ANDRÉSARLEIKARNIR
2025
Kæru keppendur, aðstandendur og aðrir gestir. Verið hjartanlega velkomin á 49. Andrésar Andarleikana sem haldnir eru hér í Hlíðarfjalli dagana 23. til 26. apríl 2025.
Í ár fögnum við metþátttöku, því rúmlega 900 keppendur hvaðanæva að af landinu taka þátt, sem gerir leikana þá fjölmennustu frá upphafi. Þessi þróun bendir til vaxandi áhuga á skíða- og brettaíþróttum og vonum við að sú þróun haldi áfram svo íþróttirnar geti haldið áfram að vaxa og dafna á næstu árum.
Andrésarleikarnir er síðasta mót vetrarins og jafnframt uppskeruhátíð yngri keppendur. Leikarnir eru umfangsmikið verkefni sem krefst mikils undirbúnings. Andrésarnefndin, sjálfboðaliðar Skíðafélags Akureyrar og starfsfólk Hlíðarfjalls bera hitann og þungan af framkvæmd leikanna. Um 200 sjálfboðaliðar koma að framkvæmdinni ásamt fjölda styrktaraðila og við kunnum þeim öllum innilega þakkir fyrir sitt framlag. Án þeirra aðkomu værum við ekki að halda leikana.
Við erum sérstaklega þakklát fyrir að geta haldið leikana í ár því snjóleysi, bæði hér í Hlíðarfjalli og víðar um landið, hefur gert okkur erfitt fyrir í vetur. Veturinn hefur sýnt okkur hversu mikilvægt er að vera undirbúin fyrir svona árferði svo við getum haldið úti æfingum og mótahaldi þegar svo ber undir.
Hlíðarfjall býr yfir miklum möguleikum til að hefja skíðavertíðina mun fyrr en gert er í dag. Með markvissum og einföldum aðgerðum er hægt að lengja tímabilið verulega og ef farið er upp á efstu hlíðar fjallsins, þar sem brekkur ná yfir 1.400 m hæð, mætti jafnvel skíða nær allt árið um kring.
Snjóleysið í vetur hefur líka haft jákvæð áhrif því það hefur undirstrikað nauðsyn þess að
ráðast í umbætur. Skíðafélag Akureyrar kynnti fyrr í vetur fimm ára aðgerðaráætlun fyrir Akureyrarbæ með það að markmiði að hefja æfingar á snjó 1. nóvember eða fyrr. Áætlunin byggir á fjórum meginþáttum:
• Landmótun brekka
• Uppsetningu snjógirðinga
• Uppbyggingu snjósöfnunarsvæða
• Uppfærslu snjóframleiðslukerfis
Fyrsti áfangi aðgerðaráætlunarinnar miðar að því að bæta aðstæður fyrir alpagreinar, en í framhaldinu verður lögð áhersla á uppbyggingu aðstöðu fyrir bæði snjóbretti og gönguskíði. Langtímamarkmið okkar er að tryggja að hægt verði að æfa á snjó í a.m.k. 30 daga fyrir 1. desember ár hvert og skapa þannig forsendur að íslenskt afreksíþróttafólk geti sinnt æfingum hér heima í stað þess að leita út fyrir landsteinana. Einnig mun þetta auka aðgengi almennings að íþróttinni sem skiptir miklu máli.
Akureyrarbær hefur nú þegar samþykkt að ráðast í fyrstu aðgerðir strax á þessu ári með það að markmiði að fjölga opnunardögum næsta haust. Skíðafélag Akureyrar vonast til að það gangi eftir og að við fáum að taka á móti ykkur öllum í Hlíðarfjalli næsta haust.
Kæru keppendur munið að njóta og hafa gaman af öllu því sem þessi einstaka hátíð hefur upp á að bjóða næstu daga. Gleymið ekki að þakka forráðamönnum og þjálfurum ykkar fyrir að styðja ykkur og gera þessa leika að ógleymanlegri upplifun.
Fyrir hönd stjórnar Skíðafélags Akureyrar Fannar Gíslason, formaður SKA


