Simafelagid tolvutek a5 fjorblodungur 006 med bleed

Page 1

Verið vel tengd

Símafélagið er alhliða fjarskiptafyrirtæki sem veitir fyrsta flokks fjarskiptaþjónustu. Sérstaða þess felst í þeirra eigin fjarskiptakerfum og milllilandasamböndum, mikilli tækniþekkingu og persónulegri þjónustu. Þú ert því vel tengd/ur með Símafélaginu.

Tölvutek kynnir samstarf sem ætlað er að styðja við nýju farsímadeildina og tryggja að viðskiptavinir Tölvuteks séu ekki aðeins með bestu fáanlegan tölvu- net- og símabúnað, heldur líka með bestu mögulegu fjarskiptatengingar og þjónustu.


Farsímaáskrift Farsímaþjónusta Símafélagsins byggir á einu öflugasta 4G dreifikerfi landsins. Velja má á milli hefðbundinnar farsímaþjónustu með tali, SMS, Interneti og rafrænum skilríkjum, eða gagnakorts sem er eingöngu með Internetþjónustu. Þú flytur númerið þitt til Símafélagsins eða velur nýtt númer frá Símafélaginu..

Hagsýnn

Ótakmarkaður

4G Internet

Hagstæður kostur fyrir þá sem hringja lítið. Rafræn skilríki innifalin. Greitt er fyrir öll hringd símtöl.

Farsími með ótakmörkuðum símtölum í alla heimasíma og alla farsíma á Íslandi, óháð kerfi. Rafræn skilríki innifalin.

Farsími eingöngu með Internetþjónustu. Hentar vel fyrir 4G beina, spjaldtölvur, myndavélar, öryggiskerfi og önnur tæki sem þurfa aðgang að Interneti. Rafræn skilríki ekki möguleg.

Gagnapakkinn 5GB er vinsælastur og heppilegt að hefja áskrift með hann, að minnsta kosti fyrsta mánuðinn - sem er jú frír!


Netþjónusta Ljósleiðari

Ljósleiðarinn er hágæðasamband fyrir heimili sem uppfyllir kröfur nútíma heimilisins. Sambandið býður upp á Internet, sjónvarp og heimasíma í hámarks gæðum, núna og til framtíðar. Hraði getur verið allt að 1000 Mb/s (1 Gb/s) upp og niður.

Ljósnet

Ljósnet (VDSL) er háhraðasamband fyrir heimili. Sambandið býður upp á Internet, sjónvarp og heimasíma í hámarks gæðum. Hraði getur verið allt að 100 Mb/s upp og niður.

ADSL

ADSL er netsamband fyrir heimili þar sem aðrir valkostir eru ekki í boði. Sambandið býður upp á Internet, sjónvarpsþjónustu (1 viðtæki) og heimasíma. Hraði getur verið allt að 12 Mb/s niður og 1,2 Mb/s upp.

Hagsýnn (50GB)

Skynsamur (250GB)

Ótakmarkaður

Fyrir þá sem nota netið aðallega fyrir tölvupóst og að vafra. Umfram gagnamagn samkvæmt verðskrá.

Fyrir þá sem nota netið mikið (jafnvel með mörg nettengd tæki) og streyma tónlist og sjónvarpi yfir netið (t.d. Spotify eða Netflix). Umfram gagnamagn samkvæmt verðskrá.

Fyrir þá sem nota mjög mikið gagnamagn.

Netþjónusta er háð tengimöguleikum hvers heimilsfangs. Eigendur grunntenginga innheimta aðgangsgjald, sem er mismunandi. Þú velur þann pakka sem hentar þér, en verði notkun meiri sendum við þér tilkynningu sjálfvirkt og bjóðum þér að fara í hagstæðari pakka. Athugið að eingöngu er talin erlend gagnaumferð til notanda (niðurhal). Ótakmarkað upphal og öll innlend umferð er innifalin.


Nýi heimasíminn Nýi heimasíminn er tengdur við beini og því óháður gamla koparlínu kerfinu (sem verður lagt af á næstu árum). Hann er einnig ódýrari en gamli heimasíminn. Heimasími er góður valkostur fyrir öll heimili. Velja má á milli þriggja mismunandi pakka eftir þörfum. Einnig er hægt að bæta við hagstæðum pökkum fyrir símtöl til útlanda. Verð á símtölum er lægra úr heimasíma en úr farsíma, sérstaklega til útlanda. Þú velur þann pakka sem hentar þér. Nota má öll venjuleg símtæki með nýja heimasímanum.

Hagsýnn

Skynsamur

Ótakmarkaður

Hagstæður kostur fyrir þá sem hringja lítið. Greitt er fyrir öll hringd símtöl.

Skynsamlegur kostur fyrir þá sem hringja mikið í aðra heimasíma. Ótakmörkuð símtöl í alla íslenska heimasíma (óháð kerfi).

Heimasími með ótakmörkuðum símtölum í alla heimasíma og alla farsíma á Íslandi (óháð kerfi).

Athugið að símtöl í þjónustuveitur og útlandasímtöl eru samkvæmt gjaldskrá. Forsenda Nýja heimasímans er nettenging frá Símafélaginu.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.