Skip to main content

26.tbl

Page 7

7

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 28. júní 2012

Fyrstu tæknifræðingarnir útskrifaðir frá Keili

›› FRÉTTIR ‹‹ Piltar „múnuðu“ á vegfarendur

L

ögreglunni á Suðurnesjum barst um nýliðna helgi tilkynning um að hópur unglingspilta væri uppi á þaki skólabyggingar í umdæminu og væru þeir að „múna,“ þ.e. reka nakinn afturendann framan í vegfarendur. Þegar lögregla kom á staðinn höfðu piltarnir, allir nema einn, hlaupið í burtu. Sá sem eftir var viðurkenndi að hafa verið uppi á þakinu en kannaðist ekki við að hafa verið að „múna“ á fólk á förnum vegi. Lögreglumenn gerðu honum grein fyrir því að umrædd hegðun væri ekki í lagi og lofaði hann bót og betrun.

Aukið umferðareftirlit á Suðurnesjum

L

ögreglan á Suðurnesjum verður í sumar með sérstakt umferðareftirlit í umdæminu, í samvinnu við Vegagerðina og ríkislögreglustjóra. Lögð verður áhersla á eftirlit með hraðakstri, öðrum brotum á umferðarlögum og sýnilega löggæslu. Þá verður fylgst náið með fleiri atriðum svo sem frágangi á farmi, búnaði eftirvagna og fleiru. Hinu aukna eftirliti verður meðal annars haldið úti á Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi, Suðurstrandarvegi, Garðskagavegi, Sandgerðisvegi og Miðnesheiðarvegi.

F

yrsti hópur tæknifræðinga Keilis og Háskóla Íslands útskrifaðist laugardaginn 23. júní síðastliðinn. En þá brautskráðust 15 nemendur með BS gráðu í orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník hátæknifræði. Gestum gafst kostur á að kynna sér lokaverkefni nemenda fyrir athöfnina sem fram fór í Andrews Theater. Önundur Jónasson, formaður Tæknifræðingafélags Íslands, veitti Burkna Páls­ syni viður­kenningu fyrir loka­verkefni sitt „Hreinsun á felldum kísli

með rafdrætti,“ og Kristni Esmar Kristmundssyni fyrir loka­verkefnið „Maður fyrir borð“. Auk þess veitti Tæknifræðingafélag Íslands, Björg Árna­dóttur viður­kenningu fyrir vinnu sína við rannsóknir á nýtingu hrat­varma við upp­hitun jarðvegs. Róbert Unnþórsson hlaut svo loks viðurkenningu frá Keili fyrir námsárangur, en hann hlaut 9,04 í meðaleinkunn.

FORSETAKOSNINGAR LAUGARDAGINN 30. JÚNÍ 2012 Kosið er í Gerðaskóla. Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.

Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00. Kjörstjórn Sveitarfélagsins Garðs Jenný Kamilla Harðardóttir formaður


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook