Heilsublaðið 3. tbl. - 01.06.25

Page 1


Ferðin inn á við hófst á fjalli

„Ég vakna ekki lengur um miðjar nætur með sinadrætti“

,,Þessi skýru samskipti milli hugar og meltingar‘‘

Er meðvirkni ósýnilegir fjötrar sem halda þér föstum

Ertu enn að elta slönguna?

Krafturinn sem kveikir hlaupalífið

beint í innhólfið þitt!

Kæri lesandi,

Það gleður okkur að deila með þér nýjustu útgáfu Heilsublaðs

Heilsuhillunnar! Í þessu tölublaði finnur þú fjölbreytt og hvetjandi efni sem miðar að því að styrkja heilsuna – bæði líkamlega og andlega. Markmið okkar er að veita innblástur og verkfæri til að setja sig sjálfan og heilsuna í fyrsta sæti, með léttleika, kærleika og gleði að leiðarljósi

Í þessu blaði skyggnumst við inn í líf Silju Úlfarsdóttur, hlaupakonu og þjálfara. Silja hefur hlaupið í gegnum súrt og sætt og gefur okkur innsýn í það hvernig við getum byggt upp sjálfstraust og gleði – eitt skref í einu. Einnig er að finna 4 vikna hlaupaprógramm fyrir byrjendur, fræðslu um mátt magnesíums og áhrif þess á svefn og slökun. Við kynnumst ævintýralegri fjallgöngu Lukku og Soffíu, fræðumst um hvernig bæta megi svefninn á náttúrulegan hátt með bætiefnum eins og melatóníni, lærum um mikilvægi þess að hætta að "elta slönguna" og í staðinn að setja sjálfan sig í fyrsta sæti, ásamt fróðleik um það hvernig hægt er losa sig undan álögum meðvirkni og setja eigin vellíðan í forgang.

Taktu þátt!

Taktu þátt og þú getur unnið!

Metskráning er komin á Heilsumola Heilsuhillunnar og ef þú hefur ekki skráð þig enn, hvetjum við þig til að skrá þig. Fyrstu Heilsumolarnir koma út í maí og eru fullir af fræðandi og hvetjandi efni. Með því að skrá þig hér að neðan færðu Heilsumolana senda beint í innhólfið og átt einnig möguleika á að vinna glæsilega vinninga!

Tveir heppnir þátttakendur geta unnið:

• ON skó að eigin vali

• Þriggja mánaðar sumarkort frá Sporthúsinu

• Bætiefnapakka frá Heilsuhillunni

Við vonum að þú hafir gaman af lestrinum og að þetta blað verði þér innblástur til að setja heilsuna í fyrsta sæti.

Skannaðu QR-kóðann, skráðu þig og taktu þátt í stórglæsilegum leik!

Heilsuhillan er samfélag sem hefur það að markmiði að fræða almenning um ýmislegt gagnlegt sem tengist heilsu og almennu heilbrigði í daglegu lífi.

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum en þar má m.a. finna fróðlegar kynningar, reynslusögur og skemmtiefni ásamt flottum gjafaleikjum.

Heilsuhillan gefur út heilsublaðið.

@heilsuhilla n

Artasan Suðurhrauni 12a 210 Garðabæ, Greinaskrif: Sóley Mist Albertsdóttir, Bryndís Ragna Umbrot og hönnun: Hermann Sigurðsson, Prentun: Tryknet ApSEyþór Árnason, Aðrar ljósmyndir: Eyþór Árnason og fleiri.

SÉRFRÆÐINGAR Í GÓÐGERLUM

Migréa er góðgerlablanda sem hefur það að markmiði að styðja við heilbrigða þarmaflóru og heilbrigt taugakerfi. Auk góðgerla inniheldur Migréa B6 vítamín og magnesíum.

Candéa inniheldur góðgerla, hvítlauk og greipaldinþykkni. Öflug blanda sem hefur það að markmiði að styðja við heilbrigða meltingu og að vernda viðkvæm svæði.

Pro-Cyan er góðgerlablanda sem hefur það að markmiði að styðja við heilbrigða meltingu og heilbrigt þvagfærakerfi. Inniheldur trönuberja þykkni og A vítamín.

Everyday er sérstaklega öflug góðgerlablanda sem hefur það að markmiði að bygg ja upp öfluga þarmaflóru og styðja við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.

Þarmaflóran gegnir lykilhlutverki í heilbrigðri starfsemi meltingarkerfisins.

Mind inniheldur góðgerla, villt bláber og vínberja ekstrakt ásamt sinki. Blanda sem hefur það að markmiði að styðja við heilbrigða meltingu og hugræna virkni.

Infantis eru góðgerlar sérstaklega hannaðir fyrir börn og ungabörn frá fæðingu. Styður við heilbrigða þarmaflóru og bætta meltingu. Kemur í duftformi.

„Ég vakna ekki lengur

með sinadrætti“

Hildur Rut Björnsdóttir elskar að vera á hreyfingu, hvort sem það eru hjólreiðar, jóga eða göngur um náttúru og fjöll. Hreyfing hefur alltaf verið órjúfanlegur hluti af hennar lífsstíl, en samtímis hefur hún lengi glímt við mikinn fótapirring og sinadrætti sem hafa truflað bæði svefn og daglegt líf.

Sinadrættir og fótapirringur eru algeng einkenni sem geta haft veruleg áhrif á slökun, svefn og vellíðan, hvort sem um er að ræða fólk í daglegu amstri, íþróttafólk eða konur á meðgöngu.

Einkennin geta stafað af margvíslegum ástæðum, eins og álagi á vöðva, vökvatapi, ójafnvægi á steinefnum eða vegna of lítillar upphitunar eða teygju fyrir og eftir áreynslu.

Að huga að nægri vatnsdrykkju, næringarríkri fæðu og að teygja vel getur hjálpað töluvert, en stundum þarf meira til. Þar geta bætiefni sem styðja við eðlilega vöðva- og taugastarfsemi komið að góðum notum til að bæta meðal annars svefn og vellíðan.

Frá daglegri baráttu yfir í betri svefn

„Ég hef alla tíð stundað mikla hreyfingu og man eiginlega ekki eftir mér öðruvísi, en samt sem áður hef ég lengi verið að kljást við sinadrætti,“ segir Hildur. „Tímabilin hafa verið misjöfn, en þegar ég gekk með yngri son minn fóru sinadrættirnir að hafa verulega truflandi áhrif á líf mitt.“

Á þeim tíma hélt hún að þetta væri bara hluti af lífinu, eitthvað sem flestir gengu í gegnum, en þegar hún ræddi málið við aðra, áttaði hún sig á að það var ekki eins sjálfsagt og hún hafði haldið. Hún ákvað því að leita lausna og prófaði Magnesium Glycinate formúluna frá New Nordic. Hún sér svo sannarlega ekki eftir því.

„Áður en ég byrjaði að taka Magic Magnesium Glycinate voru sinadrættirnir svo slæmir að þeir vöktu mig oft á hverri einustu nóttu. Þetta var ekki bara á nóttunni, þeir voru líka að koma fram yfir daginn, jafnvel þegar ég var að slaka á í sófanum eða stunda jóga.“

Hildur kennir jóga í Samkennd Heilsusetri á eigin vegum undir nafninu Jóga til þín. Hún var svo á þessum tíma einnig byrjuð að kenna í Hreyfingu í heitum sölum, þar sem líkurnar á að missa sölt og steinefni eru enn meiri þar sem hún svitnaði meira vegna hitans. „Ég fór að passa mig meira á því að bæta inn söltum og steinefnum og byrjaði samhliða að taka inn magnesíum. Ég fann strax mun. Sinadrættirnir urðu færri og minni og svefninn batnaði til muna.“

Slökun, styrkur og svefn – allt í einni formúlu

Magnesíum er eitt af mikilvægustu steinefnum líkamans og gegnir lykilhlutverki í bæði vöðvastarfsemi, taugakerfi og beinum. Það getur líka haft mjög jákvæð áhrif á svefn og slökun, sérstaklega þegar það er tekið í réttu formi.

Magnesíum glycinate er magnesíum sem er bundið við amínósýruna glýsín, sem hefur róandi eiginleika og styður náttúrulega við slökun og betri svefn. Þetta form er bæði milt fyrir meltinguna og vel upptakanlegt, sem gerir það að einstaklega hentugri lausn fyrir daglega notkun.

Magic Magnesium Glycinate frá New Nordic sameinar þetta virka magnesíumform við öfluga blöndu af B-vítamínum sem styðja taugakerfið, ásamt

pirringi í fótum, sérstaklega þegar líkaminn á að slaka á. Einkennin eru oft verst á kvöldin og nóttunni og geta gert það að verkum að erfitt verður að sofna eða halda svefni.

Langvarandi fótapirringur getur haft veruleg áhrif á líðan – hann dregur úr svefni, orku, einbeitingu og getur valdið aukinni streitu yfir daginn.

Hildur þekkti þetta vel. Hún hafði þegar fundið góðan mun með magnesíum, en þegar hún bætti

Restless Legs frá New Nordic við sína rútínu jukust áhrifin til muna.

„Þessi

tvenna

hefur haft

virkilega góð áhrif og ég hvílist

mikið betur á nóttunni“

D-vítamíni sem styrkir vöðva og bein. Þessi samsetning veitir líkamanum fjölþættan stuðning og getur skipt sköpum fyrir þá sem vilja róa taugakerfið og njóta betri hvíldar.

Náttúruleg

lausn við fótapirring

Fótapirringur eða fótaóeirð (Restless Legs Syndrome) er algengt taugatengt ástand sem lýsir sér í óþægindum eða

„Þegar ég fór að taka Restless Legs samhliða Magic Magnesium Glycinate, þá hætti ég eiginlega alveg að fá sinadrætti og fótapirring. Nú sef

styður við starfsemi tauga, vöðva og beina, með jurtum, steinefnum og vítamínum sem vinna saman að því að draga úr óþægindum í fótum. Blandan inniheldur meðal annars brenninetlu, magnesíum, D-vítamín, B6 og B12 vítamín og er hönnuð til að stuðla að slökun og vellíðan, sérstaklega á kvöldin þegar líkaminn þarfnast hvíldar. ■

Ertu enn að elta slönguna?

Hugsaðu þér að vera bitin af slöngu. Í stað þess að einbeita þér að því að græða sárið og losa þig við eitrið, ákveður þú að elta slönguna – í örvæntingu að reyna að skilja af hverju hún beit þig og sanna að þú áttir það ekki skilið. Hljómar fáránlegt, ekki satt?

Að elta „slönguna“, hvort sem hún táknar manneskju sem særði þig, aðstæður sem ollu þér vonbrigðum eða fortíð sem þú átt erfitt með að sleppa, er bæði tímafrekt og tilgangslaust. Þessi eltingaleikur gefur þér ekki svörin sem þú leitar að. Þvert á móti getur hann gert sárið dýpra og haldið eitri lengur inni í þér.

Frekar en að festast í eitri fortíðarinnar, skaltu íhuga hvernig þú getur losað þig undan því. Hvað þarftu til að græða? Kannski fyrirgefningu – ekki til að samþykkja það sem gerðist, heldur til að frelsa þig frá fjötrum reiðinnar. Að

fyrirgefa þýðir ekki að réttlæta sársaukann, heldur að neita að leyfa honum að stjórna lífi þínu. Það getur líka þýtt að beina athyglinni inn á við, byggja upp innri styrk og rækta það sem veitir gleði og frið.

Þessi saga minnir á að ekki er alltaf hægt að fá skýringar eða réttlætingu. Lífið er oft ósanngjarnt, en eitt er alltaf í þínum höndum – hvernig þú bregst við. Þú getur setið fastur í spurningum og gremju eða ákveðið að sleppa takinu og beina orkunni í það sem raunverulega skiptir máli, styrkir þig og hjálpar þér að halda áfram.

Að sleppa takinu er ekki veikleiki – það er styrkur. Það sýnir að vellíðan þín er í forgangi. Leyfðu slöngunni að fara og einbeittu þér að því sem raunverulega skiptir máli – að lækna, byggja upp og styrkja sjálfan sig!

Gangi þér vel! ■

HEILSA GLEÐI

Vítamín í formi munnspreyja frá BetterYou eru einföld og áhrifarík leið til að tryggja að börn fái öll þau helstu vítamín til þess að uppfylla daglega þörf og styðja við eðlilegan vöxt og þroska.

JAFNVÆGI

Disney vítamín hlaupin innihalda öll þau helstu vítamín sem þörf er á fyrir börn, A, B6, B12, fólínsýru (B9), C, D-, E, bíótín, joð og sink sem allt hefur það að markmiði að stuðla að vexti og viðhaldi barna.

D400 infant

D400 er ætlað börnum yngri en 3 ára. Einungis einn úði inniheldur ráðlagðan dagskammt af D- vítamíni fyrir börn sem jafngildir 10 mg/10 alþjóðaeiningum.

D400 infant er bragðlaust og því frábær kostur fyrir börn.

MultiVit junior

Náttúrulegt hindberja-, jarðarberja- og vatnsmelónubragð.

Bio-Kult Infantis er sérstaklega hannað fyrir börn og ungabörn, alveg frá fæðingu. Inniheldur blöndu af virkum góðgerlum ásamt C vítamín sem stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Kemur í bragðlausu duft formi sem auðvelt er að bæta í fæðu eða drykk.

MultiVit junior fjölvítamín er ætlað börnum frá 1 árs aldri.

Blandan inniheldur öll þau 14 nauðsynlegu næringarefni sem líkami barna þarf á að halda, m.a. A, B, C og D- vítamín ásamt fólínsýru og joð. Súkkulaði- og sykurpúðabragð.

Ferðin inn á við hófst á fjalli

Það sem hófst sem draumur Soffíu Sigurgeirsdóttur að ganga í Himalayafjöllum og láta gott af sér leiða, varð að 21 dags gönguferð sem umbreytti lífi hennar og Lukku Pálsdóttur. Þær gengu ásamt hópi tíu kvenna, þar af átta frá Nepal, á Lobuche (6.119 m) í Himalaya í nóvember sl. undir formerkjum verkefnisins Climb for Change.

Leiðangurinn hafði það að markmiði að styrkja nepalskar konur til þátttöku í háfjallamennsku og skildi eftir sig djúp spor í hjörtum þeirra allra.

„Við vorum saman frá morgni til kvölds í þrjár vikur. Þetta var svo dýpkandi og umbreytandi upplifun. Náttúran, fólkið, einfaldleikinn og sú staðreynd að við gengum með

konum sem eru að ryðja veginn fyrir aðrar konur í Nepal – það var alveg magnað.“

Undirbúningurinn var ferð út af fyrir sig

Leiðangurinn var langt frá því að vera skyndiákvörðun. Þær gengu á tvö til þrjú fjöll í viku, stunduðu styrktaræfingar og æfðu jöklaviðfang eins og ísklifur og sprungubjörgun á Vatnajökli. Til að venjast lægri súrefnismettun sváfu þær í háfjallatjaldi áður en lagt var af stað.

Með bætiefnum eins og Beetroot, C-vítamíni til að byggja upp rauðu blóðkornin fyrir betri súrefnismettun,

magnesíumi og öndunaræfingum fyrir svefninn, bjuggu þær sig undir þær skertu aðstæður sem biðu. „Andlegi undirbúningurinn var jafn mikilvægur og líkamlegi. Að hugsa ferðina fyrirfram, stilla hugann og treysta eigin getu,“ segir Lukka.

Að lifa í hæð, köldu herbergi og djúpri hörku

Í yfir 3.500 metra hæð fóru svefntruflanir, hraðari hjartsláttur og minnkandi matarlyst að segja til sín. Sumar nætur sváfu þær einungis 2,5 klst. „Þetta voru tækifæri til að læra að treysta eigin öndun, slökun og hugarró,“ segir Soffía.

Matarvenjur breytast í þessari hæð.

Þær borðuðu oft þjóðarrétt Nepala, Dal Bhat, en minni matarlyst þýddi að það þurfti að borða til að lifa, en ekki fyrir nautnina.

„Við tókum með okkur Oat King orkustykkin, ýmis bætiefni og steinefnadrykki til að halda orkunni. Í ferðinni missti ég 5 kg og töluvert af vöðvamassa og Lukka 2 kg af hreinum vöðvamassa,“ segir Soffía.

„Við héldum úti orkunni með því að borða reglulega, þó það væri af skyldurækni.“

„Við sváfum með vettlinga og húfu, enda stundum frost þó við svæfum innandyra. Það bjargaði okkur alveg að kúra sig í svefnpokanum með hitabrúsa á milli fóta.“

Andleg umbreyting og nýtt sjónarhorn á lífið

Fjöllin höfðu mikil áhrif á þær, ekki bara á líkamann heldur líka á hugarfarið.

Það gerist eitthvað magnað í fjöllunum. Þú hægir á þér og hættir að flýja þögnina. Við settum aldrei tónlist í eyrun – náttúran spilaði sína eigin sinfóníu beint inn í skynfærin.

Soffía lýsir andlegri ró eftir heimkomu, eins og hún væri „á annarri tíðni en fólkið í kringum sig.“ Lukka bætir við:

„Ég kom heim svo yfirfull af þakklæti. Það er erfitt að lýsa því, en ég hafði aldrei fundið mig jafn tengda því sem skiptir raunverulega máli, sem er samvera, einfaldleiki, tengsl og þögn.“

Að ganga með hetjum og breyta viðhorfum

Með þeim í göngunni voru Pasang Lhamu Sherpa Akita og Purnima Shrestha, tvær af fremstu konum heims í háfjallamennsku. „Að fylgjast með þeim starfa í eigin heimalandi, þar sem þær hafa áhrif langt umfram Nepal, voru hrein forréttindi,“ segja þær. Þær voru ekki aðeins félagar heldur lifandi fyrirmyndir sem veittu okkur djúpan innblástur.

Lexía sem endurspeglar lífið sjálft

Ferðin var ekki bara um fjöll heldur um lífið og það sem skiptir máli í lífinu. Um einfaldleikann, tengslin, þakklætið og þann styrk sem við öll búum yfir – hvort sem við erum meðvituð um það eða ekki. Um að stíga út fyrir þægindarammann og treysta eigin rödd og getu.

„Þú stækkar um marga sentímetra eftir svona lífsreynslu. Það að stíga

Sama hvort draumurinn þinn sé að ganga á Everest eða 5 km leið, þá er mikilvægasta skrefið að byrja. Mikilvægt er líka að átta sig á hver draumur manns er eða hvað það er sem veitir lífinu tilgang og næringu.

Kannski byrjar ferðin þín á næsta stíg, næsta fjalli, eða einfaldlega með því að staldra aðeins við og spyrja sjálfan sig - Hvað langar mig? Hvert stefni ég? ■

Glöð að hafa kynnst v ítamínspreyjunum

Þegar blóðprufur sýndu lágt B12, D-vítamín og járn fór Erla Kolbrún að leita nýrra leiða til að bæta heilsuna, án þess að gera magavandamálin verri. Hún deilir hér með okkur einföldu breytingunni sem breytti líðan hennar, bætti orkuna og varð að ómissandi hluta af daglegu lífi fjölskyldunnar.

Margir taka vítamín í töflu- eða hylkjaformi til að styðja við almenna heilsu, en til þess að líkaminn geti nýtt sér þau næringarefni sem best, skiptir meltingarheilsa miklu máli. Ef meltingin er í ójafnvægi, til dæmis vegna undirliggjandi meltingarvandamála, getur það haft áhrif á hvernig líkaminn brýtur niður og nýtir vítamín og önnur næringarefni.

Vítamínspreyin frá Better You geta verið sniðug lausn fyrir marga þar sem þau fara alveg fram hjá meltingarveginum. Með því að spreyja undir tungu eða út í kinn, frásogast vítamínin beint í blóðrásina í gegnum slímhúð í munni, sem

tryggir hraðari og betri upptöku. Vítamínspreyin geta þannig verið sérstaklega gagnleg fyrir fólk með meltingarvandamál, en einnig þau sem eiga erfitt með að gleypa töflur eða vilja einfalda, skemmtilega og fljótvirka leið til að taka inn mikilvæg

Meltingarónot úr sögunni með vítamínspreyjunum

Erla hefur lengi glímt við magavandamál og fann oft fyrir óþægindum við inntöku hefðbundinna vítamína. Þegar niðurstöður úr blóðprufu sýndu lágt gildi B12, D- vítamíns og járns ákvað hún að leita að öðruvísi lausn og kynntist þannig Better You vítamínspreyjunum. „Ég hugsaði með mér að vítamínspreyin myndu henta mér vel þar sem ég er ofsalega viðkvæm í maganum og ég hef lengi glímt við magavandamál og á því erfitt með að taka vítamín í gegnum meltinguna,“ útskýrir hún. „Einnig vissi ég að það yrði mun auðveldara að fá dóttur mína til að taka inn vítamín í spreyformi með góðu bragði, heldur en töflur eða hylki,“ bætir hún við.

Í dag, eftir að hafa notað vítamínspreyin

frá Better You í um þrjú ár, segir Erla að áhrifin hafi verið ótrúleg. Hún upplifir betri líðan, minni meltingaróþægindi og aukna orku. „Mín reynsla er sú að vítamínspreyin valda ekki magaóþægindum, þau eru bragðgóð og blóðprufurnar segja sitt

Eitthvað fyrir alla fjölskylduna

Erla mælir eindregið með vítamínunum frá Better You, en þau hafa orðið hluti af daglegri rútínu allrar fjölskyldunnar. Erla tekur B12, járn, C vítamín og D+K2 vítamín daglega og dóttir hennar Magdalena Eik tekur sömu vítamínin með henni. Andrés, eiginmaður Erlu, notar D+K2 vítamín og C vítamín spreyin og fjölskyldan er öll sammála um að spreyin séu bæði þægileg og mjög bragðgóð. „Við fjölskyldan elskum vítamínspreyin, svo eru þau algjör snilld þegar við ferðumst. Það er svo handhægt að skella spreyjunum ofan í snyrtitöskuna,“ segir hún.

Erla mælir einnig mikið með magnesíum línunni frá Better You. Þar eru Magnesíum flögurnar og gelið í miklu uppáhaldi. „Ég elska að setja Magnesíum flögurnar frá Better

You í baðið og Andrés notar mikið Magnesíum gelið á þreytta fætur eftir vinnudaginn og það hjálpar mikið við fótapirring,“

Við fjölskyldan

elskum vítamínspreyin

Heilög tvenna fyrir hlauparann

Rauðrófuhylkin og Glúkósamín formúlan frá Natures Aid eru frábær viðbót fyrir þau sem vilja styðja við úthald, betri endurheimt og liðheilsu, bæði við miklar æfingar og í daglegu lífi.

Þegar utanvegahlauparinn Sindri Pétursson leggur upp í langar og krefjandi æfingar með Fjallahlaupaþjálfun, skiptir hvert smáatriði máli. Úthald, endurheimt og liðheilsa ráða oft úrslitum, bæði fyrir árangur og ánægju í hlaupunum. Í leit að sterkari líkama og meiri orku fékk Sindri ábendingu frá öðrum hlaupurum að prófa rauðrófuhylkin og glúkósamín blönduna frá Natures Aid, viðbót sem reyndist honum fljótlega ómetanleg.

Góð viðbót í rútínuna

„Ég hef lítið verið að taka inn bætiefni áður,“ segir Sindri.

„Fyrir utan Bio-Kult góðgerla og kreatín, þá var þetta nýtt fyrir mér, en Beetroot og Glucosamine hafa orðið ómissandi í rútínuna mína.“

Sindri ákvað að prófa þessar vörur þar sem þær styðja við endurheimt og aukið úthald, sem er einmitt það sem hann þarf fyrir langar og erfiðar æfingar. „Ég hef verið að taka þetta í um tvo mánuði og hef mjög góða reynslu af því,“ segir hann. „Eftir um tvær vikur fann ég sérstaklega meiri kraft í síðari

hluta hlaupa. Skrokkurinn tekur vel í þetta og ég hef meiri orku, sérstaklega á löngum og erfiðum æfingum.“

Sindri mælir hiklaust með þessari tvennu frá Natures Aid, sérstaklega fyrir alla hlaupara, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. „Ég finn minna fyrir þreytu og orkan er góð, fyrir, á meðan og eftir æfingar. Endurheimtin er betri og ég er alltaf tilbúin í næstu æfingu.“

Krefjandi æfingar kalla

á kraft rauðrófunnar

„Ég hafði aðeins verið að taka rauðrófusafa fyrir, en það er svo miklu þægilegra að eiga þetta til í töfluformi,“ segir Sindri um tilkomu rauðrófuhylkjanna í sína rútínu. Beetroot frá Natures Aid er 100% náttúrulegt og dagskammturinn, 2 hylki, jafngildir 9.240 mg af rauðrófu.

Áhugi á heilsueflandi eiginleikum rauðrófunnar er sífellt að aukast og þá sérstaklega hjá íþróttafólki vegna þess að rauðrófan inniheldur nítröt sem er náttúrulegt efnasamband

sem þekkt er fyrir að hafa jákvæð áhrif á súrefnisflæði, orkunýtingu og betra blóðflæði.

Að bæta súrefnisupptöku og auka blóðflæðið getur haft jákvæð áhrif á snerpu, orku og úthald bæði í daglegu lífi og við æfingar. Þar að auki er rauðrófan stútfull af vítamínum, steinefnum og öflugum andoxunarefnum sem stuðla að betri endurheimt líkamans. Það eru þó ekki allir sem eru jafn hrifnir af bragðinu af rauðrófunni og því er rauðrófuduft í hylkjum tilvalin lausn til að bæta þessari ofurfæðu inn í daglega rútínu.

Byrjum strax að passa upp á liðina

Liðirnir gegna lykilhlutverki í öllum hreyfingum líkamans. Þeir gera okkur kleift að hreyfa okkur mjúklega og áreynslulaust, með því að tengja saman bein og brjósk. Þess vegna skiptir máli að hlúa vel að liðunum og styðja við heilbrigði þeirra – bæði til að viðhalda hreyfigetu og fyrir almenn lífsgæði.

Glúkósamín er náttúrulegt efni í líkamanum sem gegnir lykilhlutverki í viðhaldi og enduruppbyggingu liða. Þegar

líkaminn þarf aukinn stuðning getur viðbót í formi bætiefna aukið framboð glúkósamíns og stutt við viðgerðarhæfni liðanna. Glúkósamín + Kondrótín formúlan frá Natures Aid sameinar þessi tvö lykilefni, sem bæði eru mikilvæg byggingarefni brjósks og geta haft jákvæð áhrif á liðheilsu. Auk þess inniheldur formúlan engifer og túrmerik, ásamt C vítamín sem stuðlar að myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks. Með reglulegri notkun getur þessi blanda hjálpað til við að draga úr eymslum og óþægindum í liðum. ■

„Endurheimtin er betri og ég er alltaf tilbúinn í næstu æfingu“

Óþægindi í blöðrunni?

Margir karlmenn kannast við óþægindi sem tengjast þvaglátum, svo sem að bunan geti verið slöpp og slitrótt, tíðar klósettferðir á næturnar sem tru a svefninn, þvagleka, er ðleika við að he a þvaglát og jafnvel sviða eða sársauka. Tiltekin einkenni eru oft á tíðum a eiðing af góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli.

Brizo hefur það að markmiði að hjálpa þér að losna undan óþægindum sem geta fylgt þvaglátum.

Eitt hylki kvölds og morgna þarf til að Brizo beri tilætlaðan árangur.

Betri svefn á náttúrulegan hátt

Melatónín og næring fyrir hvíld og endurnýjun

Nú er íslenska sumarið að nálgast með allri sinni birtu, sem getur haft áhrif á svefnvenjur okkar. Þar sem melatónínframleiðsla líkamans fer eftir birtustigi, getur langur og bjartur dagur valdið því að við framleiðum minna af þessu mikilvæga svefnhormóni. Þess vegna er einstaklega mikilvægt að styðja við svefninn á náttúrulegan hátt á þessum árstíma.

Svefn gegnir lykilhlutverki í heilsu okkar og vellíðan. Góð hvíld styður við andlega og líkamlega endurnýjun, styrkir ónæmiskerfið og bætir einbeitingu og skap. Eitt af þeim efnum sem hjálpa líkamanum að stjórna svefni er melatónín, hormón sem heilaköngullinn framleiðir náttúrulega.

Hvernig virkar melatónín?

Melatónín er stundum kallað „svefnhormónið“ þar sem það hefur bein áhrif á líffræðilega klukku líkamans og hjálpar honum að undirbúa sig fyrir svefn. Framleiðsla þess eykst venjulega í myrkri og minnkar í birtu, sem hjálpar líkamanum að stilla svefnmynstur sitt. Hins vegar geta ýmsir þættir truflað þessa framleiðslu, svo sem aldur, blátt ljós frá skjám, óreglulegt svefnmynstur og streita. Þess vegna hefur melatónín verið vinsælt sem bætiefni, sérstaklega fyrir þau sem eiga erfitt með að sofna, vinna vaktavinnu eða glíma við tímamismun eftir ferðalög.

Rannsóknir benda til þess að melatónín geti stuðlað að því að fólk sofni hraðar

og að svefngæði batni. Það hefur einnig verið skoðað í tengslum við streitu og áhrif þess á taugakerfið.

Önnur náttúruleg efni sem styðja við slökun og svefn

Auk melatóníns eru til ýmis náttúruleg efni sem geta stutt við slökun og stuðlað að betri svefni. Þessi efni hafa róandi áhrif á taugakerfið og geta verið gagnleg fyrir þau sem vilja bæta svefnvenjur sínar á náttúrulegan hátt.

• Sítrónumelissa er jurt sem hefur lengi verið notuð til að styðja við slökun og vellíðan. Hún er þekkt fyrir að geta dregið úr spennu, sem getur haft jákvæð áhrif á svefn.

• Kamilla er oft drukkin sem

Kamillute en hún hefur róandi eiginleika og er þekkt fyrir að stuðla að vellíðan og slökun. Jurtin inniheldur efnið apigenin, sem tengist við sérstaka viðtaka í heilanum og getur þannig hjálpað til við að skapa betri svefnaðstæður.

• Steinefnið Magnesíum er mikilvægt fyrir taugakerfið og vöðvaslökun. Skortur á magnesíum getur tengst eirðarleysi og svefntruflunum, en nægilegt magn í líkamanum getur stutt við djúpan og endurnærandi svefn.

• B vítamín styðja við orkubúskap líkamans og heilastarfsemi. B6 er sérstaklega mikilvægt fyrir framleiðslu á serótóníni og melatóníni, sem eru nauðsynleg fyrir góðan svefn. Einnig

getur skortur á B12 tengst svefntruflunum og orkuleysi.

• Amínósýran Glycine hefur verið rannsökuð fyrir áhrif sín á svefn. Talið er að hún geti hjálpað til við að lækka líkamshita, sem er nauðsynlegt til að komast í djúpan svefn og bæta svefngæði.

• Amínósýran L-theanine sem finnst í grænu tei, er þekkt fyrir að styðja við slökun án þess að valda syfju. Hún getur hjálpað við streitulosun og skapað betra svefnumhverfi fyrir líkamann.

• Omega-3 fitusýrur styðja við heilastarfsemi og geta haft jákvæð áhrif á svefn, sérstaklega DHAfitusýran, sem hefur verið tengd við eðlilegan svefn-vökuhring.

Góður

svefn

er

fjárfesting í góðri heilsu

Svefn hefur áhrif á alla þætti lífsins, andlega og líkamlega heilsu, orku, einbeitingu og almenna vellíðan. Að tryggja sér nægan og endurnærandi svefn er ein besta fjárfesting sem hægt er að gera fyrir heilsuna.

Sofðu betur !

„Kemur að góðum notum þegar að ég á erfitt með svefn“

Með því að hlúa að svefninum með heilbrigðum venjum, hollri næringu og náttúrulegum efnum sem styðja við slökun, er hægt að bæta lífsgæði og ná betri hvíld. Þegar svefninn er í jafnvægi hefur það jákvæð áhrif á alla líðan, frá skýrari hugsun til betri orku yfir daginn. Það er því vert að huga vel að góðum svefni. ■ - Þórunn

Melissa Dream styður við góðan nætursvefn án sljóvgandi áhrifa. Inniheldur sítrónumelissu sem stuðlar að eðlilegum og rólegum svefni, Kamillu, grænt te með L-theanine, öfluga B vítamín blöndu og magnesíum.

„Nutrilenk heldur liðum mínum góðum

Fjölmargir hafa fundið lausn á stirðleika, óþægindum og eymslum í liðum með hjálp Nutrilenk og hefur það reynst ómissandi fyrir þau sem vilja viðhalda

Liðirnir þörfnuðust stuðnings og Nutrilenk breytti öllu

Hafdís kynntist Nutrilenk fyrir einu og hálfu ári síðan, en eftir að hafa lent í slysi í æfingaferð erlendis glímdi hún við langvarandi eymsli í axlarliðum og hefur Nutrilenk Gold reynst henni einstaklega vel. „Ég sé alls ekki eftir að hafa byrjað að taka Nutrilenk þar sem ég fann ótrúlegan mun. Ég hætti að finna fyrir óþægindum í liðum eftir aðeins 6–8 vikur,“ segir Hafdís.

Fyrir íþróttakonu sem lifir við stöðugt líkamlegt álag skiptir öllu máli að hlúa að líkamanum og styrkja hann til að fyrirbyggja eymsli og meiðsli. Hafdís þekkir það af eigin raun.

„Líkaminn minn er undir miklu álagi nánast allt árið, þannig að það er gríðarlega mikilvægt að huga að mörgum þáttum,“ segir hún. „Að taka Nutrilenk er einn þáttur í því að halda liðunum mínum sterkum og heilbrigðum.“ Í dag er Nutrilenk orðinn fastur liður í daglegri heilsurútínu Hafdísar.

„Ég mæli heilshugar með Nutrilenk fyrir alla sem stunda íþróttir eða hreyfingu,“ segir Hafdís. „Hvort sem þú finnur fyrir óþægindum eða vilt fyrirbyggja þau, þá skiptir Nutrilenk

sköpum fyrir liðheilsuna. Fyrir þá sem æfa stíft allt árið hjálpar það að halda liðunum sterkum og heilsunni í jafnvægi.“

Nutrilenk er hannað til að styrkja og vernda liðina

Nutrilenk hefur um árabil verið eitt vinsælasta liðbætiefnið á Íslandi og ekki að ástæðulausu. Nutrilenk Gold er sérstaklega þróað til að styðja við liðheilsu, styrkja liði og stuðla að bættri hreyfigetu með reglulegri notkun.

Formúlan byggir á vönduðum innihaldsefnum sem vinna saman að því að styðja við heilbrigða liði og bein. Formúlan inniheldur meðal annars kondrótín, kollagen og kalk, sem öll eru nauðsynleg fyrir viðhald heilbrigðra beina. Auk þess inniheldur formúlan D- og C vítamín, sem stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir heilbrigða starfsemi beina og brjósks, ásamt mangan sem styður við viðhald heilbrigðra beina og eðlilega myndun bandvefja.

Nutrilenk hentar öllum sem vilja hlúa að liðum líkamans, hvort sem það er íþróttafólk, einstaklingar í líkamlega krefjandi vinnu eða þau sem vilja bregðast við stirðleika eða minnkuðum liðleika í daglegu lífi. Með því að velja Nutrilenk gefur þú liðunum þínum nauðsynlega næringu og stuðning til framtíðar.

ganga í gegnum, en hvernig einkennin birtast og hvernig þær takast á við þær breytingar er afar persónubundið. Breytingaskeiðið getur verið bæði líkamlega og andlega krefjandi, en með réttri fræðslu, jákvæðu viðhorfi og stuðning getur þetta verið einstaklega styrkjandi reynsla. Með því að þekkja einkenni hvers stigs og leita sér viðeigandi aðstoðar má stuðla að bættri heilsu og vellíðan á þessu tímabili og til framtíðar.

Femarelle bókstaflega

breytti lífi Dídíar

Dídí Ásgeirsdóttir var 48 ára og vann í Lyfju þegar hún kynntist fyrst Femarelle. Eins og margar aðrar konur á þessum aldri, var hún byrjuð að finna fyrir einkennum breytingaskeiðsins. Svitakóf, svefnleysi, pirringur, orkuleysi og þreyta voru farin að hafa

„Líf mitt breyttist

áhrif á daglegt líf hennar. „Ég var farin að kófsvitna á nóttunni og svaf mjög illa. Mér fannst ég líka verða pirruð og uppstökk yfir engu og fann fyrir þreytu og orkuleysi,“ útskýrir hún.

Dídí segir það hafa verið ein besta ákvörðun sem hún hefur tekið að prófa Femarelle. „Ég hafði engu að tapa, þannig að ég skellti mér á pakka af Femarelle og ákvað að prófa. Þvílík U-beygja á skömmum tíma, dagarnir

FÆTUR FYRST & FREMST

Sérhæfðar vörur fyrir fætur til daglegrar notkunar og gegn algengum fóta vandamálum, hvort sem um er að ræða þurra, sprungna eða sára fætur. Scholl fótavörurnar endurnæra, græða og viðhalda góðri fótaheilsu á öruggan og árangursríkan hátt.

Lífið tók beygju og ég lærði að hlaupa í nýja átt

Það eru fáir sem tala um hlaup með jafn mikilli ástríðu og Silja Úlfarsdóttir.

Hún hefur ekki bara keppt í frjálsum íþróttum á hæsta stigi heldur helgað sig því að miðla af reynslu sinni til annarra, hvort sem það er íþróttafólk, foreldrar eða þau sem vilja bara koma sér af stað.

Silja er þjálfari með áratuga reynslu og heldur úti fjölbreyttum námskeiðum og býður upp á hlaupaprógrömm sem höfða jafnt til byrjenda og íþróttafólks sem vill bæta hraða sinn og tækni eða þau sem elska að hlaupa lengra og vilja gera það betur. Hún þjálfar bæði ungmenni og fullorðna og hefur sérhæft sig í því að hjálpa fólki að hlaupa betur og njóta ferðalagsins. Á vefnum hennar, siljaulfars.is, má

finna fjölbreytt úrval af námskeiðum og verkfærum fyrir þá sem vilja komast á skrið eða hlaupa hraðar. Ásamt þjálfuninni heldur hún úti hlaðvarpinu Klefinn þar sem hún fær til sín gesti úr íþróttaheiminum, allt með það að markmiði að hlustendur geti lært af reynslu annarra og bætt sig í því sem þeir eru að gera. Silja leggur áherslu á að fá fjölbreytta gesti úr íþróttaheiminum í Klefann til að fá „inspo“ og geta lært af hvert öðru þó þau séu ekki að æfa sömu íþróttagrein. Silja segir að allt íþróttafólk tali sama tungumálið í Klefanum, þar er rætt um þjálfun, hugarfar, aga, næringu, styrktaræfingar og margt fleira. Í hlaðvarpinu skapar hún einlægar og áhugaverðar umræður um ástríðu, aga, áskoranir og árangur þar sem opinskátt samtal fær að flæða og dýrmæt reynsla viðmælenda nýtist öðrum til innblásturs. „Ég hef lært

svo mikið af öllu þessu fólki sem ég hef fengið í þáttinn, það er engin bein formúla að ná árangri, en til að finna þína leið þá er gott að heyra hvað aðrir hafa gert og prófa sig áfram. Það er alltaf eitthvað sem kemur mér á óvart í hverjum þætti, ég vildi að ég væri aftur íþróttakona, það sem ég veit í dag hefði getað gagnast mér hér áður fyrr.“

En Silja er ekki bara þjálfari og hlaðvarpskona, hún er líka móðir tveggja drengja, Sindra Dan og Snævars Dan, sem verða 16 og 14 ára á þessu ári. Hún var afrekskona í frjálsum, fljótasta kona landsins í um áratug og keppti á mótum um allan heim. Hún hefur alla tíð lagt áherslu á heilbrigðan lífsstíl og hefur m.a. lokið hálfu maraþoni, klárað hálfan Ironman og tekið þátt í hjólakeppnum. „Eftir íþróttaferilinn ertu svolítið að leita aftur að íþróttatilfinningunni – og mér finnst skemmtilegast að æfa af krafti,

alveg eins og í gamla daga,“ segir hún með sinni smitandi orku.

Við settumst niður með Silju til að ræða lífið, hlaupin og hvað það er sem raunverulega kveikir kraftinn í fólki.

Frá þríþrautarkeppni í atvinnumennsku og aftur heim

„Ég er alltaf í góðum gír!“ segir Silja og hlær þegar við setjumst niður. Hún var sjö ára þegar hún byrjaði í handbolta og svo fótbolta, en það var í unglingadeild sem hún uppgötvaði hversu fljót hún var að hlaupa.

„Það var í þríþrautarkeppni milli skóla þar sem keppt var í 60 metra hlaupi, boltakasti og hástökki. Ég varð stigahæst í heildina og vann. Þá fattaði

Silja lagði áherslu á frjálsar íþróttir í menntaskóla, fékk háskólastyrk og fór í Clemson University í South Carolina. Þar æfði hún af krafti og síðar hélt hún áfram sem atvinnumaður í frjálsum í Atlanta. Hún var fljótasta kona landsins í um áratug og keppti á mótum víða um heim. En þetta var ekki alltaf dans á rósum, ofþjálfun og álag reyndu á, líkamlega og andlega.

„Ég æfði af mikilli ástríðu og aga og reyndi oft á þolmörkin hjá mér. Ég lagði mesta áherslu á 200m, 400m og 400m grindarhlaup, það eru mjólkusýru greinar svo ég lá oft á jörðinni búin á því eftir æfingar eða með hausinn ofan í ruslatunnunni. Ég elskaði þá tilfininngu að tæma líkamann – þá veistu að bætingarnar koma, ég sakna þessara tilfinninga.”

Silja gekk of langt eitt árið og endaði í ofþjálfun, þá hlustaði hún ekki á

Einu sinni leið yfir mig á æfingu og þegar ég rankaði við mér, stóð ég bara upp og kláraði hana. Eftir á séð var það merki um að ég væri komin of langt.“

„Maður þarf að þekkja sín mörk og læra að hlusta á líkamann. Þetta var mér mikilvægur lærdómur.“

Ofþjálfunin leiddi til þess að hún hætti keppni sem atvinnumaður. „Ég náði mér aldrei almennilega á strik eftir ofþjálfunina. Ég reyndi þó við Ólympíu lágmarkið, en á endanum lagði ég skóna á hilluna. Mín síðasta keppni var í Hollandi og ég hætti að hlaupa eftir 300m og vissi að þetta ævintýri væri búið.“ Þó svo það hafi verið erfitt á sínum tíma, þá varð það líka upphafið á nýjum kafla í lífinu þar sem hún gat nýtt alla sína reynslu í að þjálfa aðra og styðja við þeirra vegferð. „Ég vil aðstoða íþróttafólk að

„Þú veist ekki hvað þú getur fyrr en þú prófar. Oft er það fyrsta skrefið sem breytir öllu.“

Að hlaupa rétt – hvort sem er í spretti eða langhlaupi

Silja Úlfarsdóttir er í essinu sínu þegar hún talar um hlaup. Hún segist elska spretti og „intervöl“ og fátt finnist henni skemmtilegra en að taka hlaupaæfingar á hlaupabraut. Hraðinn hefur alltaf verið henni í blóð borinn, en fyrir Silju snúast hlaupin ekki eingöngu um að hlaupa hratt. Hún leggur jafnmikla áherslu á að kenna fólki að hlaupa rétt, hlusta á líkamann og finna gleðina í hverju skrefi.

Krafturinn í spretthlaupi

Silja vinnur mikið með ungu íþróttafólki úr ýmsum greinum þar sem fókusinn er á hraða, sprengikraft og góða líkamsbeitingu. Til að bæta hraða þarf stundum að endurforrita gamlar venjur og byggja tækni frá grunni.

„Þegar íþróttafólk býr yfir góðri líkamsmeðvitund, þá sjáum við oft fljótt miklar framfarir. Við notum fjölbreyttar æfingar til að ná sem mestum árangri og það er ótrúlega gefandi að sjá hve miklum framförum fólk getur náð með réttri nálgun.“ Silja brennur fyrir að sjá ungt íþróttafólk bæta sig, hvort sem það er á hlaupabrautinni eða í öðrum íþróttum þar sem sprengikraftur skiptir máli.

Þolinmæði skiptir máli í langhlaupi

Þó svo að sprettirnir séu Silju hugleiknir, þá er hún ekki síður heilluð af því að byggja upp þol og ná langt í lengri hlaupum.

„Þegar ég var yngri í frjálsum þá var það nú ekki talið sérstaklega töff að vera úti að hlaupa og hvað þá í hlaupa

tights” segir hún og brosir. „Í dag eru allir og amma þeirra úti að hlaupa og þetta er frábær þróun. Fyrir þau sem vilja byrja og vera með í hlaupafjörinu þá eru fyrstu hlaupin alls ekki flókin.“

„Fyrstu 2–3 vikurnar geta verið erfiðar, en svo, allt í einu, fer hlaupið að verða auðveldara,“ segir hún með brosi. „Þetta er langhlaup, bæði bókstaflega og í lífinu.“

Silja vinnur mikið með tækni og líkamsbeitingu í þolhlaupunum líka. Hún leggur áherslu á að hlaupið verði létt og náttúrulegt. „Þú vilt að líkaminn hlaupi fyrir þig, ekki að þú dragir hann með þér, þetta á að rúlla bara, en oftast byrjar þetta í ökklanum. Mér finnst mjög gaman að spá í hlaupastílum og þú getur séð veikleika hjá fólki þegar þú horfir á þau, sumir hlaupa sitjandi, aðrir eru á skíðum, einhverjir taka Pheobe á þetta. Það er mjög gaman þegar ég er að keyra með strákana mína og þeir byrja að tala um hlaupastíl hjá fólki, þá er mamma stolt. Ekki byrja á því að hlaupa eins og þú sért að keppa, byrjaðu á að byggja þol, skapa góðar venjur og fáðu þér almennilega hlaupskó. Þeir skipta öllu máli.“

Silja gaf í fyrra út frítt hlaupaprógramm fyrir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoninu, sem sló í gegn. „Í fyrra nýttu um 1.600 manns sér þetta prógramm. Það er svo skemmtilegt að fylgjast með fólki taka fyrstu skrefin og sjá þau klára sín markmið,“ segir hún brosandi, greinilega stolt af árangri hlauparanna. Það eru öll velkomin að taka þátt og þú skráir þig á siljaulfars.is.

Með hugarfarið í takt við markmiðin

Silja leggur mikla áherslu á að íþróttafólk læri að hlusta á líkamann

og þekkja styrkleika sína og veikleika, þá skiptir gott hugarfar og sjálfstraust miklu máli.

„Ef þú hefur ekki trú á sjálfum þér, af hverju ættu aðrir að gera það?“ spyr hún og undirstrikar mikilvægi þess að byggja upp bæði líkamann og gott hugarfar í þjálfun.

„Það er bara þetta klassíska sem skiptir höfuðmáli, þú uppskerð eins og þú sáir. Þú nærð ekki árangri í neinu nema að leggja vinnuna í það.“

Við spurðum Silju hvað það væri sem gerði hana að svona góðum þjálfara. „Ég veit það ekki... en mér þykir rosalega vænt um fólkið sem ég þjálfa. Ég vil alltaf ná því besta fram í þeim og stundum held ég að ég sé ekkert minna glöð en þau þegar þau ná markmiðunum sínum.“

Frá mótlæti til innri styrks

Ferill Silju hefur ekki eingöngu mótast af íþróttum. Hún hefur einnig gengið í gegnum erfið áföll, barnsfaðir hennar lést þegar drengirnir voru ungir og fimm árum síðar lést faðir hennar, sem hafði eiginlega gengið þeim í föðurstað. „Dauðinn setti lífið í samhengi,“ segir hún.

„Ég ákvað að lifa lífinu eins og það skipti mig máli, gera það sem gefur mér tilgang og mér finnst skemmtilegt. Ég leitaði mér aðstoðar í gegnum sorgarferlið, en mín leið til að vinna úr áföllunum var líka að fá útrás og því hef ég oft leitað í hreyfingu.“

„Mér finnst líka mjög gott að tala við góða vini. Stundum næ ég bestu hreinsuninni með því að hugsa upphátt og setja hlutina í orð, þá losna þeir einhvern veginn úr kerfinu.“

„Þessi lífssýn hefur einnig haft djúp

áhrif á móðurhlutverkið. Vigfús Bjarni áfallaprestur sagði við mig eftir fráfall barnsfaðir míns „Ef foreldri er í lagi þá eru börnin í lagi,“ þetta hafði mikil áhrif á mig. Þau orð mótuðu mig sem foreldri. Ég fór að hugsa betur um mig, svo ég gæti verið betri mamma fyrir strákana mína. Ég fann líka hversu mikið það hafði bein áhrif á strákana ef fólk kom mér úr jafnvægi. Með tímanum varð ég smá eigingjörn á orkuna mína, því ég vissi að það skiptir öllu máli hvernig mér líður, fyrir þá líka.“

Til að vernda þessa orku lokaði hún nokkrum dyrum, þar sem hún fann að fólk kom illa fram við hana eða lét henni líða illa.

Að taka fyrsta skrefið

Ef fólk ætti að taka eitt með sér eftir að lesa þetta viðtal, þá segir Silja það vera þetta: að trúa á sjálfan sig, leyfa sér að prófa nýja hluti, fara út fyrir þægindarammann og njóta ferðarinnar.

„Trúðu á sjálfan þig. Byrjaðu bara. Ekki bíða eftir rétta tímanum, hann kemur sjaldan. Þú veist ekki hvað þú getur fyrr en þú prófar. Oft er það fyrsta skrefið sem breytir öllu,” segir hún.

Silja leggur einnig áherslu á að finna hvað þér finnst skemmtilegt að gera, finna leið til að gera það á eigin forsendum, hugsa vel um sjálfan sig og það allra mikilvægasta, að njóta vegferðarinnar á leiðinni að markmiðunum.

Ef þú ert að stíga þín fyrstu skref í hlaupum þá er Silja með frítt hlaupaprógramm í sumar þar sem markmiðið er að geta hlaupið 10km í lok sumars. Þú finnur upplýsingar um það inn á siljaulfars.is. Silja hefur einnig reglulega verið með ýmis æfingarprógrömm í boði fyrir hlaup og styrk, allt með markmiði að öll geta æft og hreyft sig, eða ef þú vilt æfa eins og íþróttafólk. Þá er Silja dugleg að deila á samfélagsmiðlum sínum hvatningu, nytsamlegum ráðum, æfingum og öðrum innblæstri fyrir alla þá sem vilja taka skref í átt að betri líðan og auknu sjálfstrausti í hreyfingu. ■

„dauðinn setti lífið í samhengi, en ég ætla að hafa gaman af lífinu“

Hlaupaæfingar

Hér eru nokkrar mismunandi hlaupaæfingar sem hægt er að gera. Silja leggur mikið upp úr að æfingar séu fjölbreyttar og skemmtilegar, hún sendi okkur nokkrar tillögur til að gefa þér hugmyndir til að prófa í sumar.

Mundu að hita alltaf aðeins upp, þú getur skokkað, sippað, gert smá fótasveiflur, röskleg ganga eða eitthvað til að koma blóðinu aðeins af stað. Þá er gott að gefa sér smá tíma og teygja og rúlla eftir æfingarnar. Silja er með ýmsar æfingar í Close Friends á Instagram, sendu henni skilaboð og þú kemst í hópinn og lærir kannski eitthvað nýtt. ■

Byrjunaræfing

Hitar upp með röskri göngu í 5-10 mínútur.

3x60 sek skokka - ganga 90 sek

3x90 sek skokka - ganga 90 sek

3x60 sek skokka - ganga 90 sek

Ganga þig niður

Ef þú vilt hlaupa á pace-i þá gæti það verið á markmiða pace-inu þínu fyrir 5 eða 10 km.

Hlaup og styrktar æfing

Þú hleypur vegalengdina og gerir æfinga hring á milli (það er hvíldin þín)

1000m - 800m - 600m - 400m - 200m

(þú getur líka lengt hana og hlaupið 2.000m - 1.600m1.200m - 800m - 400m með sömu æfingum á milli)

10 hnébeygjur - 10 armbeygjur - 10 kviðæfingar10 mountain climber.

Brekkuhlaup

Hlaupa upp 4x30 sek - skokka hálfa leið niður og ganga rest.

Hlaupa upp 4x45 sek - skokka hálfa leið niður og ganga rest.

Interval

Styttra: (hraðari)

10x200m - með 90 sek - 2 mín á milli

Eða

Lengra:

8-10x 400m - með 3 mín á milli - ganga eða skokka rólega

Eða

6x500m á markmiða hraðanum þínum (fyrir 5 eða 10km) - ganga eða skokka í 3 mín á milli.

Lengra hlaup

Það er alltaf gott að gefa sér tíma og taka gott langt og rólegt hlaup, svokallað Zone 2 hlaup. Getur verið frá 30-50 mín, eftir hvað þú ert í miklu stuði.

Fartleikur

Fartleikur er hraðaleikur þar sem þú hleypur hraðar og skokkar rólega á milli. Því styttri sem tíminn er því hraðar hleypurðu, eina reglan er að ganga ekki, en mátt skokka eins hægt og þú vilt á milli.

Hitaðu aðeins upp

3 mín hlaup - 3 mín skokk

2 mín hlaup - 2 mín skokk

2 mín hlaup - 2 mín skokk

90 sek hlaup - 2 mín skokk

90 sek hlaup - 2 mín skokk

1 mín hlaup - 2 mín skokk

1 mín hlaup - 2 mín skokk

1 mín hlaup - 2 mín skokk

Samtals 30 mínútur

,,Þessi skýru samskipti milli hugar og meltingar

‘‘

Góðgerlar gegna

lykilhlutverki í að styðja við heilbrigða þarmaflóru, m.a. við niðurbrot, upptöku og nýtingu næringar úr fæðunni í vöðvabyggingu, viðgerð og endurheimt.

,,Ég veit hversu svakalega mikilvægt það er fyrir kerfið okkar og meltinguna að fá inn góðgerla, en ekki bara fyrir meltinguna heldur fyrir hugann sömuleiðis þar sem það eru bein tengsl milli meltingar og andlegrar heilsu.

Það eru einnig svo skýr samskiptin þarna á milli hugar og meltingar sem skiptir gríðarlegu máli fyrir okkur öll,‘‘ segir Rakel Orradóttir, markþjálfi og 4 barna móðir sem mælir heilshugar með góðgerlunum frá Bio-Kult fyrir alla fjölskylduna.

,,Bio-Kult hefur bjargað mér all nokkrum sinnum‘‘

Góðgerlar hafa verið mikið til umræðu síðustu misseri en sífellt bætist í hóp þeirra sem tileinka sér þessa

mikilvægu gerla í sína daglegu rútínu. ,,Ég hef verið að taka inn góðgerla frá Bio-Kult á hverjum degi núna í 3-4 ár en ég flakka á milli Bio-Kult Mind og Bio-Kult Pro-Cyan. Ég hef prófað allskonar í gegnum tíðina, Bio-Kult gerlarnir er það sem hefur fengið að vera hvað lengst með mér en það heillar mig svo mikið hvað þetta eru náttúrulegar vörur og ég kýs það fram yfir svo margt annað. Yfirleitt tek ég inn Bio-Kult Mind dags daglega, en ef mig grunar að óþægindi eða erting tengd

blöðrunni

eða

þvagfærum

sé á næsta

leiti hjá mér

þá breyti ég

í Bio-Kult Pro-Cyan sem hefur bjargað mér all nokkrum sinnum,‘‘ segir Rakel en bendir þó á að það geti komið fyrir að bakterían nái að fikra sig of langt.

,,Mér líður betur í almennri meltingu með Bio-Kult góðgerlunum‘‘

Bio-Kult Candéa sem inniheldur m.a. hvítlauk og greipaldinþykkni sem þekkt er fyrir að bæla niður ákveðna sveppi og koma í veg fyrir ýmis óþægindi sem kann að valda á meðan inntöku sýklalyfja stendur yfir. Þetta var í fyrsta sinn sem ég upplifði ekki nein óþægindi á meðan þessu tímabili stóð þar sem ég tók inn mikilvægan skammt sýklalyfja fyrir heilsu mína, en ég er nokkuð viss um að Bio-Kult Candéa eigi stóran þátt í því.“ Vert er þó að taka sérstaklega fram að bætiefni koma aldrei í stað lyfja á neinn hátt, en góðgerlar samhliða sýklalyfjum hafa sýnt mikla jákvæða kosti.

Ómissandi í morgun rútínunni á heimili Rakelar

,,Ekki fyrir svo löngu síðan þurfti ég á því að halda að taka inn sýklalyf. Samhliða þeim skammti tók ég inn

,,Bio-Kult Infantis er einnig í daglegri notkun á mínu heimili fyrir 7 ára dóttur mína en ég finn mikinn mun hjá henni við að nota þessa vöru daglega. Bio-Kult Infantis hentar henni

einstaklega vel þar sem formúlan er í duft formi sem ég einfaldlega blanda út í morgunmatinn hennar daglega.

Það er ekki í boði að gleyma daglegum skammti en ef til þess kemur, þá er dóttirin fljót að átta sig á því og minna móður sína góðfúslega á að kippa því í laginn,“ segir Rakel með bros á vör en hún hefur góða reynslu af vörunni og hvetur alla til að bæta þessari þægilegu formúlu í rútínuna þar sem flóra barna er auðvitað gríðarlega mikilvæg, rétt eins og okkar.

Góður kostur í daglega rútínu

Þarmaflóra barna skiptir máli líkt og hjá öðrum en flóran sem myndast á fyrstu árum barna er að þróast og dafna alla ævi, alveg frá fæðingu.

Flóran viðheldur ýmist heilbrigði þarmanna sem og ver litlu kroppana gegn óæskilegum bakteríum sem geta valdið óþarfa usla. Til þess að styrkja og viðhalda heilbrigðri flóru barna og fullorðinna er mikilvægt að notast við sérvalda góðgerla. Að auki er mikilvægt að huga að vítamín inntöku barna frá unga aldri en vítamín og steinefni eru gríðarlega mikilvæg fyrir börn í uppvexti til þess að tryggja vöxt og þroska.

Bio-Kult Infantis inniheldur blöndu af vinveittum gerlum sem henta ungabörnum alveg frá fæðingu. Blandan inniheldur einnig m.a. C vítamín sem stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Einstaklega auðvelt er að bæta duftinu í mat eða drykki sem er algerlega bragðlaust. Bio-Kult Infantis inniheldur engan viðbættan sykur, né litar-, bragð- eða aukaefni. Við mælum með að gefa börnum Bio-Kult Infantis með eða eftir fæðu/drykk. ■

Styðjum ónæmiskerfið með Probi

Heilbrigð þarmaflóra er ekki einungis grunnurinn að góðri meltingu heldur hefur hún einnig mikil áhrif á almenna heilsu okkar, bæði líkamlega og andlega. Um 70% ónæmiskerfisins er staðsett í meltingarveginum, sem gerir heilbrigða og fjölbreytta þarmaflóru nauðsynlega fyrir öflugt ónæmiskerfi. Ónæmiskerfið er stöðugt að vinna að því að verja okkur gegn ýmsum bakteríum sem geta haft skaðleg áhrif á heilsu okkar en þegar

neysla á mjólkursýrugerlum í formi bætiefna hjálpað til við að halda flórunni í jafnvægi.

Öflug þarmaflóra er grunnur að sterku ónæmiskerfi

Probi Original inniheldur mjólkursýrugerilinn Lactobacillus

„Þarmaflóran spilar lykilhlutverk í lífi okkar og heilsu og hefur mikið að segja um heilsufar okkar alla ævi.“

„Lactobacillus plantarum 299v í Probi Original styrkir ekki bara þarmaflóruna og meltinguna, heldur hefur hann einnig áhrif á önnur svæði líkamans, sérstaklega ónæmiskerfið,“ útskýrir Þorbjörg sem hefur skoðað eftirfarandi geril einstaklega vel. „Frumur og líffæri ónæmiskerfisins vinna stöðugt að því að vernda líkamann og losa hann við óæskileg efni, en því er mikilvægt að veita þeim góða næringu og stuðning. Ég hef í mörg ár mælt með þessari tegund af góðgerlum og tek sjálf daglega Probi Original til að styðja við mína þarmaflóru og heilsu almennt.“

Góðgerlar sem henta allri fjölskyldunni

Mjólkursýrugerlar eins og þeir sem finnast í Probi, eru náttúrulegur hluti af örveruflóru okkar og hafa ýmis jákvæð áhrif á heilsuna með því að styðja við meltingarstarfsemi og upptöku næringarefna.

Probi Original kemur í hylkjum sem henta allri fjölskyldunni, frá þriggja ára aldri. Að auki má gefa ungabörnum alveg frá 11 daga þessa frábæru góðgerla, en auðvelt er að opna hylkin og blanda innihaldinu í m.a. pela eða graut.

Þorbjörg leggur sérstaka áherslu á mikilvægi góðgerla þegar börn eða fullorðnir þurfa að taka inn sýklalyf. „Ef að börn þurfa sýklalyf er enn mikilvægara að gefa þeim góðgerla samhliða sem virka og komast lifandi niður meltingarveginn án þess að lyfin hafi mikil áhrif á þá.“ Þorbjörg bætir við að barnabörn hennar eru oft útsett fyrir allskyns bakteríum í dagvistun og til þess að styrkja bæði flóruna og ónæmiskerfi þeirra fá þau Probi góðgerla daglega. ■

Er meðvirkni ósýnilegir fjötrar sem halda þér föstum?

er meðvirkni, hvernig þróast hún og hvernig geturðu unnið þig frá henni til að lifa frjálsara og heilbrigðara lífi?

Meðvirkni er orðið eitt af þessum hugtökum sem fólk grípur til þegar rætt er um óheilbrigð tengsl og vanlíðan í samskiptum. En skilurðu í raun hvað meðvirkni er, hvernig hún þróast og hvernig hún getur stýrt lífi þínu án þess að þú bókstaflega takir eftir því?

Meðvirkni er ekki bara það að vera hjálpsamur eða forðast átök, hún er lúmskt og oft ósýnilegt mynstur þar sem þú setur þarfir annarra ofar þínum eigin, oft á kostnað þinnar eigin sjálfsvirðingar og innri friðar. Hún getur haldið þér föstum í hlutverkum sem þú hvorki valdir þér né vilt vera í, þar sem þú upplifir ábyrgð á tilfinningum annarra og forðast árekstra af ótta við höfnun.

En hvað ef meðvirkni er ekki bara óljóst tískuorð heldur rótgróið mynstur sem hefur áhrif á hvernig þú lifir lífinu? Köfum aðeins dýpra, hvað

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er hegðunarmynstur sem þróast yfirleitt snemma á ævinni, oft í óstöðugu eða tilfinningalega krefjandi umhverfi. Ef þú hefur alist upp við að þurfa að aðlaga þig að annarri manneskju til að viðhalda jafnvægi í fjölskyldunni, til dæmis vegna tilfinningalegrar fjarlægðar, stjórnsemi, fíknar eða óútreiknanleika foreldris, gætirðu hafa lært að þínar eigin þarfir væru annaðhvort ekki mikilvægar eða jafnvel óþægilegar fyrir aðra.

Með tímanum getur þetta leitt til þess að þú þróar með þér lágt sjálfsmat, ómótuð tilfinningaleg eða líkamleg mörk, sterka þörf fyrir viðurkenningu og tilhneigingu til að setja þarfir annarra alltaf í forgang á kostnað þinnar eigin vellíðan.

Meðvirkni er ekki einfaldlega að vera umhyggjusamur, meðvirkni er ósjálfrátt mynstur sem getur haft djúpstæð áhrif á sjálfsmynd, sambönd og lífsgæði.

Fimm kjarnaskemmdir meðvirkni

Bandaríski meðferðarsérfræðingurinn Pia Mellody, einn af frumkvöðlum í rannsóknum á meðvirkni, hefur skilgreint fimm grunnvandamál sem einkenna meðvirkni:

1. Lágt sjálfsmat – Þú metur þig út frá viðurkenningu annarra fremur en eigin sjálfsvirðingu.

2. Erfiðleikar við að setja mörk – Þú átt erfitt með að segja “nei” og vernda þína orku.

3. Óstöðug tilfinningastjórnun

– Þú annað hvort bælir tilfinningar eða leyfir þeim að taka yfir.

4. Óraunhæfar væntingar –Þú setur óraunhæfar kröfur á sjálfan þig og aðra.

5. Þörf fyrir stjórn – Þú reynir að stjórna aðstæðum eða fólki til að forðast óöryggi.

Þessi mynstur þróast ekki af ástæðulausu, þau hafa verið lærð sem sjálfsvarnarviðbrögð við aðstæðum þar sem þínar eigin þarfir voru vanræktar, hunsaðar eða jafnvel dæmdar.

Ræður meðvirkni för í þínu lífi?

Þegar þú venst því að bæla eigin þarfir til að þóknast öðrum, verður það ósjálfrátt og mótar hvernig þú hagar þér í öllum samskiptum.

Þú gætir fundið fyrir því að:

• Þú forðast árekstra, jafnvel þegar það krefst þess að þú svíkur eigin gildi.

• Þú leitar stöðugt eftir samþykki og viðurkenningu annarra.

• Þú tekur ábyrgð á tilfinningum annarra og finnur fyrir sektarkennd ef aðrir eru ósáttir.

• Þú átt erfitt með að setja mörk, en finnst það síðan yfirþyrmandi þegar aðrir ganga yfir þig.

• Meðvirkni stjórnar þér í aðstæðum þar sem þú ættir að geta staðið með þér sjálfum, en í staðinn læturðu óttann við höfnun, gagnrýni eða vanþóknun ráða för.

Skrefin til bata

1. Verða meðvitaður um mynstrið – Fyrsta skrefið er að átta þig á því hvernig meðvirkni birtist í þínu lífi. Hvar ert þú að forðast átök? Hvenær seturðu þarfir annarra ofar þínar eigin?

2. Endurmóta sjálfsmynd

þína – Sjálfsvirðing þín á ekki að ráðast af því hvernig aðrir sjá þig, ekki bara þegar þú stendur undir væntingum annarra. Byrjaðu að efast um þá innri rödd sem segir þér að þú þurfir alltaf að sanna þig.

3. Læra að setja mörk – Mörk eru ekki veggir sem loka aðra úti, þau eru dyr sem þú stjórnar. Að setja mörk þýðir að þú verndar sjálfan þig og velur meðvitað hvað þú vilt og hvað þú vilt ekki.

4. Sleppa stjórn á öðrum –Hugsaðu um orkuna sem þú eyðir í að stjórna viðbrögðum annarra eða reyna að halda friðinn. Hvað myndi gerast ef þú slepptir því? Frelsið sem fylgir því að sleppa þessari stjórn gjörbreytir líðan þinni.

5. Byggja heilbrigðari sambönd – Þegar þú lærir að virða sjálfan þig og setja mörk, byrja sambönd að breytast. Þú dregst ekki lengur inn í óheilbrigð tengsl, heldur byggir samskipti á gagnkvæmri virðingu, trausti og heiðarleika.

Frá meðvirkni til frelsis - þú ræður för

Að vinna sig frá meðvirkni er ekki eitthvað sem gerist á einni nóttu, en það er ferðalag sem skilar þér til baka til sjálfs þíns. Meðvitund, sjálfsrækt og þolinmæði eru lykillinn að því að brjóta vítahringinn og byggja líf sem er í samræmi við þínar eigin þarfir og gildi. Góða ferð! ■

„Að setja mörk er ekki að hafna öðrum – það er að velja sjálfan sig“

Eru kollvikin að hækka?

„Mér er oft hrósað fyrir breytinguna sem hefur orðið á hárinu mínu“

- Eyþór Örn

Hair Gro er öflug blanda fyrir hársvörðinn og hárrótina þar sem ný hár myndast.

Inniheldur náttúrulega vaxtarvakann Procyanidin B2 úr eplum og tocotrienol úr E vítamín fjölskyldunni, ásamt hirsi, amínósýrur, bíótín og sink sem stuðlar að viðhaldi eðlilegs hárs.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.