3.tbl 2013

Page 1

Víkurfréttir

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001

VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum

Hringbraut 99 - 577 1150

Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.

vf.is

Víkurfréttamynd: Jón Júlíus Karlsson

F IMMTUdagur inn 24. janúar 2 0 13 • 3 . tö lubla ð • 34. á rga ngur

Margar verslanir hafa lokað

n Nýja bakaríð í Keflavík lokar eftir aldarfjórðungs starfsemi:

Á

Hlý orð eru ekki nóg núna

„Já, ég er búinn að loka og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Ég hreinlega nennti þessu ekki lengur,“ segir Eyjólfur Hafsteinsson, bakari og eigandi Nýja bakarísins við Hafnargötu 31 í Keflavík. Á einu ári hafa fjögur fyrirtæki í verslun og þjónustu við Hafnargötu lokað. Langri sögu bakarís við Hafnargötu 31 er lokið í bili en Eyjólfur hefur verið þar með rekstur í aldarfjórðung, byrjaði ungur maður með félaga sínum, Ólafi Ingiberssyni um áramótin 1987-1988 en einn frá árinu 1998. Þeir tóku við af Gunnari Sigurjónssyni, bakara sem hafði bakað þarna í nokkra áratugi. Um hálfrar aldar bakaríssögu í þessu húsnæði er lokið í bili. „Þetta er búið að eiga sér nokkuð langan aðdraganda en svo ákvað ég að hætta þessu núna um áramótin eftir mjög slakan desember. Þróunin hefur verið slæm í rekstrinum. Sumarið í fyrra var slakt en hafði verið mjög gott árið á undan. Krakkarnir og barnapíurnar eru hætt að koma við í snúð og kókómjólk, eru bara með nammi-

poka með sér og virðast ekki hafa peninga á milli handanna. Snúðabakstur er nánast að leggjast af og bakaragreinin held ég líka,“ segir Eyjólfur dapur í bragði og segir að erfiðari rekstur sé ekki eingöngu ástæðan. Litlu hefði munað að hann hefði selt fyrirtækið árið 2008 en væntanlegir kaupendur fengu ekki fyrirgreiðslu rétt fyrir hrun. „Ég hef reynt að selja fyrirtækið en það er ekki hægt að segja að umræðan um Suður-

Nýja bakaríið hefur lokað.

nesin hafi hjálpað. Hún er mjög neikvæð og hjálpar ekki til í fyrirtækjasölu. Það halda margir að hér sé allt í kalda koli. En þetta er meðvituð ákvörðun hjá mér að hætta núna og undirbúin. Þetta starf er ekki fjölskylduvænt og ekki heldur félagslegt. Maður þarf að fara snemma í háttinn og vakna fyrir allar aldir. Nú er bara kominn tími til að finna sér eitthvað annað að gera.“ Eyjólfur segist ætla að reyna að koma tækjum og tólum og öðru sem tengdist rekstrinum í eitthvað verð en það sé ekki auðvelt núna. Aðspurður um viðbrögð við lokun bakarísins segir hann þau hafa komið sér á óvart. „Það hafa margir hringt í mig og lýst yfir vonbrigðum sínum yfir lokuninni. Jafnvel skammað mig,“ segir Eyjólfur og hlær en bætir við: „Það yljar manni vissulega um hjartaræturnar og ég vil þakka öllum þeim sem hafa skipt við okkur. En hlý orð eru ekki nóg núna. Það vantar bara meira og því miður eru þetta endalokin á Nýja bakarínu.“

einu ári hafa fjögur fyrirtæki í verslun og þjónustu við Hafnargötu, aðal verslunargötu Suðurnesja, lokað og að minnsta kosti þrjár til viðbótar sé horft aðeins lengra aftur í tímann. Heyrst hefur að fleiri verslunareigendur séu að gefast upp og séu að huga að lokun. Í upphafi nýliðins árs 2012 lokuðu tvær verslanir, kvenfataverslunin Monroe og Sportbúð Óskars sem hafði verið í tvo áratugi við Hafnargötuna. Þrjár fataverslanir, Original, Blend og Cool lokuðu skömmu áður. Í lok árs lokaði fataverslunin Persóna eftir rúmlega tuttugu ára rekstur. Heilsubúðin sem var við Skólaveg og Hringbraut og lokaði í haust mun opna í því plássi innan skamms. Núna um áramótin lokaði svo Nýja bakaríið. Þróunin hefur öll verið niður á við. www.asmundurf.is

3.

Ásmundur Friðriksson

sæti

Munum að setja Ásmund í 3. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna 26. janúar 2013.


2

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

FJÖLSKYLDUVÆNN VINNUSTAÐUR

15 taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

VINNUR ÞÚ Á FJÖLSKYLDUVÆNUM VINNUSTAÐ? Leitast fyrirtækið sem þú vinnur hjá við að gera starfsmönnum sínum kleift að samræma sem best fjölskyldu- og atvinnulíf? Hafa starfsmenn fyrirtækisins áhuga á að tilnefna sinn vinnustað fyrir jákvætt viðmót til fjölskyldunnar og stuðla að því að fyrirtækið fái viðurkenningu Reykjanesbæjar sem fjölskylduvænt fyrirtæki?

F

immtán einstaklingar taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fer fram laugardaginn 26. janúar nk. Frambjóðendur í stafrófsröð: Árni Johnsen, alþingismaður, Vestmannaeyjum

Tilnefningar er hægt að senda á fjolskyldan@reykjanesbaer.is fyrir 1. febrúar.

LISTASAFN REYKJANESBÆJAR

Ásmundur Friðriksson, fv. bæjarstjóri, Garði Friðrik Sigurbjörnsson, nemi og varabæjarfulltrúi, Hveragerði

n Suðurnesjamenn:

Brottfluttir 238 umfram aðflutta í fyrra

Á

rið 2012 fluttust 319 fleiri frá landinu en til þess. Langflestir þeirra sem fluttust erlendis á árinu 2012 fóru frá höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Af þessum 319 manns sem fluttu erlendis umfram þá sem fluttu til landsins, voru 86 frá Suðurnesjum. Brottfluttir á Suðurnesjum, bæði innan- og utanlands voru 238 umfram aðflutta á árinu. Flestir fluttust frá Sandgerði eða 109 brottfluttir umfram aðflutta. Frá Garði voru 53 brottfluttir umfram aðflutta, 47 frá Reykjanesbæ, frá Vogum voru 26 brottfluttir umfram aðflutta og loks 3 frá Grindavík.

Þegar aðeins er litið á innanlandsflutninga lá straumurinn frá öllum landsvæðum til höfuðborgarsvæðisins. Þangað fluttu alls 525 umfram brottflutta frá öðrum landsvæðum. Flutningsjöfnuðurinn var aftur á móti óhagstæðastur á Norðurlandi eystra (-206), Suðurnesjum (-152) og Vesturlandi (-142). Það dró úr brottflutningi á árinu miðað við árið áður, þegar 1.404 fluttust úr landi umfram aðflutta. Alls fluttust 6.276 frá landinu, samanborið við 6.982 á árinu 2011. Alls fluttust 5.957 manns til Íslands árið 2012, sem er nokkur aukning miðað við árið 2011 þegar 5.578 manns fluttu til landsins.

Geir Jón Þórisson, fv. yfirlögregluþjónn, Vestmannaeyjum Halldór Gunnarsson, fv. sóknarprestur, Hvolsvelli Hulda Rós Sigurðardóttir, meistaranemi í opinberri stjórnsýslu, Höfn í Hornafirði Kjartan Þ. Ólafsson, fv. alþingismaður, Ölfusi Magnús B. Jóhannesson, framkvæmdastjóri, Reykjanesbæ Magnús Ingberg Jónsson, atvinnurekandi, Selfossi Oddgeir Ágúst Ottesen, hagfræðingur, Hveragerði Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður, Reykjanesbæ Reynir Þorsteinsson, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, Garði

Ný sýning verður opnuð laugardaginn 26. janúar kl. 15:00 í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum. LÖG UNGA FÓLKSINS Samsýning 6 listamanna af yngri kynslóðinni. Davíð Örn Halldórsson, Guðmundur Thoroddsen, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir, Marta María Jónsdóttir og Ragnar Jónsson. Sýningin stendur til 10. mars Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

SJÁLFBOÐALIÐAR ÓSKAST Vilt þú láta gott af þér leiða og ert tilbúin/n að gefa af þér? Sjálfboðaliðar óskast fyrir starfsemi Virkjunar. Nánast allt kemur til greina:) Lumar þú kannski á góðri hugmynd fyrir Virkjun? Ef svo er langar okkur að heyra hana. Áhugasamir um málefni Virkjunar sendi tölvupóst á virkjun@reykjanesbaer.is Virkjun mannauðs á Reykjanesi er opin virka daga frá kl. 08:00 – 16:00 (lokað á rauðum dögum í almanaki). Virkjun er staðsett við Flugvallarbraut 740 á Ásbrú. Heitt á könnunni. Ókeypis aðgangur að internetinu o.fl.

Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, Hvolsvelli Vilhjálmur Árnason, lögreglumaður, Grindavík Þorsteinn M. Kristinsson, lögreglumaður og sveitarstjórnarmaður, Kirkjubæjarklaustri

70-80 lítrar af glussaolíu láku niður í íbúðarbyggð

Á

milli 70 og 80 lítrar af glussaolíu láku úr bifreið sem var við sorphreinsunarstörf á Hringbraut í Reykjanesbæ í síðustu viku. Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var kallað á vettvang

og hófust hreinsistörf klukkan rúmlega 7 þann sama morgun. Að sögn slökkvimanna á vettvangi gekk hreinsunin vel og enginn skaði hlaust af í nágrenninu. VF-mynd: Eyþór Sæmundsson

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst miðvikudaginn 2. janúar 2013. Hægt er að kjósa bæði á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1 í Reykjavík, og víða í kjördæminu. Nánari upplýsingar um kosningu utan kjörfundar ásamt öðrum upplýsingum um prófkjörið eru birtar á vefsíðu Sjálfstæðisflokksins, www. xd.is.

Brautskráning nemenda Keilis á morgun

Hundur beit unglingsstúlku til blóðs K

L

ögreglunni á Suðurnesjum var í vikunni sem leið tilkynnt um að hundur hefði bitið unglingsstúlku í Njarðvík. Stúlkan hafði verið á ferðinni á göngustíg þar sem hundurinn var laus og án eftirlits. Þegar lögregla kom á staðinn var hundurinn enn að sniglast á svæðinu og reyndist

hann hafa bitið stúlkuna. Var hún með blæðandi bitsár á hönd og læri eftir hann. Hún var flutt til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Lögregla hafði samband við hundafangara Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, sem kom og handsamaði hundinn.

eilir útskrifar nemendur af Háskólabrú og úr Flugakademíu föstudaginn 25. janúar næstkomandi. Að þessu sinni brautskrást í allt 109 nemendur, þar af 86 nemendur úr fjarnámi Háskólabrúar, 14 úr flugþjónustunámi, fimm úr flugumferðarstjórn, þrír úr flugrekstrarfræði og einn atvinnuflugmaður. Útskriftin fer fram kl. 15:00 í Andrews Theater á Ásbrú og eru allir velkomnir.


3

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

Tilboðin gilda 24. - 27. janúar

Kræsingar & kostakjör

Allt fyrir bóndadaginn

Þorrabakkarnir eru komnir!

Goði Dönsk lifrarkæfa 380g

238 kr/kg

Goði hangikjöt soðið

2.999 kr/kg

Goði blóðmör/lifrarpylsa Súr

1.349 kr/kg

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss | Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


4

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

RITSTJÓRNARBRÉF PÁLL KETILSSON

vf.is

Hafnargötunni blæðir Útgefandi: Afgreiðsla og ritstjórn: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: BlaðamENN: Auglýsingadeild: Umbrot og hönnun: Auglýsingagerð: Afgreiðsla: Prentvinnsla: Upplag: Dreifing: Dagleg stafræn útgáfa:

Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154 Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.

Hafnargatan í Keflavík, stolt miðbæjarins og hjarta verslunar til margra ára má muna sinn fífil fegurri. Verslanir sem hafa lokað á síðustu tveimur árum nálgast tuginn og heyrst hefur að fleiri verslunareigendur séu að harka af sér en séu jafnvel að huga að lokun. Annars staðar í blaðinu í dag er viðtal við bakara við Hafnargötuna í Keflavík sem neyddist til að loka eftir aldarfjórðung í rekstri. Fyrir tuttugu árum síðan voru um

helmingi fleiri fyrirtæki í verslun og þjónustu í Keflavík. Hér hefur fallið ekki eingöngu verið út af bankahruni en vissulega hefur það haft gríðarleg áhrif síðustu árin. Nálægð við höfuðborgarsvæðið hefur gert verslun hér heima erfitt fyrir og með góðri og tvöfaldri Reykjanesbraut er auðvelt að renna inn eftir þar sem úrvalið er meira á mörgum sviðum. Hátt eldsneytisverð virðist hafa lítil áhrif á ferðir fólks. Hagstætt veðurfar undanfarið hefur líka haft áhrif í þessum efnum. Áður fyrr

Í verslun hér heima hafa myndast göt og sumir vöruflokkar varla verið til. Þar má t.d. nefna leikföng og herrafatnað. Það var komið inn á þessi mál hér í þessum pistli fyrir jólin þar sem við hvöttum Suðurnesjamenn til að hugsa til þeirra aðila sem eru þó að reyna sitt besta. Hér eru margar fyrirmyndarverslanir. Það yrði vissulega slæmt ef fleiri göt mynduðust og við þyrftum að fara út fyrir bæjarmörkin til að nálgast fleiri vöruflokka. Það er óskandi að þessari þróun verði snúið við. Það er mest í höndum okkar heimamanna.

Ma

tur

Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

og sérstaklega í desember þegar veður voru válynd veigraði fólk við sér að fara brautina þegar engin lýsing var og einfaldur vegur. Það hjálpaði versluninni hér heima. Nú meira í seinni tíð hafa verslunarferðir líka spilað inn í. Suðurnesjamenn hafa ekki verið neinir eftirbátar annarra í slíkum ferðum og það er enn einn þátturinn sem spilar inn í þessa þróun.

Ódýrasti skólamaturinn í Reykjanesbæ

V

erðlagseftirlit ASÍ kannaði á dögunum breytingar á gjaldskrá fyrir skóladagvistun ásamt hressingu og verði á hádegismat fyrir yngstu nemendur grunnskólanna hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Gjaldskráin tók gildi 1. janúar 2013. Mikill verðmunur er á heildargjaldi fyrir skóladagvistun með hressingu og hádegismat milli sveitarfélaganna. Reykjanesbær er í fimmta sæti listans hvað varðar vistun, en kostnaður fyrir eitt barn í skóladagvistun með hressingu er 16.000 krónur. Það gerir hækkun um 3% frá árinu 2012. Hádegismatur er ódýrastur í Reykjanesbæ en maturinn hækkar þó um 10 krónur milli ára. Árið 2012 kostaði hádegismatur 275 krónur en árið 2013 er verðið 285 krónur í skólum bæjarins. Lægsta mánaðargjaldið fyrir skóladagvistun m.v. 63 tíma á mánuði, hressingu og hádegismat hvern dag er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði á 20.139 kr./ mán. en hæsta gjaldið er hjá Garðabæ 33.194 kr./mán. Verðmunurinn er 13.055 kr. eða 65%. Öll sveitarfélögin sem skoðuð voru hafa hækkað gjaldskrána milli ára nema Hafnarfjörður og Fjarðarbyggð. Ber að geta þess að Sveitarfélagið Vogar er annað tveggja sveitarfélaga á landinu sem býður upp á ókeypis skólamáltíðir og hefur gert síðustu sex ár.

Nýtt nám á Suðurnesjum hjá MSS Síðasta ár var gjöfult fyrir Suðurnesin hvað varðar tónlist. Hljómsveitirnar Valdimar og Of Monsters and Men stimpluðu sig inn bæði hér heima og að heiman og söluhæsta plata ársins, Dýrð í dauðaþögn eftir Ásgeir Trausta var tekin upp og hljóðblönduð af Kidda í Hjálmum. Það sér því ekki fyrir endann á þeim áhrifum sem Hljómar höfðu á tónlistarlíf Suðurnesja. Þessi mikli tónlistaráhugi hefur ýtt undir áhuga á upptökutækni og hljóðblöndun á svæðinu og því býður MSS upp á námsleið sem heitir Hljóðsmiðja. Það er markmið Hljóðsmiðju að veita innsýn inn í heim hljóðmannsins en þó helst starfsmanns í upptökuveri. Þátttakendur fá að talsetja bíómyndir, stilla upp fyrir upptöku á lifandi tónlist, fullvinna upptökur og gera þær tilbúnar til flutnings. Unnin eru raunverkefni með tónlistarmönnum og hljómsveitum. Að auki lærir þátttakandinn tækniheiti og fagmál og upplifir raunverulega vinnu hljóð-

Vel heppnuð þorrablót

Það má með sanni segja að Suðurnesjamenn hafi þjófstartað þorranum því þrjú stór þorrablót Keflvíkinga, Garðmanna og Njarðvíkinga voru tvær síðustu helgar. Sumir velta því fyrir sér hvers vegna blótin eru haldin löngu fyrir Bóndadag sem er upphaf þorra. Hvað um það þá þóttu öll blótin hafa heppnast mjög vel. Eini veislustjórinn á blótunum þremur, sem á rætur að rekja til Suðurnesja, Njarðvíkingurinn Jón Björn Ólafsson sem var veislustjóri hjá Keflvíkingum, þótti standa sig best. Eiturbeittur og skemmtilegur...

Það hefur varla farið fram hjá

neinum árið 2012 að margir frægir kvikmyndaleikarar sóttu landið heim. Flestir komu til að vinna vinnuna sína en árið 2012 var metár í erlendum kvikmyndatökuverkefnum á Íslandi. Áframhaldandi verkefni fyrir erlend kvikmyndatökufyrirtæki gera það að verkum að aukin eftirspurn er eftir starfsfólki í kvikmyndatökugeirann á Íslandi. Því hefur MSS þróað nýtt nám sem

Bæjarstjóri og prestur

Eurovision í íþróttahúsinu

manns. Námsleiðin er unnin í nánu samstarfi við Geimstein og Stúdíó Sýrland. Námið fer af stað í febrúar og er skráning hafin. Takmarkaður fjöldi kemst inn í námið. Eftir Hljóðsmiðju I og II hefur þátttakandinn fullnægjandi bakgrunn til að geta sótt um í Hljóðtækninám Tækniskóla Íslands.

Fleiri atriði sem tengjast heimahögum þóttu líka best á þorrablótunum þó stór nöfn í tónlistar- og skemmtigeiranum hafi skemmt Suðurnesjamönnum. Annálar Keflvíkinga og Njarðvíkinga voru góðir. Sigurður Ingimundarson, þjálfari karla- og kvennaliða Keflavíkur þótti sýna frábæra leikræna tilburði þegar hann fór á leikskólann og sótti ungar stelpur í Keflavíkurliðinu til að koma og keppa og síðan með öldungum á Nesvöllum sem tóku þátt í atriðinu eins og vanir aukaleikarar. Virkilega flott atriði. Í Garðinum slógu nýráðinn bæjarstjóri, Magnús Stefánsson og presturinn Sigurður Grétar í gegn með spili og söng og leystu þar af söngkonu sem hafði boðað forföll.

Framundan eru fleiri þorrablót og síðan árshátíðir. Árshátíð Reykjanesbæjar er ein af stærri árshátíðum ársins en hún verður núna í Íþróttahúsi Keflavíkur í mars. Þema árshátíðarinnar verður Eurovison og meðal atriða verða Páll Óskar og Selma Björns. Þar mun svæsinn annáll vera í undirbúningi. Árni bæjarstjóri var í stóru hlutverki...

Stapa söknuður

Talandi um húsakynnin fyrir þorrblót og árshátíðir þá þykir sumum Njarðvíkingum það sérstakt að þorrablót sem haldið var í áratugi í samvinnu Kvenfélagsins, Ungmennafélagsins og skátanna í Stapanum skuli nú vera í íþróttahúsi Njarðvíkur en

ber nafnið Kvikmyndasmiðja. Kvikmyndasmiðja er hagnýtt nám þar sem námsmenn kynnast grunnþáttum kvikmyndagerðar, læra uppbyggingu handrits og þroska myndmál sitt. Markmið náms í Kvikmyndasmiðjunni er að námsmaður tileinki sér sjálfstæð og öguð vinnubrögð sem krafist er við kvikmyndagerð, lestur myndmáls, hljóðvinnslu og eftirvinnslu kvikmynda. Megin áhersla er lögð á að námsmenn öðlist færni með námi gegnum vinnu, þannig að þeir afli sér þekkingar og leikni með vinnu sinni. Námið fer af stað í febrúar og er skráning hafin. Takmarkaður fjöldi kemst inn í námið. Námið er unnið í samstarfi við Stúdíó List og Kvikmyndaskóla Íslands. Eftir Kvikmyndasmiðju I og II hefur þátttakandinn fullnægjandi bakgrunn til að geta sótt um inngöngu í Kvikmyndaskóla Íslands. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum ekki í hinu gamla og sögufræga húsi sem hefur verið endurbyggt. Félögin byggðu á sínum tíma Stapann en seldu síðan Fasteign í góðærinu. Síðustu árin fyrir sölu hússins gekk illa að halda þorrablót en nú er aftur komin stemmning fyrir þorrablóti en yfir þrjúhundruð Njarðvíkingar mættu á blótið um síðustu helgi í íþróttahúsið en ekki í Stapann...

Vefur Víkurfrétta á topp 25

Vefur Víkurfrétta var á meðal 25 vinsælustu vefja landsins á síðasta ári. Vefurinn vf.is skipaði 22. sæti lista yfir vinsælustu vefi landsins á lista Modernus, sem mælir aðsókn að íslenskum vefsíðum. Að jafnaði sóttu 16.909 notendur vf.is í viku hverri. Þá voru innlitin á síðuna að jafnaði 62.793 í hverri viku.


5

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

MMC Pajero Árgerð 2009, dísel Ekinn 72.000 km, sjálfskiptur

Ásett verð

6.390.000,-

ÚRVALS

NOTAÐIR BÍLAR í REYKJANESBÆ

Komdu til okkar á Njarðarbraut 13 og prófaðu einn af gæðingunum í notuðum bílum. Sölumenn taka vel á móti þér!

TOYOTA Yaris

TOYOTA Avensis

TOYOTA

Ásett verð 1.990,-

Ásett verð

Ásett verð

Ásett verð

Tilboð: 1.790.000,-

1.850.000,-

1.320.000,-

1.870.000,-

VW Polo

VW Golf

VW Crafter

SKODA Superb

Ásett verð

Ásett verð

Ásett verð

Ásett verð

2.700.000,-

3.050.000,-

2.950.000,-

4.200.000,-

Árgerð 2011, bensín Ekinn 50.000 km, beinsk.

Árgerð 2012, bensín Ekinn 20.000 km, sjálfsk.

SKODA Fabia

Árgerð 2007, bensín Ekinn 115.000 km, sjálfsk.

Árgerð 2012, dísel Ekinn 27.000 km, beinsk.

NISSAN Note

Land cruiser 90

Árgerð 2000, dísel Ekinn 288.000 km, sjálfsk.

Árgerð 2007, dísel Ekinn 150.000 km, beinsk.

MMC Pajero sport

VW Polo

Árgerð 2011, bensín Ekinn 79.000 km, beinsk.

Árgerð 2011, dísel Ekinn 69.000 km, sjálfsk.

MMC Pajero

Árgerð 2009, bensín Ekinn 46.000 km, beinsk.

Árgerð 2006, dísel Ekinn 176.000 km, beinsk.

Ásett verð

Ásett verð

Ásett verð

Ásett verð

1.890.000,-

1.790.000,-

1.550.000,-

2.990.000,-

Árgerð 2012, bensín Ekinn 31.000 km, beinsk.

Njarðarbraut 13 Reykjanesbæ Sími 420 3040 www.heklarnb.is

Árgerð 2005, dísel Ekinn 163.000 km, sjálfsk.


6

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR NÁMSKEIÐ Í HLJÓMASLÆTTI Á KASSAGÍTAR

Námskeiðið er ætlað byrjendum og lengra komnum. Kennt í litlum hópum, 1 klst. í senn á þriðjudagskvöldum í 8 vikur. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 12. febrúar nk. Kennsla fer fram í húsnæði skólans að Þórustíg 7, Reykjanesbæ. Kennari er Þorvaldur Már Guðmundsson. Námsgögn innifalin í námskeiðsgjaldi. Innritun stendur yfir til fimmtudagsins 7. febrúar nk. frá kl. 13-17 á skrifstofu skólans Austurgötu 13 eða í síma 421-1153 Skólastjóri

SKÁK OG MÁT Á BÓKASAFNINU

n Þekktur markaðsmaður verkefnisstjóri hjá Markaðsstofu Suðurnesja:

Gríðarleg tækifæri á Suðurnesjum

-segir Ásbjörn Björgvinsson „hvalavinur“ og hvetur til aukinnar samvinnu

Í tilefni af Skákdegi Íslands, laugardaginn 26. janúar nk. gefst bæjarbúum kostur á að tefla við reynda skákíþróttamenn á Bókasafni Reykjanesbæjar milli kl. 13:00 og 15:00 og fræðast um íþróttina. Siguringi Sigurjónsson frá Krakkaskák og Skákfélagi Reykjanesbæjar verður á staðnum, ásamt ungu skákíþróttafólki úr bæjarfélaginu. Laugardagar eru fjölskyldudagar á Bókasafninu og því kjörið fyrir fjölskylduna að taka skák saman.

LIST ÁN LANDAMÆRA

„Það eru gríðarleg tækifæri í ferðaþjónustu á Suðurnesjum en það hefur kannski aðeins vantað upp á samvinnu aðila á svæðinu. Takist að efla hana er hægt að ná í mun stærri bita af kökunni,“ segir Ásbjörn Björgvinsson nýráðinn verkefnisstjóri á Markaðsstofu Suðurnesja. Eftir breytingar í haust hjá Markaðsstofu Suðurnesja, en þá lét Kristján Pálsson af störfum sem framkvæmdastjóri og hætti einnig sem formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja, var ákveðið að auglýsa eftir nýjum aðila til að stýra markaðsmálum Markaðsstofunnar sem nú er komin undir hatt Heklunnar Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja. Ásbjörn sinnti til langs tíma starfi framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands og gat sér mjög gott orð fyrir störf sín þar. Nafn Ásbjörns hefur oft komið upp í umræðunni um vinsældir hvalaskoðunar og hvalasafns á Húsavík. Þegar Ásbjörn ákvað að breyta til og flutti suður var hann beðinn um

að taka að sér verkef nastjórn hjá Markaðsstofu Suðurnesja og stýra málum þar þangað til nýr forstöðumaður kemur til starfa. „Ég kem hér inn til skamms tíma og mun vera nýjum forstöðumanni innan handar í byrjun. Á þessum stutta tíma hef ég hitt nokkra aðila í ferðaþjónustunni á Suðurnesjum og á eftir að hitta fleiri. Það er hugur í fólki hérna. Svo er stefnt að stórum fundi með hagsmunaaðilum í greininni á næstu vikum.“ Hvað er brýnast í ferðaþjónustunni á Suðurnesjum? „Það eru gríðarleg tækifæri á Suðurnesjum. Þið eruð með þrjá stóra þætti sem allir sem starfa í ferðaþjónustugeiranum myndu vilja hafa. Þar má fyrst nefna Keflavíkurflugvöll, í öðru lagi Bláa lónið, vinsælasta ferðamannastað á Íslandi

og í þriðja lagi, nokkuð sem margir hafa litið á ógn en er í raun tækifæri en það er nálægð við höfuðborgina. Auðvitað er mjög auðvelt að nefna fleiri þætti eins og margar náttúruperlur hér á svæðinu.“ Ásbjörn segir að eitt stærsta atriðið sé að fá aðila á Suðurnesjum til að starfa betur saman til hagsbóta fyrir alla og nýta betur vannýtt tækifæri á Suðurnesjum. „Þetta snýst um að fá fleiri ferðamenn á svæðið og fá þá til að dvelja lengur þegar þeir koma. Með góðu samstarfi aðila fyrir norðan hefur það tekist mjög vel. Einfalt atriði í þeim efnum er að þegar ferðalangar koma við á einum stað á svæðinu á að benda þeim á aðra valmöguleika og vísa þeim á aðra áhugaverða staði á sama svæði. Þannig höldum við þeim lengur og allir græða. Það þarf líka að styrkja söluþáttinn og auka framboðið. Búa til áhugaverða og söluvæna pakka. Nóg er til en við getum gert betur í því að koma svæðinu á framfæri,“ sagði Ásbjörn.

Markaðsstofa Suðurnesja skrifar undir samkomulag við Ferðamálasamtök Suðurnesja H

Áttu þér draum um að standa á sviði og leika, syngja, spinna, eða gera eitthvað óvænt? Þá erum við að leita að þér. Alls konar fólk óskast til þátttöku í sviðsverki sem sett verður upp á listahátíðinni List án landamæra 27. og 28. apríl. Leikarar, tónlistarfólk, skapandi fólk og aðrir þeir sem áhuga hefðu á að vera með í þessu skemmtilega verkefni. Einnig fólk sem gæti aðstoðað við leikmynd, búninga, smink o.fl. Leikstjórar eru Bylgja Dís Gunnarsdóttir og Henning Emil Magnússon Æfingar hefjast 2. febrúar. Skráning og nánari upplýsingar hjá jenny@mss.is eða í síma 421-7500 (Jenný Magnúsdóttir)

eklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja og Ferðamálasamtök Suðurnesja skrifuðu undir samkomulag um starfsemi Markaðsstofu Suðurnesja föstudagin 18. janúar sl. en Heklan tekur yfir rekstur skrifstofunnar frá og með 1. febrúar 2013. Tilgangur Markaðsstofunnar er að samþætta og efla markaðs- og kynningarstarf á Suðurnesjum og styrkja svæðið til að afla tekna og skapa atvinnu. Þannig er markaðssetning landshlutans unnin á einum stað í samstarfi ferðaþjónustuaðila, sveitarfélaga, klasa og samtaka innan svæðisins. Lögð verður áhersla á að auka samstarf fyrirtækja í ferðaþjónustu sem og samstarf við fyrirtæki á svæðinu í öðrum greinum atvinnulífsins. Verkefni stofunnar eru m.a. umsjón og útgáfa á ýmiss konar kynningarefni, rekstur vefsíðunnar visitreykjanes.is og kynning í samfélagsmiðlum, skipulagning sýninga innanlands og erlendis og ýmislegt fleira sem styður við

ferðaþjónustufyrirtæki og styrkir ímynd Suðurnesja. Stjórn Markaðsstofu Suðurnesja er skipuð stjórn Heklunnar ásamt einum fulltrúa frá Ferðamálasamtökum Suðurnesja og einum áheyrnafulltrúa frá Ferðamálasamtökum Suðurnesja. Rekstur Markaðsstofunnar verður fjármagnaður af sveitarfélögum á

Suðurnesjum og Ferðamálastofu auk þess sem leitað verður til aðila í ferðaþjónustu um aðkomu að verkefnum. Auglýst hefur verið eftir verkefnastjóra Markaðsstofunnar sem mun hafa aðsetur í Eldey, Grænásbraut 506, Ásbrú ásamt öðrum verkefnastjórum Heklunnar.

Frá undirritun samningsins í Eldey þróunarsetri á Ásbrú.


7

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

www.asmundurf.is

Ásmundur

Á mannlegum nótum með þér!

„Í störfum mínum sem þingmaður vil ég ná árangri undir þjónandi forystu Sjálfstæðisflokksins fyrir hinn vinnandi mann. Eina leiðin til að bæta lífskjörin og tryggja velferð og réttlæti er að veita fólkinu í landinu frelsi til athafna í opnu og frjálsu samfélagi. Þingmennska er starf sem gefur mér tækifæri til að berjast fyrir hagsmunum fólksins.

Setjum Ásmund í 3ja sæti Laugardaginn 26. janúar fer fram prófkjör sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Nái Ásmundur Friðriksson á þing yrði það mikill fengur fyrir okkur Suðurnesjamenn. Kjósum Ása til góðra verka og tryggjum honum 3ja sæti listans! Kosningavaka Ásmundar verður frá kl. 21–01 á laugardagskvöld í Liba húsinu (við innkomuna í Garðinn). Allir velkomnir. Boðið verður upp á akstur á kjörstað í Reykjanesbæ,Garði og Sandgerði á kjördag. Hringið í síma 6607890.

Stuðningsmenn.

Íbúar í Vogum athugið: Þar sem kjörstaður er ekki í Vogum verður boðið upp á sætaferðir á kjörstað frá Gamla pósthúsinu sem hér segir:

Kl. 11.00 og til baka kl. 12.00 Kl. 16.00 og til baka kl. 17.00

Ásmundur Friðriksson

3.

sækist eftir 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Hagsmunir almennings í landinu eiga að ganga fyrir. Þar mun ég láta verkin tala og þjóna fólkinu á mannlegum nótum.


8

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

n Viðskipti og atvinnulíf

Bílabærinn er að vakna -mikil aðsókn á Benz sýningu hjá K.Steinarssyni

2

Kjartan Steinarsson við nýjan A-Class, bíl ársins á Íslandi.

Oddgeir Á. Ottesen

í 2. sætið Ég gef kost á mér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fer fram næstkomandi laugardag 26. janúar. Kosningaskrifstofa mín er í Frumskógum 3 í Hveragerði. Hægt er að kíkja í spjall dagana 24. - 26. janúar kl. 17:00 - 19:00

Bætt lífskjör Aukin fjárfesting og hagvöxtur

„Þetta er búið að vera stór dagur, einn sá stærsti lengi. Bílabærinn er að taka við sér,“ sagði Kjartan Steinarsson, bílasali í K.Steinarssyni eftir bílasýningu sl. laugardag. Sýndar voru nokkrar nýjar gerðir af þýska eðalbílnum Mercedes Benz, fólksbílum, jeppum og vinnubílum. Þegar fréttamaður VF kíkti við voru nokkrir iðnaðarmenn að skoða af gaumgæfni MB Citan vinnubíl sem er í boði á mjög hagstæðu verði. Aðrir prófuðu og skoðuðu glæsivagna frá Benz, nýjan ML jeppa, B-Class og E-Class metan og GLK. Síðast en ekki síst nýjan A-Class en hann var kjörinn bíll ársins á Íslandi. Kjartan fór í bæjarrúnt með Víkurfréttir á A-Class og

ML jeppa og það er hægt að taka undir það sem stóð í auglýsingunni fyrir sýninguna að Mercedes bílar eru meistarastykki. Hagstætt verð kemur á óvart því í hugum flestra í gegnum tíðina hafa þýskir bílar verið dýrir. Nú spila mengunarminni vélar inn í þann þátt og ör þróun í þeirri deild hefur (skatta) lækkað verð á bílum hér á landi og það eftir kreppu, hversu ótrúlegt sem það má vera. „Þetta er allt á réttri leið hér á Suðurnesjum. Við verðum bara að vera bjartsýn. Þetta hlýtur að fara að koma. Við finnum alla vega fyrir því í bílasölunni. Það er kominn tími á skipti hjá mörgum og útlitið framundan er því gott,“ sagði Kjartan.

Losun fjármagnshafta Lægri vextir og auðveldari endurfjármögnun húsnæðislána Hagkvæm nýting auðlinda

Séð yfir úrvalið í sýningarsal K.Steinarsson á Benz sýningunni.

Oddgeir Á. Ottesen Bjarkarheiði 18 810 Hveragerði Sími: 691-9501 facebook.com/Oddgeir2013 Citan vinnuþjarkurinn vakti athygli iðnaðarmanna á sýningunni.

Jöfnunarstyrkur til náms - Umsóknarfrestur á vorönn 2013 er til 15. febrúar nk. Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem verða að stunda nám fjarri heimili sínu. s $VALARSTYRKUR FYRIR É SEM VER A A DVELJA FJARRI LÚGHEIMILI OG FJÚLSKYLDU sinni vegna náms). s 3TYRKUR VEGNA SKØLAAKSTURS FYRIR É SEM S KJA NÉM FRÉ LÚGHEIMILI OG fjölskyldu fjarri skóla). Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is). Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd

Hækkun umönnunargreiðslna til foreldra – og niðurgreiðsla vegna barna hjá dagforeldrum

B

æjaryfirvöld í Reykjanesbæ samþykktu við síðustu fjárhagsáætlunargerð að hækka umönnunargreiðslur til foreldra úr 25.000 í 35.000 á mánuði. Jafnframt voru niðurgreiðslur vegna vistunar barna hjá dagforeldrum hækkaðar með sama hætti. Það var Reykjanesbær sem reið á vaðið með umönnunargreiðslur til foreldra árið 2006. Samkomulag náðist við stjórnvöld um að slíkar greiðslur yrðu ekki skattskyldar. Í framhaldi af þessu tóku fjölmörg sveitarfélög upp svipað kerfi. Þó hefur það alltaf verið sérstaða hjá Reykjanesbæ að foreldrar sem njóta greiðslanna skulu njóta ókeypis fræðslu og kynningar á uppeldismálum á vegum bæjarins. Fyrstu árin voru greiðslurnar 30.000.- en í bankahruninu voru þær lækkaðar í 20.000.- og síðan hækkaðar aftur

í 25.000.-. Nú hafa bæjaryfirvöld ákveðið að hækka þær í 35.000, þrátt fyrir þröngan fjárhag, en það samræmist fjölskyldustefnu bæjarins að stuðla að því að foreldrar geti verið sem lengst með ungum börnum sínum. Umönnunargreiðslur eru greiddar frá því að fæðingarorlofi lýkur til 15 mánaða aldurs barns. Eftir það taka við niðurgreiðslur vegna barna hjá dagforeldrum þar sem það á við. Báðar þessar greiðslur þarf að sækja um mánaðarlega á www.mittreykjanes.is. Til þess að fá umönnunargreiðslur þurfa foreldrar að hafa sótt tveggja kvölda kynningu á þjónustu Reykjanesbæjar við fjölskyldur. Upplýsingar um kynningar eru á www.mittreykjanes.is. Félagsmálastjóri


9 ENNEMM / SÍA / NM51624

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

Nú er Tímaflakk orðið að veruleika í Sjónvarpi Símans

Sjónvarp Símans Þú getur farið til baka í sjónvarpsdagskránni

Ekki örvænta þótt þú missir af uppáhaldsþættinum þínum. Við breyttum fjarstýringunni nefnilega í tímavél svo að þú getir valið dagskrárliði á völdum stöðvum allt að sólarhring aftur í tímann. Komdu í næstu verslun okkar og fáðu þér Sjónvarp Símans fyrir aðeins 1.490 kr. á mánuði. Nánar á siminn.is


10

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

Sölumennirnir Svavar Grétarson og Mikael Þór Halldórsson við Chevrolet Volt rafmagnsbílinn.

n gunnar þórarinsson skrifar:

Eflum íþróttastarf – það eflir okkur F rá barnsaldri hafa íþróttir átt stóran þátt í lífi mínu. Ég átti því láni að fagna að stunda knattspyrnu, handknattleik og körfubolta á mínum yngri árum og síðar golf. Alls staðar hef ég séð hversu góð áhrif íþróttir hafa á iðkendurna, jafnt þá sem sækjast aðallega eftir félagsskap og hreyfingu sem og þá sem leggja aðaláherslu á keppni. Auðvitað er keppni stór þáttur í íþróttalífi, bæði fyrir þá sem stunda þær og þá er fylgjast með kappleikjum og við Íslendingar eigum því láni að fagna að eiga keppnismenn í fremstu röð á sviði íþrótta, að meðtöldum íþróttum hugans, skák og bridge. Enginn þarf að efast um mikilvægi íþrótta fyrir heilsufarslegar forvarnir, það styðja vísindalegar rannsóknir. Þar er í senn skírskotað til varna gegn notkun hvers konar vímuefna og hreyfingarinnar sem slíkrar, en ekki síst til þeirra jákvæðu uppeldislegu og félagslegu áhrifa sem iðkun íþrótta hefur á einstaklingana. „Ísland er ekki lítið land, það er stórasta land í heimi,“ er haft eftir Dorrit Moussaieff forsetafrú í tilefni af silfurverðlaunum handknattleiksliðs okkar á Olympíuleikunum í Peking. Svo sannarlega var þetta mikla afrek ekkert einsdæmi meðal okkur Íslendinga. Afrekalisti þessarar fámennu þjóðar er ótrúlega langur og á flestum sviðum íþrótta. Til dæmis eigum við fleiri atvinnumenn í sterkustu deildum Evrópu í knattspyrnu og handknattleik en aðrar þjóðir að svipuðum fjölda svo ekki sé talað um ef miðað er við höfðatölu, þar erum við trúlega fremstir meðal þjóða. Þetta eru staðreyndir sem hafa í sjálfu sér ekkert með oflátungshátt eða þjóðrembu að gera. En hver er ástæðan? Á þessu er ekki einhlít skýring. Þróun mannsins er í grunninn samkeppni milli einstaklinga og ef marka má fornsögurnar voru formæður okkar og forfeður að mörgu leyti kappsamt og íþróttasinnað atgervisfólk. Sé það rétt hafa kynslóðir Íslendinga síðan notið góðs af þessum erfðum hver fram af annarri. Einnig vitum við að það var ekki heiglum hent að lifa af í þessu harðbýla landi á öldum áður þegar fimbulkuldi og náttúruhamfarir ógnuðu tilvist þjóðarinnar. Erfið lífsbaráttan útheimti bæði líkams-

þrek og baráttuanda sem varð samofinn þjóðarmenningunni. Þannig mætti líka álykta að iðkun íþrótta geti að einhverju leyti verið þáttur í því að viðhalda því atgervi sem þarf til að lifa af. En það er til önnur og nærtækari skýring á árangri okkar í íþróttum. Í þessu stóra en fámenna landi eru stundaðar íþróttir jafnt í dreifbýlinu úti á landi sem þéttbýlinu hér á suðvesturhorni landsins sem er í raun strjálbýlt í samanburði við þéttbýliskjarna erlendis. Í hverju plássi hafa menn metnað til þess að stilla upp liðum í knattspyrnu eða öðrum boltaíþróttum. Þá hefur bardaga- og kraftakeppni löngum átt fjölda þátttakenda sem aðdáenda að glímunni ógleymdri. Strjálbýlið hefur þannig gefið fleirum tækifæri til að þroskast á sviði keppnisíþrótta en ella væri. Af framangreindu er ljóst að metnaður og keppnisskap forfeðranna í íþróttum sem lýst er í Íslendingasögum dafnar vel með þjóðinni enn þann dag í dag. Hins vegar er nauðsynlegt að íþrótta- og tómstundafélög setji sér skýra uppeldisstefnu sem lýtur m.a. að því að gefa öllum tækifæri til að taka þátt. Þá þarf framboð íþrótta og tómstunda að vera sem fjölbreyttast. Til þess þarf að tryggja aðkomu menntaðra þjálfara og forystumanna í þessu starfi. Við hér í Reykjanesbæ höfum ætíð átt afreksmenn í íþróttum í fremstu röð hér á Íslandi og sumir þeirra jafnframt getið sér góðan orðstír erlendis á því sviði. Við höfum byggt upp íþróttamannvirki og fullnægt þannig betur þörfum iðkenda og unnenda íþrótta en gerist víðast hvar annars staðar á landinu. En nýtast mannvirkin nógu vel? Skila þau þeim arði sem skyldi? Við verðum að fylgja þessum fjárfestingum eftir með því að veita innra starfi íþrótta- og tómstundafélaganna þann fjárhagslega stuðning sem þarf til að allir á skólaskyldualdri sem vilja, fái notið þessa starfs. Það er sú leið sem þarf að fara nú til að virkja sem flesta til þátttöku, bæði unga sem aldna, og auka þannig velferð íbúanna. Um leið og ég þakka öllum þeim sem hafa lagt íþróttunum lið og þá sérstaklega sjálfboðaliðum sem eru burðarásar félaganna, óska ég íbúum Reykjanesbæjar gæfu og velfarnaðar á nýbyrjuðu ári. Gunnar Þórarinsson

MEIRAPRÓFSBÍLSTJÓRI Vantar starfsmann í sumarafleysingar við eldsneytisáfyllingar á flugvélar á Keflavíkurflugvelli.

Rafmögnuð bylting og góður gangur hjá Bílabúð Benna í Reykjanesbæ:

Fjórðungs söluaukning á síðasta ári

S

íðasta ár var gott hjá Bílabúð Benna í Reykjanesbæ en fjórðungs söluaukning varð í bílasölu hjá fyrirtækinu. Nýlega kom á markað Volt, glæslegur rafmagnsbíll frá Chevrolet og ríkir mikil spenna fyrir bílnum sem er byltingarkenndur. Volt býður uppá kærkomna möguleika og er fagnaðarefni fyrir alla sem láta sig varða verndun náttúrunnar, vilja draga úr notkun á bensíni og gefa ódýru heimilisrafmagni nýtt hlutverk. Volt kemst yfir 60 km á einni hleðslu og bensínknúinn rafall eykur ökudrægið yfir 500 km. Volt hefur verið á markaðnum í Bandaríkjunum í tvö ár og viðamikil þarlend könnun sýnir að hjá flestum Volteigendum sem hlaða bílana reglulega, geta liðið allt að sex mánuðir á milli heimsókna á bensínstöðvar. Fólk hleður Volt á nóttunni og ekur á daginn. Einfaldara getur það ekki verið. Þeir Svavar Grétarson og Mikael Þór Halldórsson sem starfa sem sölufulltrúar hjá Bílabúð Benna eru bjartsýnir á að bílinn sé það sem koma skal í framtíðinni. Bílinn er nokkuð kraftmikill eða 150 hestöfl og er rétt rúmar 9 sekúndur í hundraðið. „Þessi græja er algjör snilld,“ segir Svavar. „Bílinn hefur verið að fá gríðarleg viðbrögð enda byltingarkenndur bíll. Hann er orðinn mjög stór í Bandaríkjunum og enn í miklum vexti.“ Reiknað hefur verið út að það kosti 16,9 kílóvattstundir að hlaða bílinn til þess að keyra 100 kílómetra. Það gerir rétt um 200 krónur miðað

við rafmagnsverð á Suðurnesjum. Hægt er að hlaða bílinn nánast hvar sem er en notast er við venjulegt heimilisrafmagn. Að þeirra sögn er þetta fyrsti alvöru raunhæfi rafmagnsbílinn á markaði á Íslandi. „Þetta er þessi raunverulegi græni kostur sem verður ráðandi í framtíðinni,“ segir Svavar en þróunin stefnir þangað að þeirra mati. Hjá fyrirtækinu er einnig dekkjaverkstæði, þjónustustöð, smurstöð og bónstöð. Starfsmenn hjá fyrirtækinu eru sjö talsins og ekki laust fyrir að fjölgað verði þegar líða tekur á árið. Þeir Svavar og Mikael eru sáttir við sölu síðasta árs en þá var 25% söluaukning. Miklar breytingar voru hjá fyrirtækinu á síðasta ári og m.a. var malbikað bílaplanið sem þeir félagar segja kærkomið. „Það var gjörbylting frá gamla malarplaninu og mjög jákvætt,“ segja þeir félagar. Fyrirtækið er staðsett í fremur auðþekkjanlegu húsi, hinu svokallaða glerhúsi á Fitjum. Þar segjast þeir kunna vel við sig en þeir hafa verið þarna til húsa síðan 2009. Nú er komið upp fullkomið þjónustuverkstæði og bifvélavirki hefur verið ráðinn til starfa. Það mætti því segja að allt sé til staðar á einum stað sem þarf fyrir bílinn. Þarna er allt til staðar sem þarf að nálgast og óþarfi að fara til Reykjavíkur. Dekkjaverkstæðið er í miklum vexti og fólk nýtir sér í miklu magni dekkjageymslu þar sem dekkjaumgangurinn er geymdur og því þarf fólk bara að mæta á staðinn til að skipta um.

Vaktavinna Viðkomandi þarf að hafa meirapróf og trailer réttindi. Hreint sakavottorð er skilyrði. Upplýsingar veitir Halldór í síma 425-0751 og halldor@eak.is Eldsneytisafgreiðslan á Keflavíkurflugvelli

Starfsmenn fyrirtækisins fyrir framan húsnæðið að Njarðarbraut.


11 ENNEMM / SÍA / NM56224

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

Stilltu Netbankann eftir þínum þörfum Valur er sífellt að endurbæta og leita nýrra lausna. Hann er í þróunarteymi Netbankans.

Meiri hraði og betra viðmót í Netbankanum Netbanki Íslandsbanka er í stöðugri þróun. Nýjustu endurbætur á viðmóti og virkni Netbankans gera þér kleift að sinna bankaviðskiptum með einfaldari hætti en áður. Þú stillir upphafssíðu Netbankans eftir þínum þörfum, velur þá liði sem þú vilt hafa sýnilega og kemst með einum smelli inn í helstu aðgerðir.

Við bjóðum góða þjónustu islandsbanki.is | Sími 440 4000

Helstu kostir Betri sýn á fjármálin Þú stillir viðmótið Auðveldari millifærsla Einfaldara leiðakerfi Sýnileg sparnaðarmarkmið Lýsandi heiti reikninga og korta Greiðsla reikninga fljótlegri og þægilegri


12

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

Verne Global hugar að 2. áfanga á Ásbrú

V

erne Global, alþjóðlega gagnaverið á Ásbrú í Reykjanesbæ, þarf að huga að byggingu annars áfanga vegna aukinna viðskipta, með tilkomu nýjasta viðskiptavinarins BMW. Fyrsti viðskiptavinurinn fyrir rúmu ári síðan var bandaríska fyrirtækið Datapipe en síðan hafa bæst við leikjaframleiðandinn CCP, hýsingarfyrirtækið GreenQloud og Opin kerfi. Nýjasti viðskiptavinur Verne er þýski bílaframleiðandinn BMW sem hyggst hýsa þar ofurtölvur fyrir verkfræðinga fyrirtækisins við hönnun á nýjum bílum. Með verulegri aukningu á flutningsstyrk sæstrengjanna Danice og Farice eykst flutningsgeta

úr um 5700 Gb/s í 38 þúsund Gb/s og skapar stórbætta samkeppnisstöðu til uppbyggingar þjónustu gagnavera á Íslandi.

Óljóst hvenær tvöfaldað verður að flugstöðinni

E

Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,

Lárus A. Guðbrandsson, Vallarbraut 2 (Ólafslundi), Njarðvík lést aðfaranótt laugardagsins 19. janúar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Útförin fer fram frá Ytri Njarðvíkurkirkju föstudaginn 1. febrúar kl. 14:00.

Jenný L. Lárusdóttir, Guðbrandur A. Lárusson, Árni Þór Lárusson, Hulda Dagmar Lárusdóttir, Rúnar O. Guðbrandsson, Kristín Guðbrandsdóttir,

Smári Friðjónsson, Stefanía Gunnarsdóttir, Ragnheiður Júlíusdóttir,

barnabörn og barnabarnabörn

kki liggja fyrir tímasettar á æ t l a n i r u m t v öfö l d u n Re y kj an e s br aut ar i n n ar f r á Fitjum í Innri-Njarðvík að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Í samgönguáætlun fyrir árin 2011 til 2022 er áætlaður kostnaður tvöföldun Reykjanesbrautar samtals sex milljarðar króna. Þar verður lokið við tvöföldun Reykjanesbrautar Hafnarfjarðarmegin en kaflinn er 8 km að lengd. Hins vegar er óljóst hvenær og hvort farið verður út í tvöföldun Reykjanesbrautar frá Fitjum en umferð

minnkar talsvert eftir að komið er að Fitjum í átt að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Guðlaugur Þór spurði einnig út í framkvæmdir við uppsetningu á vegriði á Reykjanesbraut. Í svari innanríkisráðherra kemur fram að áætlanir Vegagerðarinnar miðast við að ljúka uppsetningu vegriða á Reykjanesbraut í Garðabæ á árinu 2013 og hefja það ár uppsetningu á Reykjanesbraut sunnan Straumsvíkur. Miðað við fjárveitingar má gera ráð fyrir að lokið verði við uppsetningu vegriðs í vegmiðju suður að Fitjum á árunum 2015– 2016. Kostnaðaráætlun miðast við einfalt víravegrið að mestu leyti. Einstaka kafli gæti þó verið með tvöföldu

vegriði vegna hæðarmunar á milli akbrauta. Laga þarf innri fláa á nokkrum köflum. Heildarkostnaður við uppsetningu vegriðsins er áætlaður um 350 millj. kr. Vegagerðin hefur ekki áætlað að setja upp sérstaka veglýsingu við syðri akbraut Reykjanesbrautar. Ekki hefur heldur verið áætlað að skipta út ljósastaurum við nyrðri akbraut. Ljósastaurarnir eru eftirgefanlegir af viðurkenndri amerískri gerð. Þeir voru settir upp eftir útboð árið 1995. Elstu staurarnir eru frá árinu 1996 og er algengur endingartími slíkra staura um 30–40 ár. Ekið hefur verið á um 150–200 staura. Alvarleg slys eru fá samkvæmt svari innanríkisráðherra.

www.retturinn.is

Gleðilegan þorra! Þorrabakkar, þorraöskjur og þorrablót Fögnum komu Þorrans með því að gleðja bóndann með þorraveislu Auka opnunartími í tilefni þorra:

Opið laugardaginn 26. jan. frá 15:00 - 19:00 Súrmaturinn góði kemur frá

Rétturinn veisluþjónusta - Hafnargötu 51 - 230 Reykjanesbæ - Sími: 421 8100 - retturinn@retturinn.is


13

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

u t n ö l p a Pott !

n i f A h r e n A ÚtsAl

sbæ

ne a j k y e r l a v a Blóm

% 0 5 0 2 r u t t á l s af

Alvöru

ÚtsAlA BÓNDADAGUR

á föstudag heimilistæki

20-40% afsláttur

Verkfæri

15-30%

afsláttur

Túlipanavöndur 15 stk

1.499

kr.

Stórar rósir 20 stk

2.990 líkams-ki ræktartæ

20%

afsláttur

kr.

fatnaður

30-70% afsláttur

hluti af Bygma LÆG S LÁGA TA VER Ð

HÚSA SMIÐ JUNN AR

*Afsláttur gildir af útsöluvörum. Gildir ekki af vörum merktum „Lægsta lága verð Húsasmiðjunnar“. Vöruúrval getur verið misjafnt milli verslana

Allt frá grunni Að góðu heimili síðAn 1956


14

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

heilsuhornið

Nokkur ráð gegn vetrardepurð sínki, selen og B-vítamínum úr kortur á sólarljósi yfir fæðunni. vetrartímann getur haft S þau áhrif á líkamann að fram-

Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,

Jóhanna Kristinsdóttir, Miðtúni 2, Keflavík, lést hinn 21. janúar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 29. janúar kl. 13:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarskeyti Bandalags íslenskra skáta (sími 550 9800) eða minningarkort Soroptimistasambands Íslands (sími 588 8842 / 862 8005).

Jakob Árnason, Ísleifur Árni Jakobsson, Guðrún Sigríður Jakobsdóttir, Kristinn Þór Jakobsson, Ásdís Ýr Jakobsdóttir, Sigrún Björk Jakobsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

Laufey Hrönn Þorsteinsdóttir, Gunnar I. Baldvinsson, Ólöf K. Sveinsdóttir, Valur B. Kristinsson, Jón Björnsson,

Opið hús fyrir alla aldurshópa á föstudagskvöldum kl.20:00.

leiðsla á ‘gleði’ taugaboðefninu serotóníni minnkar sem hefur áhrif á lundafar okkar og getur ýtt undir depurð, sem oft er nefnt skammdegisþunglyndi eða ‘seasonal affective disorder’. Einkenni sem fólk getur fundið fyrir tengt þessum árstíma eru depurð/þunglyndi, þreyta og slen, tilhneiging til að sofa of mikið og borða of mikið (sérÁsdís staklega löngun í kolvetni/sætindi), grasalæknir erfiðleikar við að vakna á morgnskrifar ana, skortur á framkvæmdaorku og drifkrafti. Ef einkenni eru það mikil og hamla daglegum athöfnum okkar þarf að leita frekari aðstoðar til að fá viðeigandi meðferð, en fyrir væg einkenni geta eftirfarandi ráð verið mörgum gagnleg til að lyfta sér upp úr skammdeginu:

Hreyfum okkur reglulega og aukum þannig náttúrulega framleiðslu á gleðihormónum líkamans.

Hvítasunnukirkjan

Borðum næringarríkan mat og reynum að fá nóg af omega 3 fitusýrum, D-vítamíni,

Margt til gamans gert, glaðværð og gleði. Eitthvað fyrir alla. Sjoppan opin eftir samveru.

Hafnargötu 84

Náum okkur í meiri sólarbirtu og reynum að fara út þegar það er sem bjartast yfir daginn.

Prófum ljósabox eða lampa sem líkja eftir náttúrulegu sólarljósi (10,000 lux styrkleiki) og örva framleiðslu serótóníns, en miðað er við a.m.k. 20 mín. notkun á dag, helst á morgnana. Fást í betri raftækjaverslunum. Klæðumst bjartari og litríkari fötum og hleypum birtu og litum inn á heimili okkar og nánasta umhverfi. Leitumst eftir því að gera meira af því sem gleður okkur og förum út á meðal fólks og verjum tíma með okkar nánustu og spornum gegn því að loka okkur af eða leggjast undir feld. Nálastungur, jurtalyf og hugræn atferlismeðferð hafa reynst vel í sumum tilfellum. Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is www.pinterest.com/grasalaeknir

ÁLAGNINGARSEÐLAR FYRIR ÁRIÐ 2013 Tilkynning til eigenda fasteigna um álagningu ársins 2013 Álagningarseðlar fyrir árið 2013 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út í bréfapósti. Nú geta fasteignaeigendur nálgast álagningarseðilinn á mittreykjanes.is og á upplýsinga- og þjónustuveitunni www.island.is. Reykjanesbær mun þó áfram senda einstaklingum 67 ára og eldri álagningarseðil í pósti. Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í pósti er bent á að senda póst á netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is. Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu. Fyrsti gjalddagi er 25. janúar 2013 til og með 25. október 2013. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og falla öll gjöld ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Reynist heildarálögð gjöld 20.000 krónur eða lægri er gjalddagi gjaldanna 25. janúar 2013. Athygli er vakin á því að greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda eru birtir í heimabönkum. Þeir sem vilja fá senda greiðsluseðla er bent á að senda póst á thjonustuver@reykjanesbaer.is.

#vikurfrettir

á Instagram og þú gætir unnið góða vinninga!


15

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

2.-4. SÆ TI

Reynir Þorsteinsson -fyrst og fremst landsbyggðarmaður

• Segjum nei við framkomnu frumvarpi um stjórn fiskveiða • Segjum nei við inngöngu í Evrópusambandið • Segjum nei við frekari niðurskurði á opinberri þjónustu á landsbyggðinni • Segjum já við bættu starfsumhverfi sjávarútvegsins. • Segjum já við eflingu og framþróun íslensks landbúnaðar • Segjum já við flutningi opinberra verkefna út á land.

Reynir Þorsteinsson gefur kost á sér í 2.-4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.

Tryggjum ötulum talsmanni landsbyggðarinnar brautargengi.


16

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

ELDGOS Í HEIMAEY 23. JANÚAR 1973

Aðfaranótt þriðjudagsins 23. janúar 1973 um kl. 1.55 hófst eldgos í um 1600 m langri gossprungu á austanverðri Heimaey í Vestmannaeyjum. Eldgosið kom mjög óvænt og fyrirvaralaust. Að vísu höfðu fundist nokkrir vægir jarðskjálftakippir á Heimaey frá kl.10 um kvöldið, og varð snarpasti kippurinn kl. 1.40 um nóttina. Kvöldið áður 22. janúar tók fólk á sig náðir á Heimaey á venjulegum tíma. Landlega var hjá bátaflotanum, en um daginn hafði gengið yfir stórviðri af suðaustri með 12 vindstigum og rigningu. Upp úr miðnætti aðfaranætur 23. janúar voru fáir á ferli í Vestmannaeyjakaupstað. Skömmu fyrir kl. 2 var hringt á lögreglustöðina og tilkynnt að jarðeldur væri kominn upp skammt ofan og austan Kirkjubæjar, austast í kaupstaðnum. Gaus þá þegar í sprungunni endilangri, og var kvikustrókaröðin svo þétt, að líktist samfelldum eldvegg. Gosið hafði byrjað, þar sem nú er aðalgígur nýja eldfjallsins, sem síðar var nefnt Eldfell. Hraun rann þegar í upphafi úr gossprungunni undan halla til austurs og norðausturs og tók þá þegar að myndast hraunbreiða í sjó fram. Brunalúðrar voru þeyttir og bruna- og lögreglubílar óku um götur með vælandi sírenum til að vekja fólk. Á þriðja tímanum munu flestir bæjarbúar hafa verið komnir á ról, og tóku þá þegar að streyma niður að höfn. Eins og áður sagði, voru allir bátar í höfn vegna óveðursins daginn áður. Voru það Eyjabátar svo og aðkomubátar, sem leitað höfðu vars í Eyjum, búnir til brottfarar í skyndi og lagði fyrsti báturinn af stað til Þorlákshafnar um kl. hálfþrjú og síðan hver af öðrum. Bæjarstjórn Vestmannaeyja ákvað um nóttina, að af öryggisástæðum skyldi flytja alla bæjarbúa til lands nema þá, sem hefðu skyldustörfum að gegna, enda gat svo farið, að innsiglingin lokaðist, ef gossprungan lengdist til norðurs, og eins gæti flugvöllurinn lokast ef hún lengdist til suðurs. Flugvélar fluttu um nóttina um 300 manns til Reykjavíkur, einkum sjúka og aldraða. Upp úr kl. 4 um nóttina tók Ríkisútvarpið að útvarpa tilkynningum og fréttum af gosinu. Telja má að um 5000 manns hafi verið flutt frá Heimaey fyrstu gosnóttina, langflestir með bátum. Flutningarnir gengu vel og slysalaust. Kom það einkum til af því að veður var eins hagstætt um nóttina og hugsast gat og eins það, að fólk var rólegt þrátt fyrir ósköpin sem yfir gengu. Að morgni þriðjudagsins 23. janúar var því þeim björgunaraðgerðum lokið, sem mestu máli skiptu, og íbúar Vestmannaeyja sloppnir heilir á húfi burtu frá mestu hættu, sem steðjað hefur að íbúum þéttbýlis á Íslandi. Eftir voru í Eyjum 200-300 manns til að sinna þeim verkum, sem varð að vinna. Heimild: Eyjar.is

Eldgosið í Heimaey á þriðja degi. Húsið fremst á myndinni var heimili Ásmundar Friðrikssonar, fv. bæjarstjóra í Garði en myndin er úr hans einkasafni en það var Snorri Óskarsson sem tók myndina. Öll húsin á myndinni fóru síðar undir hraun.

Adólf Sigurgeirsson og Anna Marteinsdóttir fluttu til Grindavíkur þegar eldgosið í Vestmannaeyjum hófst

Búa ennþá í sama húsinu, 40 árum síðar H

jónin Adólf Sigurgeirsson og Anna Marteinsdóttir hafa búið í Grindavík undanfarin 40 ár. Þau fluttu frá Vestmannaeyjum þegar eldgosið í Heimaey hófst. Líkt og margir Eyjamenn þá urðu þau að flýja gosið upp á land. Adólf og Anna fluttust til Grindavíkur í mars 1973 og hafa verið þar síðan. Þeim var úthlutað húsi að Suðurvör 2 þar sem þau hafa unað hag sínum vel og búa þar enn. „Við fluttum í mars 1973 - daginn fyrir bolludaginn,“ segir Adólf sem var rúmlega fertugur þegar hann flutti frá Eyjum. „Ég hafði hug á því að flytja frá Eyjum áður en gosið hófst því ég var með barn sem þurfti á sérkennslu að halda og það var ekki í boði í Eyjum. Þegar gosið hófst þá ákváðum við að flytja til Grindavíkur og höfum verið þar síðan.“ Adólf starfaði í vélsmiðju í Vestmannaeyjum og fékk strax atvinnu eftir komuna til Grindavíkur. „Þegar ég kom til Grindavíkur þá var ákaflega vel tekið á móti mér. Það var sagt við mig að járnsmiður færi ekki aftur úr bænum og okkur fjölskyldunni var útveguð íbúð til skamms tíma áður en ég flutti í Eyjabyggðina. Ég flyt inn í húsið mitt í Eyjabyggðinni haustið 1973 og hef verið þar síðan,“ segir Adólf. Áður en hann flutti til Grindavíkur þá hafði hann nýlega lokið námi í plötu- og ketilsmíði. „Ég fékk strax vinnu í Vélsmiðju Grindavíkur eftir að ég flutti hingað. Ég starfaði í vélsmiðjunni þar til að hún var lögð niður. Bærinn keypti þá húsið og gerði að áhaldahúsi. Ég hóf störf þar og vann þar til að ég varð sjötugur.“

Hjónin Adólf Sigurgeirsson og Anna Marteinsdóttir. Með þeim á myndinni er sonur þeirra, Kjartan Freyr, sem flutti með þeim til Grindavíkur og hefur búið hér síðan og starfar sem bókari á bæjarskrifstofunum.

Laug sig til Eyja Fyrstu daga og vikur eftir að gosið hófst í Eyjum sneru margir Eyjamenn aftur í Heimaey til að reyna að bjarga verðmætum. Adólf segir að hann hafi verið hluti af hópi manna sem hafi náð að ljúga sig út í Eyjar. „Ég fór fljótlega frá Eyjum eftir að gosið hófst. Ég ásamt hópi manna vildum þó komast til Eyja til að bjarga verðmætum en okkur var hafnað. Við dóum ekki ráðalausir og sögðum við Almannavarnir að við ætluðum til Eyja að bjarga fé sem væri í Heimakletti. Við fengum leyfi með þessum skýringum. Það sem menn hjá Almannavörnum vissu hins vegar ekki var að það er ekkert fé í Heimakletti yfir vetrartímann og við náðum þannig að

ljúga okkur til Eyja,“ segir Adólf og hlær. „Við náðum að bjarga verðmætum og koma þeim til Þorlákshafnar og svo fór ég skömmu síðar á minn gamla vinnustað í sama tilgangi og dvaldi þá í nokkra sólarhringa. Það var átakanlegt að vera í Eyjum á meðan gosið var í gangi. Það gengu yfir mann hraunslettur og það var ótrúlegt að sjá byggðina hreinlega hverfa. Ég átti hús skammt frá gossprungunni - það brann og hrundi. Ég fékk húsið þó bætt og gat því keypt mér nýtt húsnæði í Grindavík.“ Brá við harkalega skjálfta Adólf er 82 ára gamall í dag. Fljótlega eftir að hann og fjölskylda hans fluttust til Grindavíkur þá varð

nokkuð harkaleg jarðskjálftahrina. Adólf hélt hreinlega að annað gos væri að hefjast í Grindavík. „Um haustið eftir að við fluttum hingað þá gerði mikla jarðskjálftahrinu. Ég horfði út um gluggann og sá þá elda en þeir eldar voru á öskuhaugunum. Ég man að mér leið eins og ég væri í Eyjum. Við það brá mér illilega,“ segir Adólf sem kann vel við sig í Grindavík. „Mér líkar vel í Grindavík. Það vantar auðvitað eitt og annað en maður sækir það í Reykjanesbæ. Grindavík og Vestmannaeyjar eiga það sameiginlegt að vera nánast sama rokrassgatið. Ætli ég myndi þó ekki sakna roksins ef það kæmi ekki annað slagið.“ Viðtal: jón júlíus Karlsson mynd: Þorsteinn gunnarsson


17

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

Gunnar Sigfússon og Sigurbjörg Eiríksdóttir voru í Eyjum í gosinu

ELDGOS Í HEIMAEY 23. JANÚAR 1973

Ætluðu að kaupa sína fyrstu íbúð í Eyjum daginn fyrir gosið

G

unnar Sigfússon og Sigurbjörg Eiríksdóttir höfðu búið í Vestmannaeyjum í eitt ár þegar eldgosið hófst þar þann 23. janúar 1973. Daginn fyrir gosið áttu þau að skrifa undir kaupsamning að sinni fyrstu íbúð sem átti að verða í Eyjum en þar ætluðu þau að setjast að í a.m.k. fimm ár, enda næga vinnu að hafa í Vestmannaeyjum á þessum árum. Það var atvinnuleysi og húsnæðis- „Þegar við fórum út úr húsinu því lánið væri klárt þannig að ganga leysi sem rak hjónakornin til Vest- blasti við okkur sýn sem var mjög mætti frá fasteignakaupunum. mannaeyja árið 1972. Gunnar segir áhrifamikil. Við bjuggum í hornSiglt yfir rauðglóandi hraun að enga vinnu hafi verið að hafa í húsi og við húsið okkar var einnig hans fagi uppi á fastalandinu. Hann götustígur og þegar horft var Eins og Sigurbjörg lýsti hér að hafi því hringt og falast eftir vinnu upp með honum mátti sjá fjölda framan þá sá hún vel yfir gosið í Eyjum og fengið vinnu hjá Vél- fólks streyma niður göturnar með þegar hún horfði á það út um smiðjunni Þór, sem var aðallega barnavagna og annað. Gatan var gluggann í risinu á húsinu þar sem í að smíða fiskvinnslutæki fyrir alveg troðfull af fólki. Þetta var þau bjuggu. Eldveggurinn blasti Sigmund. Gunnar fékk íbúð með ekkert ósvipað því að horfa á ár- einnig við öllum á leið þeirra niður vinnunni að Vesturvegi 34 hjá gangagönguna á Ljósanótt,“ segir á höfn. Þau áttuðu sig einnig vel Hjálmari og Tótu á Enda. Þangað Sigurbjörg og Gunnar bætir því á umfangi gossins þegar siglt var fluttu því Gunnar og Sigurbjörg við að honum sé minnisstæð ein út úr höfninni. Gunnar var úti á með tvo unga syni sína á þessum kona í mannmergðinni sem var dekki þegar siglt var út og hann með lambalæri í hendinni og hafi virti fyrir sér gossprunguna eftir tíma. greinilega ekki viljað skilja þá góðu eyjunni og hvernig hún var út í sjó. Hann segist hafa horft ofan í sjóinn máltíð eftir heima. Fasteignasalinn komst og segir það ljóst að þarna á fyrstu ekki til Eyja tímunum hafi verið gos neðanFljótlega eftir að þau settust að í sjávar því báturinn hafi siglt yfir Vestmannaeyjum var farið að huga rauðglóandi hraun. að því að eignast eigið húsnæði, Þau lögðu af stað frá Eyjum kl. 04 því þau hafi séð fyrir sér að setjast um nóttina en klukkan var að verða að í Eyjum til fimm ára. Þau fundu ellefu að morgni þegar báturinn nýuppgerða kjallaraíbúð að Kanakom loks til Þorlákshafnar. Þar fóru stöðum við Vestmannabraut sem þau með „rútu“ til Reykjavíkur þar þau höfðu hug á að kaupa. Slæmt sem þau þurftu að skrá sig. „Þar veður í Eyjum daginn fyrir gos tóku leigubílar við og óku fólki kom hins vegar í veg fyrir að lögfrítt á áfangastað“. Það var líka maður frá fasteignasölunni kæmist eins gott, sagði Gunnar, því þau frá Reykjavík og til Eyja þannig að Vesturvegur 34, þar sem Gunnar og þau gætu keypt íbúðina. Gosið var Sigurbjörg bjuggu þegar gosið hófst voru peningalaus og allslaus því allt hafði verið skilið eftir í Eyjum. Þau því mikill örlagavaldur í lífi þeirra í Heimaey. Sigurbjörg fór upp í risið til að sjá yfir gosstöðvarnar. Sýn voru líka sannkallaðir flóttamenn á hjóna. Hefðu þau keypt fasteign í sem aldrei gleymist, segir hún í viðfastalandinu. Þau fengu þó inni hjá Eyjum og fest þar rætur má gera tali við Víkurfréttir. foreldrum Gunnars í Hafnarfirði og ráð fyrir að lífið og framtíðin hafi í Nýlendu á Stafnesi hjá foreldrum þróast á annan veg. Sigurbjörg vann á þessum tíma Gosið átti ekki að stoppa lánið Sigurbjargar. Þau bjuggu í nokkra hálfan daginn í Vinnslustöðinni. Fólk valdi sér báta þegar það kom daga í herbergi í Hafnarfirði þar til Daginn fyrir gosið var veðrið niður á höfn. Þau völdu sér stórt þau fengu inni í íbúð á Faxabraut í svo brjálað að það var ekki stætt og traust sjóskip að sjá, Lunda VE. Keflavík. Þau fengu að lokum inni í Eyjum. Drengirnir tveir voru í Báturinn reyndist hins vegar vélar- í svokölluðu Viðlagasjóðshúsi sem leikskóla og Sigurbjörg tók Gunnar vana og það tók talsverðan tíma byggð voru í Sandgerði og bjuggu með sér í leikskólann þennan dag að koma vélinni í gang. Um borð þar í tvö ár eða þar til þau höfðu að sækja drengina, því veðrið var í þessum báti var m.a. sparisjóðs- sjálf byggt sér þak yfir höfuðið. stjórinn sem hafði samþykkt að Viðlagasjóður byggði einnig hús í svo slæmt. Þau fóru að sofa á sínum venjulega veita þeim hjónum 200.000 króna Garði, Keflavík og Grindavík. tíma kvöldið fyrir gosið en voru svo lán fyrir útborgun í íbúðinni sem Bjargað úr húsum þar til vakin um nóttina af húsmóðurinni átti að kaupa daginn fyrir gos. hraunið hóf að flæða inn á hæðinni fyrir ofan með þeim tíð- Sparisjóðsstjórinn hafði nú ekki indum að það væri farið að gjósa. meiri áhyggjur af gosinu en svo Þremur dögum eftir að gosið hófst Sigurbjörg vaknaði strax við frétt- að hann sagði Sigurbjörgu bara að fór Gunnar aftur til Eyja til að taka irnar en Gunnar var nú ekki alveg koma á morgun með bónda sínum, þátt í verðmætabjörgun með því að meðtaka tíðindin og hélt að það væri bara eitthvað að brenna, því brunalúðurinn á slökkvistöðinni var í gangi. Sýn sem aldrei gleymist Það var líka komið allt annað veður í Eyjum þegar gosið hófst. Algjört logn. Sigurbjörg fór með gömlu konunni sem átti heima á efri hæðinni upp í ris og þar sáu þær eldvegginn austast á eyjunni. „Þetta er sýn sem maður á aldrei eftir að gleyma,“ segir Sigurbjörg. - Hvernig var upplifunin að vera í þessum aðstæðum þegar gosið er að byrja? „Ástandið var mjög einkennilegt. Það var ekki hræðsla í fólki en það var einhver doði yfir öllu,“ segir Gunnar. Gunnar fór á lögreglustöðina til að athuga með fyrirmæli um hvað ætti að gera. Þar var honum sagt að fylgjast með útvarpinu. Fljótlega var fólki tilkynnt að klæða sig vel og fara niður á höfn en skilja allar eigur sínar eftir. Þau klæddu því drengina og bjuggust til ferðar niður á höfn.

„Ástandið var mjög einkennilegt. Það var ekki hræðsla í fólki en það var einhver doði yfir öllu,“ segir Gunnar.

Nýlega flutt til Eyja og hér heldur Gunnar á yngri syni sínum, Eiríki. Sigurbjörg með myndavélina um hálsinn en hún var og er dugleg að taka ljósmyndir. Það var hins vegar enginn tími til að taka myndir gosnóttina örlagaríku, enda þurfti að koma tveimur drengjum á þriðja og fimmta aldursári niður á höfn og upp á fastalandið. Viðtal: Hilmar Bragi Bárðarson Ljósmyndir: Úr einkasafni

að aðstoða vini og kunningja við að bjarga innbúi úr húsum áður en þau fóru undir hraun. Hraunið rann hægt og því var unnið inni í húsunum alveg þangað til hraunið braut sér leið inn um glugga. Gunnar segir að heilu innréttingarnar hafi verið skrúfaðar niður og verðmætum var komið í geymslur á öruggum stað í bænum. Þá voru búslóðir einnig fluttar með skipum upp á land og þar hafi fólk verið í margar vikur að endurheimta sína muni, enda skorti oft á merkingar. Þá komst nú heldur ekki allt til lands, segir Gunnar. Eftir fyrsta björgunarleiðangurinn fór Gunnar aftur til lands með fiskiskipi sem hafði verið troðfyllt af búslóðum. Ofan þilja höfðu verið bundnar niður frystikistur og ísskápar. Skipið hreppti mjög vont veður á leiðinni til Þorlákshafnar og fékk á sig a.m.k. þrjá hnúta. Þegar til lands var komið voru öll heimilistækin horfin, höfðu skolast í sjóinn í einhverju brotinu. Íbúðin full af eiturgasi Gunnar komst í hann krappan þegar kom að því að bjarga innbúinu úr íbúðinni sem þau hjón höfðu til afnota í Eyjum. Þegar hann opnaði útidyr íbúðarinnar flæddi á móti honum eitrað gasský sem hafði hlaðist upp í íbúðinni. Eitrað gas tengt eldsumbrotunum var til vandræða um tíma í Eyjum. Það safnaðist fyrir í lægðum og kjallaraíbúðum. Gunnari varð á að anda að sér óloftinu og átti erfitt með að ná andanum. Honum tókst einnig ekki að loftræsta íbúðina nægilega áður en hann hóf að bjarga úr henni innbúinu. Hann varð því að draga andann úti og halda niðri í sér andanum innandyra á meðan hann bar allt út, hlut fyrir hlut. Það var því ekki hægt að gera eins og í dag, að pakka öllu í kassa og flytja á einu bretti. Þegar innbúið var komið út úr íbúðinni varð Gunnar svo að bera það á bakinu niður á höfn. Þrælavinna við að kæla hraunið Gunnar átti eftir að taka enn frekari þátt í björgunaraðgerðum því hann réð sig í vinnu við kælingu

á hrauninu og var við þau störf í tæpa tvo mánuði. Hann segir þá vinnu hafa verið þrældóm, enda gáfust aðeins 2-3 klukkutímar á sólarhring til að sofa en þess á milli var unnið baki brotnu við að dæla á hraunið. Gunnar vann við uppsetningu á vélum fyrir dælinguna og einnig að því að byggja undir lagnir sem dældu sjó á hraunið. Fjölmargir skósólar hafi bráðnað við þessa vinnu, því oft var staðið á þunnri hraunskorpu og í myrkrinu hafi mátt sjá allt rauðglóandi undir fótunum. Gunnar segir hitann oft hafa verið mikinn. Þannig var notast við jarðýtu sem ruddi leiðir fyrir vatnslagnir út í nýtt hraunið. Belti og tönn jarðýtunnar hafi oft verið orðin glóandi vegna hitans. Í fyrstu höfðu menn litla trú á þessari aðferð en svo kom að menn sáu árangur af kælingunni. Gunnar segir þessa tvo mánuði sem hann vann við kælinguna hafa verið mikinn þrældóm enda hafi hann tapað 10 kílóum á þessum vikum. „Þegar ég kom heim var ég orðinn grindhoraður. Ég man eftir mynd sem tekin var af okkur hjónum þegar við fórum á dansleik eftir að ég kom heim. Það er ekki sjón að sjá mig á þeirri mynd og ég passa engan veginn í jakkafötin,“ segir Gunnar og hlær. Þau Gunnar og Sigurbjörg hugsuðu aldrei um það að flytja aftur til Eyja eftir gos. Þau ákváðu að festa rætur í Sandgerði „á heimaslóðum Sigurbjargar“. Þeim fannst þau vera nokkuð innilokuð í Eyjum og samgöngur ótraustar. Þó vilja þau taka fram að þeim hafi liðið vel í Eyjum og þær eigi alltaf sérstakan sess hjá þeim. En stórfjölskyldan bjó jú á fastalandinu. Örlögin voru þau að vont veður kom í veg fyrir það að þau keyptu íbúðina daginn fyrir gosið. Þau segja þó erfitt að átta sig á hvað hefði gerst hafi þau keypt íbúðina. Vegna gossins þá voru þau ekki bundin af kauptilboðinu. Þegar Eyjamenn fóru aftur að streyma út í eyjuna þegar ljóst var að hún yrði byggð að nýju, þá seldist íbúðin á uppsprengdu verði, því það var sannarlega skortur á íbúðarhúsnæði þegar svo margar eignir voru komnar undir hraun og ösku.


18

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

An

na

Hamingjuhornið

Þetta snýst um að velja! Ég var að verða of sein, við ætluðum að hittast í hádeginu og klukkan orðin rúmlega 12.00. Hún þoldi ekki þegar ég var of sein – hún var ALDREI sein því hún var með ALLT á hreinu. Ég þurfti að undirbúa mig andlega, ekki búin að hitta hana lengi en vissi að næsta klukkutímann yrði talað við mig eins og ég væri 12 ára, eftir að taka út kynþroskann og endajaxlana. Við kysstumst á franska vísu, kinn við kinn: alltaf aðeins of sein elskan, sumt breytist aldrei – um leið og hún kleip í aðra kinnina! En nóg um það, HVAÐ segirðu gott, hvernig gengur og ertu ekki alltaf þarna hjá MMS? Ég brosti, það heitir MSS, og jú jú passar, ég......... Ég komst ekki lengra, hún var komin í gírinn: svo gott hjá þér ANNA LÓA að vera alltaf að kenna og svona, ÓLAFSDÓTTIR svo mikið þú eitthvað. Úff, þú SKRIFAR mundir ekki trúa álaginu á mér. Endalausir fundir, ráðstefnur, utanlandsferðir og svo að aðstoða strákana mína sem eru á fullu í háskólanámi, heimsækja mömmu, smá pólitík og svo skólinn um helgar. Svo er ég í átaki, sérðu ekki mun á mér?? Nú ég hefði svo sem ekki átt að taka að mér formennsku í Karríerkonum, en fyrst ég gerði það þá gerir maður það vel. Það eru fundir, kokteilkvöld, óvissuferðir og Guð má vita hvað. Var alveg að spá í að bjóða þér en vissi alveg að þetta væri ekki fyrir þig........æ þú ert samt svo mikið krútt eitthvað. En HVAÐ er að frétta af strákunum? Jú veistu, allt gott að frétta af þeim, sá yngri býr ennþá heima, hinn .........

Ababbabb ekki grípa frammí elskan, manstu, tvö eyru, einn munnur! Já hvar var ég...við fórum á kaffihús og þá kom nú sannleikurinn í ljós. Já býr hann ENN heima, þú verður nú að passa að sitja ekki uppi með hann elskan. Börn líma sig á foreldrana í dag – flytja ekki út fyrr en foreldrarnir selja og fara á elliheimili – svo ítalskt eitthvað. Vissulega eru strákarnir mínir heima en þeir eru í svo krefjandi námi og gera svooo miklar kröfur til sín. Þessar elskur, væri ekki hissa þó þeir ættu eftir að skrá nöfn sín á spjöld sögunnar. Nei elskan mín, ég mundi nú bara fara að henda junior út, muna, sleppa, sleppa, sleppa!! En nóg um börnin, ertu enn að hitta þennan mann..... segðu mér allt um hann! Jú jú við erum að hittast, yndislegur alveg hreint, vinnur við................... Oh hvað það er gaman að heyra þetta – átt það svo skilið. En manstu, þetta snýst um að velja en ekki að að vera valin. Ég hef aðeins verið að deita og þú veist nú hvað ég get verið kröfuhörð – maður sættir sig ekki við hvað sem er. Hitti einmitt mann um daginn þegar ég var úti með kampa-

Ló a

vínssystrum og sendi honum vinabeiðni og þegar hann var búinn að samþykkja þá bauð ég honum í kaffi. Já er það, en frábært hjá þér, þetta .............. Ababbabb ekki grípa frammí elskan, manstu, tvö eyru, einn munnur! Já hvar var ég...við fórum á kaffihús og þá kom nú sannleikurinn í ljós. Hann pantaði kaffi handa okkur en spurði ekkert hvað ég vildi – ég hefði að sjálfsögðu fengið mér latte en drakk bleksvart espresso. Talaði stanslaust um sjálfan sig á milli þess sem hann var á netinu í símanum að tékka á ,,mikilvægum“ pósti sem hann átti von á – right! Horfði á allar konur sem löbbuðu framhjá okkur en aldrei í augun á mér og spurði ekkert um mitt líf. Hann var alltaf að tékka hvað tímanum leið og satt best að segja þá var ég orðin frekar pirruð þarna í lokin. HAHA, ég gat ekki hamið mig, í alvöru, ja hérna, þú verður nú að vanda valið betur! Hum, en af því að þú hefur aðeins meiri reynslu en ég – no offence sko – þetta var á sunnudaginn og nú er kominn miðvikudagur og hann hefur ekkert hringt. Heldurðu að hann hafi engan áhuga??? Er mest hrædd um að hann hafi fundið að ég var orðin pirruð þarna um kvöldið. Finnst þér að ég eigi að hringja í hann!!! Ok kannski var hún ekki með ALLT á hreinu. Þangað til næst - gangi þér vel! Anna Lóa Fylgstu með mér - http://www. facebook.com/Hamingjuhornid

MDMA, kannabis og sterar fundust við húsleit

M

DMA – fíkniefni, kannabisefni, sterar, sprautur og lyf fundust við húsleit sem lögreglan á Suðurnesjum gerði í íbúðarhúsnæði í umdæminu. Farið var í húsleitina á föstudagskvöld, að fengnum dómsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness. Efnin fundust víðs vegar í íbúðinni. Að auki fannst óopnaður 25 lítra Tuborg Grön bjórkútur. Grunur leikur á að um þýfi sé að ræða og haldlagði lögregla kútinn því ásamt efnunum. Málið er í rannsókn.

Þvottavél og verkfærum stolið

T

vö þjófnaðarmál voru nýverið tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum. Fyrri tilkynningin var þess efnis að farið hefði verið inn í geymsluhúsnæði í umdæminu og þaðan stolið þvottavél og brettatjakki. Þá var tilkynnt að verkfærum hefði verið stolið frá iðnaðarmönnum sem voru að gera upp húsnæði. Þeir söknuðu meðal annars slípirokks, hleðsluborvélar og stigsagar.

PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í SUÐURKJÖRDÆMI LAUGARDAGINN 26. JANÚAR 2013 HVAR OG HVENÆR Á AÐ KJÓSA? Reykjanesbær kl. 10:00 - 18:00 Nesvöllum, Njarðarvöllum 4 Grindavík kl. 10:00 - 18:00 Verkalýðshúsinu, Víkurbraut 46 Garður kl. 10:00 - 18:00 Samkomuhúsinu Sandgerði kl. 10:00 - 18:00 Samkomuhúsinu

HVERJIR MEGA TAKA ÞÁTT Í PRÓFKJÖRINU? • Öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í kjördæminu sem þar eru búsettir. Allir 15 ára og eldri geta skráð sig í flokkinn fyrir kjördag og þá kosið á kjördag. • Þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarétt í kjördæminu við kosningarnar og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í kjördæminu fyrir lok kjörfundar og teljast þar með komnir á kjörskrá. Þeir sem skrá sig í flokkinn á kjördag verða að vera orðnir 18 ára þann 27. apríl nk. þegar alþingiskosningar fara fram.

Nánari upplýsingar – www.xd.is Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi


19

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

Liðsstyrkur er nýtt átak til að berjast gegn atvinnuleysi og auka verðmætasköpun um leið.

málari, hárgreiðsla, danska, matreiðsla, fiskverkun, enska, pólska, smiður, hjúkrun, símvirki, sjúkraliði, umbrot, bílasali, textagerð, serbneska, ungverska, spænska, Baader-vinnsla, arabíska, kantónska, verk tölvuviðgerðir, norska, færeyska, grafískur hönnuður, vélvirki, þýska, finnska, franska, japanska, tæknifræði, lögreglumaður, tékkneska, ítalska, mandarín, iðjuþjálf, tamningar, hindí, sænska, kennari, tryggingasali, lettneska, rússneska, tælenska, svahílí, esperanto, portúgalska, gríska, snyrtifræði, hótelstjórnun

Nýtum tækifærið! Verðum að liði, vinnum gegn atvinnuleysi. Skráning og nánari upplýsingar á www.lidsstyrkur.is

Atvinnurekendur sem grípa tækifærið strax og ráða í ný störf úr hópi þeirra sem lengst hafa leitað að vinnu, fá 186.418 kr. mánaðarlegt mótframlag fyrstu sex mánuðina. Þessi fjárhæð nemur grunnfjárhæð atvinnuleysisbóta að viðbættu 8% framlagi í lífeyrissjóð - en fer lækkandi eftir því sem líður á árið.


20

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

FS-INGUR VIKUNNAR

Borðar hádegismat í morgunmat

I

ngi Þór Hallgrímsson er 20 ára gamall FS-ingur. Hann tekur það skýrt fram að hann sé ekki úr Grindavík en annars er það ekki alveg á hreinu hvaðan hann kemur. Ferðag r ú pp a n Hj á l m a r skipar stóran sess hjá Inga en auk þess hefur hann áhuga á tölvum, fótbolta, djammi og vinum. Liverpool stuðningsmenn fá Inga til að hlæja og ef hann væri skólastjóri myndi hann umsvifalaust breyta einkunnum sínum. Af hverju valdir þú FS?

Frétti að FS byði upp á bestu kleinurnar.

Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?

Mjög gott og tek mjög virkan þátt í því. Áhugamál?

Vinir, fótbolti, tölvur, djamm og að grínast með Ferðagrúppunni Hjálmari sem við vinirnir stofnuðum.

Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?

Vinna með tölvur og sjá Manchester United vinna deildina. Á hvaða braut ertu?

Rennibraut (tölvufræðibraut). Ertu að vinna með skóla?

Já með æðislegu starfsfólki og krökkum á sambýlinu Heiðarholti í Garðinum. Hver er best klæddur í FS?

Það var Magnús „Martröðin“ Magnússon en hann er útskrifaður, en Viktor Smári fyllir vel í fótspor hans. Hvað er skemmtilegast við skólann?

Nemendafélagið.

Hvar hangirðu í eyðum og frímínútum?

Niðri í matsal eða NFS skrifstofu eða fer heim ef það er löng eyða. Stundarðu íþróttir eða ert í öðrum tómstundum?

Neibb!

Hvað borðar þú í morgunmat?

Hádegismat.

Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur?

Sambýlingur minn Sigurbergur „tvöfaldur maður umferðarinnar í sumar“ Elísson og Frans „setti tvö á móti Grindavík“ Elvarsson fyrir fótboltann, einnig Róbert „Magic Mike“ Tobíason sem á eftir verða frægt módel og í kjölfar þess kynþokkafyllsti maður heims. Hvað fær þig til að hlæja?

Liverpool stuðningsmenn og Pálmar.

Hvað er heitasta parið í skólanum?

Stebbi og Ósk.

Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS?

Einkunnunum mínum. Eftirlætis: EFTIRLÆTIS... Sjónvarpsþættir

Breaking Bad, LOST, Dexter, One Tree Hill, Community, Suits, Workaholics... allt of margir! Vefsíður

Facebook, Facebook og Facebook Flík

Converse skór og appelsínuguli Weezo gallinn minn Skyndibiti

Panda og Subway Kennari

Hildur Skúladóttir og Ellert Smári tölvufræðikennarar, Gunnar Valdimarsson, Torfi Gísla og Daníel Galvez Fag

Tölvufög og ekki stærfræði Tónlistin

Mikið af íslenskri tónlist upp á síðkastið eins og Moses Hightower og Valdimar Hvað tónlist fílarðu í laumi (guilty pleasure)?

Bieber-inn er ekki alslæmur!

Leik-, söng- og kvikmyndalist á List án landamæra á Suðurnesjum S

uðurnesin taka nú þátt í Listahátíðinni List án landamæra í fimmta sinn en hátíðin hefst á sumardaginn fyrsta, 25.apríl. List án landamæra er hátíð fjölbreytileikans þar sem horft er á tækifæri í stað takmarkana. Hún hefur það m.a. að markmiði að koma list fólks með fötlun á framfæri og koma á samstarfi á milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Á hátíðunum fram til þessa hefur verið sett upp sviðsverk í Frumleikhúsinu, með tónlist, leik og söng. Árið í ár verður engin undantekning frá því enda um einstaklega skemmtilegan viðburð að ræða. Markmið þessa árs er að fá fleiri að verkefninu úr ólíkum áttum, ekki síður fólk úr hópi ófatlaðra, það eru í raun engar takmarkanir. Ef þú hefur áhuga á leikhúsi

með öllu því sem fylgir svo sem leiklist, sönglist, tónlist, kvikmyndagerð, leikmyndagerð, förðun eða búningum sláðu þá til og vertu með. Ef þú hefur áhuga á að starfa með fjölbreyttum hópi fólks að

n TRYGGVI ÓLAFSSON // UNG

einhverju alveg nýju sem þú hefur ekki reynt áður, komdu þá með. Með leikstjórn fara þau Bylgja Dís Gunnarsdóttir og Henning Emil Magnússon sem stýrðu verkefninu með glæsibrag í fyrra. Æfingar hefjast í byrjun febrúar og skráning og nánari upplýsingar eru hjá Jennýju Magnúsdóttur á netfanginu jenny@mss.is eða í síma 848-3995. Sýnileiki ólíkra einstaklinga er mikilvægur, bæði í samfélaginu og í samfélagsumræðunni og hefur bein áhrif á jafnrétti á öllum sviðum. Það er því ánægjulegt að sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum hafa hlotið styrk frá Menningarsjóði Suðurnesja til verkefnisins en auk þeirra stendur Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum að því.

Umsjón: Páll orri pálsson • pop@vf.is

Sé spaugilegu hliðarnar á öllu T

ryggvi Ólafsson er nemandi í 10. UG í Myllubakkaskóla. Áhugamál hans eru körfubolti, ræktin og tölvuleikir. Hann væri til í að hitta Michael Jordan, geta flogið eða hoppað endalaust hátt. Hvað gerirðu eftir skóla? Fer beint í tölvuna. Hver eru áhugamál þín? Körfubolti, ræktin og tölvuleikir. Uppáhalds fag í skólanum? Íþróttir, klárlega. En leiðinlegasta? Líffræði er leiðinlegasta fagið. Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það? Það væri Michael Jordan. Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann? Að geta flogið eða

hoppað endalaust hátt. Hvað er draumastarfið í framtíðinni? Bara eitthvað vel borgað. Hver er frægastur í símanum þínum? Söngvarinn, leikarinn og kvennabósinn Árni Vigfús Karlsson.

Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt? Egill Einarsson! Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag? Fara á nammibarinn í Ungó. Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum? Mjög einfaldur. Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu? Ég sé spaugilegu hliðina á öllu. Hvað er skemmtilegast við Myllubakkaskóla? Starfsfólkið er yndislegt. Hvaða lag myndi lýsa þér best? Always look on the bright side of life.

n TARA RÓS WARD // UNG

ara Rós Ward er nemandi í 10. ÞG Myllubakkaskóla. Hún er opin manneskja og væri til í að geta lesið hugsanir. Hvað gerirðu eftir skóla? Hitti vini og fer á fitness box æfingu. Hver eru áhugamál þín? Fitness box, söngur og leiklist. Uppáhalds fag í skólanum? Lífsleikni er svona það skemmtilegasta. En leiðinlegasta? Eðlisfræði og íslenska. Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það? Ed Sheeran, klárlega. Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann? Að geta lesið hugsanir.

Hvað er draumastarfið í framtíðinni? Er ekki búin að hugsa svo langt. Hver er frægastur í símanum þínum? Mamma og pabbi.

Besta: Bíómynd?

Shawshank redemption er besta bíómyndin. Sjónvarpsþáttur? How I met your mother. Tónlistarmaður/Hljómsveit? Bítlarnir, Queen, Michael Jackson og Guns N' Roses Matur? Humar er besti maturinn. Drykkur? Dr. Pepper. Leikari/Leikkona? Jim Carrey er uppáhalds leikari. Lið í Ensku? Man Utd er mitt lið í ensku. Lið í NBA? Verð að segja Lakers, þótt þér séu að drulla á sig. Vefsíða? NBA.com

Umsjón: Páll orri pálsson • pop@vf.is

Hitti Beyonce og Jay Z

T

Instagram: #vikurfrettir

Instagram: #vikurfrettir

Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt? Beyonce og Jay Z. Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag? Ég myndi nýta mér það til að hoppa inn á kennarastofu og skoða próf sem væru væntanleg, og fara svo að bulla í fólki. Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum? Bara venjulegur. Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu? Opin manneskja. Hvaða lag myndi lýsa þér best? Bomba - King Africa. Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best? One Tree Hill myndi lýsa mér best.

Besta: Bíómynd?

Remember me. Sjónvarpsþáttur? Two And a Half Men er uppáhalds sjónvarpsþáttur. Tónlistarmaður/Hljómsveit? The Script og Bon Iver. Matur? Sushi er besti matur. Drykkur? Hreinn appelsínusafi. Leikari/Leikkona? Channing Tatum. Fatabúð? H&M og Gina Tricot. Vefsíða? Facebook og Youtube.


21

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

Instagram

Prófkjör sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi

26. janúar 2013

VF

VELJUM KJARTAN

TIL FORYSTU Velkomin í kosningamiðstöð Kjartans í Tryggvaskála, Selfossi.

- Stuðningsmenn

Hlýrabolur og axlabönd Davíð Örn Óskarsson er sigurvegari í Instagram leik VF að þessu sinni. Hann tók ákaflega skemmtilega mynd af billiardkappa í Virkjun á Ásbrú. Davíð sá strax að hann hefði náð að fanga gott augnablik og ætlar hann líklega að gefa módelinu sínu aðgöngumiða í Bláa lónið. Þeir miðar eru hluti af veglegum verðlaunum í leiknum en einnig eru bíómiðar og pizzur í boði frá Sambíóunum og Langbest. Þú þarft einungis að merkja myndina þína með hashtaginu #vikurfrettir.

Lög unga fólksins L

augardaginn 26. janúar verður sýningin Lög unga fólksins opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar, Duushúsum. Á henni er að finna ný verk, málverk, skúlptúra og innsetningar, eftir sex unga myndlistarmenn, Davíð Örn Halldórsson, Guðmund Thoroddsen, Jóhönnu Kristbjörgu Sigurðardóttur, Mörtu Maríu Jónsdóttur, Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur og Ragnar Jónasson. Öll eru þau fædd á árunum 1974 til 1982 og eiga að baki bæði einkasýningar og samsýningar heima og erlendis. Tveir þeirra, Jóhanna Kristbjörg og Ragnar, eru búsettir erlendis. Heiti sýningarinnar er tvírætt, vísar bæði til áhuga listamannanna á dægurtónlist og dægurmenningu almennt og hins „lagskipta málverks“, bæði í tæknilegu og menningarlegu tilliti, enda eru verk þeirra samsett úr mörgum lögum nútíma sjónmenningar. Þetta eru

verk máluð á striga, tréplötur, viðarbúta og aðskotahluti, höggin í rótarhnyðjur, hlaðin úr keramíkvösum, að ógleymdum verkum eftir Davíð Örn og Ingunni Fjólu, sem gerð eru sérstaklega fyrir sýningarrýmið. Sýningarstjórar eru Aðalsteinn Ingólfsson og Sigrún Sandra Ólafsdóttir, sem til skamms tíma rak Gallerí Ágúst. Í formála segir Aðalsteinn m.a.: „Með örfáum undantekningum eru listamennirnir ekki uppteknir af því að fá beina útrás fyrir sterkar tilfinningar, villt ímyndunarafl og húmor, heldur leita þeir leiða til að koma á framfæri því sem þeim liggur á hjarta með hlutlægari hætti en áður, ekki síst með því að sölsa undir sig ýmis viðmið eldri málaralistar“. Sýningin Lög unga fólksins verður opnuð þann 26. janúar kl. 15.00 og stendur til 10. mars. Hún er opin alla virka daga frá kl. 12.00-17.00 og um helgar frá kl. 13.00-17.00. Ókeypis aðgangur.

Unni Brá í 2. sæti Unnur Brá í 2 sæti!

1.

2.

Í

öðri sæti var þessi flotta mynd frá Vatnaveröld. Þriðja sætið hlýtur þessi indæla mynd úr Höfnunum. Við viljum benda fólki á það að skrifa texta með myndum sínum því

það hjálpar okkur við að sjá hvaðan þær koma og hverjir eru á þeim. Eins má merkja nafn þess er tók myndina. Verðlaunin eru ekki af verri

Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi laugardaginn 26. janúar

endanum en fyrir sigurmyndina fær sigurvegarinn aðgang fyrir fjóra í Bláa lónið, bíómiða fyrir fjóra í Sambíóin Keflavík og Pizzuveislu fyrir fjóra

Þingmaðurinn Unnur Brá Konráðsdóttir hefur sýnt það með störfum sínum að hún stendur fast á sínu. Krafmikið fólk kemur málunum áfram.

á Langbest. Við leitumst töluvert eftir því að í myndunum sé líf og starf á Suðurnesjum haft að leiðarljósi og ekki sakar að þær séu örlítið broslegar og frumlegar.

Kjósum Unni Brá áfram inn á þing!

Stuðningsmenn

3.


22

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

vf@ vf.

PÓSTKASSINN

is

Ásmund Friðriksson í 3. sæti Íbúar Suðurkjördæmis, nú er prófkjör okkar sjálfstæðismanna um næstu helgi og gefur það okkur kost á að velja milli margra góðra frambjóðenda. Einn af þeim er Ásmundur Friðriksson fyrrverandi bæjarstjóri í Garði. Hér er á ferðinni kraftmikill einstaklingur og við sem höfum unnið með honum vitum hve duglegur og vinnusamur hann er. Hann er mjög fylginn sér og klárar þau verk sem hann tekur sér fyrir hendur. Ásmundur hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, þekkir vel til málefna

sveitarfélaga eftir að hafa verið bæjarstjóri í Garði í rúm 3 ár auk þess að hafa mikla reynslu af félagsmálum í breiðum skilningi þess orðs. Nú eru framundan átök um framtíð Íslands og hvaða stefnu skuli taka. Baráttan fyrir bættum hag fólksins mun verða enn háværari og mikilvægi þess að létta skuldabagga heimilanna mun verða baráttumál á komandi misserum. Í þeirri baráttu er mikilvægt að rödd almennings hljómi hátt og með því að velja Ásmund í öruggt þingsæti erum við sannfærð um að

hagsmunir fólksins munu hafa forgang enda er Ásmundur í góðu sambandi við fólk, fólkið sem hefur þurft að færa miklar fórnir á síðustu árum. Við hvetjum ykkur því að velja Ásmund Friðriksson í 3. sæti í prófkjörinu 26. janúar nk. Einar Jón Pálsson, Brynja Kristjánsdóttir, Gísli Heiðarsson, Einar Tryggvason, bæjarfulltrúar Garði

n magnús b. jóhannesson skrifar:

n Reynir þorsteinsson skrifar:

Hvernig afnemum við verðtrygginguna?

Fyrst og fremst landsbyggðarmaður

Í s í ð u s tu v i ku skrifaði ég grein um það óréttlæti sem felst í verðtryggingunni og nauðsyn þess að afnema hana strax. Greinina er hægt að finna á www. magnusj.is. Í kjölfar greinarinnar hef ég verið spurður hvernig hægt sé að afnema verðtrygginguna. Þó erfitt sé að gera þessu flókna máli góð skil í stuttri grein langar mig að tæpa á helstu atriðunum. Verðtryggingin var sett á með lögum og verður því að vera afnumin með lögum. Að því loknu verður að skilmálabreyta verðtryggðum lánum, þ.e. breyta þeim úr verðtryggðum í óverðtryggð lán. Fram hefur komið að meirihluti verðtryggðra lána landsmanna er í eigu Íbúðalánasjóðs. Miðað við rekstur sjóðsins undanfarin ár þá er ljóst að staða hans er grafalvarleg. Ríkissjóður hefur þurft undanfarin ár

að dæla inn í hann um 46 milljörðum króna vegna lélegrar stöðu. Þetta hefur ekki dugað til og nú er rætt um að bæta þurfi allt að 50 milljörðum við. Enn sér ekki fyrir endann á málinu því talið er að sjóðurinn þurfi allt að 200 milljörðum til að leysa neikvæða eignastöðu hans. Allt bendir því til þess að sjóðurinn sé gjaldþrota og kerfið hrunið. Í fjárfestingum fyrirtækja gildir sú regla að fjárfestar henda ekki góðum peningum á eftir glötuðum. Fjárfestar gera þá kröfu að nýtt fjármagn sé notað til að ná árangri. Ekki er óeðlilegt að gera sömu kröfu þegar kemur að fjármunum hins opinbera. Í neikvæðri stöðu Íbúðalánasjóðs felst því kjörið tækifæri til að endurskoða og leiðrétta það óréttlæti sem felst í verðtryggingunni og koma heimilum landsins til aðstoðar. Þegar kemur að verðtryggðum lánum heimilanna þá lítur út fyrir að við stöndum frammi fyrir tveimur valkostum, annars vegar að halda áfram á sömu braut og reyna að bjarga núverandi kerfi með kostnaðarsömum

smáskammtalækningum sem leiðrétta ekki óréttlætið né nýtast til að leysa skuldavanda heimilanna. Hins vegar að viðurkenna að kerfinu sé ekki bjargandi og nota tækifærið og færa okkur í óverðtryggt og réttlátt kerfi sem tekur á þeim vanda sem við heimilunum blasir. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir er því þessi, er réttlætanlegt að eyða tugum eða hundruðum milljarða af skattpeningum ríkissjóðs í að viðhalda núverandi verðtryggt kerfi án þess að leysa vanda heimilanna? Verður ekki að gera þá kröfu að ef fjárfesta á frekar í fasteignalánakerfi landsmanna með fjárframlögum úr ríkissjóði þá séu þeir fjármunir nýttir til að leysa skuldavanda heimilanna og leiðrétta óréttlætið sem í verðtryggingunni felst. Magnús B. Jóhannesson www.magnusj.is Höfundur er rekstrarhagfræðingur og gefur kost á sér í 3. sæti prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi 26. janúar næstkomandi.

Baráttumál Halldórs Gunnarssonar Verðrtryggð húsnæðislán Þau eru að hrifsa heimilin af einstaklingum, þannig að talið er í dag, að um 60% heimila séu í raun eignir fjármálastofnana. Fram hefur komið að neikvæð staða þeirra, sem eru á aldrinum 22-42 ára sé mínus 82 milljarðar króna. Verðtryggðu húsnæðislánin hafa hækkað um 450 milljarða frá hruni og 5000 heimili geta ekki greitt húsnæðislán sín. Hrikaleg mismunun milli þeirra sem höfðu efni á að taka gengislán er niðurstaða hæstaréttar, um 34% lækkun skuldar og um 2% vextir án verðtryggingar. Fimm þúsund heimili eru í vanskilum hjá Íbúðalánasjóði að upphæð frá hruni um sjö og hálfur milljarður. Lögvarin framkvæmd fjármálastofnana er ekki spurning um að greiða lán sem var tekið, heldur að mínu mati ólögmæt eignaupptaka á heimilum og eignum. Þetta verður að leiðrétta með þjóðarsátt, þar sem allir stjórnmálaflokkar og fjármálastofnanir eiga að koma að. Eða þurfum við að bíða í mörg ár dóma hér og erlendis eftir niðurstöðu? Gjaldeyrishöft og vogunarsjóðir Þau verður að afnema með því að leggja á 30-40% „eftirleguskatt“ (withholding tax) á eignir gömlu bankanna erlendis, um 1.800 milljarða og um 800 milljarða eign gömlu bankanna / vogunarsjóða innanlands, sem ásamt jöklabréfum með annarri peningainneign nemur líklega um 1.500 milljörðum. Þessi upphæð er lokuð inni með gjaldeyrishöftum. Sú innilokun er þó ekki algjör, því heimilaðar eru útgreiðslur vaxta í gjaldeyri og ekki gleymist leyfi Seðlabankans á útgreiðslu Lýsingar í gjaldeyri. Þessar greiðslur stuðla að lækkun krónunnar og aukinni verðbólgu. Með 30-40% skatti á allar þessar ógnarupphæðir gætum

við lagt grunn að afnámi gjaldeyrishafta, leiðréttingu á stökkbreyttum verðtryggðum lánum og komið öllu af stað á ný. Alþjóðasamfélagið hefur enga samúð með vogunarsjóðum, sem hafa keypt eignir og skuldabréf okkar á brot úr verði í von um margfaldan hagnað. Gengi krónunnar og vísitalan Setja ber reglur um að gengi krónunnar myndist í viðskiptum með andvirði inn- og útflutnings, án fjármagnsflutninga, sem skekkja ævinlega gengið og valda sveiflum í vísitölunni. Útreiknuð neysluvísitala á grundvelli verðlagsbreytinga vöru og þjónustu er ekki það sama og neysla heimilanna á sama tíma, því við hækkun verðlags minnkar neyslan. Sýnt hefur verið fram á, að munur á þessum vísitölum, þ.e.a.s. verðlagsvísitölu og neysluvísitölu sé frá ársbyrjun 2012 um 412 milljarðar. Sjávarútvegur og veiðigjaldið Veiðigjaldið, sem lagt hefur verið á hefur ekkert með afkomu hvers fyrirtækis að gera og að óbreyttu mun það leggja nær allar minni útgerðir niður og fiskveiðar sem vinna aflann úti á sjó. Þessu verður að breyta. Vegna takmarkaðs aðgangs sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar að sjávarfangi, þarf að ná sátt um veiðar, úrvinnslu og skattlagningu. Það mætti reyna með aukinni aðkomu sjómanna og útgerðarmanna að rannsóknum og tillögum til sjórnvalda um veiðar og sókn. Afnema veiðigjaldið, en í stað þess hækka grunngjaldið og leggja á hækkaða skattprósentu, sem tæki þannig mið af raunverulegum hagnaði en ekki reiknuðum úr heildarpotti veiða og úrvinnslu. Halldór Gunnarsson, bóndi og fyrrverandi sóknarprestur í Holti, sem óskar eftir stuðningi í 1.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 26. janúar.

Suðurnesjamenn viku! ri er v h í ir tt ré rf u ík V sa jó k

Efnahagsmál Allt of fáir draga vagninn hér á landi og er svo komið að innan við 40% íbúa standa undir nettósamneyslunni. Ég efast um að við getum, án frekari skattahækkana, lengur staðið undir því velferðarkerfi sem okkur er orðið tamt og hugnast að viðhalda. Það er því mín skoðun að við eigum að leggja niður myntina í þeirri mynd sem hún er og eingöngu styðjast við rafrænan gjaldmiðil. Nú þegar eru um 70% allra viðskipta í landinu rafræn og kerfinu sem slíku engin vanbúnaður á að taka við því sem út af stendur. Þetta mun stækka skattstofninn, sennilega sem mismuninum þar á nemur. Fjármál heimila Ekki verður hjá öðru komist en fjalla um þá erfiðu stöðu sem mörg heimili eru í og móta stefnu í þeim efnum. Stefnu sem hægt er að standa við og kemur ekki aftur í bakið á fólki í gegnum skattakerfið. Þetta er það mál sem brennur hvað mest á almenningi í dag. Það verður að koma til móts við þá fjölmörgu sem tóku innlend lán til fasteignakaupa og sitja nú uppi með mikla hækkun þeirra og víða í Suðurkjördæmi enn meiri lækkun á fasteignaverði. Það er í raun algjör hneisa að nú, fjórum árum eftir hrun, skuli enn ekki vera búið að móta heildstæða stefnu í þessum málum. Því er það mikilvægt að Sjálfstæðisflokkurinn móti ábyrga stefnu í þeim efnum, stefnu sem hægt er að standa við og framkvæma, án þess að hækka skatta enn frekar til að fjármagna hugsanlega lausn í þeim efnum. Byggðamál Það dylst varla nokkrum manni að byggðamál á Íslandi eru komin í ógöngur. Víða fækkar fólki og er þörfin brýnni en nokkru sinni að móta heildstæða byggðastefnu. Byggðastefnu sem hægt er að byggja á til framtíðar. Skilgreina þarf landið út frá þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir fólk að nýta sameiginlega þjónustu. Fjölbreyttara atvinnulíf er það sem til þarf svo byggð megi þrífast á jaðarbyggðum. Ekki á að hika við að færa ýmis verkefni og fjarþjónustu út á land, verði því við komið. Ganga þarf frá Landeyjarhöfn í eitt skipti fyrir öll, svo hún nýtist þeim sem erindi eiga allan ársins hring. Sjávarútvegsmál Framkomið og samþykkt lagafrumvarp um veiðileyfagjald er síðasti naglinn í líkkistu landsbyggðarinnar. Sem betur fer hefur útgerðum víða um land tekist að lifa af miklar hræringar í sjávarútvegi og endalausan niðurskurð aflaheimilda, allar götur síðan 1984. Þær útgerðir sem enn tóra eru nú hryggjarstykkið í bæjarfélögunum. Ef fer sem horfir þá mun

mörgum þessara útgerða blæða út og þær annað hvort verða sameinaðar eða seldar annað, nú eða þær hreinlega fara í þrot. Með öllum tiltækum ráðum virðist reynt að koma þeirri framlegð sem þessi fyrirtæki skapa á suðvesturhorn landsins þar sem hún nýtist einkum þeim er þar búa fyrir. Þessari öfugþróun verður að vinda ofan af, enda álagt auka veiðileyfagjald mikil blóðtaka fyrir landsbyggðina og ekki síst Suðurkjördæmi. Atvinnumál almennt Koma þarf hjólum atvinnulífsins af stað aftur, sér í lagi hér í Suðurkjördæmi. Má þar nefna álversframkvæmdir í Helguvík, flutning Landhelgisgæslunnar og innanlandsflugið á Suðurnes, bættar samgöngur og endurskoðun álagðs virðisaukaskatts á ferðaþjónustu. Undir þennan lið heyrir náttúrulega það sem hér að framan er sagt um sjávarútvegsmál. Eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar er að koma hjólum atvinnulífsins af stað aftur og þar með renna styrkari stoðum undir efnahag fólks og möguleika þess til mannsæmandi framfærslu. Öryggismál Ég held að fullyrða megi að flestir eru búnir að fá nóg af umfjöllun um erlendar og innlendar glæpaklíkur sem vaða uppi og virðast eiga allan rétt á kostnað fórnarlambanna. Við svo verður ekki búið lengur og tel ég brýna þörf á að styrkja innviði löggæslunnar og efla hana til muna með t.d. forvirkum rannsóknarheimildum og fjölgun lögreglumanna. Að lokum: Ég hef nánast allan minn starfsaldur unnið störf tengd sjávarútvegi, bæði til lands og sjávar. Undanfarin 10-15 ár sem skipa- fyrirtækja- og fasteignasali. Setið í stjórn sjávarútvegsfyrirtækis, í sveitarstjórn og með ólæknandi áhuga á pólitískri umræðu almennt. En fyrst og fremst er ég landsbyggðarmaður sem trúir á skynsemi þess að viðhalda byggð í landinu öllu. Sem þingmaður fyrir Suðurkjördæmi mun ég ekki samþykkja nein lög frá Alþingi, ef minnsti litli grunur leikur á að þau koma sér illa fyrir dreifbýlið. Ég er harður andstæðingur þess að við göngum inn í Evrópusambandið af þeirri ástæðu einni að rödd okkar mun ekki heyrast í risavöxnum salarkynnum Brüssel-valdsins. Ekki frekar en rödd landsbyggðarinnar hefur náð inn í sali Alþingis, þrátt fyrir meint óréttlátt vægi atkvæða. Reynir Þorsteinsson, sækist eftir 2. - 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.


23

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

Kræsingar & kostakjör

SKOÐAÐU N N I G N I L K BÆ S I . O T T E N Á

Tilboðin gilda til og með 3. feb www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss | Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


24

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

vf@ vf.

PÓSTKASSINN

2

is

n Oddgeir Ágúst Ottesen skrifar:

n Kjartan Ólafsson skrifar:

Er bann við verðtryggingu lausn á skuldavanda heimilanna?

Álverið í Helguvík

Á árunum 2008 Bætthækkaði lífskjör og 2009 verðlag á Íslandi Aukin fjárfesting m e i r aog hagvöxtur e n l au n fólks. Þá hafði slíkt Losun ekki gerst í um 20 fjármagnshafta ár. Lán fólks hækkog uðu Lægri og vextir margar auðveldari endurfjölskyldur hófu að fjármögnun húsberjast næðislána í bökkum við að greiða af sínum lánum. Reiði Hagkvæm og vonleysi náði að grafa um nýting sig og auðlinda fólk kallar nú eftir breytingum. Til að rétta hlut heimilanna að þessu leyti Ég gef kost hafa á mér í ýmsir 2. sæti í prófkjöri lagt til að verðtrygging Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi Oddgeir Á. Ottesen verði bönnuð. sem fer fram næstkomandi Bjarkarheiði 18

Oddgeir Á. Ottesen

í 2. sætið laugardag 26. janúar.

810 Hveragerði

Sími: 691-9501 Vextir af óverðtryggðum facebook.com/Oddgeir2013 lánum eru hærri Í dag stendur fólki til boða að taka bæði óverðtryggð og verðtryggð húsnæðislán. Um þessar mundir eru vextir af óverðtryggðum lánum nálægt 7-8% en vextir á verðtryggðum lánum um helmingi lægri. Þeir sem taka óverðtryggt lán þurfa því að borga meira í upphafi og borga því lán sín hraðar niður heldur en þeir sem velja að taka verðtryggt lán. Sumir stjórnmálamenn virðast vera þeirrar skoðunar að heimilin í landinu séu ekki að borga lán sín nógu hratt niður og vilja þvinga heimilin til að skipta verðtryggðum lánum út fyrir óverðtryggð lán. Vandamál heimilanna liggur þó ekki í því að þau séu að borga of lítið af sínum lánum, heldur er mun algengara að þau séu að sligast undan afborguninni. Slík aðgerð er því ekki til þess fallin að bæta hag heimilanna í landinu.

Kosningaskrifstofa mín er í Frumskógum 3 í Hveragerði. Hægt er að kíkja í spjall dagana 24. - 26. janúar kl. 17:00 - 19:00

Vextir þurfa að lækka Stuðla þarf að því að vextir í landinu lækki, því það myndi vissulega bæta hag heimila. Þetta á jafnt við um vexti af verðtryggðum og óverðtryggðum lánum. Fjármálakerfið er of stórt og auka þarf hagkvæmni þess. Aukin hagkvæmni myndi skila sér í lægri vöxtum. Auðvelda þarf einnig endurfjármögnun íbúðarlána. Með reglugerð er kveðið á um að lífeyrissjóðir eigi að ná 3,5% ávöxtun umfram verðbólgu á þá peninga sem þeir fá frá sjóðsfélögum. Fyrir fjármálahrunið hafði þetta vaxtaviðmið lítil áhrif því að vextir á markaði voru mun hærri en 3,5%. Nú er þetta vaxtaviðmið hins vegar farið að hafa áhrif á húsnæðisvexti í landinu. Munur á vöxtum lífeyrissjóðslána

og vöxtum á ríkisskuldabréfum er orðinn mun meiri en hann var fyrir hrun. Vaxtaviðmiðið ætti að sjálfsögðu að taka mið af aðstæðum á fjármagnsmörkuðum og vera lægra við núverandi aðstæður. Vextir húsnæðislána hafa mikil áhrif á hversu þung greiðslubyrði af lánum er. Ef vextir húsnæðislána lækka úr 5% í 3%, þá lækka greiðslur 40 ára húsnæðisláns um 26%. Með öðrum orðum þá myndi afborgun fjölskyldu sem nú er að borga 100 þúsund krónur á mánuði af húsnæðisláni lækka niður í 74 þúsund og afborgun fjölskyldu sem er að borga 200 þúsund lækka niður í 148 þús. Slík lækkun er líkleg til að hafa umtalsverð áhrif á fjárhagsstöðu heimilanna. Laun þurfa að hækka umfram verðbólgu Afborganir af verðtryggðum lánum hækka með verðbólgu en þegar laun hækka meira en verðbólgan þá munu heimilin í landinu ráða betur og betur við að borga af sínum lánum. Frá aldamótum hafa laun hækkað meira en verðlag í landinu en frá árinu 2008 hefur þróunin verið á annan veg. Laun hafa hækkað minna en sem nemur hækkun verðlags frá byrjun árs 2008. Af þessum sökum hafa heimilin í landinu ráðið verr við að borga af lánum sínum. Til lengri tíma litið er mikilvægasta verkefni stjórnvalda að skapa hér það skattaog efnahagsumhverfi að verðmætasköpun í landinu aukist (aukinn hagvöxtur) og að laun fari að hækka umfram verðbólgu. Einfalda þarf skattkerfið, lækka skatta og tryggja efnahagslegan stöðugleika. Hagkvæm nýting auðlinda er nauðsynleg til að tryggja aukna verðmætasköpun og sem leiða mun til þess að laun hækki meira en verðlag í landinu. Á síðustu fjórum árum hefur ríkt algjör efnahagsleg stöðnun á Íslandi. Við þurfum að hverfa frá tímabili stöðnunar og pólitísks óstöðugleika og auka verðmætasköpun í landinu og bæta lífskjör fólks. Algjört bann við verðtryggingu er hins vegar ekki leið til að bæta hag fólksins í landinu. Oddgeir Ágúst Ottesen, hagfræðingur Höfundur gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Meðgöngujóganámskeið hefst þriðjudaginn 29. janúar kl. 20:00 í Húsinu Okkar Hringbraut 108. Kennt er einu sinni í viku í 5 vikur og kostar námskeiðið kr. 5000,-. Frábær undirbúningur fyrir fæðinguna, mjúkar teygjur, hugleiðsla og slökun. Skráning í síma 867 3166

Kennari: Margrét Knútsdóttir, ljósmóðir og jógakennari

lista. Það skiptir máli hvernig sá Nú hefur Alþingi væru illskársti kosturinn útí Suðurkjördæmi frá umPrófkjör sjálfstæðismanna nýlokið við afhverfissjónarmiðum, nú26. er öldin janúar 2013listi verður skipaður með tilliti greiðslu rammaönnur. Af þessari einföldu staðreynd til árangurs í kosningum á vori komandi. Eins og nú háttar til áætlunar, þar er er ljóst að virkjanir í neðri Þjórsá er augljóst að stjórnarflokkarnir fjöldinn allur af munu ekki mala gull á næstunni munu tapa miklu fylgi í komandi virkjanakostum ef núverandi ríkisstjórnarflokkar kosningum og bárátta þeirra verður settur í verndarverða áfram við völd næstu fjögur mikil að halda sínum fulltrúum inni flokk eða biðflokk. árin. Því er það grundvallaratriði að á Alþingi. Ég mun leggja mitt af Einn virkjunarkoma þessum flokkum frá völdum - Stuðningsmenn mörkum til að við getum myndað kosturinn sem í kosningamiðstöð í komandi alþingiskosningum. Velkomin Kjartans í Tryggvaskála, Selfossi. nýja ríkisstjórn og endurunnið hingað til hefur verið talinn arðbærUm næstu helgi verður haldið rammaáætlun þannig að nýta megi astur eru virkjanir í neðri Þjórsá. prófkjör hjá sjálfstæðismönnum í þá fjölmörgu virkjunarkosti sem í Hér á árum áður sagði Steingrímur Suðukjördæmi. Þar ræðst hverjir boði eru. Það er forsenda þess að J. að virkjanakostir í neðri Þjórsá munu skipa forystusæti þess hægt sé að afla orku til að ljúka megi byggingu álvers í Helguvík.

VELJUM KJARTAN

TIL FORYSTU

n Unnur Brá Konráðsdóttir skrifar:

Mínar áherslur – öryggi íbúanna Á laugardaginn kemur gefst sjálfstæðismönnum kostur á að velja þá frambjóðendur sem þeir treysta best til að skipa efstu sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Ég óska eftir stuðningi til þess að halda áfram að vinna að þeim brýnu verkefnum sem fyrir liggja. Ljóst er að draga hefur þurft úr útgjöldum ríkissjóðs en gæta þarf að því að ganga ekki of nærri öryggi íbúa landsins líkt og ég tel að gerst hafi varðandi löggæslumál og heilbrigðismál. Verkefni Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru viðamikil og hefur embættið sætt sömu sparnaðarkröfu og önnur lögregluembætti. Á sama tíma hafa verkefni embættisins aukist verulega vegna aukinnar flugumferðar um Keflavíkurflugvöll. Aukin umsvif flugrekstraraðila skila sér í auknum skatttekjum fyrir hið opinbera. Flugvöllurinn skapar þjóðarbúinu miklar tekjur og eru tækifæri fólgin í því að sinna þeirri þjónustu vel. Skilvirk þjónusta er forsenda þess að hægt sé að standa við 35 mín tengitíma sem skilgreindur

er fyrir Keflavíkurflugvöll og forsenda leiðarkerfis stærsta notanda flugvallarins. Farþegaspá gerir ráð fyrir áframhaldandi auknum farþegafjölda. Flugvöllurinn getur því skilað þjóðarbúinu enn meiri tekjum ef rétt er haldið á málum. Gæta þarf að því að lögreglan geti sinnt sínu mikilvæga hlutverki á flugvellinum en jafnframt tryggja að almenn löggæsla fyrir íbúa Suðurnesja fái nægjanlegar fjárveitingar. Allir þekkja þær miklu afleiðingar sem niðurskurður sl. ára hefur haft á starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Tryggja verður að grunnþjónusta sé til staðar fyrir íbúa Suðurnesja og ekki síður að starfsumhverfi þjónustunnar sé stöðugt. Jafnframt er rétt að leita allra leiða til að nýta þá fjárfestingu sem til staðar er m.a. í skurðstofunum sem nú standa ónýttar. Að lokum Ég hvet alla sjálfstæðismenn til að taka þátt í því að velja framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í prófkjörinu. Ég óska eftir stuðningi í 2. sæti listans og vonast til að fá áframhaldandi umboð til að vinna að þeim brýnu verkefnum sem sem fyrir liggja. Unnur Brá Konráðsdóttir

n Ísak Ernir Kristinsson skrifar:

Fjölmennum í prófkjör og styðjum Ragnheiði Elínu! Um komandi helgi fer fram prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Þar er dugnaðarkonan Ragnheiður Elín Árnadóttir að sækjast eftir forystu. Ég hef ákveðið að styðja Ragnheiði Elínu af nokkrum ástæðum og ætla ég að nefna tvær hér. Endurreisnin og atvinnumál Það skiptir okkur öll máli að hafa atvinnu. Hér á Suðurnesjum hefur verið gríðarlegt atvinnuleysi og þarf að vinna bót á því. Við þurfum aukna atvinnumöguleika hér á svæðið. Ég horfi til álvers, kísilvers, heilsusjúkrahúss og margs fleira. Hér í Suðurkjördæmi eru tækifærin til uppbyggingar. Með minnkandi atvinnuleysi og auknum hagvexti komumst við út úr þessum efnahagslega vanda sem við nú glímum við. Við þurfum flotta framkvæmdamanneskju í forystu hér í kjördæminu og treysti ég engum betur en Ragnheiði Elínu til að leiða okkur til betri áttar í þeim efnum. Mennt er máttur Á síðustu haustmánuðum kom upp alvarleg staða í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. FS var gert að skera gríðarlega niður samkvæmt fjárlögum sem bitna átti á starfsfólki

og nemendum. Fækka átti kennurum um 12-14 stöðugildi og nemendum um 200. Skólameistari FS talaði fyrir daufum eyrum ráðuneytisins og flestum þingmanna hér í kjördæminu. Ragnheiður Elín skynjaði ólguna og óttann sem greip um sig í samfélaginu og var sá þingmaður sem aflaði sér mestra upplýsinga um málið. Hún vann gríðarlega gott starf sem varð til þess að FS fékk aukið framlag svo ekki varð af upphaflegum áformum. Í því samfélagi sem við lifum í dag á menntun ekki að vera forréttindi heldur mannréttindi! Eftir því vinnur Ragnheiður Elín. Bjartir tímar framundan Hér í Suðurkjördæmi er allt til staðar. Ef haldið verður rétt á spilunum og tækifæri nýtt, þá sjáum við fram á mjög bjarta tíma. Aukum menntunarstigið í kjördæminu og aukum atvinnumöguleika, þá eru okkur allir vegir færir. Fjölmennum á kjörstaði nk. laugardag og styðjum Ragnheiði Elínu til sigurs fyrir kjördæmið. Ísak Ernir Kristinsson

Kjartan Ólafsson sækist eftir forystusæti

Styðjum Ragnheiði Elínu í 1. sæti - í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þann 26. janúar 2013 Ragnheiður Elín er oddviti þingflokks Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hún er öflugur talsmaður atvinnulífsins sem er undirstaða velferðar í samfélaginu okkar. Atvinnumálin Ragnheiður hefur lagt áherslu á mikilvægi atvinnumála. Ferðaþjónustan er ört vaxandi og ein lykilatvinnugrein okkar og sú atvinnugrein sem mjög margir íbúar á Suðurnesjum starfa við. Álögur núverandi stjórnvalda á greinina geta hamlað vexti þessarar ungu atvinnugreinar og haft árif á fjölda starfa. Í fjárlagaumræðu Alþingis lagði Ragnheiður sitt lóð á vogarskálarnar þar sem hún talaði gegn auknum álögum á ferðaþjónustu sem fagaðilar hafa bent á að hamli vexti og verðmætasköpun innan greinarinnar. Mikilvægi menntamála Menntamál eru annar málaflokkur sem Ragnheiður hefur sýnt í verki að hún sýnir eindreginn stuðning. Þegar núverandi stjórnvöld ætluðu að skerða mjög fjárveitingar til Fjölbrautaskóla Suðurnesja var það ekki hvað síst fyrir tilstuðlan stjórnarandstöðunnar og framgöngu Ragnheiðar að frá þeirri skerðingu var fallið. Ég treysti Ragnheiði Elínu til að vinna áfram ötullega að hagsmunum okkar og leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í Suðurkjördæmi. Ég hvet ykkur til að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þann 26. janúar og tryggja Ragnheiði Elínu góða kosningu í 1. sætið! Magnea Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.

Fleiri greinar í „pólitíkin“ á vf.is


25

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

Oddný tilkynnir framboð í varaformann O

ddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, og fyrrum fjármálaráðherra hefur tilkynnt framboð sitt í varaformann Samfylkingarinnar. Oddný tilkynnti þetta á stefnuþingi Samfylkingarinnar í Suður-

kjördæmi um liðna helgi og svo skömmu síðar á Facebook síðu sinni. Landsfundur Samfylkingarinnar fer fram 1.-3. febrúar næstkomandi. Aðeins Oddný hefur til þessa tilkynnt framboð sitt í varaformann. Katrín Júlíusdóttir, þingmaður í

Vilhjálmur Árnason - 4. sæti HEIÐARLEIKI - TRAUST - KRAFTUR

Suðvesturkjördæmi, er sögð vera að íhuga framboð í varaformann og einnig þær Ólína Þorvarðardóttir og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir. Dagur B. Eggertsson er núverandi varaformaður Samfylkingarinnar en hyggst ekki bjóða sig fram að nýju.

Dvergadansinn sló í gegn

S

tóru-Vogaskóli tók þátt í hinni árlegu Legó-keppni sem var í Hákskólabíó á laugardaginn sl. Lið skólans var skipað níu nemendum úr 6. bekk og gekk þeim vel í öllum greinum. Skemmtiatriði þeirra, Dvergadans, var kosið það besta í keppninni af áhorfendum í stóra salnum í Háskólabíói. FLL-First Lego League er tækni- og hönnunarkeppni ætluð grunnskólabörnum. Um 200 þúsund nemendur tóku þátt í þessari keppni í ár í 44 löndum. Keppninni er skipt niður í fimm hluta. Í fyrsta lagi smíða keppendur vélmenni úr tölvustýrðu Legói sem er forritað til að leysa tiltekna þraut.

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins laugardaginn 26. janúar www.villiarna.is

Að þessu sinni snerist þrautin um ýmis verkefni sem eldri borgarar þurfa að leysa í lífinu. Þetta eru fyrirfram ákveðin verkefni og þarf að forrita vélmenni til þess að leysa þau.

Í öðru lagi eiga keppendur að gera vísindalega rannsókn á ákveðnu efni sem tengt er þema keppninnar. Í þriðja lagi halda keppendur ítarlega dagbók um undirbúninginn. Í fjórða lagi eiga þeir að flytja frumsamið skemmtiatriði. Að lokum þurfa liðin að gera grein fyrir því hvernig þau forrituðu vélmennið sitt en þar reynir á þekkingu þátttakenda á eigin búnaði. Að þessu sinni var Stóru-Vogaskóli eini Suðurnesjaskólinn og aðeins tveir skólar af Suðvesturhorninu tóku þátt í keppninni. Vaxtarbroddur hátæknimenntunar ungu kynslóðarinnar virðist um þessar mundir vera á Austurlandi. Þess má geta að fjögur lið frá Hornafirði tóku þátt og gekk þeim öllum vel. Sigurliðið kom frá Akureyri.

NÁMSKEIÐ Skipstjórn og vélstjórn smáskipa

Mánudaginn 29. janúar hefst námskeið í Skipstjórn smáskipa < 12m (pungapróf ) Kennt verður daglega frá kl. 9:30 til 15:30 en á föstudögum frá kl. 9:00 til 13:00. Námskeiðslok um 15. febrúar. Mánudaginn 4. febrúar hefst námskeið í Vélstjórn – smáskip með vélarafli <750 kw (12m) Kennt verður daglega frá Kl. 9.00-15.20 virka daga. Námskeiðslok verða14. febrúar. Upplýsingar í síma 412 5966 og info@fiskt.is

Til að hefja endurreisn heimila og atvinnulífs þarf öfluga málsvara í nýrri ríkisstjórn. Ragnheiður Elín Árnadóttir þarf stuðning okkar allra í 1. sætið svo rödd Suðurnesja heyrist skýrt og það sem mestu skiptir... að orðum fylgi athafnir! Við skorum á Suðurnesjamenn að taka þátt í prófkjörinu á laugardaginn. Kjörstaðir eru opnir frá klukkan 10-18. Allir velkomnir í kaffi á kosningamiðstöð Ragnheiðar Elínar að Brekkustíg 39 á laugardaginn. Kjörstaðir: Reykjanesbær: Nesvellir, Njarðarvöllum 4 Grindavík: Verkalýðshúsinu, Víkurbraut 46 Garður: Samkomuhúsi sjálfstæðismanna Sandgerði: Samkomuhúsi sjálfstæðismanna Stuðningsmenn Ragnheiðar Elínar

Prófkjör sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi 26. janúar 2013


26

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

n HS Orka mun hefja tilraunaboranir í Eldvörpum í sumar:

Dapurt þegar fagleg vinna sérfræðinga er hunsuð fyrir pólitískum hrossakaupum Orkusölusamningur í uppnámi eftir hækkun Landsnets um áramótin. „Úr því að þeir eru hálfpartinn búnir að reisa álverið þá ætti að vera hvati fyrir því að láta hjólin snúast.“

H

S Orka hf. mun hefja tilraunaboranir í Eldvörpum í sumar ef áætlanir ná fram að ganga. Með borunum er markmiðið að afla upplýsinga sem annars vegar nægja til að sannreyna hæfi svæðisins til vinnslu og hins vegar veita grundvöll fyrir gerð fyrstu áætlunar um vinnsluholur. Nú þegar starfrækir HS Orka öfluga raforkuframleiðslu í Svartsengi og úti á Reykjanesi. Víkurfréttir ræddi við þá Júlíus J. Jónsson, forstjóra HS Orku, og Ásbjörn Blöndal, forstöðumann þróunarsviðs, um stöðu mála hjá fyrirtækinu um þessar mundir og fyrirhugaðar framkvæmdir. Rannsóknir hafa staðið yfir um árabil í Eldvörpum. Sérstaklega hefur verið horft til svæðisins sem mögulegs virkjunarsvæðis eftir að þar var boruð 1.265 m djúp mælinga- og eftirlitshola, borhola EG2, árið 1983 frá borplani sem er staðsett við gígaröð Eldvarpa. Þessi hola er nýtanleg sem vinnsluhola. Næsta stig rannsókna á svæðinu er borun djúpra rannsóknarholna. Bíða niðurstöðu á umhverfismati Framkvæmdasvæðið liggur um 5 km suðvestur af orkuvinnslusvæðinu í Svartsengi og um 4 km eru til sjávar í hásuður. Þéttbýli í Grindavík er í um 5 km fjarlægð í beinni loftlínu. Samkvæmt aðalskipulagi Grindavíkurbæjar sem samþykkt var á síðasta ári eru fjórir borteigar á skipulaginu. „Eldvörp er komið í gegnum aðalskipulag hjá Grindavíkurbæ en eiga eftir að fara í gegnum umhverfismat. Ef allt gengur að óskum þá gætu tilraunaboranir hafist síðla sumar,“ segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku. „Við teljum okkur geta fengið um 50 MW úr Eldvörpum í fyrstu umferð. Það var boruð tilraunahola á þessu svæði árið 1983 og hún gaf mjög góð fyrirheit. Á þeim tíma var Eldvörp hugsað sem varasvæði fyrir Svartsengi ef það svæði myndi ekki endast til lengri tíma. Þegar þessi tilraunahola var boruð þá komust menn að því að Svartsengi og Eldvörp væru tengd svæði. Sem betur fer þá hefur komið á daginn að Svartsengi er miklu öflugra en menn höfðu þorað að vona. Því hefur ekkert verið gert í Eldvörpum fyrr en nú. Það er kominn gufupúði á milli þessara svæða þannig að það er hægt að hefja vinnslu upp að 50 MW án þess að skaða vinnsluna í Svartsengi.“ Skilja áhyggjur um Eldvörp Framkvæmdir í Eldvörpum eru umdeildar. Umhverfisverndarsinnar hafa áhyggjur af því raski sem gæti orðið með framkvæmdum í Eldvörpum. Vinsælar gönguleiðir líkt og Árna-, Prest-

Frá Eldvörpum á Reykjanesi. Mynd: HS Orka.

og Skipastígar liggja um Eldvörp og einnig einstæð gígaröð. Umhverfissinnar telja ávinning af því

Úr því að þeir eru hálfpartinn búnir að reisa álverið þá ætti að vera hvati fyrir því að láta hjólin snúast.

að virkja Eldvörp lítinn og að einstæðri íslenskri náttúru verði spillt með framkvæmdum sem ekki eru afturkræfar. Júlíus segir að allt verði gert til að rask á svæðinu verði minniháttar. „Við skiljum vel áhyggjur náttúruverndarsinna og tökum tillit til þeirra. Það er falleg gígaröð í Eldvörpum sem við látum alveg í friði. Grindavíkurbær lagði mikla áherslu á það og við munum ekkert hrófla við þessu svæði. Við reynum að sneiða eins mjúklega framhjá fornmunum og við getum,“ segir Júlíus. „Umfang þessara framkvæmda verður meira í líkingu við það sem við þekkjum úti á Reykjanesi. Það mun ekki skapast affallslón líkt og í Svartsengi en vissulega fylgja svona framkvæmdum alltaf einhver afföll.“

Ósáttir við framkvæmd rammaáætlunar Rammaáætlun var samþykkt á Alþingi í síðustu viku. Júlíus segir að niðurstaðan fyrir Reykjanes hafi verið viðunandi en 3 svæði af 19 fóru í verndarflokk og nokkur svæði fóru í biðflokk. „Niðurstaðan úr rammaáætlun var ekki slæm fyrir okkur hjá HS Orku. Það er hins var dapurt þegar fagleg vinna sérfræðinga er algjörlega hunsuð fyrir pólitískum hrossakaupum. Þegar maður skoðar niðurstöðuna þá virðist sem að pólitíkin hafi fengið að ráða.“ Nauðsynlegt að fá aðra línu Unnið er hörðum höndum að því um þessar mundir að undirbúa lagningu Suðvesturlínu inn á Reykjanes. Í gegnum þá línu kæmi jafnframt meirihluti þeirrar raf-

Gulu reitirnir á kortinu sýna hvar borteigar fyrir rannsóknarborholur verða staðsettar. Borteigarnir verða staðsettir í fjarlægð frá glæsilegri gígaröð í Eldvörpum. HS Orka vonast til að geta fengið um 50 MW úr Eldvörpum innan fáeinna ára. Stærsti hluti þeirrar orku fer líklegast í álverið í Helguvík. Stjórnendur HS Orku segjast skilja sjónarmið náttúruverndarsinna og ætla að reyna að fara eins mjúklega um náttúruminjar í Eldvörpum og mögulegt er.

orku sem er nauðsynleg til að knýja álverið í Helguvík. „Landsnet er að reyna að ná samningum við landeigendur með Suðursvesturlínu og nú þegar er búið að semja við um helming landeigenda. Þær landareignir sem ekki næst samningar um fara líklega í eignarnám. Það eru nokkrir landeigendur sem vilja frekar fara í það ferli til að fá mat á eign sína,“ segir Júlíus. Hann telur það bráðnauðsynlegt fyrir HS Orku að fá aðra raforkulínu um svæðið til að tryggja orkuframleiðslu fyrirtækisins. „Það er nauðsynlegt fyrir svæðið að fá aðra línu. Það er óásættanlegt að vera með 170 MW framleiðslu á Reykjanesi og vera aðeins með eina línu. Þegar gera þarf lagfæringar í núverandi línu þá gætum við þurft að slökkva á okkar orkuverum í heilan dag jafnvel og kaupa orku annars staðar til að afhenda okkar viðskiptavinum. Hvort sem Helguvík kemur eða ekki þá er það okkur bráðnauðsynlegt að vera með tvær línur.“ Yfirborðsvatn ú Svartsengi út í sjó Yfirborðsvatn í Svartsengi hefur valdið framleiðslu þar nokkrum ama. Mikið yfirborðsvatn hefur safnast saman og sést það vel þegar ekið er að Bláa lóninu. Þetta veldur því að ekki er hægt að hafa framleiðslu í Svartsengi á fullum afköstum. Til stendur að gera lögn frá Svartsengi og út sjó til að losa um yfirborðsvatn. „Um leið og við erum búnir að koma fyrir lögn út í sjó þá ættum við að geta aukið afköst og einnig stjórnað framleiðslu betur. Kísillinn í vatninu stíflar sprungurnar í hrauninu og því teygir vatnið sig um sífellt stærra svæði. Ef af verður þá munum við tengja lögnina við Eldvörp þannig að yfirborðsvatn þar verði lítið sem ekkert,“ segir Ásbjörn Blöndal. Samningar við Norðurál í biðstöðu HS Orka er í samningaviðræðum við Norðurál um að útvega 150 MW í álverið í Helguvík. Stjórnendur HS Orku telja sig geta útvegað þessa orku innan nokkurra ára en nú þegar eru laus 80 MW úr Reykjanesvirkjun sem gætu farið strax í að knýja áfram vinnslu í Helguvík. Júlíus segir samningaviðræður í biðstöðu. „HS Orka hefur ekki náð samningum við Norðurál með orkuafhendingu í Helguvík. Samningaviðræðum hafði miðað vel fram að áramótum en nú vitum við ekki hvernig staðan er á málinu. Landsnet hækkaði gjaldskrá sína um 20% um áramótin sem lendir alfarið á okkur og minnkar arðsemina. Við vorum búnir að ná saman við Norðurál um verð en þetta breytir stöðunni. Staðan er einfaldlega þannig að við vitum ekki hvort við náum samningum í næstu viku – eða hreinlega eftir tíu ár. HS Orka getur útvegað þessi 150 MW innan nokkurra ára en Norðurál er einnig háð öðrum með orku. Úr því að þeir eru hálfpartinn búnir að reisa álverið þá ætti að vera hvati fyrir því að láta hjólin snúast,“ sagði Júlíus.


27

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

þjónustustjóri fyrirtækjaþjónustu hjá Landsbankanum í Reykjanesbæ

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,

Guðný Sigurbjörg Thordersen (Nína),

H

elgi Bogason hefur hafið störf sem þjónustustjóri fyrirtækjaþjónustu hj á L a n d s b a n k anu m í Re y kj a nesbæ. Helgi sem er viðskiptafræðingur að mennt hefur starfað nær samfellt við bankastörf allt frá árinu 1984. Lengst af í útibúi Landsbankans í Grindavík sem afgreiðslustjóri en einnig m.a. sem sérfræðingur í útlánaþjónustu á viðskiptabankasviði Landsbankans. Eins starfaði Helgi um fjögurra ára skeið sem útibússtjóri Spkef sparisjóðs í Grindavík. Ráðning Helga mun styrkja fyrirtækjahluta útibús Landsbankans í Reykjanesbæ enn frekar og er það í fullu samræmi við áform bankans um að veita fyrirtækjum á Suðurnesjum öfluga og góða þjónustu.

Súpufundur ferðaþjónustunnar 4. febrúar 2013

H

eklan býður til kynningarog umræðufundar um það sem er framundan í ferðaþjónustu á svæðinu mánudaginn 4. febrúar nk. og fer fundurinn fram í Eldey, þróunarsetri að Grænásbraut 506, Ásbrú kl. 12:00. Fjallað verður um breytingar á rekstri Markaðsstofu Suðurnesja og sagt frá Reykjanes jarðvangi. Boðið verður upp á súpu á staðnum. Allir ferðaþjónustuaðilar á Suðurnesjum velkomnir!

Ölvaður og réttindalaus ók á steypta girðingu

Ö

lvaður og réttindalaus ökuþór ók á steypta girðingu í Sandgerði um liðna helgi og hvarf síðan á brott án þess að gera vart við sig. Lögreglan á Suðurnesjum hafði fljótlega upp á bifreiðinni, þar sem hún var enn á sveimi í Sandgerði. Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð, þar sem sýnatökur staðfestu að hann hefði neytt áfengis. Hann var ekki sáttur við afskipti lögreglu. Nokkurt tjón varð af ákeyrslunni. Lögregla rannsakar málið.

Árshátíð FEB N

ú styttist óðum í Árshátíð Félags eldri borgara. Árshátíðin verður haldin sunnudaginn 10. febrúar nk. í Stapanum og hefst kl.18:00. Flottur matur, skemmtiatriði og dans. Sama miðaverð og í fyrra, krónur 6000. Rútuferðir verða frá Grindavík, Vogum, Sandgerði og Garði. Nú er um að gera að taka þennan sunnudag frá. Árshátíðin verður auglýst nánar á næstunni. Um að gera að panta miða sem fyrst hjá: Reykjanesbær Erna s. 421 3937 Reykjanesbær Jón s. 898 6919 Sandgerði Jórunn s. 423 7601 Garður Sigurður s. 847 2779 Vogar Guðlaugur s. 424 6701 Grindavík Eyrún s. 426 8087 Skemmtinefnd FEB

Hæðargötu 1, Njarðvík,

Delta verðlaunar Keflavíkurflugvöll

K

eflavíkurflugvöllur er ein 30 starfsstöðva Delta Air Lines sem hlýtur útnefninguna Station of the Year 2012. Starfsstöðvar félagsins eru alls 245 og fékk Keflavíkurflugvöllur hæstu einkunn fyrir öryggi, farþegaþjónustu, rekstur og fjárreiður. Delta heldur uppi ferðum milli Keflavíkur og New York og nær útnefningin til allra starfssviða Isavia, fyrirtækisins Airport Associates sem annast afgreiðslu Delta á Keflavíkurflugvelli, og annarra þjónustuaðila flugfélagins.

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 15. janúar. Útför hennar fer fram frá Ytri Njarðvíkurkirkju föstudaginn 25. janúar kl.14:00.

Vigdís Thordersen, Stefán Thordersen, Ólafur Thordersen, og fjölskyldur.

Magnús B. Hallbjörnsson, Sigurbjörg Björnsdóttir, Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir,


28

fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR

Risablót í Garði S

tærsta þorrablót Suðurnesja og jafnvel landsins fór fram í Garðinum um nýliðna helgi. Þá héldu Björgunarsveitin Ægir og Knattspyrnufélagið Víðir sitt blót. Hátt í 700 gestir mættu í veisluna og þótti þorrablótið takast vel og mikil ánægja með bæði mat og skemmtun. Meðfylgjandi myndir voru teknar í veislunni í Garði.

ATVINNA Framleiðslustjóri IGS leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi í starf framleiðslustjóra í flugeldhúsi IGS ehf. Starfssvið framleiðslustjóra er m.a. Framleiðsluskipulagning Gæðaeftirlit Áætlunargerð Kostnaðareftirlit Verkstjórn Hæfniskröfur: Menntun á matvælasviði Reynsla af sambærilegu starfi Góð íslensku- og enskukunnátta Tölvukunnátta Öguð, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Hæfni í mannlegum samskiptum Útsjónarsemi og heiðarleiki Umsókn sendist rafrænt á svala@igs.is nánari upplýsingar veitir forstöðumaður flugeldhúss í síma 896 8702. Umsóknir berist eigi síðar en 4. febrúar 2013

Njarðvíkingar blótuðu þorrann

Þ

að var líf og fjör í Ljónagryfjunni á laugardaginn. Þá héldu Njarðvíkingar árlegt Þorrablót sitt með pompi og prakt. Grínistinn Sólmundur Hólm var veislustjóri og var nokkuð klúr að sögn viðstaddra. Hreimur Heimisson og hljómsveitin Made in sveitin spiluðu fyrir dansi langt fram á nótt. Söngvarinn hárfagri Eyþór Ingi tók svo nokkur vel valin lög. Þeir Einar Árni Jóhannsson og Örvar Kristjánsson fóru svo með annálinn og var mikið hlegið.


29

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

Næsta verkefni Leikfélags Keflavíkur kynnt í kvöld L eikfélag Keflavíkur mun halda almennan félagsfund í Frumleikhúsinu í kvöld kl.20.00 þar sem kynnt verður næsta verkefni félagsins auk þess sem nýr leikstjóri verður kynntur til sögunnar. Að þessu sinni er stefnan tekin á gamanleikrit og eingöngu 18 ára og eldri geta tekið þátt.

Allir áhugasamir, reyndir sem óreyndir, eru hvattir til að mæta og kynna sér verkefnið sem framundan er. Alltaf er þörf fyrir áhugasamt fólk í leikhússtarfið hvort heldur sem fólk vill leika, farða, sjá um búninga, tæknimál eða eitthvað annað.

„Sex dagar“ opna í kvöld

F

immtudagskvöldið 24. janúar kl. 20.00 verður opnun á sýningunni „Sex dagar“, þar sem sjö konur úr Reykjanesbæ sýna eitt verk eftir tveggja mánaða námskeið á vegum Myndlistafélags Reykjanesbæjar. Á sýningunni eru nokkur hundruð smámyndir sem blandað er saman í eina „simboliska“ heild. Verkið er trúarlegt og verður verkið útskýrt á sýningunni. Á námskeiðinu var farið m.a. í gegnum frjáls og ómeðvituð vinnubrögð til skissugerðar, simbólisma og listasögu. Hvert smáverk sem er á sýningunni er í raun skissa að einhverju sem komið gæti á seinni stigum og leitun innávið að formum og myndbyggingum.

Fullyrða má að ekki hafi verið sett upp samskonar sýning þar sem enginn einn getur eignað sér verkin sem sýnd eru. Allir eru velkomnir á sýninguna og boðið verður upp á kaffi og góðgæti. Eftirtaldir koma að sýningunni: Bjarnveig Björnsdóttir, Marta Haraldsdóttir, Unnur M Sigurðardóttir, Svanfríður Sverrisdóttir, Svanhildur H Gunnarsdóttir, Unnur Inga Karlsdóttir, Þóra Jónsdóttir. Uppsetningu á sýningu sá kennari hópsins um.

HALLDÓR GUNNARSSON Í 1. - 3. SÆTI

Ég vil gefa kjósendum Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi möguleika á að velja mig til forystu í 1.-3. sæti í prófkjöri 26. janúar 2013. Ástæða þess er, að ég vil berjast fyrir hinum gömlu gildum Sjálfstæðisflokksins og samþykktum hans á landsfundum. Halldór Gunnarsson

Meðleigjandi óskast Karlmaður um sjötugt óskar eftir konu á svipuðu reki sem meðleigjanda að íbúð í Njarðvík. Áhugasamar sendi inn upplýsingar í lokuðu umslagi til Víkurfrétta, Krossmóa 4a, Reykjanesbæ, merkt „meðleigjandi“.


230

fimmtudagurinn 24.Fimmtudagurinn janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR 14. apríl 2011

VÍKURFRÉTTIR

sMÁAUGLÝsiNGAR 421 0000 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS

TIL LEIGU Íbúð til leigu! 55 ferm. íbúð til leigu á Fífumóa 1a í Njarðvík. Laus strax um mánaðamótin! Upplýsingar í síma: 7740326.

TIL SÖLU Íbúð á Dalvík 72 fm íbúð á fyrstu hæð, nýlega tekin í gegn. Verð 8 - 9 milljónir. Skipti koma til greina. Uppl. í síma 844 8654.

HEILSA Vigtun-Mæling-Ráðgjöf með mataræði Pantaðu tíma í lífstílsmat og þú færð fría mælingu í leiðinni. Er með aðstöðu í heilsuklúbbnum í Hólmgarði. Ása Björg sími 8207656 netfang: asabjorg2@gmail. com

SPÁKONA Spámiðill Ég er byrjuð aftur! Spái í tarotspil og les í bolla. Tímapantanir í síma 896 6648 Kata

Hvít Víðbláinn - NudD, - Heilun, Tímapantanir í síma 861 2004

Reynir Katrínarson, Nuddmeistari.

PARKETÞJÓNUsTA Parketslípun, lagnir, viðgerðir og almennt viðhald húsnæðis. Látið fagmenn vinna verkin! Parketþjónusta Árna Gunnars, s. 698 1559, arnigunnars@simnet.is

Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja Þórhallur Guðmundsson miðill verður með einkatíma mánudaginn 28. janúar.

n Zoran þjálfari knattspyrnuliðs Keflvíkinga segir mikinn söknuð af Guðmundi Steinarssyni:

Munu ungir kappar fylla skarð Guðmundar? - „Erum að skoða leikmannamál og með augun opin, “ segir þjálfari Keflavíkur

K

eflvíkingar sáu af Guðmundi Steinarssyni til Njarðvíkinga á dögunum. Guðmundur hefur verið máttarstólpi í liði Keflvíkinga um langt skeið og er hann marka- og leikjahæsti leikmaður liðsins í efstu deild frá upphafi. Zoran Ljubicic þjálfari Keflvíkinga segir mikinn söknuð af Guðmundi og liðið sé nú að leita leiða til að fylla skarð hans. Zoran segir að Keflvíkingar séu með augun opin fyrir leikmönnum sem styrkt geti liðið fyrir næsta sumar. „Við erum bara að skoða leikmenn eins og staðan er í augnablikinu. Við munum svo taka ákvörðun á næstu dögum,“ segir Zoran. Leikmennirnir sem hafa verið til reynslu hjá Keflvíkingum eru m.a. Njarðvíkingurinn Andri Fannar Freysson og Halldór Kristinn Halldórsson sem leikið hefur með Val síðustu tvö ár í Pepsi-deildinni. Hugsanlega þurfi að fylla í skarð sóknarmannsins Guðmundar Steinarssonar með leikmanni utan Keflavíkurhópsins. Stefnt er að því að bæta við miðjumanni og leikmanni í vörnina. Zoran líst vel á sóknarmanninn Andra Fannar en hann segir hæfileikana vissulega vera til staðar og viðurkennir að

Arnór Ingvi Traustason er kominn aftur til Keflavíkur.

hann sé hrifinn af honum sem leikmanni. „Það er slæmt að missa Guðmund (Steinarsson) en þetta var hans ákvörðun og við verðum að virða hana. Hann var mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Keflvíkingar hafa áður misst leikmenn og aðrir hafa komið í staðinn,“ segir Zoran sem telur nú vera tækifæri

n Breiddin mun skipta sköpum að mati Jóns Björns hjá Karfan.is.

Á

sunnudaginn kemur mætast núverandi bikarmeistarar Keflvíkinga og núverandi Íslandsmeistarar Grindvíkinga í undanúrslitum Powerade-bikars karla í körfubolta. Leikurinn fer fram í Keflavík og má vænta þess að barist verði til síðasta blóðdropa í sláturhúsinu þar sem Laugardalshöllin sjálf er innan seilingar. Keflvíkingar hafa orðið bikarmeistarar sex sinnum í karlaflokki en Grindvíkingar eiga fjóra bikara í skápnum í Röstinni. Hjá kvennaliðunum er aðeins eitt

Suðurnesjalið eftir en það eru Keflvíkingar. Þær mæta Snæfellingum fyrir vestan á morgun, föstudag. Alls hafa Keflvíkingar fagnað bikarmeistaratitli 12 sinnum og því rík sigurhefð hjá liðinu. Síðast lyftu þær bikarnum árið 2011 en Njarðvíkingar eru núverandi bikarmeistarar. Við fengum einn helsta körfuboltasérfræðing landsins, Jón Björn Ólafsson hjá Karfan.is, til þess að rýna í leikina en hann segir breiddina geta ráðið úrslitum í báðum viðureignum að þessu sinni.

ATVINNA

Óskum eftir að ráða Baader mann til starfa sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið gefur Arnar Smári í s. 844-1384

Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali - Hafnargata 27 - 230 Keflavík s: 421 1420 og 421 4288 - fax 421 5393 - Netfang: asberg@asberg.is

www.vF.is

S

Ú

Allir hjartanlega velkomnir Nánari upplýsingar í síma 420 3400

H

Föstudaginn 25. janúar Léttur föstudagur kl. 14:00: Drífa Kristjánsdóttir og sonur spila og syngja

Ð PI O

Vikan 24. - 30. jan. nk. • Bingó • Gler-, keramik- og leirnámskeið • Handavinna • Leikfimi - dans- boltaleikfimi. • Línudans • Félagsvist • Bridge • Hádegismatur

tveggja ára. Hann er hæfileikaríkur en það er ekki nóg. Menn verða að vera með rétta hugarfarið og metnað til að ná skrefi lengra.“ Zoran telur að á leikmannamarkaðnum séu fullt af bitum og margir spennandi kostir. Keflvíkingar eru að líta í kringum sig en Zoran segir félagið ætla að stíga varlega til jarðar í þeim efnum. „Við þurfum leikmenn sem passa að okkar leikstíl og eru til fyrirmyndar jafnt utan vallar sem innan. Við erum ekki með mikið af peningum milli handanna og verðum að leita að leikmönnum sem kosta ekki mikið,“ segir þjálfarinn. Grindvíkingurinn Ray Anthony Jónsson er nýlega kominn til liðs við Keflavík og hann getur hugsanlega spilað í nokkrum stöðum að mati Zoran. Hann útilokar ekki að leita frekar til nágranna sinna við Þorbjörninn. „Á sínum tíma var Alexander Magnússon leikmaður sem við sóttumst eftir. Hann er samningsbundinn Grindavík en hann vill koma til okkar. Við getum ekkert gert í málinu þar sem við eigum ekki pening til að kaupa upp samninginn hans. Hann er velkominn hingað ef hlutirnir breytast,“ sagði Zoran að lokum.

Meistarar berjast um sæti í Höllinni

Tímapantanir og upplýsingar í síma 421-3348

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum

fyrir aðra leikmenn að láta ljós sitt skína. Nefnir hann leikmann eins og Hörð Sveinsson sem hann telur að eigi mikið inni. „Eini staðurinn sem leikmenn geta talað á er á fótboltavellinum,“ segir Zoran og bætir því við að enginn sé með áskrift að byrjunarliðinu. Margir ungir leikmenn hafa fengið að spreyta sig að undanförnu og þar á meðal er Samúel Kári Friðjónsson sem nýlega samdi við enska liðið Reading. Zoran telur að Samúel eigi jafnvel eftir að ná langt í framtíðinni enda fari þar mikið efni. „Ég veit hvað hann getur og ég á allt eins von á því að hann nái langt í fótboltanum.“ Aðrir ungir leikmenn eins og Elías Már Ómarsson hafa einnig verið að leika vel en Zoran segir erfitt að gefa öllum ungu leikmönnum liðsins tækifæri á sama tíma. „Við verðum að fara varlega með þessa ungu stráka en ég er virkilega sáttur við hugafar þeirra og metnað.“ Arnór Ingvi Traustason er genginn aftur til liðs við Keflvíkinga eftir dvöl í Noregi og Zoran fagnar endurkomu miðjumannsins. „Þetta er frábært bæði fyrir okkur og hann. Ég tel að hann muni þroskast hér og jafnvel fara aftur erlendis innan

Brekkubraut 3, Keflavík Opið hús laugardaginn 26. janúar kl. 14:00 - 15:00. Glæsileg 150,7m2 neðri hæð á besta stað í bænum. 4 herbergi og glæsileg stofa eldhús og baðherbergi. Eign sem hægt er að flytja inn í strax Góð áhvílandi lán.

Keflavík-Grindavík karla: „Eftir tap gegn Keflavík í deild hristu Grindvíkingar slenið af sér og lögðu Snæfell í Stykkishólmi í næsta leik á eftir. Keflavík hefur svo í síðustu tveimur leikjum lagt Stjörnuna og Grindavík. Þarna mætast því tvö Suðurnesjalið með bringuna þanda og það í undanúrslitum bikarsins. Ógerningur er að spá fyrir um úrslit þessa leiks en ef strákarnir hans Sverris Þórs ætla reglulega að hleypa á sig 100 stigum og meira þá fara þeir ekkert í Höllina og þaðan af lengra. Að sama skapi verða Keflvíkingar að koma grimmari inn af bekknum, byrjunarliðið eitt og sér klárar kannski bikarinn fyrir Keflavík, mögulega, en það er hæpið að það sé uppskriftin að Íslandsmeistaratitli. Bekkurinn verður að reima skóna fastar!“ Snæfell-Keflavík kvenna: „Hólmarar hafa ekki haft erindi sem erfiði gegn Keflavík þetta tímabilið. Ég fæ ekki séð af hverju svo ætti að vera núna, það er hungur til staðar í liði Keflavíkur eftir rýra uppskeru á síðasta tímabili. Þó Snæfell sé með heimavallarréttinn þá er dýptin í liði Keflvíkinga mun meiri og það skilar þeim í Laugardalshöll. En þetta er bara einn leikur og miklu meira undir en tvö stig. Keflavík verður að vinna með breiddina í þessum leik og teygja eins vel á Snæfellsliðinu og

þær geta, fá fámennan en sterkan hóp Snæfells í hlaupaleik og ef það hefst mun Keflavík spila til úrslita.“ Pétur Guðmundsson lék bæði með Keflvíkingum og Grindvíkingum á farsælum ferli. Hann hafði það fyst á tilfinningunni þegar liðin drógust saman að Grindvíkingar væru líklegri til sigurs. Nú er hann á báðum áttum. Hann telur að sigurmöguleikar Keflvíkinga felist fyrst og fremst í því hvort Magnús Gunnarsson verði jafn heitur og á dögunum þegar liðin áttust við í Grindavík. „Heimavöllurinn spilar líka stóra rullu og það gæti hjálpað Keflvíkingum,“ segir Pétur. Grindvíkingar hafa meiri breidd í liði sínu að mati Péturs en hann telur þó að í bikarleik sem þessum þá séu þjálfarar að spila á sínum bestu mönnum. „Þorleifur Ólafsson á það til að detta í gang í svona leikjum og hann gæti komið sterkur inn á sunnudaginn“. Sem leikmaður lék Pétur marga mikilvæga bikarleiki og hann segir þá vera þá skemmtilegustu leiki sem hægt sé að komast í. Í þannig leikjum sé hugarfar og dagsform það sem skipti máli. „Menn eiga samt að mæta tilbúnir og stemmdir í svona leiki og ég tel að sú verði raunin í þessari rimmu. Þetta verður mikil skemmtun fyrir áhorfendur,“ sagði baráttujaxlinn Pétur Guðmundsson að lokum.


31

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 24. janúar 2013

Guðmundur í grænt

Royal Rangers skátastarfið byrjar aftur nk. fimmtudag kl. 17.00

Leikja- og markahæsti leikmaður Keflvíkinga yfir til Njarðvíkinga

K

nattspyrnumaðurinn Guðmundur Steinarsson, hefur tekið þá ákvörðun að segja skilið við Keflvíkinga og færa sig yfir til Njarðvíkinga í 2. deild. Guðmundur mun á næstu leiktíð leika með Njarðvíkingum í 2. deildinni ásamt því að sinna aðstoðarþjálfarastöðu liðsins. Guðmundur er bæði leikja- og markahæsti leikmaður Keflavíkur í efstu deild með 244 leiki og 81 mark. Hann lék einnig 11 leiki með Fram í úrvalsdeildinni á sínum tíma og spilaði um skeið með KA, Brönshöj í Danmörku og Vaduz frá Liechtenstein í efstu deild í Sviss. Guðmundur lék 3 A-landsleiki og 20 leiki með yngri landsliðum Íslands. „Ég tel þetta vera rétta tímapunktinn fyrir mig til þess að breyta til. Það er engin eftirsjá, mig langar að gera þetta,“ sagði Guðmundur í samtali við Víkurfréttir þegar samningar voru undirritaðir. Guðmundur segir ekki erfitt að yfirgefa æskuslóðirnar en vissulega verði skrítið að sjá liðið og fylgjast með því. Hann hefur þó engar áhyggjur af gengi þess og telur að Keflvíkingar spjari sig vel án hans. „Meðan ég get blandað saman

því að spila og öðlast reynslu í þjálfun þá er þetta kjörið tækifæri,“ segir Guðmundur sem telur að hann geti lært mikið af Gunnari Magnúsi Jónssyni þjálfara Njarðvíkinga. Það sé sjaldgæft að menn fái umsvifalaust þjálfarastöðu í efstu deild og því fagnar hann þessu tækifæri. „Menn verða að byrja einhvers staðar. Hér er allt til alls og aðstaða góð. Mér finnst þetta vera rétt skref og hlakka til að takast á við þetta verkefni.“

þennan fimmtudag lærum við að tálga spýtu. Allir krakkar 8- 10 ára velkomnir.

Hvítasunnukirkjan Hafnargötu 84

Rýmingarsala Múrbúðarinnar Fuglavík 18 Afsláttur af MÚRBÚÐARVERÐI er ávísun á gott verð Flísar, flísarestar og útlitsgallaðar flísar Rafhlöðuborvél /skrúfvél HDD 3213 18V DIY

8.990 5.840

35%

Sturtuhorn

Verkfærasett 5 hlutir

295,-

Verkfæri 30%

strós Brynjarsdóttir og Svanur Þór Mikaelsson, bæði úr Keflavík voru valin keppendur helgarinnar í taekwondo á hinu árlega fjölgreinamóti, Reykjavíkurleikunum eða International Reykjavik Games sem haldið var um sl. helgi. Þar var m.a. keppt í taekwondo en þetta er í fyrsta sinn sem taekwondo er keppnsgrein á þessum leikum. Keppendur frá 9 þjóðum voru á leikunum og þótti mótið takast vel. Keflvíkingar og Grindvíkingar voru með góð lið á mótinu og unnu til fjölda verðlauna.

MILAN sturtuhorn 90x90 cm eða 80x80 cm með botni. Vatnslás og botnventill fylgja.

Baðkör, trefjaplast og stál Sturtusett

Svanur og Ástrós keppendur Reykjavíkurleikanna Á

30%

Stálvaskar

Plastkassar

30% Rakaþolið veggljós svart ál 26W

Ryco-2006T Rafmagnsþilofn Turbo með yfirhitavari 3 stillingar 2000w

192

4.490 3.140 3.990 2.790

22.990

16.090

35% Vitra Arkitekt WC

8.990

Rafmagnsofnar

án setu

35%

Handklæði

5.840

Fylgihlutir f. baðherbergið, mikið úrval 20%

Handlaugar, mikið úrval

Kaffivél með Thermo hitakönnu 10-12 bolla, 900w

2.490

35%

1.990

1.945

35%

20.735

31.900

ZB2105 LED ljós með hleðslurafhlöðu

Malarhrífa verð frá

1.390 834

HDD1106 580W stingsög DIY

3.990 2.790

2.995

40%

899

Flísjakki með hettu

1.290 30%

30%

VITRA BAÐKÖR

5.990 4.190 30%

Verkfæri og smáhlutir, 2.390 300 vörunúmer, 1.670 tvö verð – 150 kr. og 250 kr.

40%

30%

Töfrasproti – Blandari

Sara Rún fékk flest atkvæði í Stjörnuleikinn

K

eflvíkingurinn Sara Rún Hinriksdóttir flest atkvæði í kjörinu fyrir Stjörnuleik kvenna í körfuknattleik. Hún er í byrjunarliði landsbyggðarinnar sem leika mun gegn höfuðborgarsvæðinu þann 30. janúar nk. í Keflavík. Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflavíkur mun stýra liði landsbyggðarinnar. Auk Söru eru Pálína Gunnlaugsdóttir (Keflavík) og Lele Hardy (Njarðvík) í byrjunarliðinu.

Superlight sturtuhaus með ljósi sem breytist eftir hitastigi

14.900

5.960

60%

3.960 Moon sturtuhaus

9.900

60%

Skv. staðli

EN471 og EN343

Úlpa með hettu + flíspeysu

12.990

7.990

– Afslátt eða gott verð? Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is


auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 vf.is

Fimmtudagurinn 24. janúar 2013 • 3. tölublað • 34. árgangur

Kannabisfrumskógur í íbúð

L

ögreglan á Suðurnesjum stöðvaði á föstudagskvöld kannabisræktun í íbúð í umdæminu. Gerð var húsleit í húsnæðinu að fengnum dómsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness. Ræktunin fór fram í tveimur herbergjum og þar voru nær fimmtíu plöntur, þær stærstu einn metri á hæð. Auk þessa var mikið af tólum og tækjum til ræktunar í íbúðinni,

og haldlagði lögregla þau, auk plantnanna. Málið er í rannsókn. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Eina tilboðinu hafnað

L

ítill áhugi var fyrir útboði á rekstri tjaldsvæðisins í Grindavík. Aðeins eitt tilboð barst að fjárhæð 631.000 kr á ári en sjö aðilar sóttu útboðsgögn. Bæjarráð hafnar tilboðinu og verður því reksturinn áfram í höndum Grindavíkurbæjar. Met aðsókn var á tjaldsvæðið í sumar. Gestir voru 5597 og gistinætur 6900. Var aukningin um 19% á milli ára sem er sama aukning og varð í komu ferðamanna til Íslands í sumar.

Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00 Tímapantanir í síma 426 8540

Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00 Frjáls mæting

FIMMTUDAGSVALS VALUR KETILSSON SKRIFAR

H

Frúin fimmtug

aldið af stað í sveitina. Rangárhótelið eins og vin í eyðimörkinni. Seðjandi veiðiáin rann um nágrennið og ég hugsaði til frænda minna og bræðra. Eitt augnablik. Tekið á móti okkur með kostum og kynjum. Glæsilegt herbergið umvafði elskuna og hún skaut sér út á pall til að meta aðstæður. Framundan notalegheit og dekstur. Ég tilkynnti henni að heilsunuddið yrði klukkan fimm. Ætlarðu ekki líka að fara í nudd? spurði hún dreymandi. Nei, þú átt afmæli, elskan mín, þú færð báða tímana og átt þá svo sannarlega skilið. Leit við á barnum og bað um hvítvín handa frúnni. Barþjónninn dró upp bestu flöskuna og skenkti í glas. Ég fór glaðhlakkalegur inn á herbergi númer 12 og skálaði við afmælisbarnið. Undarleg svipbrigði og óafturkræf ummæli tóku af allan vafa að þjónninn hafði rangt fyrir sér.

Þ

að er eitthvað aukabragð af þessu víni, sagði hún súr á svipinn og um leið fékk ég í magann. Það besta er auðsjáanlega ekki nógu gott! Smakkaðu bara, sagði hún ábyggileg og rétti mér glasið. Ég fæ bara nýtt, sagði ég og brosti í gegnum tárin. Þjónninn varð skömmustulegur og sturtaði óbragðinu í vaskinn. Ég hefði átt að vita betur að bjóða henni eitthvað betra,

sagði hann ábúðafullur á svipinn. Hérna færðu eðalvín sem Torres sjálfur blandaði handa frúnni sinni á afmælisdaginn. Þessi klikkar ekki og fyrirgefðu mér enn og aftur.

Þ

að voru fáir í matsalnum þegar við komum uppáklædd til afmælisveislunnar. Fólkið streymdi inn og okkur leið eins og Íslendingum í útlöndum. Ég taldi fimmtíu ferðamenn. Norðurljósin heilla, sagði Friðrik eigandi um leið og hann bauð góða kvöldið og var þakklátur að finna landa sína í mat. Þetta eru meira og minna allt saman Bretar þessa stundina, sem bíða eftir því að sjá himinn loga. Verst hvað það er mikill dumbungur þessa stundina en ég vek þá í nótt ef skýjafarið breytist eitthvað.

F

orrétturinn var hreint afbragð. Haf og hagi smakkaðist eins og best verður á kosið. Þjónustan í hæsta gæðaflokki. Kertaljós og kósý. Eftirrétturinn inni á herbergi. Setið og spjallað um heima og geima. Mín alveg í essinu sínu. Björt og falleg. Við sváfum til hálf ellefu. Misstum af morgunmatnum, sem átti víst að vera betri en kvöldverðurinn. Ró og friður í sveitinni. Árniðurinn og angurværðin sefaði sálir okkar beggja. Allir mínir afmælisdagar verða hér eftir fimmtugsafmælisdagar, sagði hún glaðbeitt og brosti inn í framtíðina.

Instagram: #vikurfrettir

VILT ÞÚ STARFA... ...Í EINU AF UNDRUM VERALDAR?

Bláa Lónið leitar að orkumiklum og jákvæðum einstaklingum í fjölbreytt sumarstörf. Kynntu þér störfin sem í boði eru á heimasíðu okkar www.bluelagoon.is/atvinna. Nánari upplýsingar veitir Rakel Heiðmarsdóttir, mannauðsstjóri, í netfanginu rakel@bluelagoon.is eða í síma 420 8804. Bláa Lónið er tóbakslaus vinnustaður og þar starfa að jafnaði 250 starfsmenn. Bláa Lónið hefur margsinnis verið valinn einn besti spa staðurinn á heimsvísu og fékk nýverið nafnbótina sem eitt af 25 undrum veraldar að mati National Geographic.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.