Skip to main content

43.tbl

Page 10

10

fimmtudagurinn 1. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR

MANNLÍFIÐ

Lífi

ð

Björn og Þórður í smurstöð og hjólbarðaþjónustunni fögnuðu 30 ára starfsemi fyrirtækisins með samstarfsfólki og mökum.

Vinsæl villibráð í Lava

Vetri fagnað í Bláa lóninu B

V

illibráðarkvöld er orðinn fastur liður í upphafi vetrar á veitingastaðnum Lava í Bláa lóninu. Fjöldi gesta mætti í Lava um síðustu helgi til að njóta fjölbreyttrar villibráðar en villibráð verður einnig í boði á Lava næsta laugardag. Viktor Örn Andrésson, matreiðslumeistari Lava sagði þetta einn af hápunktum ársins hjá hans fólki í eldhúsinu og ljóst var að gestir kunnu að meta kræsingarnar sem lagðar voru á borð. „Við reynum að koma á óvart á hverju ári og ég held að okkur hafi tekist það,“ sagði Viktor í stuttu spjalli við VF. Tugir rétta voru á boðstólum, forréttir og aðalréttir, matur sem meðal-Jóninn er ekki að borða dags daglega. Bragðlaukarnir vakna var heitið á matseðlinum og átti vel við því þar mátti m.a. sjá grafna gæs, reykta andabringu, hreindýracarpaccio, svartfuglsbringur, hrefnukjöt og míní hreindýrahamborgara á forréttaborðinu. Í aðalréttum var boðið upp á hægeldaða gæsabringu með bláberja- og vodkasósu og hreindýrasteik, svo fátt eitt sé nefnt auk ljúffengra eftirrétta. Þá var boðið upp á vínsmökkun í upphafi kvölds þar sem gestir gátu smakkað þau vín sem voru í boði á kvöldinu. Ljósmyndari Víkurfrétta tók þessar myndir á villibráðakvöldinu.

Þóra Tómasdóttir og Magnea Guðmundsdóttir.

Þrír ættliðir í Hópsnesfjölskyldunni úr Grindavík, Eðvarð, Sigmar, Otti og eiginkonur voru á villibráðarkvöldinu.

Framvarðasveit Lava. F.v.: Magnús, Andrea, Viktor og Óli.

láa lónið fagnaði vetrarkomu með því að bjóða samstarfsaðilum úr ferðaþjónustunni og víðar í fögnuð í Lava veitingasalnum sl. fimmtudag. Fjöldi góðra gesta mætti í Lava og matreiðslumeistarar staðarins reiddu fram veitingar sem runnu ljúft ofan í maga. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins sagði ferðaþjónustuna á Íslandi í mikilli sókn og þar væri Bláa lónið í framlínunni. Hann sagði mikilvægt að hlúa vel að greininni sem væri orðin ein af burðarásum íslensks atvinnulífs. Meðfylgjandi myndir tók Oddgeir Karlsson, ljósmyndari á vetrarfagnaðinum.

Einar Hannesson og Maddý Andrésdóttir.

Eva Dögg Sigurðardóttir og Davíð Jónsson.

Vigdís Jóhannsdóttir auglýsingakona kíkti á sushi-ið.

NYTJAMARKAÐUR Laugardaginn 3. nóvember kl. 13:00 ætlar kvennaklúbbur Karlakórs Keflavíkur að vera með Nytjamarkað í Karlakórshúsinu Vesturbraut 17, Reykjanesbæ. Kökubasar kaffi og vöfflur til sölu. Vonumst til að sjá sem flesta.

TENERIFE FERÐ Fyrirhuguð ferð til Tenerife ef næg þátttaka fæst 13. - 27. feb. 2013 á 4 stjörnu hóteli Iberostar Bouganville Playa í tvær vikur Hálft fæði kr: 179.900.- Allt innifalið kr. 242.300.Möguleiki á 3 vikum Hálft fæði kr. 232.900,- Allt innifalið kr. 326.500.Staðfestingagjald greiðist fyrir 3. des. 2012 og fullgreiðsla fyrir 11. jan 2013. Ekki innifalið: Forfallatrygging né akstur til og frá flugvelli. Hópstjóri í ferðinni er Oddný Mattadóttir. Skráning hefst mánudaginn 5. nóv. kl. 13:00 - 23. nóv. hjá Jórunni s. 423 7601 og 898 2540, Brynju s. 422 7177 og 849 6284, og Oddnýju 421 2474 og 695 9474.

Í

Opnar kosningaskrifstofu

tilefni af framboði sínu í 2.-3. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, sem fer fram 16. og 17. nóvember, opnar Ólafur Þór Ólafsson kosningaskrifstofu að Tjarnargötu 6 í Sandgerði í sama húsi og Mamma mía. Skrifstofan verður opnuð fimmtudaginn 1. nóvember kl. 17:00 og eru stuðningsmenn sem og þeir sem vilja kynna sér framboðsmálin hjartanlega velkomnir.

Aðalheiður Héðinsdóttir og Eiríkur Hilmarsson.

Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir og Böðvar Jónsson.

n Snyrtistofan Carisma opnar í Kjarna

Björt og hlýleg snyrtistofa í hjarta bæjarins N

ýverið tók til starfa í Reykjanesbæ snyrtistofan Carisma en hún er í eigu Hafdísar Lúðvíksdóttur snyrtiog förðunarfræðings. Stofan er staðsett að Hafnargötu 57, nánar tiltekið í húsnæði Flughótelsins. Stofan er björt og hlýleg og mjög vel staðsett, í hjarta bæjarins með gott aðgengi og næg bílastæði. Á stofunni er boðið upp á allar helstu snyrtimeðferðir og verður lögð sérstök áhersla á íslenskar meðferðarvörur unnar úr nærliggjandi náttúruauðlindum. Boðið verður upp á 25% afslátt í fyrsta tíma af öllum meðferðum í nóvember, og 20% afslátt ef bókaður er annar tími. Að sögn Hafdísar er ætlunin að byggja upp starfsemina smám saman með lengri opnunartíma og fjölbreyttar meðferðir til að koma til móts við bæjarbúa og gesti hótelsins.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
43.tbl by Víkurfréttir ehf - Issuu