyravegi 32 Bílverk BÁ ehf, bílamálun og bílaréttingar, Gagnheiði 3 Blásteinn byggingafélag sf, Miðtúni 5 Fossvélar ehf, Hellismýri 7 Hjá Maddý ehf, Eyravegi 27 Jáverk ehf, Gagnheiði 28 Jóhann Helgi og Co ehf, Vatnsholti 2 K.Þ Verktakar ehf, Hraunbraut 27 Sveitarfélagið Árborg, Austurvegi 2 Tæki og tól ehf, Stekkholti 4 Þingborg ullarvinnsla og verslun

Hveragerði

Hótel Örk, Breiðumörk 1c

Þorlákshöfn

Þorlákshafnarhöfn

Ölfus

Eldhestar ehf, Völlum

Flúðir

Flúðasveppir ehf, Undirheimum

Hella

Strókur ehf, Grásteini

Hvolsvöllur

Ferðaþjónusta bænda Stóru-Mörk 3 Ferðaþjónustan Hellishólum ehf

Rekstrarvörur Rekstrarvörur

– fyrir þig -ogvinna þinn vinnustað með þér

Vestmannaeyjar

IP-lagnir slf, Illugagötu 31 Miðstöðin ehf, Strandvegi 30 Ós ehf, Illugagötu 44 Tvisturinn ehf, Faxastíg 36 Vélaverkstæðið Þór ehf, Norðursundi 9

31


32

Skรกtablaรฐiรฐ | 1. tรถlublaรฐ 2018


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.