BREYTINGAR Á SUÐURNESJUM 1. FEBRÚAR 2015 Þann 1. febrúar nk. munu breytingar á akstri á Suðurnesjum taka gildi. Breytingarnar eru unnar út frá ábendingum og beiðnum farþega, sveitarfélaga og akstursaðila. LEIÐ 55 FLE – Umferðarmiðstöðin • Nafninu á biðstöðinni Krossmóa breytt í Miðstöð. • Ferð kl. 9:23 frá Umferðarmiðstöð á virkum dögum færist til kl. 7:55 þannig að vagninn sé kominn kl. 9 í Keili til að koma til móts við nemendur og kennara þar. • Ferð kl. 5:11 frá Tjarnarhverfi til FLE á virkum dögum færist til kl. 5:05 vegna vaktaskipta í FLE sem eru kl. 5:30. • Öllum ferðum frá FLE (nema kl. 06:35) flýtt um 5 mínútur og í staðinn bætt við 5 mínútum í Miðstöð sem gefur honum meiri afgreiðslutíma þar. • Ferð kl. 7:42 frá FLE mun fara alla leið í Umferðarmiðstöð í stað þess að enda í Firði. • Biðstöðvunum Skógarbraut, Bogabraut og Njarðvíkurtorgi bætt við allar ferðir á leið 55 og biðstöðvunum Hringbraut/Melteigur, Hringbraut/Norðurtún og Hringbraut/Knattspyrnuvöllur bætt við í fyrstu ferð á morgnana til Reykjavíkur. Þessar breytingar hafa þegar tekið gildi en voru ekki komnar inn í tímatöflur og leiðavísi.
LEIÐ 88 Grindavík / Aðalbraut – Fjölbrautarskóli Suðurnesja / FS • Bætt við ferðum kl. 14:28 á föstudögum frá FS og 15:28 á fimmtudögum og föstudögum frá FS til að koma til móts við nemendur. • Ferð kl. 16:20 frá FS færist til kl. 16:28 alla virka daga til að koma til móts við nemendur. • Bætt við ferð kl. 14:55 á föstudögum frá Grindavík. • Ferð kl. 15:50 frá Grindavík færist til kl. 15:55 alla virka daga. • Í morgunferðinni frá Grindavík í FS mun vagninn stoppa aukalega hjá Lögreglustöðinni í Grindavík kl. 7:24 og halda síðan áfram eins og áður frá Grindavík–Aðalbraut kl. 7:25.
LEIÐ 89 Miðstöð – Íþróttamiðstöðin Sandgerði • Ferð kl. 7:07 frá Miðstöð færist til kl. 7:05 og ferðin kl. 7:31 frá Sandgerði færist til kl. 7:29 og stoppað verður aukalega í FS í þeirri ferð. • Ferð kl. 11:17 frá Miðstöð færist til kl. 12:17 og ferð kl. 11:41 frá Sandgerði færist til kl. 12:41.
ÍSLENSKA SIA.IS STR 72657 01/15
• Stoppistöðvarnar Vellir, Hringbraut/Norðurtún og Garðvangur í Garði bætast við. • Ferðir kl. 16:05 og 17:05 frá Miðstöð færast til kl. 16:03 og 17:03 og stoppað verður aukalega í FS í þeim ferðum.
Nýjustu og ferskustu upplýsingarnar er þó ávallt að finna á vef okkar,
strætó.is