10
fimmtudagurinn 25. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR
n 140 ára afmælishátíð Stóru-Vogaskóla: FS-INGUR VIKUNNAR
Hlusta stundum á Justin Bieber agnar Gerald Albertsson er 19 R ára Keflvíkingur sem
stundar nám á viðskipta- og hagfræðibraut í Fjölbrautaskóla S u ð u r n e s j a . Ha n n spilar körfubolta með Keflavík og mestur tími utan skóla fer í það að sinna körfunni. Ragnar hefur hug á því að fara í háskólanám í Bandaríkjunum og spila þar körfubolta en fyrst ætlar hann sér að klára FS. Af hverju valdir þú FS? Ég valdi FS vegna þess að ég bý í Keflavík og nennti ekki að keyra í bæinn á hverjum morgni. Líka vildi ég ekki að skólinn myndi vefjast fyrir mér í körfunni. Er búinn að heyra um svo marga sem þurftu að hætta í íþróttum vegna skóla í bænum. Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Mér finnst félagslífið í skólanum bara fínt. Það er alltaf eitthvað að gerast, ekki bara böll sem er fínt því ég get sjaldan farið á þau. Karfan kemur fyrst. Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Er ekki búinn að hugsa mikið út í það en var að spá í því en ég var að spá í að fara í háskóla í Bandaríkjunum og spila körfu þar. En ætla fyrst og fremst að klára FS. Ertu að vinna með skóla? Er ekki að vinna með skóla því að körfuboltinn tekur upp mest allan þann tíma sem ég hef utan skóla. Stundarðu íþróttir eða ert í öðrum tómstundum? Já, ég æfi körfubolta með Keflavík. Hvað borðar þú í morgunmat? Yfirleitt fæ ég mér ekki morgunmat því ég vakna sirka 5 mínútur í 8 og þarf að mæta í skólann kl. 8. En þegar ég hef tíma fyrir morgunmat þá er það yfirleitt bara Cocoa Puffs.
Súrt slátur og sviðakjammar Í
í nestisboxinu fyrir 140 árum?
haust voru liðin 140 ár síðan skólahald hófst við Vatnsleysuströndina og hefur skólahald haldist óslitið síðan þá. Þessum stóru tímamótum var fagnað í síðustu viku með afmælisveislu í Stóru-Vogaskóla. Svava Bogadóttir skólastjóri Stóru-Vogaskóla flutti ræðu í afmælinu þar sem hún sagði m.a.: „Ég hef aldrei haldið upp á svo stórt afmæli í skóla áður og veit ekki hvort eitthvert ykkar hefur gert það, enginn maður eða kona verða svo gömul, en skólar á Íslandi eru orðnir svona gamlir og við erum þriðji elsti skóli á landinu ásamt Gerðaskóla í Garði. Að halda upp á afmæli með veislu er að sjálfsögðu ekkert annað en skemmtilegt og við gleðjumst saman á þessum tímamótum. Þegar við starfsmenn skólans fórum að velta því fyrir okkur hvernig við vildum fagna þessum áfanga komu upp ýmsar spennandi hugmyndir. Hvernig heldur maður upp á svona tímamót, hvað langar okkur að gera? Sú hugmynd kviknaði hjá minjafélaginu að rýna betur í merkilega sögu skólans, en þar var hann Þorvaldur Örn Árnason kennari í fararbroddi. Verkefnið fékk styrk og réð sagnfræðing. Sá heitir Árni Daníel Júlíusson og hefur hann skráð þætti úr sögunni“.
Í fjölbreyttri afmælisdagskránni flutti Hrafnkell Karlsson nemandi í 9. bekk og í Tónlistarskóla Sveitarfélagsins Voga Tunglskinssónötuna eftir Beethoven en hann lék verkið á píanó. Helgi Davíðsson, 91 árs gamall, fyrrverandi nemandi skólans á afkomendur í skólanum, spilaði fyrir börnin á munnhörpu og spjallaði við þau um gamla tíma o.fl. Nökkvi Bergsson nemandi við Tónlistarskóla Sveitarfélagsins Voga spilaði á píanó „In the mood“. Skólasöngur Stóru-Vogaskóla var sunginn við undirleik Þorvaldar kennara sem spilaði á gítar, Rutar Sigurðardóttur í 5. bekk, sem spilaði á selló og Eyþórs Ólafssonar í 10. bekk sem spilaði á gítar. Margar spurningar hafa brunnið á vörum nemenda Stóru-Vogaskóla á meðan þeir unnu að verkefnum í tengslum við afmælið. Spurningar eins og: Hvernig var nesti í skólanum í gamla daga,fyrir 140 árum? Var það súrt slátur og sviðakjammar? Hvað voru þau lengi í skólanum á daginn, hvað lærðu þau? Örugglega lestur en hvað með sund, var sundlaug? Hvenær var fyrst kennt á tölvur? Voru til farsímar fyrir 100 árum síðan? og fleira í þeim dúr. Í svona stórafmælum tilheyrir að bjóða kleinur, rice crispies og tertur. Nemendur
höfðu bakað baki brotnu í nokkrar vikur og ilmurinn úr eldhúsinu magnaði upp tilhlökkun fyrir afmælinu. Þá höfðu götutónlistarmenn æft trommuslátt í þrjá daga fyrir afmælið. Margar góðar gjafir bárust á afmælinu. Inga Sigrún Atladóttir forseti bæjarstjórnar Voga gaf skólanum 8 skjávarpa svo nú er skólinn vel búinn skjávörpum. Kvenfélagið Fjólan gaf þrjá þráðlausa hljóðnema til notkunar á samverum og árshátíðum. Eirný Vals og eiginmaður hennar gáfu brennipenna til notkunar í smíðastofu, Lionsklúbburinn Keilir gaf tvær digital skákklukkur til eflingar skáklistinni, Andri Már og Birgitta Líf, nemendur við skólann gáfu nokkra mynddiska, Einar Hugi og fjölskylda gáfu rit sem gefið var út við 130 ára afmæli Gerðaskóla og Guðrún Lovísa kom færandi hendi með peningagjöf og ritaði frásögn í kortið frá því hún var í skólanum en hún verður 90 ára í desember. Auk þess fékk skólinn blóm, gjafakörfur ýmiss konar og góðar kveðjur. Að lokinni hefðbundinni afmælisdagskrá voru hringborðsumræður með Árna Daníel Júlíussyni. Þar var góð mæting, skemmtileg og fróðleg umræða um skólahald í gamla daga, nokkrir eldri borgarar tóku þátt og höfðu frá ýmsu að segja.
Hvert fara FS-ingar í hádegismat? Bara þessa helstu skyndibitastaði Langbest, Olsen, KFC, Subway o.fl. Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur? Arnór Ingvi Traustason, hann er núna staddur í Noregi reyndar en hann mun alltaf vera FSingur í hjarta en ég held að hann muni gera stóra hluti í fótboltanum í framtíðinni. Hvað fær þig til að hlæja? Skemmtilegur rúntur með vel völdum aðilum. Og auðvitað gott stand-up með Gabriel Iglesias.
EFTIRLÆTIS... Sjónvarpsþættir: Viva la Bam, það eru með steiktustu þáttum sem ég hef séð. Vefsíður Það er einfalt, bara þessar helstu, Facebook og 9gag. Skyndibiti Subway-inn er bestur hérna í Kef finnst mér. Kennari Held nú að ég myndi lenda í vondum málum ef ég myndi ekki segja að mamma mín væri uppáhálds kennarinn minn. Fag Það er danskan, ég hef alveg gífurlegan áhuga á því fagi. Tónlistin Það munu bara vera Kanye West og Jay-Z sem ég fíla mest. Hvaða tónlist fílarðu í laumi (guilty pleasure)? Stundum finnst mér gaman að setja á smá Justin Bieber.
n knútur guðmindsson // UNG
Umsjón: Páll orri pálsson • pop@vf.is
Atvinnumaður í fótbolta væri draumurinn K Besta nútur Guðmundsson er í 10. bekk í Gerðaskóla. Hann hitti Ben Stiller, þegar hann var staddur hér á landi og væri til í að stríða fólki ef hann væri ósýnilegur í einn dag. Pizza og kínamatur eru í uppáhaldi hjá honum.
Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt?
Ég hitti Ben Stiller þegar hann var á Íslandi. Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag?
Að stríða fólki væri gaman.
Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu?
Hvað gerirðu eftir skóla?
HOT.
Ég læri eftir skóla.
Hver eru áhugamál þín?
Fótbolti er helsta áhugamálið. Uppáhalds fag í skólanum?
Íþróttir og enska eru í uppáhaldi.
Að hitta Kanye West og Messi væri ekki leiðinlegt.
En leiðinlegasta?
Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?
Hver er uppáhalds maturinn þinn?
Hvað er draumastarfið?
Íslenska er leiðinlegust.
Pizza og kínamatur er best. En drykkur?
Klárlega Mountain dew.
Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?
Hvað er skemmtilegast við Gerðaskóla?
Að hitta vinina.
Bíómynd?
The Dark Knight Rises er geggjuð.
Sjónvarpsþáttur?
Sá þáttur væri Supernatural.
Tónlistarmaður/Hljómsveit?
Kanye West, Jay-Z, Frank Ocean, Odd Future, Kid Cudi, Big Sean, Chris Brown og svo má maður ekki gleyma Soulja Boy. Leikari?
Að geta flogið væri mjög gaman.
Adam Sandler, Robert Downey Jr, Johnny Depp, Russel Crowe og svo auðvitað Sylvester Stallone.
Atvinnumaður í fótbolta væri draumurinn.
Ég er Aston Villa maður.
Hver er frægastur í símanum þínum?
Markús og Bjarni Fannar.
Lið í ensku? Vefsíða?
Facebook og Youtube er ég mest á.